Morgunblaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2012 ✝ Björn H.Tryggvason var fæddur á Hólmavík 3. ágúst 1949. Hann lést á gjörgæslu- deild Landspítalans við Hringbraut 18. janúar 2012. Foreldrar Björns eru Tryggvi Björns- son, f. 1. júní 1927 og Margrét Guðbjörns- dóttir, f. 30. apríl 1928. Systkini Björns eru: Bryn- dís, f. 24 maí 1953, Guðbjörn, f. 26. janúar 1958, og Tryggvi Grétar, f. 23. maí 1970. Eiginkona Björns er Helga Bjarnadóttir, f. 10. nóvember Guðrún Hallfríður, f. 20. júní 1976. 3) Elínborg, f. 8. ágúst 1984, í sambúð með Sturlu Magnússyni. Börn þeirra eru: a) Viktor, f. 2010, b) Marinó, f. 2011. Björn var í sveit á Melum í Ár- neshreppi hjá hjónunum Ragn- heiði Jónsdóttur og Guðmundi Guðmundssyni um árabil. Björn flutti ásamt fjölskyldu sinni á Akranes árið 1958 frá Hólmavík þar sem hann kynntist eftirlifandi eiginkonu sinni og bjuggu þau alla tíð á Kirkjubraut 17. Björn var lærður húsasmíða- meistari, en lengstum starfaði hann á Akraborginni. Eftir síð- ustu ferð hennar árið 1998 hóf hann störf hjá Speli en þar starf- aði hann í stuttan tíma. Hann starfaði í hjáverkum sem tjóna- skoðunarmaður hjá Vátrygginga- félag Íslands hf. frá árinu 1990, en kom að fullu til starfa hjá félaginu sem þjónustufulltrúi árið 1999 og sinnti því starfi til æviloka. Björn var félagsmaður í Oddfellow stúk- unni nr. 8 Egill á Akranesi frá árinu 1974 og starfaði hann mikið í reglunni. Björn var dyggur stuðningsmaður knattspyrnu- félagsins ÍA og öflugur liðsmaður og bóngóður þegar hann var beð- inn um viðvik fyrir knattspyrnu- félagið. Margan greiðann gerði hann félaginu þó svo að hann væri ekki að gera mikið úr því eða að ætlast til sérstakra þakka fyrir það. Akstur með leikmenn, lið- sinni í tryggingamálum, uppsetn- ing auglýsingaspjalda og fjöl- margt fleira vann hann glaður í þágu félagsins sem hann studdi og hverju handtaki var sinnt af ánægju og gleði. Björn var mikill fjöl- skyldumaður og naut hann þess að verja öllum sínum stundum með börnum og barnabörnum. Útför Björns fer fram frá Akraneskirkju í dag, 27. janúar 2012, kl. 14. 1947. Foreldrar hennar eru Bjarni Ingi Bjarnason, f. 5. apríl 1909, d. 17. maí 1995, og Guðrún Hallfríður Jóns- dóttir, f. 12. mars 1924. Björn og Helga giftu sig hinn 5. maí 1973 í Akra- neskirkju. Börn þeirra eru: 1) Bjarni Ingi, f. 10. sept- ember 1973, kvæntur Ingibjörgu Barðadóttur. Börn þeirra eru: a) Björn Ingi, f. 1998, b) Helgi Rún- ar, f. 2003. Ingibjörg á úr fyrra sambandi Oddnýju Björgu, f. 1990, og Hauk Atla, f. 1993. 2) Sá dagur sem við óttuðumst mest er því miður runninn upp en það er dagurinn sem þú, elsku pabbi okkar, kvaddir okkur. Þessi dagur er án efa erfiðasti, lengsti og átakanlegasti dagur sem við höfum upplifað. Það er svo margt sem okkur langar að segja þér, elsku pabbi. Við áttum eftir að gera svo margt saman. Elsku pabbi, þú varst okkur allt, fyrirmynd, stoð og stytta í öllu sem við systkinin tókum okk- ur fyrir hendur. Það var fátt sem við gerðum án þess að ráðfæra okkur við þig fyrst, því þú hafðir ráð við öllu og varst ótrúlega skynsamur, ráðagóður og útsjón- arsamur. Þú varst hrókur alls fagnaðar og alveg sama hvar þú varst eða hvert þú fórst þar var