SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Qupperneq 34

SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Qupperneq 34
34 8. janúar 2012 Á „Armory Show“ voru nýviðhorf í list Evrópu kynnt ífyrsta skipti vestra, eða alltfrá Delacroix til Picassos og olli sýningin miklu fjaðrafoki, meðal annars lá við að sýningargestir eyðilegðu mynd Duchamps „Gengið upp stiga“, sem einmitt átti þátt í að gera hana og listamanninn fræg. Svipað og að pústr- arnir í lok Cobra-sýningarinnar í Borg- arlistasafninu í Amst- erdam 1949, beindu sjónum manna að list- hópnum sem var í and- arslitrum eftir einungis þriggja ára tilvist. Ar- mory Show var stór- merkileg sýning sem olli lærdómsríkum straumhvörfum í Am- eríku, seinna áttu land- flótta myndlistarmenn frá Evrópu eftir að bæta um betur á árunum fyrir og eftir seinni heimsstyrjöldina. Þá eru vel að merkja einungis liðlega hundrað ár frá því að framúrstefnulisthús, eitt af öðru, litu dagsins ljós í París, sem varð fyrir vikið Mekka stílbrota um langt árabil. Hollt að minnast þessa, því að um- skiptin hafa verið risavaxin, eitt stendur þó uppúr, sem er að hvers konar ólík- indalæti til að vekja athygli almennings á sýningum og eigin persónu, undu upp á sig og eru svo komið orðin að vafa- samri og útjaskaðri tuggu, þótt almenn- ingur og fjölmiðlar lágkúrunnar láti áfram glepjast. Mikilvægt að líta til þess að þjóðleg og staðbundin einkenni þóttu og þykja ennþá fullgild meðal for- ustuþjóða í sjónmenntum. Á síðustu áratugum er það hrá mark- aðssetningin sem virðist illu heilli alfa og omega nær allrar listsköpunar, og margt það sem var frumlegt og nýtt á byrj- unarreit er orðið að risavaxinni ofgnótt á seinni tímum, ef ekki léttvægum iðnaði á heimsvísu. En listasöfn sem fyrrum voru nær tóm eru svo komið líkust að- albrautarstöðvum á háannatímanum, en það kemur líka til af afturhvarfi al- mennings til hins lífræna, burt frá tím- um blóðlausrar hátækni sem hefur á sér tvær hliðar; eina mjög góða og aðra mjög illa. Auðveldar mönnum svo ótal margt en ógnar líka öllu jarðlífi í sinni verstu mynd. Birtingarmynd allra fram- fara í mannheimi hefur sömuleiðis á sér tvær hliðar, og vel að merkja án góðra sem illra náttúrumagna þróast ekkert líf á þessari jörð, né alheimi öllum. Íslendingum gengur illa að átta sig á því hve afskekkt landið er og langt frá höfuðstraumum meginlandsins, hvar styttri vegalengdir gefa fólki margvísleg tækifæri sem okkur standa ekki til boða nema með drjúgri fyrirhöfn, tímatapi og fjárútlátum, hálfu meiri eftir hrun. Að vera í sambandi er vissulega mjög góðra gjalda vert, en má síður verða að létt- vægu og ógrunduðu takmarki. Vegna upplýsingafátæktar fjölmiðla um þessa hluti og brenglaðs mennta- kerfis varðandi sjónmenntir, var ábyrgð þeirra sem standa á bak við hina fimm binda listasögu stórum meiri um gagn- sætt og hlutlægt mat á framvindunni en gerist í grónum menningarsamfélögum ytra. Þá hefur ekki verið gefið út al- mennt myndlistarmannatal, hins vegar eru allar listasögur það auðvitað að vissu marki, einungis afmarkaðri. Til viðbótar ekkert listasafn hér sem bregður upp skilmerkilegu ljósi á þróun íslenzkrar myndlistar frá upphafi. Ráðist var nær undirbúningslaust í þetta stórvirki og án þess að fram færi nákvæm og gagnsæ uppstokkun, milli áratuga, sem