SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Blaðsíða 10
10 8. janúar 2012
Hvað er dönsk hönnun og hvernig hefur hún orðiðsvona ríkur þáttur í dönsku samfélagi og hugsun?Þessum spurningum reynir sýningin Denmark byDesign að svara en sýn-
ingin er í Hönnunarmiðstöð
Danmerkur (Dansk Design Cent-
er – DDC).
DDC er þekkingarmiðstöð landsins
hvað varðar hönnun og vinnur
markvisst að því að efla hönn-
unarvitund fyrirtækja og hins op-
inbera með því að sýna fram á mik-
ilvægi hönnunar í samfélaginu. Ekki
er verið að halda því fram að hönn-
un leysi öll vandamál heimsins en
svo sannarlega því að hún geti
vissulega hjálpað.
Miðstöðin er frábær áfangastaður
fyrir ferðalanga í Kaupmannhöfn
sem eru áhugasamir um hönnun.
Þar eru alltaf nokkrar sýningar í
gangi í einu en þessi er þó lengur
uppi en aðrar. Sýningin Denmark by
Design var opnuð í maí 2010 og
stendur yfir þar til í maí 2013 þann-
ig að nægur tími er enn til að sjá
hana. Sýningin sýnir þróun danskrar
hönnunar á árunum 1945 til 2010.
Áherslan er allt frá húsgagna-
hönnun og heimilismunum yfir í
heyrnartæki og hjólavagna. Sýnt er
fram á að áhersla hvers áratugar sé ólík, hún fari úr því að
einbeita sér að einstaklingnum og heimilinu yfir í samfélagið
og opinber rými. Þeir pólitísku straumar sem eru í gangi
hverju sinni endurspeglast sömuleiðis af hönnuninni. Í þessari
grein verður þó lögð áhersla á þann þátt danskrar hönn-
unarsögu er tengist hönnun fyrir heimilið.
Dönsk hönnun frá því upp úr miðri síðustu öld hefur löngu
náð alþjóðlegri viðurkenningu, sem veldur því að hönnun seint
á 20. öld og í byrjun 21. aldar hefur orðið sjálfsagður þáttur í
samfélaginu.
Hönnunarsýningunni er ætlað að sýna fram á hvernig dönsk
fyrirtæki hafi markvisst lagt áherslu á hönnun og gæði í starf-
semi sinni. Þessir tveir þættir hafa verið stór þáttur í velgengni
margra danskra fyrirtækja. Leiðin liggur enn fram á við og eru
ný dönsk fyrirtæki að hasla sér völl á hönnunarsviðinu. Víst er
að við Íslendingar getum lært margt af frændum okkar í þess-
um efnum.
Dásamleg dönsk hönnun
Dönsk hönnun er viðurkennd á
alþjóðavettvangi og hefur átt
stóran þátt í velgengni margra
þarlenda fyrirtækja. Hún er
jafnframt stór þáttur í dönsku
samfélagi og hugsun.
Texti og myndir: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Stelton-hitabrúsi.
Hönnun Eriks Magn-
ussen frá 1976.
Upprunalega voru
könnurnar úr stáli
en lituðu plastútgáf-
urnar litu dagsins
ljós 1979.
Einhver frægasti hönnunara
pi í heimi,
hugarsmíð Kays Bojesen frá
1951.
Þennan síma kannast margir við en hann er hönn-un L.M. Ericsson og Kristian Kirk frá 1968.
Hönnun er allt í kringum okkur í hversdagslífinu.Georg Jensen-hnífapör. Lögun þeirra er óvenjuleg en
þau eru hönnun Arnes Jacobsen frá 1957.
Tvær frægir stólar. PK22 eftir Poul Kjærholm og Eggið hans Arnes Jacobsen.
Stell frá Royal Copenhagen. Fyrsta gerð þesser frá 1775 en þessi stórmynstraða útgáfa erhönnun Karenar Kjældgård-Larsen frá 2000.
Plaststóll, hönnun Verners Panton frá 1971 og Beovision-sjónvarp frá 1970.
Danska tímaritið Bo bedre h
efur verið leiðandi
hönnunar- og lífsstílstímarit
í hálfa öld.