SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Side 45

SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Side 45
8. janúar 2012 45 Nú veit ég ekki, kærilesandi, hvort þúheldur lista yfir þærbækur sem þú lest yfir árið og reyndar veit ég ekki hvort þú lest eitthvað yfirleitt annað en þennan pistil. Sú ágæta bókasíða The Millions, sú besta og fróðlegasta sem ég hef rekist á á vafri mínu um netið, sjá them- illions.com, tekur saman lista yfir þær bækur sem fólk hefur lesið á árinu og hefur gert síðast- liðin átta ár. Tilgangur listans er ekki að finna bestu bækur ársins heldur frekar sá að fá lesendur til að segja frá því hvað þeir eru að lesa og benda þannig á bækur. Þetta ár sendu fleiri inn lista en nokkru sinni, 72 þátttakendur og nefndu 214 bækur, 139 skáld- sögur, 68 bækur almenns eðlis, 5 ljóðabækur og 2 teiknimynda- sögur. Moby Dick var elsta bókin en nokkrar bókanna komu út á þessu ári. Það er eðli góðra bóka að vekja sömu áhrif hjá lesandanum hve- nær sem þær eru lesnar. Fyrir vikið gefur það jafn mikla gleði að lesa söguna Mikkjáll frá Kol- beinsbrú eftir Heinrich von Kleist, sem út kom 1711 (á ís- lensku 1950), og Gestakomur í Sauðlauksdal eftir Sölva Björn Sigurðsson. Það skýrir og hvers vegna svo fáar bækur koma fyrir oftar en einu sinni á listunum sem birtiir eru á vefsetri The Millions; þrjár bækur voru á þremur listum - Train Dreams eftir Denis Johnson, Suicide eftir Edouard Levé og 1Q84 eftir Ha- ruki Murakami – og sjö bækur voru á tveimur listum. Þetta verður að teljast eðlileg dreifing í ljósi þess að vestan hafs koma út nærfellt 300.000 nýir titlar á hverju ári og 200.000 í Bretlandi (sem skarast eðlilega að tals- verðu leyti). Hér á landi koma út um 1.800 titlar á ári og líklegt og eðlilegt að val manna yrði álíka fjölskrúðugt tæki einhver saman slíkan lista. Hvað ertu að lesa? ’ Tilgangur listans er ekki að finna bestu bækur ársins heldur frekar sá að fá les- endur til að segja frá því hvað þeir eru að lesa. Orðanna hljóðan Árni Matthíasson arnim@mbl.is Í bók sinni Hamingjulönd veltir bandaríski blaðamað- urinn Eric Weiner því fyrir sér hvaða ástæður liggi því til grundvallar að þegnar sumra þjóða eru heilt yfir hamingju- samir á meðan þegnar annarra eru það ekki.Í þessum tilgangi leggur hann land undir fót, heimsækir ólíka flóru þjóða víða um heim og spjallar við íbúa, bæði gestkomandi og innfædda, allt í þeim tilgangi að fá innsýn í ástæður hamingju fólks á staðn- um - eða skorti þar á. Slík yf- irferð er áhugaverð hugmynd í sjálfu sér, en sérstaklega er gam- an að glugga í bókina þar eð Ís- land er eitt hinna tíu landa sem Weiner sækir heim. Weiner er skemmtilegur höf- undur að lesa og stíllinn hæfir efninu ljómandi vel. Þá ber að hrósa þýðand fyrir lipurlega snaraðan texta. Weiner er New York-búi af Woody Allen- skólanum; ólundarseggur að eig- in sögn, tortrygginn á allt sem fyrir verður og skemmtilega kaldhæðinn gagnvart öllu sem vera skal, ekki síst sjálfum sér. Sú nálgun hæfir viðfangsefninu því auðséð er að Weiner tekur eigin rannsóknarvinnu mátulega al- varlega. Með annars konar úr- vinnslu er hætt við að bókin fengið á sig vellulegan sjálfs- hjálparblæ og það hefði auðvitað gert út af skemmtanagildið og bókina sjálfa í kjölfarið. Heimsreisan sjálf, um tíu ólík lönd og um leið mismunandi hamingjusöm, er býsna skemmtileg aflestrar. Höfundur hefur leikinn í Hollandi, nánar tiltekið í Rotterdam, en þar er að finna merkilega stofnun sem kallast Alþjóðahamingjugagna- grunnurinn - The World Data- base of Happiness. Þar glöggvar Weiner sig á því hvernig upp- röðun þjóða heims er háttað á hamingjukvarðanum, og svo er lagt í hann. Sem fyr segir er Weiner lipur penni og meinhæðinn, og því lík- legt að þegnar sumra þjóða kunni honum takmarkaðar þakkir fyrir skrifin. Þannig birtast Svisslend- ingar lesendum sem dæmalaust tilþrifalitlir karakterar, húmors- lausar mélkisur sem gera ekkert til að raska ró hversdagsleikans. Að hans sögn lifa þeir fyrir logn- molluna. Þó eru þeir með ham- ingjusömustu þjóðum. Þá fær Moldóva hroðalega útreið sem ömurlegur áfangastaður, fullur af óhamingjusömu fólki. Íslenski kaflinn er skemmtilegur aflestrar og líklegt að hérlendir lesendur kannist við flest sem þar ber fyrir augu. Indlandskaflinn er einna sístur, helst til yfirborðskenndur