Morgunblaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2012
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Áhættuleikarinn Vilhjálm-ur Þór Gunnarsson er núbúsettur í Kína í annaðsinn. Hann dvaldi þar um
tíma fyrir nokkrum árum og tók þátt
í sýningu með áhættuatriðum en í
dag stundar hann nám í markaðs-
fræði þar í landi. Hann starfar einnig
í útflutningsdeild kínversks bílafram-
leiðanda.
Heljarinnar sýning
„Það er ekki fullt starf heima að
vera áhættuleikari þó það komi tarn-
ir. En það minnkaði nú eins og allt á
krepputíma. Ég var í Kína í fimm
mánuði í fullu starfi og kom þá fram í
„live show“ í skemmtigarði. En
heima á Íslandi stekk ég inn í ým-
iskonar verkefni bíómyndir, sjón-
varpsþætti og auglýsingar. Þá er
mikið um að maður sé þá að vinna
fyrir erlenda aðila heima fyrir. Ég
tek enn að mér verkefni með náminu
og kem þá heim til Íslands. Nú var ég
líka að gera heimasíðu til að vekja at-
hygli skemmtanahaldara á því að það
er hægt að gera heljarinnar sýningu
og skemmtun með svona. Hver vill
ekki horfa á einhvern kveikja í sér?“
segir Vilhjálmur Þór í léttum dúr.
Ráðnir til að enginn slasist
Áhættuleikarar á Íslandi eru fá-
ir og Vilhjálmur Þór tekur undir það
að maður verði að vera óhræddur.
Alla jafna sé hann í raun allt of
yfirvegaður.
„Fólk heldur stundum að ég sé
varla með lífsmarki því ég er svo ró-
legur í fasi. En í þessu er eiginlega
Á enn hættulegasta
áhættuatriðið eftir
Vilhjálmur Þór Gunnarsson vílar ekki fyrir sér að kveikja í sér eða stökkva 15
metra ofan af palli og lenda á dýnu. Vilhjálmur Þór er lærður áhættuleikari og
hefur starfað sem slíkur í nokkur ár en áhættuleik lærði hann 17 ára gamall í
Flórída. Vilhjálmur Þór nemur nú markaðsfræði í Kína en hefur síður en svo lagt
áhættuatriðin á hilluna og áætlar meðal annars að fara í svokallað „base jump“.
Áhætta Við gerð kvikmyndarinnar Reykjavik Whale Watching Massacre.
Fljúgandi Æfing í Flórída þar sem Vilhjálmur Þór lærði áhættuleik.
Það er aldrei nóg af ást og gleði í
þessu lífi og því er um að gera að
gauka skemmtilegum gjöfum að
þeim sem maður elskar, til að gleðja í
hversdagslífinu. Á vefsíðunni urban-
outfitters.co.uk er til dæmis sér-
stakur linkur sem kallast Valentines
og þar er gríðarlegt úrval hverskonar
ástargjafa bæði handa honum og
henni. Ekki slæmt að drífa sig í að
panta fyrir ástardaginn mikla sem er
framundan og gleðja sinn heittelsk-
aða með ástarrottu, eða bók með
hugmyndum að stellingum í ástar-
leikjum, nú eða hjartalaga formi til að
steikja egg og færa í rúmið með öðru
góðgæti. Þarna má meira að segja
kaupa frosk sem breytist í prins við
það eitt að fara í vatn. Engin kona
fúlsar við slíkum gersemum. Fyrir þá
sem eru meira fyrir hefðbundnar
gjafir er lík fullt af undirfötum, skart-
gripum og öðru fallegu.
Vefsíðan www.urbanoutfitters.co.uk
Krútt Hjörtum skreyttar rottur til að gefa ástinni sinni á góðum degi.
Ástarrottur og fleira flott
Í dag hefst frábær frönsk kvik-
myndahátíð og um að gera að reyna
að sjá sem flestar af þeim tíu gæða-
myndum sem þar verður boðið upp á.
Opnunarmyndin er engin önnur en
Listamaðurinn (The Artist) sem er
dramatísk gamanmynd og hefur hún
heldur betur slegið í gegn, þó hún sé
bæði þögul og svarthvít. Hún hefur
sópað að sér verðlaunatilnefningum
og margir spá henni Óskars-
verðlaunum sem besta myndin. Hún
er víst gargandi snilld, segja þeir sem
hafa séð hana. Allar hinar myndirnar
á hátíðinni eru vísast líka frábærar,
kíkið á midi.is og kynnið ykkur þær.
