Morgunblaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2012 ✝ Unnur Júl-íusdóttir fædd- ist á Kirkjubæj- arklaustri 3. september 1930. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð 18. jan- úar 2012. Foreldrar hennar voru Júlíus Lárusson, f. 6. júlí 1905, d. 18. feb. 1993 og Anna Krist- jánsdóttir, f. 24. okt. 1904, d. 21. sept. 1983. Unnur giftist R. Thomas Wen- ger, f. 18. okt. 1931, d. 2004. Þau skildu. Sonur þeirra er Eiríkur Marteinn Tómasson, f. 2. sept. 1958. Kona hans er Kristín Sig- urlaug Brandsdóttir, f. 22. ágúst 1964. Sonur þeirra er Ísak Wen- ger, f. 13. des. 2004. Dætur Eiríks eru Anna Júlía, f. 15. ágúst 1983, og Harpa María, f. 28. sept. 1985. Móðir þeirra er Hulda Svav- arsdóttir, f. 29. jan. 1958. Börn Önnu Júlíu eru Kristófer Marel, f. 10. maí 2001, og Erika Lind, f. 24. des. 2008. Unnur ólst upp í foreldra- húsum á Kirkjubæjarklaustri en stundaði nám við Kvennaskólann í Reykjavík. Um tvítugt flutti hún í Kópavog ásamt for- eldrum sínum sem byggðu þar hús við Álfhólsveg. Eftir að Unnur gekk í hjóna- band flutti hún til New York þar sem hún bjó og starfaði í nokkur ár en eftir skilnað flutti hún aftur í Kópavog og bjó þar ætíð síðan. Unnur starfaði hjá embætti bæjarfógetans í Kópa- vogi í 30 ár og sá þar lengi um málefni eldri borgara. Hagur þeirra varð henni mjög hugleik- inn. Unnur var meðal stofnfélaga Soroptimistaklúbbs Kópavogs. Hún starfaði ötullega í þeim fé- lagsskap meðan heilsa leyfði þar sem málefni aldraðra og bygging hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíð- ar var eitt helsta baráttumálið. Fyrir 20 árum veiktist Unnur mjög alvarlega. Við það skertust lífsgæði hennar mikið. Hún dvaldi á sambýli aldraðra í Kópavogi um margra ára skeið en síðustu árin dvaldi hún á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Unnur verður jarðsungin frá Lindakirkju, 27. janúar 2012 kl. 11. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag, sú er við kveðjum í dag hinsta sinni leit dagsins ljós 1930 í Skaftafellssýslu, á því herrans ári þjónaði ungur prestur í sókninni sem jós dömuna vatni og skírði hana Unni, sá var Sigurbjörn Ein- arsson, það leyndi sér aldrei hversu stolt hún var af uppruna sínum og einnig því að biskupinn okkar góði hefði í þá tíð ritað nafn hennar í kirkjubækurnar. Unni var ég svo lánsöm að kynnast við vinnu mína í Sambýl- inu Gullsmára. Unnur hafði á sín- um tíma gengist undir hjartaað- gerð í Lundúnaborg með þeim sorglegu afleiðingum að hún átti ekki afturkvæmt til síns fyrra lífs og starfa, æðrulaus tók hún hlut- skipti sínu og var kannski sú manneskja sem kenndi mér manna best að lífinu þarf stundum að taka með festu og af æðruleysi. Hún sagði okkur oft af uppruna sínum, frá íslenska búningnum sem varð hennar, frá Elínu ömmu sinni, því hún var sú sem hafði sama vöxt og passaði hann því eins og sniðinn. Unnur lét það líka flakka að hún væri gamall veður- fregnalesari, vissulega í fyrstu hafi það verið kvíðvænlegt að lesa „gengur á með stinningskalda lægir ekki í dag“ en það hafi vanist fljótt, oft síðan hef ég hugsað til Unnar þegar ég hlusta á veður- fréttir á öldum ljósvakans. Stolt var hún af sjálfri sér þeg- ar hún flutti heim til Íslands með einkasoninn og gullmolann sinn í burðarúmi, eftir það bjuggu þau hjá