og fátt bitastætt þar að fá. Ályktanir þær sem Weiner dregur af heimsóknum sínum, þ.e. hvaða ástæður liggja að baki hamingju tiltekinnar þjóðar eða óhamingju, eru í flestum til- fellum trúverðugar og rökréttar. Hitt verður að taka með í reikn- inginn að ekki verður rýnt af neinni dýpt í þjóðarsál hér eða þar með því að dvelja vikutíma í tilteknu landi og spjalla þar við þrjár til fimm manneskjur. En hið glögga gestsauga kemst þó iðulega vel frá verkefninu. Til að mynda er kaflinn um Katar ákaf- lega fróðlegur þeim sem ekki þekkja til. Landið er lítið en er að drukkna í fjárhagslegri velsæld sökum gríðarlegra olíu- og gas- birgða sem það ræður yfir. Kat- arar eru þó ekkert áberandi hamingjusamir og ræður höf- undurinn að það sé vegna þess að landið á sér litla sögu og af- skaplega takmarkaða menningu. Listaverkin sem prýða gallerýin eru á heimsmælikvarða en öll eru þau aðkeypt. Það er ekki nema hálf öld síðan íbúar Katar eigruðu um sandana með úlfalda í taumi. Í dag er höfuðborgin Doha eins og Las Vegas á sterum. Aftur á móti eru íbúar Bútan flestir fá- tækir, eða öllu heldur nægju- samir, því þeir eru flestir býsna hamingjusamir. Íslendingar eru að vanda í hópi hamingjusöm- ustu þjóða, mestanpartinn af því hér á landi reddast alltaf allt, og maður (og áfengur drykkur) er manns gaman. Skammdegið bít- ur vitaskuld ekki á mörlandann því við eigum okkur rífandi menningu, landlæga listhneigð og andans frjósemi, bókmennta- sögu og hvaðeina. Niðurstaðan er líka vitræn nokk; engin ein forskrift er til að hamingjusamri þjóð og for- sendur eru mismunandi frá landi til lands. Enda er Weiner fyrstur til að viðurkenna (og minnir á það reglulega) að rannsókn hans er ekki vísindaleg heldur gerð á forsendum forvitninnar. Bókin veitir fyrir bragðið ákveðnar hugmyndir í stað þess að varpa fram fullyrðingum í fúlustu al- vöru og henni ber að taka sem slíkri. Þannig er hún líka bráð- skemmtileg aflestrar og fróðleg um leið. Heimsreisa í hamingjuleit Bækur Hamingjulönd bbbmn Eftir Eric Weiner. Jóhann Axel And- ersen íslenskaði. 329 bls. Orms- tunga gefur út. Bandaríski blaðamaðurinn Eric Weiner leitaði hamingjulanda. Jón Agnar Ólason Costa-bókmenntaverðlaunin voru afhent í vikunni. Þar kom á óvart að Booker-verðlaunahaf- inn Julian Barnes varð að lúta í lægra haldi fyrir Andrew Miller sem hlaut verðlaun fyrir skáld- söguna Pure. Af öðrum verð- launum má nefna að besta barnabók var Blood Red Road eftir Moira Young, besta frum- raun Tiny Sunbirds Far Away eftir Christie Watson, besta ljóðabók The Bees eftir lárvið- arskáldið Carol Ann Duffy og besta ævisagan Now All Roads Leads to France eftir Matthew Hollis. Úr þessu safni verður svo valin ein bók 24. janúar. Veitt Costa-verðlaun LISTASAFN ÍSLANDS Söfn • Setur • Sýningar ÞÁ OG NÚ 22.9.-31.12. 2011 Í AFBYGGINGU Libia Castro & Ólafur Ólafsson 13.1. - 19.2 2012 SÚPUBARINN, 2. hæð Hollt og gott í hádeginu! Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. Allir velkomnir! www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Þúsund ár - fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands frá 19. öld til nútímans. Fyrsti áfangi nýrrar grunnsýningar um þróun íslenskrar myndlistar. „Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“ Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar, undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar. Sýningin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri. Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna. Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. Listsýning Eddu Heiðrúnar Backman. Munnmáluð vatnslitaverk og olíumálverk. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Fjölbreyttar sýningar: Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu Þetta er allt sama tóbakið! Spennandi safnbúð og Kaffitár Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opið þriðjudaga-sunnudaga kl. 11-17. Lokað á mánudögum Kyrralíf Sýning á kyrralífsmyndum eftir íslenska listamenn Pleaser Harpa Björnsdóttir Opið 12-17 fimmtudaga 12-21 lokað þriðjudaga www.hafnarborg.is sími 585 5790 - Aðgangur ókeypis HLUTIRNIR OKKAR (9.6.2011 – 4.3.2012) HVÍT JÓL (28.10.2011 – 15.1.2012) Opið alla daga nema mán. kl. 12-17. Verslunin KRAUM í anddyri. Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.