Endilega …
… tékkið á kvik-
myndahátíð
Ást Þau tvö takast á í The Artist.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Ég elska ferðalög. Það verður bara að hafaþað þótt ég hljómi eins og andlaus fegurð-ardrottning, því þannig er það, ferðalög erumeðal minna helstu áhugamála. (Reyndar
væri ég alveg til í frið á jörð líka ef út í það er farið.
Þá gæti ég líka ferðast til fleiri staða án þess að hafa
áhyggjur af öryggi mínu.)
Allavega. Ég elska að ferðast og á þessum tíma árs
herja dagdraumar um framandi slóðir oft á mig af
miklu offorsi. Ég er auðvitað ekki ein um þetta. Jarð-
arbúar fóru í 980 milljón ferðalög á árinu 2011, svo
augljóslega eru fleiri en ég sem vita ekkert betra en að
eyða peningum, tíma og fyrirhöfn í að fara á staði sem
væri svo sem tæknilega séð hægt að sjá á mynd.
Það sem ég elska við ferðalög, fyrir utan þá einföldu
staðreynd að þau svala þorstanum eftir að sjá og heyra
eitthvað nýtt, er spennufiðringurinn sem fylgir því.
Það skiptir engu máli hvort ferðin liggur um fáfarnar
slóðir á fjöllum eða til vinsælustu áfangastaða heims í
stórum menningarborgum, svo lengi sem það eru
framandi slóðir fyrir mér líður mér eins og
landkönnuði að uppgötva eitthvað nýtt.
Ég elska frelsistilfinninguna sem hel-
tekur mig yfirleitt um leið og flugvélin
tekur á loft og ég sé Íslandsstrendur
hverfa mér. Það er frelsandi að vera á
ókunnugum stað og vera ekki bundinn
neinni dagskrá nema þeirri sem ég set
mér sjálf. Ferðalög frelsa mann líka und-
an rútínunni og verða þannig til þess
að maður hugsar öðru vísi og um
aðra hluti en í hversdagslífinu.
Ég elska áskorunina. Það
reynir stundum á að vera á
framandi slóðum þar sem ein-
földustu hlutir, eins og að
finna mat eða klósett eða
spyrja átta, verða áskorun.
Þá ríður á að geta haft
húmor fyrir aðstæðum og
haldið jafnaðargeði, hvort tveggja eiginleikar sem hollt
er að þjálfa.
Ég elska hvernig ferðalög dýpka skilning manns og
tengja mann við fólk í fjarlægum heimshlutum. Maður
sér með eigin augum hvað margt er líkt en líka margt
ólíkt. Eftir að hafa ferðast til lands vekja fréttir þaðan
meiri athygli mína en áður, ég læt mig það frekar
varða hvernig almenningi farnast þar sem ég hef sjálf
gengið um göturnar.
Ég elska líka að hitta nýtt fólk á ferðalögum, jafnvel
þótt það séu yfirleitt stutt kynni. Maður fyllist trú á
mannkyninu við að finna að víðast hvar sem leiðir
manns liggja er að finna gott, hjálpsamt og skemmti-
legt fólk. Svo einfalt er það.
Ég elska að ná áttum. Fyrstu augnablikin í
nýju landi þar sem tungumálið er óskiljanlegt,
verðskynjunin brengluð og staðhættir ókunnir
geta verið hálfgert adrenalínkikk. Þá tekur
við verkefnið að átta sig á umhverfinu, finna
út hvernig maður kemst frá A til B, finna
mat, svefnstað, hætta að líta út eins og áttavillt
og auðveld bráð. Þegar þetta tekst og maður
nær stjórn á aðstæðum líður manni eins
og ekkert í heiminum geti stöðvað
mann lengur. Það er ótrúlegt hversu
fljótt framandi staður verður kunn-
uglegur.
Ég elska hvernig einmitt sú
staðreynd sýnir manni að þótt
heima sé best þá gæti „heima“
verið nánast hvar sem er …
»Þegar þetta tekst og maður nær stjórná aðstæðum líður manni eins og ekk-
ert í heiminum geti stöðvað mann lengur
HeimurUnu
Una Sighvatsdóttir
Tilkynning um framboðsfrest
til stjórnarkjörs
Samkvæmt 32. gr. laga Félags íslenskra rafvirkja
skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla um kjör
stjórnar og trúnaðarráðs.
Með hliðsjón að framansögðu tilkynnist hér með að
framboðsfrestur hefur verið ákveðinn til kl. 12.00
þriðjudaginn 28. febrúar 2012 og ber að skila
tillögum ásamt meðmælendum fyrir þann tíma á
skrifstofu félagsins.
Hverjum framboðslista skulu fylgja skrifleg
meðmæli minnst 179 fullgildra félagsmanna
Reykjavík 27. janúar 2012.
Stjórn Félags íslenskra rafvirkja