foreldrum hennar, ömmu og afa Eiríks. Árin liðu og hún starf- aði hjá bæjarfógetanum í Kópa- vogi sem tryggingafulltrúi en fjöl- skyldan bjó alla tíð í Kópavogi. Hugurinn var ósjaldan heima í Hrauntungu hjá Eiríki og fjöl- skyldu eða í sumarbústaðnum á Klaustri. Í sambýlinu tók Unnur að sér eins og hún gjarnan orðaði það embætti ruslamálaráðherra, en því hafði hún gaman af að slá fram að minna mætti það ekki vera því afabróðir hennar Jónas frá Hriflu hefði jú haft ráðherra- titil. Þegar ég vitjaði hennar í Sunnuhlíð og spurði til vegar, heyrðist frá einu herberginu „Unnur Júlíusdóttir er hér“ þegar ég kom í gættina sagði hún „þær duga vel þessar bresku plastæð- ar“. Þarna voru þær Áróra Helga- dóttir orðnar herbergisfélagar, en þær voru sessunautar við mat- borðið í Gullsmára. Við fæðumst öll með feigðaról um hálsinn því dauðinn er það sem bíður og eng- inn getur umflúið. Dauðinn var eitt af því sem Unnur færði í tal við undirritaða í bítið dag einn, er ég aðstoðaði hana. Fullviss um að hún færi á undan mér, á gaman- saman máta færðum við Gullna hliðið í umræðuna, þarna var ákveðið að sú sem á undan færi yrði svo hugulsöm að standa við hlið Péturs og grípa sálarskjóðu þeirrar síðari, nú er ljóst hvor okkar mun efna samninginn. Að leiðarlokum langar mig að grípa til þess orðatiltækis sem elskuleg Unnur Júlíusdóttir notaði gjarnan þegar við starfskonur á sambýlinu lukum við vaktina: „See You La- ter, Alligator“ eða einfaldlega sæl að sinni. Blessuð sé minning Unnar Júl- íusdóttur. Jóhanna B. Magnúsdóttir. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Soroptimistaklúbbur Kópa- vogs var stofnaður 4. júní 1975 og var Unnur sem við kveðjum í dag ein af 19 stofnfélögum. Undirbún- ingur fyrir stofnfundinn hafði þá staðið í rúmt ár, og voru strax á fyrstu fundunum mynduð sterk vináttusambönd og rætt fram og til baka hvernig við gætum nýtt krafta okkar til aðstoðar þeim sem mest þyrftu á því að halda í kaupstaðnum okkar. Markmið samtakanna er að vinna að vin- áttu og skilningi, jafnrétti, fram- förum og friði öllum til handa og veita þjónustu í heimabyggð, heimalandi og á alþjóðavettvangi. Unni var ákaflega annt um að við tækjum að okkur að vinna að málefnum aldraðra en hún vann sem fulltrúi hjá umboði Trygg- ingastofnunar ríkisins sem heyrði undir bæjarfógetann í Kópavogi og vissi betur en nokkur annar hvar helst var þörf fyrir aðstoð. Hún stóð fyrir því að við komum okkur upp spjaldskrá yfir alla ellilífeyrisþega í Kópavogi sem hjálpaði okkur að velja úr þá sem bjuggu við mesta einsemd. Tvær bæjarhjúkrunarkonur í klúbbn- um aðstoðuðu við að koma upp spjaldskránni. Þessi spjaldskrá gerði okkur kleift að gleðja marga aldraða Kópavogsbúa fyr- ir jól og páska með því að færa þeim blómaskreytingar og gjafir. Ekkert sjúkrahús eða hjúkr- unarheimili var til í Kópavogi og var fyrsta stóra verkefni okkar rekstur á litlu hjúkrunarheimili, sem við starfræktum í 6 vikur sumarið 1977 í húsnæði sem við fengum að láni og var það rekið í samvinnu við Félagsmálastofnun Kópavogs. Þarna sannfærðumst við um að stærsta vandamálið í bæjarfélagi okkar væri að hjálpa sjúku öldruðu fólki eins og Unnur hafði bent á. Í árslok 1977 leituðum við til annarra félagasamtaka í bænum með það í huga að sameina krafta félaganna með það að markmiði að vinna saman að einhverri úr- lausn. 