gleði og gaman og stundum hávaði því þú, vinir þínir og ættingjar áttu það til að tala hver ofan í annan og þá var bara röddin hækkuð stundum hressilega. Alveg frá því að við munum eftir þér höfum við litið upp til þín og alltaf verið mjög stolt af því að kynna okkur sem börnin hans Bjössa Tryggva í VÍS, það vissu allir hver þú varst. Þú varst einstaklega góður við barnabörnin og gafst þér tíma á hvaða stund sem var til þess að sinna þeim. Við söknum þín óskaplega mik- ið og erum ósátt við hvað þú varst tekinn allt of snemma frá okkur. Þú sigraðir óvininn sem heim- sótti þig á vordögum og frá degi eitt tókst þú á við hann án þess að kvarta eða kveina sama hversu veikur þú varst. En því miður varst þú einn af þeim sem fengu hliðarverkun og þar tapaðir þú, baráttumaðurinn sjálfur. Við vitum að það verður tekið vel á móti þér þarna hinum megin af afa Bjarna, ættingjum og vin- um, það mun hjálpa okkur í sorg- inni að vita af þér í þeirra góðu höndum. Þú ert og verður alltaf stóra ástin í lífi elsku mömmu sem syrgir þig svo mikið. Við munum gæta hennar vel og halda utan um hana. Hún mun geyma þær góðu minningar sem þið áttuð saman. Þín verður sárt saknað, elsku pabbi, og langar okkur að kveðja þig með þessu ljóði. Elsku besti pabbi minn, þú alltaf varst svo glaður og hress, ég mun ætíð minnast þess, elsku besti pabbi minn. Elsku besti pabbi minn, við sjáumst síðar aftur, veit ég að mér alltaf fylgir þinn ótrúlegi kraftur. Elsku besti pabbi minn, kveðjustundin komin er, aldrei mun ég gleyma þér, elsku besti pabbi minn. Ástar- og saknaðarkveðja, Bjarni Ingi, Guðrún Hall- fríður og Elínborg. Elsku afi Bjössi. Við systkinin sendum okkar hinstu kveðju til þín, eins óraun- veruleg og þessi kveðjustund er þá er hún þrungin trega og sorg, upp í hugann koma upp hugsanir sem innihalda minningar, yndis- legar og ljúfsárar sem við munum geyma í hjörtum okkar að eilífu. En svo þessi eilífðarspurning: af hverju? Það er erfitt að lýsa þakklæti okkar, þú komst alltaf fram við okkur með ástúð og hlýju eins og við þín eigin barnabörn, tókst okk- ur opnum örmum. Síðustu 15 árin hefur þú verið svo stór hluti af okkar lífi og við aldrei hugsað ann- að en þú myndir vera hjá okkur til eilífðar, alltaf svo yndislega hress og kátur, allir skiptu þig máli, fjöl- skyldan var þér svo dýrmæt. Við fengum að vera hluti af henni, og við erum svo ólýsanlega þakklát fyrir það. Þú vafðir okkur hlýju þinni og umhyggju, talaðir tæpitungulaust við okkur með þeirri ákefð sem einkenndi þig, alltaf til staðar fyrir okkur eins og alla aðra í fjölskyld- unni. Minningarnar þjóta í gegn- um huga okkar, við eigum erfitt með að hugsa það til enda að þú, afi Bjössi, sért ekki lengur hjá okkur, komir eldsnemma á laug- ardagsmorgni og fussir yfir því hvað bíllinn sé skítugur og drífir Bjarna af stað til að þrífa bílinn. Við söknum þín mikið, þú barð- ist hetjulega, en tapaðir að lokum, því miður. Lífið er stundum svo ósanngjarnt. Við erum þess full- viss að hinum megin verður vel tekið á móti þér, þú tekur lag á nikkuna við og við með vinum og ættingjum. Einnig erum við í öruggri trú að þú vakir yfir velferð okkar eins og annarra ástvina þinna. En við systkinin öll eigum þér margt að þakka og svo margt sem við höfum lært af þér, hvort sem það tengist baráttunni við lífið eða bara að brosa framan í heiminn, þú komst alltaf til dyranna eins og þú vast klæddur og gleðin og húm- orinn sem fylgdi þér er eitthvað sem við tökum með okkur út í lífið. Við eigum erfitt með að sætta okk- ur við að fá ekki að hafa þig lengur hjá okkur. Við söknum þín mikið, takk fyrir að vera okkur alltaf svo góður, afi Bjössi. