Morgunblaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2012 valkostir í Sjónvarpi Símans Nettenging hjá Símanum gefur þér möguleika á Sjónvarpi Símans og fjölbreyttu úrvali sjónvarps- og afþreyingarefnis. Nú geta viðskiptavinir Símans leigt myndir og séð útsendingar í háskerpu. Ef tengingin þín ber HD-útsendingar geturðu virkjað aðganginn á þjónustuvefnum og séð Sjónvarp Símans í allri sinni dýrð. Með smelli á VOD takkann opnarðu SkjáBíó með yfir 4000 titlum, bíómyndum, þáttum, barnamyndum og efni á 0 kr. Í SkjáFrelsi, Stöð 2 Frelsi og RÚV Frelsi sérðu nýjustu þættina og fréttirnar þegar þér hentar. Ef þú smellir á MENU takkann og velur útvarp opnast Bestu lögin, sérsniðnar tónlistarrásir fyrir öll möguleg tilefni. Þar eru líka allar íslensku útvarps- stöðvarnar og tugir erlendra. Nýtt! Háskerpu- útsending á 0 kr. Bestu lögin skapa stemninguna Frelsi til að horfa þegar þér hentar er opin ánendurgjalds tilkynningar FRÉTTASKÝRING Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Oft er svo mikill munur á verði frá birgjum til lágverðsverslana og minni verslana að hinar síðarnefndu þurfa að selja vöruna með lítilli sem engri álagningu eða tapi til að geta keppt í verði við stærri keðjur. Þetta sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, þeg- ar hann kynnti í gær niðurstöður rannsóknar um verðþróun og sam- keppni á dagvörumarkaði. Niðurstöð- urnar benda til þess að talsverðar hindranir mæti þeim sem hefja við- skipti á dagvörumarkaði. Þær hindranir má ekki síst rekja til mismunandi kjara sem verslanir njóta hjá birgjum. Búast má við því, að sögn Páls Gunnars, að SE hefji sérstök stjórnsýslumál til að meta hvort viðskiptakjör og viðskipta- samningar tiltekinna birgja við versl- anir séu lögleg. Þrjár samstæður með 90% „Það er auðvitað vandasamt að greina málefnalegan verðmun frá óeðlilegum […] Hér og nú má hins vegar leiða að því sterkum líkum að kjör birgja til smásala styðjist ekki alltaf við viðskiptalegar forsendur.“ Þrjár verslanasamstæður eru lang- fyrirferðarmestar á markaði með dagvöru, en til hennar teljast dag- legar neysluvörur eins og matur, drykkur og hreinlætisvörur. Þetta eru Hagar, Kaupás og Samkaup, sem samtals hafa um 90% markaðs- hlutdeild. Ef staðan er skoðuð nánar sést hins vegar að Hagar, sem reka verslunarkeðjurnar Bónus og Hag- kaup, gnæfa yfir hinar með rúmlega helmings markaðshlutdeild. Á höf- uðborgarsvæðinu er yfirburðastaða Haga raunar enn meiri, eða 59-60% hlutdeild, þar af Bónus 40-41%. Ágreiningur um hlutdeild Haga Þess má geta að Finnur Árnason, forstjóri Haga, túlkaði niðurstöður rannsóknarinnar með nokkuð öðrum hætti en Samkeppniseftirlitið. Fyrir það fyrsta hélt hann því fram að Hag- ar hefðu ekki 53-54% markaðs- hlutdeild, heldur 43,3%. Þá tók hann ekki undir það mat SE að aðgangshindranir væru til staðar heldur sagði þvert á móti að það væri auðvelt fyrir nýja aðila að koma inn á dagvörumarkaðinn. „Það eru margir valkostir í boði, samkeppnin er hörð og viðskiptavinir greiða atkvæði dag- lega um hvar þeir versla.“ Samkeppniseftirlitið kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu að það sé því sem næst ómögulegt fyrir minni verslanir að veita lágverðsverslunum, þar sem risinn Bónus er í fararbroddi, nokkra samkeppni. Þegar innkaupsverð og álagning á u.