17. mars 1979 var formlega stofnuð sjálfseignarstofnun með þátttöku 9 klúbba og félagasam- taka í Kópavogi um byggingu hjúkrunarheimilis fyrir aldraða í bænum. Hjúkrunarheimili með 38 hjúkrunarrýmum tók til starfa 20. maí 1982 og fékk nafnið „Sunnuhlíð“. Unnur sagði alltaf að ef hún gæti á einhvern hátt stuðlað að því að bæta líðan gamla fólksins síns, þá væri hún ávallt tilbúin. Hún stóð svo sann- arlega við það á meðan heilsan leyfði. Ekki vissi hún þá að hún ætti eftir að eyða síðustu æviár- um sínum í Sunnuhlíð, heimilinu sem hún átti svo stóran þátt í að reisa. Fyrir 20 árum veiktist Unnur alvarlega og náði aldrei heilsu eft- ir það. Hún naut þess að koma á klúbbfundi og fylgjast með því sem þar fór fram og hitta sínar gömlu vinkonur þó að hún gæti ekki lengur tekið þátt í starfinu. Við erum þakklátar fyrir að hafa þekkt Unni og notið krafta hennar og félagsskapar í áratugi. Eiríki og fjölskyldu hans sendum við innilegar samúðarkveðjur og biðjum algóðan Guð að styrkja þau og blessa. Fyrir hönd Soroptimista- klúbbs Kópavogs, Hildur og Jóhanna. Unnur Júlíusdóttir ✝ Sigurður ÁrniJónsson fæddist á Syðri-Húsabakka í Skagafirði 21. ágúst 1921. Hann lést á Heilbrigðisstofn- uninni á Sauð- árkróki 17. janúar 2012. Foreldrar hans voru Emilía Kristín Sigurð- ardóttir, f. á Mar- bæli á Langholti 29.4. 1880, d. 7.5. 1971, og Jón Kristinn Jónsson, f. á Skinþúfu, nú Vallanesi í Vall- hólmi 28.9. 1888, d. 6.9. 1966. Systir Sigurðar var Lilja Jóns- dóttir f. á Syðri-Húsabakka 3.4. 1924, d. 1.7. 2007. Barnsmóðir Sigurðar var Jón- ína Guðný Jónsdóttir, f. í Skrapa- tungu í Laxárdal 6.10. 1908 , d. 16.12. 1980. Dóttir þeirra er Jón- ína Kristín Sigurðardóttir, f. á Syðri-Húsabakka 28.1. 1946, gift Karel Sigurjónssyni, f. 10.3. 1957. Þau eru búsett á Syðri- Húsabakka. Börn þeirra eru: 1) Þórey Sigurjóna, f. 25.8. 1975, maki Gísli Óskar Konráðsson, f. 6.11. 1971. Börn þeirra eru Kon- ráð Karel, f. 7.2. 2000, og Ásta Lilja, f. 16.7. 2003. Þau eru búsett stundum sínum. Sigurður var áhugamaður um veiðiskap. Neta- veiði í Héraðsvötnum var mikil í þá daga sem og skotveiði í grennd við Vötnin. Færði það heimilinu mikla björg í bú. Barnsmóðir Sigurðar, Guðný, kom að Húsabakka í vinnu- mennsku. Þau Guðný og Sig- urður giftust ekki og voru ekki í sambúð. Þeirra sameiginlega áhugamál var að ala upp dóttur sína og deildu þau því heimili allt til andláts Guðnýjar. Með þeim bjó einnig Lilja, systir Sigurðar, alla tíð. Upp úr 1980 fóru þau systkinin að sækja vinnu til Sauð- árkróks. Fyrst í Sláturhúsi Kaup- félags Skagfirðinga en lengst af störfuðu þau í Sútunarverksmiðj- unni Loðskinn. Dóttir hans og tengdasonur tóku þá alfarið við búinu. Árið 1982 keyptu þau systkinin Sigurður og Lilja, efri hæð hússins á Lindargötu 3. Síð- an árið 1988 keyptu þau Freyju- götu 46 og var það heimili þeirra til ársins 2006, er heilsu þeirra þraut. Þau fluttu þá bæði á deild 2 á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki. Útför Sigurðar fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag, 27. jan- úar 2012, og hefst athöfnin kl. 11. á Sauðárkróki. 2) Sigurður Árni, f. 20.8. 1977, maki Hólmfríður Jóns- dóttir, f. 20.8. 1980. Sonur þeirra er Grétar Þór, f. 23.1. 