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Oddný Björg, Haukur Atli, Björn Ingi og Helgi Rúnar. Bróðir minn, Björn Tryggva- son, var einfaldlega algjör topp- maður. Ég var svo heppinn að vera ættleiddur upp á Skaga og detta í þann lukkupott sem þessi fjöl- skylda er. Því tel ég mig hafa notið þvílíkra forréttinda að alast upp með Bjössa bró. Fyrstu minningar mínar af Bjössa bró eru þær að hann smíð- aði skjöld og sverð handa mér 8 ára gömlum fyrir stríðið mikla uppi í skógrækt og þótti það sjálf- sagt mál eins og allt sem maður bað hann um. Akraborgarárin eru líka sveip- uð nettum ævintýraljóma fyrir litla bró, þar sem Bössi bauð manni í mat niðri hjá Helgu sinni, og E-1900 var oftar en ekki bón- aður í sumarblíðu uppi á dekki. Talandi um E-1900, alltaf stífbón- aður að innan sem utan, nákvæm- lega eins og eigandinn, því aldrei, og þá meina ég aldrei, man ég eftir Bjössa órökuðum. Gjarnan fékk maður ræðuna um hvurslags uppeldi þetta væri á manni. Það hafði nú ekki verið neitt sældarlíf norður á Ströndum þeg- ar hann var að alast upp. Bjarn- firðingar og Balamenn voru fólk sem kallaði ekki allt ömmu sína, en Bjössi var líka gríðarlega hreykinn og jafnvel montinn af uppeldi sínu. Það var líka stutt í húmorinn hjá Bjössa, en það er mér eftir- minnilegt þegar ég tók mér einn mánudaginn „lögbundið frí“ hjá HB&CO, eftir erfiða helgi á öðr- um vígstöðvum. Nei, nei þá mætir Bjössi nánast við sólarupprás, og er nokkuð skemmt því hann var að fara að henda á parketi fyrir gamla manninn. Hamarshöggin dundu og ekkert var slegið af. Ekki náði litli bró hvíldinni þenn- an mánudaginn og fannst Bjössa þetta mátulegt á mig og fussaði og sveiaði glottandi yfir ræfildómn- um. Bjössi var giftur henni Helgu sinni sem hann elskaði, dýrkaði og dáði. Ekki síður fannst mér hon- um þykja vænt um Rúnu tengda- móður sína. Nánast allt sem Bjössi fór var Helga með í för og Rúna að sjálfsögðu líka, hvort sem það var til útlanda, upp í bústað eða á húsbílnum. Þetta er eitt af því sem sýnir hjartahlýju Bjössa, því ekki sé ég alla karlmenn þessa lands fyrir mér búa fyrir neðan tengdó og ferðast með henni líka um alla heima og geima. Alltaf þegar ég heyrði í Bjössa á seinni árum byrjaði hann á því að spyrja um líðan barnanna og Þóreyjar, því fjölskyldan var hon- um það mikilvægasta í lífinu. Bjössi var einstaklega stoltur af börnunum sínum, þeim Bjarna, Guðrúnu og Elínborgu, enda eru þau toppeintök. Síðustu mánuðir voru þér erf- iðir, fullfrískum manninum. Þú sem mættir daglega, helst fyrir klukkan 6 á morgnana, í sundlaug- ina á Jaðarsbökkum. Ekki var verra að geta angrað Kongóann í leiðinni. Rétt fyrir jólin fékkst þú svo góðar fréttir og varst eins og þú áttir að þér að vera þegar við hittumst annan í jólum. Þú lést