SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Page 30

SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Page 30
30 8. janúar 2012 Þ að var skynsamleg ákvörðun hjá Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, að gefa ekki kost á sér til endurkjörs við forsetakosningar í byrjun sumars á þessu ári. Hann er umdeildasti forseti lýðveld- issögunnar. Hefði hann gefið kost á sér í fimmta sinn hefði sú ákvörðun valdið deilum þó ekki væri nema vegna þess að forsetinn hefur setið í embætti í 16 ár. En að auki er ljóst að stuðningur hans við útrásarvíkinga fyrir hrun hefði orðið mjög til umræðu í kosningabaráttu vegna forsetakosninganna og valdið sundurlyndi meðal þjóðarinnar. Það hefðu ekki sízt verið fyrrum pólitískir samherjar Ólafs Ragnars, sem hefðu rifj- að þá sögu alla upp. Þeir hafa ekki fyr- irgefið honum ákvarðanir um tvær þjóð- aratkvæðagreiðslur vegna Icesave. Ólafur Ragnar getur sagt sem svo, að þótt hann hafi orðið fyrir harkalegri gagnrýni frá hægri vegna ákvörðunar um að skjóta fjölmiðlalögum til þjóðar- atkvæðis sumarið 2004 og frá vinstri vegna Icesave síðustu tvö ár, hafi hann í síðarnefndu tilvikunum tveimur sýnt fram á mikilvægi þess að til staðar væri í stjórnskipun lýðveldisins öryggisventill ef Alþingi og ríkisstjórn töpuðu áttum. Það er nokkuð til í því. Það er hins vegar í mótsögn við tíðarandann, að einn maður hafi slíkt vald í sínum höndum og að það fari eftir geðþótta hans eða því pólitíska spili, sem sá hinn sami kann að stunda, hvort gripið er til þess ráðs að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um um- deild mál. Eðlilegra er að ákvæði séu í stjórnarskrá um að ákveðinn hluti þjóð- arinnar geti farið fram á slíka atkvæða- greiðslu um umdeild mál. Það hefur hvað eftir annað komið í ljós að þjóðin er afar viðkvæm fyrir forseta- embættinu og hefur lengst af kunnað því illa, að forseti væri gagnrýndur. Í for- setatíð Ólafs Ragnars hefur dregið úr þeirri viðkvæmni enda má segja, að hann hafi fremur sótzt eftir því að taka um- deildar ákvarðanir en að verða samein- ingartákn þjóðarinnar. Þá má spyrja, hvort æskilegt sé að for- setaembættið verði jafn pólitískt í fram- tíðinni og Ólafur Ragnar hefur viljað að það væri. Það álitamál er bara eitt af mörgum sem tengjast framtíðar stjórn- skipan lýðveldisins. Frá mínum sjón- arhóli séð á beint lýðræði að vera grund- vallaratriði þeirrar stjórnskipunar. Þjóðin sjálf á að taka í þjóðaratkvæða- greiðslum ákvarðanir um öll meginmál. Alþingi hefur þar að sjálfsögðu hlutverki að gegna en á grundvelli þeirra megin- lína, sem þjóðin leggur í slíkum at- kvæðagreiðslum. Forsetaembættið er ekki lykilþáttur í slíkri stjórnskipan. Sjálfsagt hefur það að einhverju leyti mótað forsetaembættið í upphafi, að þjóðhöfðingi Íslendinga hafði í nokkur hundruð ár verið konungur og ein- hverjar leifar af því tildri og þeim hé- gómaskap sem fylgir þeirri forneskju hins evrópska aðals hafa fylgt með til Bessastaða. Það hefur ekki dregið úr þeirri sýndarmennsku, þótt tími sé til kominn. Eitt af því, sem hrunið á að hafa kennt okkur er tilgangsleysi þeirrar sýnifíknar, sem einkenndi íslenzkt samfélag og þá ekki sízt á fyrstu árum þessarar aldar. Æskilegt