hefði vissulega leitt margt í ljós sem ýmsir skrifarar virðast ekki hafa haft nema mjög takmarkaða hugmynd um, að ekki sé fastara að orði kveðið. Fátt um upp- lýsandi sýningar þar sem öllum núlif- andi kynslóðum, stílum og stefnum er stefnt til pataldurs og gefa leikum sem lærðum tækifæri til samanburðar … Ólafur Kvaran, ritstjóri listasögunnar, kom að utan frá námi í listfræðum 1974, en Aðalsteinn Ingólfsson, sem hefur verið stórum virkari á opinberum vett- vangi, og hafði lokið sínu prófi tveim árum áður, hafnaði einhverra hluta vegna að taka þátt í verkinu, sem verður að teljast ígrunduð og vitræn afstaða eins og hlutirnir lágu fyrir. Þá má taka fram að tímaskeiðið fyrir og eftir 1970 einkenndist af miklum uppstokkunum á myndlistarvettvangi, hugmynda- fræðilega listin var í algleymi ásamt neðanjarðarviðhorfum og pólitískri list. Fljótlega tók síðan að fjölga í stétt fræðinga og munu þeir svo komið vera um og yfir 60 talsins en afar lítið fer af sýnilegum fræðistörfum margra þeirra og lítið virðast þeir uppnumdir af ís- lenzkri list, nema að það skari þröngan námsgrunn. Björn Th. Björnsson var frá miðbiki aldarinnar eini fræðimaðurinn sem lét verulega til sín taka á opinber- um vettvangi. Að tilhlutun Ragnars í Smára tók hann saman yfirlit yfir ís- lenska listasögu í tveim bindum, sem náði allt fram til 1950, og komu á mark- aðinn 1964 og 1973. Hann hafði áform um viðbót en einhverra hluta vegna varð ekki úr, en ljóst má vera að hlut- verkið var varla á eins manns færi. Björn gerði sér grein fyrir því eins og ljóslega kemur fram í formála hans að fyrra bindinu, „að hætt væri á því að í sam- antekt sinni væru glompur eða missagn- ir. Þetta væri fyrsta tilraunin til sögulegs yfirlits, og sem öll frumsmíð önnur mundi hún standa til margvíslegra bóta“. Einnig ber sérstaklega að minnast þess hér, að í tilefni aldarafmælis Listasafns Íslands 1984 var tekið saman afmælisrit sem út kom 1985 með úrvali verka í eigu þess, 236 síður, með eftirprentun lista- verka á 217 síðum, þar af 169 í lit. Bókin var hin veglegasta og þótt hlutlægni hafi verið gætt kom það ekki í veg fyrir að eitt og annað raskaðist. Engin mynd var þannig af verki eftir Benedikt Gunn- arsson. Það stórmerkilega gerðist að ritið seldist upp á fáeinum árum, sem er einsdæmi um listaverkabók á landi hér og skil ég ekki fyrir mitt litla líf af hverju hún var ekki snarlega endur- útgefin með viðbótum og enn fullkomn- ari samantekt. Fleira af ferðalagi og einni listasögu Litið til baka verður að telja það með því yf- irskilvitlega, að einungis skuli liðin 98 ár frá hinni tímamótandi sýningu „Armory Show“ í New York, sem hafði einungis mánaðarviðdvöl í borginni en var síðan sett upp í Síkagó og Boston. Bragi Ásgeirsson bragi_asgeirsson.msn.com Sandro Botticelli (um 1444-1510): Málverk af dömu, Simonettu Vespucci 1475/80, málað á aspartré. „Ásjónur á endurreisn“ Bode-safnið, safnaeyjunni Berlín. Fegurð Símonettu er þjóðsaga, hún er fyrirmyndin í málverki listamannsins „Vorkoma“ 1477- 78 og „Fæðing Venusar“, um 1485. Ást- kona Giuliano ’de’ Medici, bróður sjálfs Lo- renzo il Magnifico. Bragi Ásgeirsson Horst Zimmermann sem tók á móti íslenzk- um listamönnum í 20 ár. Guðsmóðirin frá Foligno eftir Rafael 1511/12.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.