mig heyra það út af sekknum á mér, en óskaðir mér þó ekki að ganga í gegnum sama „kúr“ og þú hafðir gengið í gegnum og misst 20 kíló. Með þínum húmor og æðruleysi tókst þú á þessum veik- indum og fannst mér jafnvel votta fyrir glottinu þínu þegar ég kvaddi þig í hinsta sinn. Það er með miklum söknuði sem ég kveð Bjössa bró, mann sem hafði allt. Tryggvi Grétar. Þegar stystu dagar ársins voru í nánd og myrkrið færi að hörfa fyrir birtunni fengum við þær góðu fréttir að þú, Bjössi okkar, hefði sigrast á veikindum þínum. Þetta var fjölskyldu og vinum besta jólagjöfin, sigur ljóssins á myrkrinu sem hafði fylgt þessu stríði þínu. Allt gekk svo vel á milli jóla og fram á nýársdag þegar þú varðst fárveikur á nokkrum klukkutímum og fluttur suður á Landspítalann þar sem þú lést 18 dögum síðar. Við þökkum fyrir, að leiðarlokum, frábæra samveru í gegnum lífið. Við giftum okkur saman 5. maí 1973 og farnaðist okkur vel. Oft höfum við hlegið saman að orðum nágrannakonu þinnar sem sagði við þig rétt fyrir brúðkaupið: „Bjössi minn, systk- inabrúðkaup lukkast aldrei“ en síðan eru liðin 38 ár. Við þökkum fyrir allar stundirnar sem við átt- um saman sem hefðu mátt vera miklu fleiri. Þú varst frábær fjöl- skyldumaður, umhugað um að fjölskyldunni gengi sem best og varst vakandi og sofandi yfir vel- ferð hennar. Á Austurvöllum, ætt- aróðalinu, leið þér og þínum vel, allt svo snyrtilegt að eftir var tek- ið. Þú varst fyrirmynd í að hafa hlutina í lagi á öllum sviðum í líf- inu. Á hverjum föstudegi hittumst við systkinin í heita pottinum á Jaðarsbökkum ásamt nokkrum félögum. Þar var oft mikið fjör og tekist á um málefni líðandi stund- ar. Við héldum okkar þorrablót, litlu jól og sumarfagnað, þessar stundir eru einstaklega dýrmætar en pottaferðirnar verða ekki þær sömu án þín. Þú komst mjög oft í Einarsbúð og fór það ekki framhjá neinum manni. Ég og vinir þínir á kaffistofunni eigum eftir að sakna þess að heyra ekki í þér, rökræða við þig og hlæja með þér. Undir bláhimni var lagið sem þú spilaðir oft á nikkuna þegar stuð var á okkur. Það er okkar trú að nú sért þú undir bláhimni þar sem ljósið skín skært. Minning um frábæran bróður og mág verður okkur styrkur í sorginni og yljar okkur um ókom- in ár. Takk fyrir allt. Elsku Helga, Bjarni, Guðrún, Elínborg, Rúna, mamma, pabbi, Guðbjörn, Tryggvi Grétar og fjöl- skyldur, söknuður okkar er mikill en í sameiningu munum við styðja hvert annað á þessum erfiðu tím- um. „Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma.“ (Bubbi Morthens.) Þín systir, Sunna og Áki. Elsku frændi. Það er með mikl- um söknuði sem við systkinin kveðjum þig og eigum við erfitt með að trúa því að þú sért farinn. Hvers vegna er lífið svona ósann- gjarnt? Þú sem reyndist öllum svo vel og hugsaðir einstaklega vel um þá sem stóðu þér næst. Það er þannig á lífsleiðinni að við kynn- umst fullt af einstaklingum og hafa sumir meiri áhrif en aðrir. Þú ert einn af þeim og fyrir það erum við þakklát. Við eigum margar góðar minningar um þig og þar sem við sitjum hérna saman og rifjum þær upp er okkur efst í huga gleði, hlátur, umhyggjusemi og einstakur frændi. Það fór aldr- ei framhjá neinum þegar þú mætt- ir á svæðið með hlátrasköll