er að nýr forseti, hver sem hann eða hún verður, marki þessu embætti hófsamari sess í framtíðinni. Það er ekkert tilefni til að auka völd forseta Íslands. En það er fullt tilefni til að skýra í nýrri stjórnarskrá ákvæði hennar um forsetaembættið þannig að ekki fari á milli mála hvert hlutverk for- seta er og þeir sem því gegna í framtíð- inni hafi ekki tækifæri til og svigrúm til að túlka stöðu þess á þann veg, sem þeim hentar. Það er líka forneskjulegt fyr- irbæri í nútímasamfélagi. Hins vegar var ánægjulegt að heyra í áramótaræðu forsetans, að starfs- mannafjöldi forsetaembættisins hefur verið óbreyttur í tvo áratugi og at- hugasemdir hans um útþenslu annarra þátta stjórnsýslunnar eru réttmætar. Það er gott að hægt er að reka embætti for- seta Íslands með fjórum starfsmönnum og ekki á að vera erfitt á ofangreindum forsendum að halda embættisrekstrinum áfram innan þeirra marka. Stjórnmálaflokkarnir eiga að leggja sig fram um að láta forsetakosningar af- skiptalausar. Slík afskipti fyrr á tíð voru óvinsæl meðal almennings og þeim flokkum sem hlut áttu að máli ekki til framdráttar. Verði hins vegar hreyfing fyrir því að þróa embættið áfram í póli- tíska átt á þann veg sem Ólafur Ragnar hefur reynt að gera munu flokkarnir fylgja fast á eftir og reyna að hafa áhrif á það hverjir verði í framboð og hver verði kjörinn. Flokkarnir eiga hins vegar nóg með sjálfa sig og sín vandamál og afskipti þeirra af forsetakjöri eru ekki til farsæld- ar. Það er svo áhugaverð spurning, hvort fráfarandi forseti hyggi á stjórnmála- afskipti á ný. Það er ekkert því til fyr- irstöðu, að sá sem hefur gegnt þessu embætti leiti eftir umboði þjóðarinnar til starfa á öðrum vettvangi, þótt það hafi ekki gerzt til þessa. Ólafur Ragnar er reynslunni ríkari eftir starf sitt á Bessa- stöðum en athyglisvert er að fylgjast með því hvað sumir af forystumönnum vinstrimanna á undanförnum áratugum komast í mikið uppnám við tilhugsunina um að hann hefji afskipti af stjórnmálum á nýjan leik. Og alveg sérstaklega virðast þeir ekki mega til þess hugsa, að hann skipi sér í hóp þeirra, sem berjast gegn aðild að Evrópusambandinu. En af því yrði augljóslega umtalsverður styrkur í þeirri baráttu. Veri hann velkominn! Nýr forseti á að marka embættinu hófsamari sess Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Bandaríska fulltrúadeildarþingkonan GabrielleGiffords var sannarlega ekki feig á þessum degifyrir ári. Það var á borgarafundi fyrir utanstórmarkað í Casas Adobes í Arizona að 22 ára gamall maður, Jared Lee Loughner, vatt sér upp að henni og skaut hana í höfuðið af stuttu færi. Að því loknu gekk hann berserksgang og skaut átján manns til viðbótar, sex þeirra létust af sárum sínum. Enda þótt ótrúlegt megi virðast lifði Giffords á hinn bóginn til- ræðið af og hefur náð merkilega góðum bata. Mikil skelfing greip að vonum um sig á planinu fyrir framan stórmarkaðinn og reyndu fundarmenn, á bilinu 20 til 30 manns að forða sér, meðan Loughner skaut að því er virtist á allt sem hreyfðist. Eftir að hafa tæmt fyrsta skothylkið nam tilræðismaðurinn staðar til að endurhlaða vopn sitt. Þegar hann í óðagotinu missti skothylkið á jörðina skárust viðstaddir í leikinn. Kona