2003. Þau eru búsett á Akureyri. 3) Jón Guðni, f. 16.10. 1981, maki Rakel Sturlu- dóttir, f. 18.10. 1981. Dætur þeirra eru Kristín Bára, f. 11.11. 2004 og Fanney Klara, f. 5.4. 2009. Þau eru búsett á Sauð- árkróki. 4) Gunnar Karel, f. 13.5. 1988. Býr í foreldrahúsum. Sigurður var frumburður for- eldra sinna, sem þá voru nýflutt að Syðri-Húsabakka. Hann ólst upp í foreldrahúsum ásamt systur sinni Lilju sem var þremur árum yngri. Sigurður var alla tíð mjög handgenginn föður sínum og unnu þeir flest verk á búinu sem einn maður væri. Báðir voru handlagnir og bjargaði það húsa- kosti yfir fólk og fénað á bænum á þeim tíma. Á unglingsárum lærði Sigurður að spila á orgel hjá Páli Erlendssyni á Þrastarstöðum. Var þá keypt orgel og spiluðu feðgarnir mörg kvöld í frí- Elsku afi. Manni finnst þessi stund aldrei tímabær en samt er þetta allt partur af lífinu. En það er huggun harmi gegn að þú varst veggbratt- ur allt til enda. Þú lifðir tímana tvenna og margt var öðruvísi og miklu erfiðara viðfangs en við þekkjum sem yngri erum. Þó að Héraðsvötnin séu á fögrum sum- ardegi prýði Skagafjarðar, voru þau líka stór þröskuldur. Engin brú var þá yfir Glaumbæjarkvísl og enginn vegur í Húsabakka. All- ir aðdrættir fóru því fram yfir Vötnin sem og að fara með mjólk- ina yfir þau oft í viku, annaðhvort á pramma eða draga hana yfir á sleða á ís. Aldrei kom æðruorð yf- ir þessum óþjálu búskaparhátt- um. Afi unni þessum stað og hann útheimti þetta bara. Einn var sá tími sem tók öllu öðru fram í huga afa, það var heyskapurinn. Að slá niður hávaxna störina í Húsa- bakkaflóa með orfi og ljá, var hans íþrótt. Aldrei fannst honum heyin vera nógu mikil. Fram á efri ár spurði hann pabba gjarnan „held- urðu að þú hafir nú nóg hey, góði?“ Við minnumst þín sem hafsjós fróðleiks, sama hvað maður var að vandræðast með. Aldrei kom maður að tómum kofunum, þó að barnshuginn hafi ekki meðtekið allt þá kom það seinna. Þú vildir ekki sjá illa farið með nokkurn hlut og allt var gert af natni og vandvirkni. Við eldri bræðurnir munum vel stundir með þér við ýmsa smíða- og girðingavinnu, þar sem þú gafst mikið af þér. Öll munum við eftir þér í heyskapn- um, sem þú lifðir fyrir að gengi vel. Þessar stundir verða alltaf geymdar. Við eldri systkinin tvö, munum eftir því þegar þið Lilja (Gagga) bjugguð með okkur í sveitinni. Svo síðar þegar þið fluttuð á Krókinn þá voruð þið tíð- ir gestir á Bakkanum. Alltaf var það okkur tilhlökkunarefni þegar þið komuð í sveitina. Í þau fáu skipti sem mamma og pabbi brugðu sér á ball voruð þið heima að líta eftir okkur. Við þá orðin fjögur grislingarnir. Þá var oft brugðið á leik áður en farið var í háttinn. Ekki tók síðra við þegar við fórum í Fjölbraut á Króknum og við héldum til hjá ykkur Göggu. Þá var stjanað við okkur á alla lund. Alltaf var heitt á könn- unni þegar við litum inn á Freyju- götunni og þið systkinin þotin af stað með það sama að taka til kök- ur og kex. Einnig er ánægjulegt að hugsa til þess hversu vel þú tókst alltaf á móti okkur þegar við heimsóttum þig á ellideildina. Hvað þér leið vel þar og varst ánægður. Alltaf var hugurinn þó bundinn við fjölskylduna og fá fréttir af öllum, að allir væru nú frískir og allt gengi vel. Það skipti þig mestu. Einnig að fá fréttir af Bakkanum. Hvernig búskapurinn