SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Page 39

SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Page 39
8. janúar 2012 39 Alltaf er það nú jafnhressandi að detta inn í nýtt ár. Hrasa blótandi á nýársnótt í einhverjum snjó-skaflinum og fárast yfir því að engir séu leigubíl-arnir á ferðinni. Finnast allt ómögulegt og illa fyrir sér komið en átta sig svo á því þar sem maður liggur marflatur í köldum snjónum og mænir upp í himininn, að það er fjarska gott að finna fyrir sínum eigin líkamshita. Fantafín forréttindi að vera með heitt blóð rennandi um æðarnar. Spretta upp eins og stálfjöður með kvakandi öndina í hálsinum og fagna frosti og funa. Eitt eilífðar sprelllifandi smáblóm, alls ekki með titrandi tár og langt því frá að deyja. Hlaupandi eins og hind yfir allar ísilagðar hindranir, hróp- andi áramótaheit um að galopna faðminn, hjartað og hausinn á nýja árinu. Af því enginn veit hvaða dag hann vaknar steindauður. Full ástæða til að fagna því að fá að taka þátt í ævintýrinu stóra sem lífið er. Kirkjugarðarnir eru jú fullir af fólki sem vildi svo gjarnan fá að búa í líkömum okkar lifenda. Og þeim er slétt sama þótt það séu einhver aukakíló á þessum lifandi líkömum, eða eitthvað úr lagi geng- ið. Þeir sem fengju að lifa í annað sinn gerðu efalítið meira af því að eiga í nánum samskiptum við annað fólk. Á nýja árinu ættu því allir sem eru svo ljónheppnir að vera lifandi að snerta meira og oftar annað ljónheppið fólk. Húðin sem líkamar okkar mannfólks eru íklæddir virðist nefnilega vera sköpuð til að láta strjúka sér. Henni líður best þegar hún er þétt upp við aðra húð. Heitt og hlýtt. Nánd. Þeir sem hafa kannski safnað einhverju umframummáli á sína líkama yfir hátíðirnar og langar að losa sig við eitthvað ættu hiklaust að taka skemmtilegustu líkamsræktina fram yf- ir aðrar á árinu nýkomna: Njóta ásta. Ríða eins og rófulausir hundar. Hvaða nafni sem við nefnum það, þá fjúka þær fljótt kalorí- urnar þegar fólk svitnar við þessa iðju sem okkur er öllum svo eðlislægt að viðhafa í tíma og ótíma. Og elska með ástríðu frá dýpstu hjartarótum, ekki gleyma því. Sálin, hausinn og hugsanirnar, allt út í djúpu laugina. Óttalaust. Vissulega er þó nokkur hætta á hjartasárum, en betra er að blæða en að sleppa því að lifa til fulls. Upp með hendur, niður með brækur. Það er ekkert annað en hugleysi að þora ekki að lifa. Hvað sagði ekki meistari Megas: Sitjandi krákur þær svelta, segja þeir sem vita gerst. Og þeir fullyrða líka feimnislaust að þær sem fljúgi þrífist best. Tökum flugið ’ Það er ekkert annað en hugleysi að þora ekki að lifa til fulls. Stigið í vænginn Kristín Heiða khk@mbl.is haldsnám ytra. Var að námi loknu m.a. biskupsritari, kennari, fræðslumálastjóri og enn síðar bankastjóri. Fyrir kosningar haustið 1923 leituðu framsóknarmenn í Vestur- Ísafjarðarsýslu að fulltrúa sem væri verðugur fulltrúi þeirra á þingi, en sýslan var þá einmenningskjördæmi. Þeim flaug nafn Ásgeirs í hug, og hann gaf kost á sér. Ásgeir fékk góða kosningu og var fulltrúi Vestur-Ísfirðinga á þingi upp frá því; fyrst sem þingmaður Fram- sóknarflokksins, um hríð utan flokka en síðar þingmaður Alþýðu- flokks. Árið 1932 var stuðningur við ríkisstjórn Framsóknarflokksins undir forsæti Tryggva Þórhallssonar brostinn. Stjórnin náði ekki að koma fjárlögum í gegn og Sjálfstæðis- og Alþýðuflokkur vildu gera breytingar á kjördæmaskipan. Tryggvi fól því Ásgeiri mági sínum að mynda stjórn sem honum og tókst. Ásgeir var forsætisráðherra í miðri heimskreppunni, það er frá 1932 til 1934. Fljótt var litið til Ásgeirs sem forsetaefnis. Í forsetakosningum 1952 bauð