þ.b. 270 algengum dagvörum voru borin saman kom í ljós að álagning lág- verðsverslana var að jafnaði um 18% ofan á innkaups- verð. Minni versl- anir greiddu að meðaltali 16% hærra innkaupsverð en lágverðs- verslanir fyrir sömu vörur. Þessar minni verslanir hefðu því neyðst til þess að selja vörurnar með einungis 1-2% álagningu, ef þær ætluðu sér að bjóða þær á sama verði og lágverðs- keðjurnar. Páll Gunnar áréttaði að verðmunur frá birgjum ætti sér oft haldbærar skýringar í samkeppnisumhverfi. Hins vegar væru ýmsar vísbendingar um að sú væri ekki alltaf raunin. Til dæmis gætu stóru verslunarkeðj- urnar nýtt sér kaupendastyrk til að knýja fram óréttlátan verðmun. Stjórnvöld grípi til aðgerða Ómar Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri Samkaupa, tók undir þetta og sagði þau rök ofnotuð að betri kjör frá birgjum væru réttlætt með magnhagræði. „Eru það boðleg rök að dreifingarkostnaður framleið- anda, sem dreifir sjálfur vörunni, sé tugum prósenta hærri til Fjarðar- kaupa í Hafnarfirði en til Bónuss í Hafnarfirði?“ Eini kostur smærri verslana í stöðunni væri oft að þiggja bara það sem að þeim væri rétt. Páll Gunnar sagði óhjákvæmilegt að birgjar tækju verðstefnu sína til athugunar með hliðsjón af þessum niðurstöðum og hvatti aðila á dag- vörumarkaði til að skoða vel starfs- hætti sína. „En það er einnig brýnt að stjórnvöld grípi til aðgerða […] Reynslan sýnir því miður að stjórn- völd hafa undantekningalítið horft framhjá tilmælum samkeppnis- yfirvalda um að bæta samkeppnis- aðstæður á dagvörumarkaði.“ Samkeppni við risana ómöguleg  Hagar með yfir helmings markaðshlutdeild á dagvörumarkaði  Birgjar mismuna verslunum  Smærri verslanir greiða um 15% hærra verð  Rannsakað hvort viðskiptakjör séu lögmæt Ómar Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri Samkaupa, sagði dagvörumarkaðinn einkennast af ofríki og yfirráðum Haga, sem hefðu yfirburðastöðu og beittu henni. „Ef um væri að ræða þrjá aðila með álíka stóra hlutdeild á markaði væri það forsenda til samkeppni.“ Þær forsendur væru hins veg- ar ekki fyrir hendi, því þar sem einn aðili réði um helmingi markaðarins gæti hann ráðið til- veru hinna. Nefndi hann sem dæmi að for- senda þess að nýjar vörur næðu fótfestu á markaði væri að koma þeim í sölu hjá stóru keðjunum. „Þannig getur stóri aðilinn verið eftirsóknarmyndandi, þetta vita birgjar og nýta sér gjarnan gagnvart smærri aðilum.“ Þá komi fyrir að smærri verslunum sé gert ómögu- legt að bjóða sterk vörumerki, dæmi séu um að vörur sem eft- irspurn sé eftir séu þannig nán- ast í einkasölu hjá einum aðila. Ofríki og yfirráð Haga MEÐ RÁÐANDI STÖÐU Páll Gunnar Pálsson Markaðshlutdeild verslana á Íslandi árið 2010 Hagar 53-54% Bónus Hagkaup 10-11 Kaupás 21-22% Krónan, Nóatún, 11-11, Kjarval Samkaup 15-16% Nettó, Kaskó, Samkaup-úrval, Samkaup-strax Aðrar dagvöruverslanir Fjarðarkaup (2-3%) Melabúðin (0,5-1%) Kostur (0,5-1%) Kaupf. Skagfirðinga (0,5-1%) Versl. Einar Ólafsson (0,5-1%) Kaupf. V-Húnvetninga (0-0,5%) Miðbúðin (0-0,5%) Aðrar dagvöruverslanir (3-4%)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.