SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Page 31
8. janúar 2012 31
Mér er þetta í blóð borið, segirÓmar Friðþjófsson er-indreki þegar hann rifjarferðina upp með blaða-
manni, en hann fór fyrir leiðangrinum.
„Faðir minn, Friðþjófur Hraundal, kunni
vel að meta hálendi Íslands og fór á sínum
tíma 10 ferðir á Vatnajökul og þveraði
hann nokkrum sinnum gangandi á ár-
unum 1940 til 1950. Ég byrjaði ungur að
fara á hálendið með pabba og það varð að
áráttu; að fara á fjöll og glíma við nátt-
úruöflin.“
Þar sem himinn frýs við jörð
Hann segir að þegar búið er að fara það
sem hægt er hér á landi; allt frá Bjarg-
töngum yfir í Vöðlavík, frá Reykjanesi yfir
í Font á Langanesi, þá kalli það á að menn
langi á vit nýrra ævintýra.
Ómar las í æsku um Vilhjálm Stefánsson
„og það heillaði ungan dreng að kynnast
því hve mikill ævintýraheimur er fyrir ut-
an landið okkar. Vilhjálmur var hetja í
mínum augum; eins og til dæmis Edmund
Hillary og Francis Scott, sem báðir fóru á
suðurskautið. Myndir úr ferðum þeirra
greyptust í huga mér og það blundaði allt-
af í mér að gera eitthvað svipað sjálfur“.
Ferðasaga Ómars og félaga er nú komin
út á ríkulega myndskreyttri bók, Þar sem
himinn frýs við jörð, en ljósmyndarinn
kunni, Friðþjófur Helgason, var einn leið-
angursmanna. Hinir þrír eru Halldór
Sveinsson, Karl Rútsson og Kristján Krist-
jánsson. Vert er að geta þess að bókinni
fylgir rúmlega klukkustundar kvikmynd
Friðþjófs um ferðina.
Hópurinn fór þessa ævintýraferð 2006,
þegar 100 ár voru liðin frá því Vilhjálmur
Stefánsson fór fyrsta sinni í leiðangur um
norðurslóðir Kanada. Eknir voru alls
19.257 km og tók túrinn tæpan einn og
hálfan mánuð.
Ómar segir ýmsa heimamenn hafa
reynt að telja Íslendingana af því að takast
á við grimm náttúruöflin með þessum
hætti, en þeir hafi verið staðráðnir í því að
aka leiðina, eftir mikinn og góðan und-
irbúning.
„Mig langaði að fara um þar sem væri
fólk; ekki bara ís og auðn, og sú hugmynd
fæddist að keyra um slóðir Vilhjálms Stef-
ánssonar. Hann sigldi niður til íshafsins
eftir hinu mikla McKenzie-fljóti og við fé-
lagarnir spurðum okkur: því ekki að
keyra þá leið á ís? Íslendingar hafa gríð-
arlega reynslu af ferðum á fjöll og jökla og
af því að búa bíla undir ferðir í snjó og
miklu frosti.“
Ómar og félagar hans undirbjuggu leið-
angurinn lengi. Hann flaug utan og kynnti
sér svæðið sem um ræðir og ræddi við
fjölda heimamanna. „Ég hitti til að mynda
fólk í Inuvik, bæ í Norðvestur-Kanada,
ekki langt frá óshólmum McKenzie-fljóts.
Þeir sögðu mér að aldrei hefði verið ekið
niður fljótið en útilokuðu ekki að við gæt-
um það, eftir að ég útskýrði fyrir þeim
hvernig við yrðum útbúnir.“
Ómar kynnti sér ís-vegina sem Kan-
adamenn kalla svo; ice roads. „Kanada er
gríðarlega stórt og þarna norður frá eru
ekki hefðbundnir vegir, heldur nýta
heimamenn frosin vötn og frosnar ár til
þess að koma birgðum, tækjum og tólum
til nyrstu héraðanna. Þar er mikið um
demants- og gullnámur, auk gas- og olíu-
vinnslu. Heimamenn keyra á frosinni
túndrunni og það þykja miklar kempur
sem fara þá leið og berjast við nátt-
úruöflin.“
Ári eftir kynnisferðina til Kanada fór
Ómar aftur utan, í fylgd annars ferðalang-
anna, og ræddi við fólk á öðrum stöðum.
„Við vildum gera allt í góðri sátt við
heimamenn og náttúruna. Kanadamenn
eru mjög næmir fyrir náttúrunni, sér í lagi
þarna fyrir norðan.“
Rætt var við starfsfólk kanadíska sendi-
ráðsins í Reykjavík, sendiráð Íslands í Ot-
tawa, starfsmenn utanríkisráðuneytisins í
Reykjavík og innanríkisráðuneytis Kan-
ada. „Eftir það komst ég í samband við
ættarhöfðingja inúíta í norður Kanada og
var það hann sem í raun gaf grænt ljós á að
við færum í leiðangurinn. Það var til-
tölulega nýbúið að stofna sjálfsstjórn-
arhéraðið Nunavut, gríðarlega stórt
svæði, sem er undir stjórn inútía.“
„Gerið það fyrir mig að hætta við“
Ekkert var til sparað að sögn Ómars;
bílarnir útbúnir eins vel og kostur var og
síðan haldið af stað.
Bílarnir þrír voru fluttir sjóleiðis til
Shelburn en mannskapurinn flaug til
Halifax. Síðan var ekið á áttunda þúsund
kílómetra, upp til Yellowknife, þar sem
ævintýrið hófst í raun.
Yellowknife er miðstöð norðvest-
ursvæðisins, tæplega 20.000 manna bær.
Það var lagt í’ann og haldið niður McKen-
sey-dalinn, og samnefndu fljóti fylgdu
þeir til hafs.
Þegar hópurinn var kominn til Norman
Wells, eftir að hafa ekið rúmlega 1.200 km
frá Yelloknife (sjá meðfylgjandi kort),
sögðu heimamenn Íslendingunum að
skynsamlegast væri að snúa við strax.
Leiðangursmenn þurftu iðulega
að grípa til skóflunnar í túrnum
þótt hún dygði sjaldnast ein!
Bein leið til himna
að fara niður fljótið
Fimm Íslendingar fóru í mikla ævintýraferð á þremur jeppum
um nyrsta hluta Kanada, svæði þar sem enginn hafði áður ekið á
bíl. Margir heimamanna réðu þeim frá ævintýrinu en hinir
vösku, íslensku fjallagarpar ákváðu að láta slag standa.
Texti: Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Ljósmyndir: Friðþjófur Helgason
Ferðalög