gengi, hvernig heyjaðist, hvort Vötnin væru komin yfir bakka sína og þar fram eftir götunum, enda varstu mikið náttúrubarn. Í dag kveðjum við þig, elsku afi, með söknuði en trúum því að þú sért nú á betri stað. Við þökkum fyrir ástúð alla, indæl minning lifir kær. Nú mátt þú vina höfði halla, við herrans brjóst er hvíldin vær. Í sölum himins sólin skín við sendum kveðju upp til þín. (H.J.) Þórey, Sigurður (Iddi), Jón og Gunnar Karelsbörn og makar, Gísli, Hólmfríður (Hóffý) og Rakel. Sigurður Árni Jónsson HINSTA KVEÐJA Elsku langafi, nú líður þér betur hjá Guði. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Við söknum þín. Konráð Karel, Ásta Lilja, Grétar Þór, Kristín Bára og Fann- ey Klara. Kæri bróðir. Mikið tók það mig sárt að lesa að þú værir farinn og en sárara var það að enginn skyldi láta mig vita um þín veikindi. Þótt samband okkar hafi ekki verið mikið varstu bróðir minn og mér hefur alltaf þótt vænt um þig. Við fengum ekki mörg tækifæri til að hittast og kynnast en þau fáu sem við fengum sem börn lifa enn í minningunni. Þau skipti sem ég fékk leyfi til að koma í vinnuna til pabba hlakk- aði ég alltaf til og bað Guð um að þú værir þar svo við gætum talað og leikið og toppurinn var þegar ég fékk að fara með ykkur heim til Óla frænda, sá dagur gleymist seint. Valdimar Viðar Tómasson ✝ Valdimar Við-ar Tómasson fæddist í Reykjavík 18. júní 1970. Hann lést á krabbameins- deild Landspítalans við Hringbraut 7. janúar 2012. Viðar var jarð- sunginn frá Foss- vogskirkju 20. jan- úar 2012. Síðan uxum við og leiðir okkar skildu, sem ekki er skrítið þegar börnum er gert erfitt fyrir að hittast og kynnast, en alla tíð hef ég hugsað mikið til þín og oft tekið upp símann og langað að hringja í þig, en hræðslan við það óþekkta tók alltaf yfirhöndina. Mikið sé ég eftir því í dag því að tækifærið er farið. Undanfarin ár höfum við hist á götu úti og þá notuðum við tæki- færið og spjölluðum, þessi augna- blik eru mér dýrmæt. Við ráðum litlu er við fæðumst í þennan heim hvernig hlutskipti okkar í lífinu verður en trúðu mér, þú ert og verður alltaf bróðir minn sem mér þótti mjög vænt um og hugsaði oft til með stolti. Við fengum ekki tækifæri í þessu lífi en ég er viss um að tæki- færið kemur í því næsta. Ég sendi konu þinni og börnum mínar dýpstu samúðarkveðjur og bið engla guðs að vaka yfir þeim. Hvíldu í friði kæri bróðir. Þín systir, Karen Jósefs Tómasdóttir. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞORSTEINN S. ÓLAFSSON frá Vopnafirði, Hraunbæ 76, lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 20. janúar. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn 3. febrúar kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á hjúkrunarheimilið Eir. Ólafur Jónas Þorsteinsson, Hanna Dröfn Gunnarsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, Guðrún Guðmundsdóttir og barnabörn. ✝ Elskulegur bróðir okkar, GUÐJÓN ÁRNASON, Erluási 68, Hafnarfirði, frá Bern, Ólafsvík, andaðist á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 11. janúar. Útförin fór fram í kyrrþey frá Hafnarfjarðarkirkju 20. janúar. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Sambýlið Erluás 68, Hafnarfirði. Viktoría Þóra Árnadóttir, Sigurbjörg Árnadóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.