og há- vaða og lást ekki á skoðunum þínum. Okkar fyrstu minningar eru frá samverustundum á Kirkjubrautinni þar sem gaman var að koma og m.a. að leika í skotinu undir stiganum. Það voru ófáar ferðirnar sem við fórum með Akraborginni og þar fannst okkur þú vera aðalmaðurinn. Þú fórst með okkur upp í brúna og síðan fengum við veitingar hjá Helgu. Þetta voru skemmtilegar stundir. Við eigum mjög góðar minningar frá jólum og áramótum. Jólaboðin á Jaðarsbrautinni voru skemmti- leg þar sem stórfjölskyldan hittist, við spiluðum bingó og nutum þess að vera saman. Á áramótunum hittumst við alltaf þegar þú komst til mömmu og pabba og þá var sko hlegið. Fótbolti var okkar sameig- inlega áhugamál og varstu dug- legur að fylgjast með okkur og styðja. Þú varst stoltur af okkur og við fundum fyrir því. Við erum sérstaklega þakklát fyrir þann tíma sem við áttum saman annan í jólum sl. í íþróttahúsinu. Þrátt fyr- ir erfið veikindi gafstu þér tíma til að koma og vera með fjölskyld- unni en hún skipti þig svo miklu máli. Fjölskyldan var þér allt og er missir okkar mikill. Elsku Helga, Bjarni, Guðrún, Elínborg og fjölskyldur, amma og afi, mamma, Guðbjörn, Tryggvi Grétar og Rúna hugur okkar er hjá ykkur en megi minningin um frábæran mann styrkja ykkur í sorginni. Margrét, Áslaug Ragna, Hrefna Rún og Jón Vilhelm. Góður burtu genginn er. – Glymur í dauðans steðja. Varð ei fleirum vandi en mér vininn þann að kveðja. (JM.) Þannig kvað Jón Magnússon við lát vinar síns. Björn Tryggvason, vinur minn, hefur kvatt okkur eftir harða og snarpa baráttu við illvígan sjúk- dóm. Mín fyrstu kynni af Bjössa voru er ég bjó á Jaðarsbraut og hann á Höfðabraut hér á Akranesi. Leiðir okkar hafa legið saman frá því í barnaskóla. Ungir byrjuðum við í skátafélaginu og náðum við þar góðum árangri með vinum okkar, Jóni Gunnlaugs og Þórði Þ. Við stofnuðum dróttskátaflokkinn „Útlaga“, og fengum Pál Gíslason skátahöfðingja til að verða okkar leiðbeinanda. Við náðum þeim áfanga fyrstir skáta hér á Akra- nesi, ásamt fjórum góðum vinkon- um okkar, að fá forsetamerkið, sem Ásgeir Ásgeirsson forseti af- henti okkur fyrir gott skátastarf. Bjössi fékk forsetamerki nr. 100. Leiðir okkar lágu síðan saman í leik og starfi, saman keyptum við bát er fékk nafnið Örn AK-86 og gerðum út í okkar tómstundum ásamt fleiri félögum okkar. Faðir Bjössa, Tryggvi Björnsson, fylgd- ist vel með okkur félögum og fór oft með okkur í róður og kenndi okkur hvernig við ættum að standa að þessari útgerð. Er við félagarnir, Jón Gunn- laugs. og Þórður Þ., tókum sæti í bæjarstjórn Akraness hafði Bjössi mjög gaman af því að segja okkur félögunum hvernig bæjarmálum væri best komið hér á Akranesi og var ekki að skafa utan af hlutun- um. Ekki vorum við alltaf sam- mála enda ekki allir í sama flokki. Hann náði oft upp einstakri stemningu og gat fengið okkur fé- lagana til að takast á um málefni bæjarfélagsins og pólitík og hafði gaman af og hló mikið er við vor- um að takast á. Bjössi var mjög hjálpsamur og greiðvikinn, oft hef ég leitað til hans eftir aðstoð. Minn vinur var ætíð mættur strax og tók til hend- inni og stjórnaði verkinu og dugn- aður hans smitaði ætíð út frá sér til þeirra er voru honum nálægir. Saman