SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Side 41

SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Side 41
8. janúar 2012 41 LÁRÉTT 1. Ungmennafélag speglar haf og eitthvað auka- lega. (6) 3. Kenning útlima leiðir til áfloga. (11) 7. Plís! Er að sauma. (7) 9. Þekkt ól var auglýst. (9) 11. Líkir umvefja kind sem drapst með séra og verða fróðlegir. (12) 12. Tal við heimsálfu vegna lands. (7) 13. Bakteríutegundir missa ríkar af agni. (11) 14. Skel er í gælum. (6) 15. Lykt úr tveimur áttum er yfirborðsþekking. (9) 20. Hjá LÍN lést kona með hljóðfæri (8) 22. Ó, sér ruglaðan glæpinn hjá fórnfúsum. (11) 25. Helgur skítur á priki. (5) 26. Sæti um tær og il út af drambi. (9) 28. Öfugsnúinn mælska getur verið vond. (4) 29. Var Kelvin við að uppgötva ekki bleyðuna? (8) 30. Hefur band og fégræðgi (6) 31. Vættur sem felur sig á háalofti. (4) 32. Að bátum óþekktur með einn fer að kröfunni. (11) LÓÐRÉTT 1. Lærdómur sem er ekki á niðurleið veldur ves- eni. (6) 2. Bara til svipaðra. (6) 3. Stór fær manninn og dýrið. (9) 4. Tapa að lokum úr dínamó í upphafi tímabils og fá sprengiefni í staðinn. (7) 5. Með spili í byr. (9) 6. Varla svæfa kengúru að sögn. (8) 8. Í aflituð ílátin set sjávarfangið. (9) 10. Sítrusávöxtur fullur af steinefnum í föstu haldi. (9) 16. Lítill hjá ykkur er kippur. (9) 17. Volgur spónn fer á hreyfingu á tímabilinu. (10) 18. Ekki . heldur frekar málalok eða . (11) 19. Fugl sem verður undir nær að skrifa (9) 21. Skepnur og meiri skepnur eru verðmæti. (9) 22. Ó herra, hestur er ekki við góða heilsu. (6) 23. Næ naumlega að vera að koma á staðinn út af sanngirni. (8) 24. Æ leggi einhvern veginn á slæma. (6) 27. Þjálfa fyrir eitt rand að sögn um un alla tíð. (8) 30. Hefur maður bæn? (5) Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátt- tökuseðilinn í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn kross- gátu 8. janúar rennur út á hádegi 13. janúar. Nafn vinningshafans birtist í Sunnudagsmogganum 15. janúar. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi krossgátunnar 1. janúar er Lilja S. Jóhannesdóttir, Sólvöllum 11, Akureyri. Hún hlýtur að launum bókina Eyjan undir sjónum eftir Isabel Allende. Mál og menning gefur út. Krossgátuverðlaun Þau orð sem Hikaru Nakamura, fremsti skákmaður Bandaríkja- manna nú um stundir, lét falla í viðtali við upphaf Lund- únamótsins á dögunum, að styrkur Garrís Kasparovs á skák- sviðinu hefði fyrst og fremst leg- ið á sviði byrjana og á veldistíma hans hefði mátt finna stórmeist- ara sem staðið hefðu honum framar í miðtafli og endatafli, gáfu mönnum tilefni til að ætla að ekki væri allt með felldu í samskiptum hans við Kasparov sem þó átti að heita þjálfari hans. Og þegar heiðursgestur mótins, nefndur Kasparov, gekk í salinn án þess að heilsa lærisveini sín- um sínum fengust grunsemdir manna staðfestar: að samvinnu þeirra væri lokið. Skýringin á þeim slitum var á þá leið að í upphafi hefðu tveir „menning- arheimar“ hist og reynt að skilja hvor annan – en án árangurs. Þetta með Kasparov er hæpið; helsti styrkur hans fólst í því hversu snilldarlega honum tókst að tengja byrjun skákar við áætl- un í miðtafli. Nakamura sem vann Wijk aan Zee-mótið í ársbyrjun gekk fremur illa á minningarmótinu um Tal í Moskvu í nóvember sl. og talið er að þar hafi soðið upp úr í samskiptum hans við Kasp- arov. Hann náði sér hinsvegar vel á strik í Lundúnum og varð í 2. sæti. Kannski er ekki skrýtið að Kasparov eigi erfitt með að botna í Nakamura sem kalla má einhverskonar „cyber-pönkara“ skákarinnar, hann er hann tíður gestur á vefsvæði ICC og nýtur þar mikilla vinsælda, æfir sig með því að tefla löng hraðská- keinvígi við öflug skákkforrit, tapar stundum með núlli en gefst aldrei upp hvað sem á dynur. Bandaríkjamönnum líkar það vel þegar Nakamura er nefndur sem líklegur heimsmeistari en skákin hefur þó átt við ímynd- arvanda að stríða og fær sjaldnast verðskuldaða umfjöllun því alltaf skal nafn Bobbys Fischers vera dregið fram og ekki allt fagurt sem þar stendur. Samanburður að öðru leyti er Nakamura einnig dálítið óhagstæður. Hann varð Bandaríkjameistari fyrst aðeins 17 ára gamall en Bobby vann titilinn fyrst 14 ára gamall og síðan í hvert skipti sem hann tók þátt, átta sinnum alls. Á milli jóla og nýárs var var Nakamura mættur til leiks á skákmótið í Reggio Emillia á Ítal- íu og hefur farið hamförum. Sex skákmenn tefla tvöfalda umferð. Eftir sex umferðir er staðan þessi: 1. Nakamura 5 v. (af 6) 2. Morozeivic 3 ½ v. 3. – 4. Ivant- sjúk og Giri 3 v. 5. Caruna 2 ½ v. 6. Vitiugov 1 v. Nikita Vitiugov – Hikaru Na- kamura Drottningarbragð 1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Be7 4. Rf3 Rf6 5. Bf4 O-O 6. e3 Rbd7 Þessi leikur er aftur að komast í tísku, áður var vinsælast að leika 6. … c5. 7. Be2 c5 8. cxd5 Rxd5 9. Rxd5 exd5 10. O-O c4 11. b3 Rb6 12. bxc4 dxc4 13. Dc2 Be6 14. Hab1 Bæði hér og síðar gat hvítur styrkt stöðu sína á miðborðinu með framrásinni e3-e4. 14. … Hc8 15. a4 a5 16. Rg5 Bxg5 17. Bxg5 f6 18. Bh4 c3 19. Bd3 h6 20. Bb5? Eftir þennan slaka leik á svart- ur í engum vadræðum, 20. Bg3 eða 20. Hfc1 var betra. 20. … Rd5 21. De4 Dd6 22. Bg3 De7 23. Hbc1 Rb4 24. d5 Rxd5 25. Hfd1 Hfd8 26. Hd4 f5 27. De5 Df6 28. Dxf6 gxf6 29. h3 Kf7 30. Bc4 Ke7 31. e4 31. … Rf4! Snaggaralegur leikur og dæmigerður fyrir Nakamura. 32. Hxd8 Hxc4! 33. Bxf4 Kxd8 34. exf5 Bxf5 35. Be3 c2 36. g4 Be4 37. Bb6 Kd7 38. Bxa5 Hd4! Hvítur gafst upp, það er engin vörn við hótuninni 39. … Hd1+. Helgi Ólafsson helol@simnet.is Nakamura fer hamförum Skák Nafn Heimilisfang Póstfang Krossgáta

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.