hann sig fram og sigraði keppinauta sína tvo, þá Gísla Sveins- son og Bjarna Jónsson dómkirkjuprest, sem var beinlínis frambjóð- andi ríkisstjórnarinnar. Ásgeir sat á Bessastöðum til 1968 í forsetatíð sem ekki verður rifjuð upp hér. En gagnorður var Tryggvi Ófeigsson er hann sagði að Ásgeiri látnum árið 1972 að hann hefði verið maður alþjóðar. Minntist hann í því sambandi ferðar þeirra um Húnavatns- sýslur. „Á ferð sinni um Vatnsdal varð á vegi farlama gamalmenni honum alls ókunnugt. Forsetabíllinn var stöðvaður og leyst úr erf- iðleikum þess sem studdist við stafi sína. Það voru snögg umskipti. Nokkuð skammt var á ákvörðunarstað. En í samræðum voru allir jafnir – aðeins íslenzka flaggið gaf til kynna hver væri á ferð.“ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is ’ En í samræð- um voru allir jafnir – að- eins íslenzka flaggið gaf til kynna hver væri á ferð menn þá betur, vatnsgreiddum viðskiptafræðingi í jakkafötum með bindi eða Duff McKagan – ein- um úr hópnum. Þetta skynjaði McKagan og fyrir vikið hefur hann sett á laggirnar fyrirtæki, Meridian Rock, sem sérhæfir sig í fjármálaráðgjöf fyrir rokkara og rokkhljómsveitir. Meðeigandi hans er gamall bankamaður, Andy Bottomley, sem einnig hefur sérhæft sig á þessu sviði. Velgengni ekki sjálfgefin McKagan segir vandann að stórum hluta í því fólginn að menn taki velgengni sem sjálfsögðum hlut. Þegar þeir slái í gegn og geri þrútna útgáfu- samninga gefi þeir sér að fé muni streyma inn um ókomna tíð. Þannig er það sjaldnast. Að mati McKagans veita umboðsmenn og lögmenn rokk- urum sjaldnast nægilegt aðhald – hvetja þá jafn- vel frekar til að gefa í. Næsta plata verði hvort eð er miklu stærri. Þetta segir hann þá gera vegna þess að úrtölumenn séu gjarnan látnir taka pok- ann sinn. Þau geta verið bólgin, egóin. Skyndilega er svo allt fé á þrotum. Hvað þá? McKagan segir Meridian Rock líta á það sem hlutverk sitt að breyta þessu – veita skjólstæð- ingum sínum heiðarlega ráðgjöf og búa í haginn. Stoðirnar eru þrjár: Ráðvendni (þ.e. að svíkja menn ekki); gagnsæi og fræðsla. Sumsé, uppbygging en ekki niðurrif. Andlitið datt af starfsfólki Walmart- verslunar í Norður-Karólínu í Banda- ríkjunum á dögunum þegar maður nokkur dró upp milljón dala seðil til að greiða fyrir vörur sem hann hugð- ist kaupa í búðinni. Reikningurinn hljóðaði upp á 476 dali. Starfsfólkið kannaðist ekki við svo verðmæta seðla og þegar maðurinn fullyrti að seðillinn væri ósvikinn var lögregla kvödd á vettvang. Ósagt skal látið hvort maðurinn hef- ur verið undir áhrifum frá smásögu Marks Twains, 25 milljón dala seðlinum, en hitt er víst að verðmætasti seðillinn í umferð í Bandaríkjunum er 100 dalir. Fram til 1969 voru prentaðir seðlar allt að 10.000 dölum. Dró upp milljón dali Maðurinn var ekki með neina smáseðla á sér. Dómari í Flórída í Bandaríkjunum skellti upp úr og sló sér á lær þeg- ar fyrir hann kom ungur maður sem gefið var að sök að hafa reynt að múta lögreglumanninum sem hugðist handtaka hann fyrir að vera með fíkniefni í fórum sínum með tveimur miðum á lokaleik ruðningsliðsins Miami Dolphins á leiktíðinni í NFL gegn New York Jets, að því er fram kemur í dagblaðinu Palm Beach Post. „Hefurðu séð Dolphins leika nýverið?“ spurði dómarinn. „Það er ekki nokkur maður á leiðinni á þennan leik.“ Mannsins bíður nú dómur fyrir vörslu fíkniefna, hótanir og tilraun til að múta löggæslunni. Aumar mútur Lítið hefur geng- ið hjá Dolphins. ’ Hættir þú ekki strax að drekka verður þú allur innan mánaðar! Guns N’ Roses á gullaldarárunum. Duff McKagan er annar frá hægri.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.