áttum við Bjössi góð ár í Oddfellowreglunni. Við gengum árið 1974 í stúkuna nr. 8 Egill IO- OF, og höfum átt þar margar góð- ar stundir sl. 37 ár. Ég vil fyrir hönd okkar Egilsbræðra þakka honum gott og fórnfúst starf fyrir stúkuna okkar. Nú þegar komið er að leiðarlokum, kæri vinur, viljum við Sigrún þakka þér samfylgdina og allt það sem þú hefur reynst okkur á gleði- og sorgarstundum. Helga mín. Við Sigrún sendum þér börnum þínum, foreldrum Bjössa, systkinum og tengdamóð- ur hans innilegustu samúðar- kveðjur. Kristján Sveinsson. Ungdómsárin með öllu því sem þeim fylgdi rifjast upp þegar æskuvinur er kvaddur. Bjössi Tryggva var í hópi átta dróttskáta á Akranesi árið 1966 sem settu sér það markmið að vinna að því að ná svokölluðu forsetamerki, en það krafðist skipulagðrar vinnu og lausnar á fjölbreyttum verkefn- um. Við slíkar aðstæður kynnast félagar vel og skátastarfið byggist á því að hver og einn leggi af mörkum. Þetta var yndislegur tími, oft erfiður en alltaf skemmti- legur og það er það sem ber hæst í minningunni. Óhætt er að segja að Bjössi var sá langkátasti af öllum. Alltaf léttur í lund, sá aldrei vandamál, bara lausnir. Hafði ein- staka hæfileika til að létta and- rúmsloftið. Á kveðjustund þökk- um við fyrir þann yndislega tíma sem við áttum saman við leik og störf og kveðjum gamla vininn okkar með ljóði Sigurbjörns Ein- arssonar biskups: Blómin falla, fölskva slær á flestan ljóma. – Aldrei hverfur angan sumra blóma. Þannig varstu vinur, mér sem vorið bjarta. Það sem gafstu geymist mér í hjarta. Ilma sprotar, anga lauf, sem aldrei falla. Drottinn launi elskuna þína alla. Hugheilar samúðarkveðjur til ástvina hans um leið og við þökk- um samferð sem aldrei bar skugga á. Vertu guði falinn. Rún Elfa, Þórunn Drífa, Inga Jóna og Jóhanna. Í dag, föstudaginn 27. janúar 2012, er til moldar borinn frá Akraneskirkju Björn Tryggva- son, félagi minn og vinur. Hann kvaddi alltof fljótt. Engum manni hef ég kynnst á minni ævi sem hef- ur verið eins umhugað um sína fjölskyldu og Birni Tryggvasyni, eða Bjössa eins og hann var kall- aður. Mig langar að minnast hans og rifja upp nokkur af okkar sam- skiptum. Hann tók það iðulega fram við mann að það væri ekki nóg að eiga börnin heldur yrði að hugsa um þau, hvort sem það væru börnin manns eða barnabörn. Hafa fjöl- skylduna í fyrirrúmi. Við höfum átt samleið um langan tíma. Það voru skemmtilegir tímar þegar við ásamt félögum okkar vorum í út- gerð, bæði á grásleppuveiðum og á línu- og handfæraveiðum. Bjössi var aldrei sáttur við okkur nema að vel væri þrifið og umgengnin um bátinn okkar Örn AK – 86 væri til fyrirmyndar. Þá skemmdi það ekki fyrir þegar pabbi hans, Tryggvi Björnsson og Óli bróðir Tryggva, voru beitningamenn hjá okkur en Óli var titlaður landfor- maður. Nokkur sumur fórum við til lax- veiða í Víðidalsá. Þar vorum við oftast átta Skagamenn og átta Hafnfirðingar. Bjössi naut sín vel í þessum hóp og eignaðist þar vini eins og ég veit að hann hefur gert alls staðar þar sem hann hefur komið nálægt hlutum. Ógleymanleg er ferðin sem hann fór með okkur Skagamönn- um sumarið 1994 til Bangor þegar Björn H Tryggvason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.