nokkur greip hylkið og maður kom höggi á tilræðis- manninn með stól. Það var síðan 74 ára gamall hermað- ur á eftirlaunum, Bill Badger, sem sjálfur hafði orðið fyrir skoti, sem stökk á Loughner og felldi hann í jörð- ina. Fernt hélt honum síðan uns lögreglu bar að. Skammt þar frá stumraði Daniel Hernández yngri, að- stoðarmaður Giffords, yfir henni. Skotið hafði farið gegnum höfuð hennar og þrýsti Hernández á sárið, auk þess að gæta þess að hún kafnaði ekki í eigin blóði. Hon- um til undrunar var Giffords með meðvitund og brást við fyrirmælum. Læknar sögðu síðar að viðbrögð Hern- ández hefðu að öllum líkindum bjargað lífi hennar. Sjúkralið kom fljótt á vettvang og hlúði að hinum særðu. Fimm manns létust á staðnum og sá sjötti á sjúkrahúsi skömmu síðar. Meðal hinna látnu var John Roll, dómari við ríkisdóminn í Arizona, og níu ára gam- alt barn. 38 mínútum eftir að hafa orðið fyrir skoti var Giffords komin á spítala, í bráðri lífshættu en ennþá með meðvitund. Hún fór beint á skurðarborðið, þar sem hluti höfuðkúpu hennar var fjarlægður til að fyrirbyggja frekari heilaskaða af völdum bólgu. Kúlan hafði ekki farið gegnum miðheilan, þar sem skaðinn er venjulega mestur, og fyrir vikið voru læknar hóflega bjartsýnir á bata að aðgerð lokinni. Giffords var í framhaldinu svæfð djúpum svefni til að heili hennar gæti hvílst. Fjórum dögum síðar opnaði Giffords augun aftur og þrettán dögum eftir tilræðið var hún útskrifuð af gjör- gæslu. Við tók langt og strangt ferli, fleiri aðgerðir og síðan stíf endurhæfing – sem ekki er lokið. Í endaðan apríl var Giffords orðin nógu hress til að ferðast til Ca- naveral-höfða í Flórída, þar sem skjóta átti eiginmanni hennar, geimfaranum Mark E. Kelly, út í geiminn. Geimskotinu var að vísu frestað vegna tæknibilunar. Giffords fékk algjört næði á Canaveral-höfða og fjöl- miðlar virtu bann við myndatökum. Það var svo í byrjun ágúst að Giffords kom í fyrsta sinn fram opinberlega eftir tilræðið. Hún mætti þá í full- trúadeildina til að taka þátt í atkvæðagreiðslu um hækk- un skuldamarka. Var henni tekið með kostum og kynj- um, þingmenn risu úr sætum og létu lófana tala. Giffords hefur endurheimt andlegt atgervi sitt að langmestu leyti. Hugsun hennar er skýr, „hér um bil eðlileg, ef ekki eðlileg“, eins og talsmaður hennar orðaði það. Hún gengur óstudd en hefur ekki fullan mátt í hægri hluta líkamans. Fyrir vikið skrifar hún í dag með vinstri hendi sem hún gerði ekki áður. Hún á enn svolít- ið bágt með mál en vonir standa til að það lagist með tímanum. Sjónin er á hinn bóginn skert – um 50%. Lítið er vitað um ástæður árásarinnar en Jared Lee Lo- ughner hefur verið ósamvinnufús eftir handtökuna. Margt bendir þó til þess að honum hafi verið uppsigað við bandaríska stjórnkerfið. Að undangenginni geð- rannsókn komst dómari að þeirri niðurstöðu að Loug- hner væri ósakhæfur og er hann nú vistaður á stofnun. orri@mbl.is Þingkona skotin í höfuðið Giffords lifði en Jared Lee Loughner myrti sex aðra. Þingkonan Gabrielle Giffords fyrir og eftir tilræðið í fyrra. Á þessum degi 8. janúar 2011 ’ Honum til undrunar var Giffords með meðvitund og brást við fyrirmælum.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.