SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Page 4
4 12. febrúar 2012
Námsmenn fínustu háskólanna í Bandaríkjunum,
hinna svokölluðu Ivy League-skóla, hafa ekki verið
atkvæðamiklir í atvinnmennsku í bandarískum körfu-
bolta, þótt finna megi undantekningar á borð við Bill
Bradley, sem kom úr Princeton, lék á sínum tíma
með New York Knicks og var í liðinu bæði skiptin,
sem það varð meistari.
Aðeins fjórir NBA-leikmenn hafa komið úr Harvard
og Jeremy Lin er sá fyrsti síðan 1953. Leikmaður úr
þessum skólum getur auðveldlega farið fram hjá út-
sendurum NBA-liðanna, ekki síst vegna þess að
keppnin er ekki talin jafnhörð þegar lið þeirra eigast
við. Harvard hefur til dæmis ekki komist í úrslita-
keppnina í bandaríska háskólaboltanum síðan fyrir
miðja síðustu öld.
Það þykir því afrek hjá Lin að hafa komist í byrj-
unarlið í NBA og bera vitni þrautseigju hans. „Ég
held að fólk sé hissa vegna þess að það þekkir hann
ekki,“ segir Shirley Lin, móðir nýstirnisins. „Það
hafa ekki margir leikmenn komið úr Harvard og
asískir Bandaríkjamenn eru ekki margir heldur í
deildinni. Segja má að þetta sé saga lítilmagnans,
en hann leggur hart að sér.“
Fyrsti leikmaðurinn úr
Harvard í hálfa öld
Körfuboltaundrin gerast enn. Fyrir vikuvar Jeremy Lin, bakvörður hjá NewYork Knicks, óþekktur með öllu. Nú erekki um annað talað í bandaríska
körfuboltanum og hefur hann þó aðeins leikið þrjá
leiki.
Það er ekkert hefðbundið við Lin. Hann er af as-
ískum uppruna. Foreldrar hans fluttu til Bandaríkj-
anna frá Taívan á áttunda áratug 20. aldar. Hann er
fyrsti leikmaðurinn, sem fæddur er í Bandaríkj-
unum af taívönskum eða kínverskum uppruna til
að leika í NBA. Aðeins fjórir bandarískir leikmenn af
asískum uppruna hafa leikið í deildinni frá upphafi.
Lin fékk engin tilboð um að spila körfubolta í há-
skóla þótt hann stæði sig vel með menntaskólaliði
sínu í Palo Alto og yrði Kaliforníumeistari.
Lin fór í Harvard. Í tvígang var hann valinn í úr-
valslið fremstu háskóla Bandaríkjanna. Sú frammi-
staða dugði honum þó skammt í nýliðavalinu 2010.
Ekkert NBA-lið vildi þá líta við Lin.
Hann komst þó að hjá Golden State Warriors, lið
hans heimabæjar, en sat að mestu leyti á bekknum.
Í desember bar hann látinn fara þaðan. Houston
Rockets sýndu leikmanninum áhuga, en liðið var
ekki tilbúið að bæta honum í leikmannahópinn. Þá
lá leiðin til New York. Þar voru þrír bakverðir fyrir
og hann sá fjórði í goggunarröðinni. Hann kom inn
á, en spilaði stutt og náði ekki að setja mark sit á
leik liðsins. Þar til á laugardag fyrir viku. Þá kom
Lin inn á af bekknum og átti stjörnuleik, skoraði 25
stig og gaf sjö stoðsendingar þegar Knicks unnu
granna sína frá New Jersey 99-92.
Tveimur dögum síðar var hann í byrjunarliði í
fyrsta sinn á ferli sínum í NBA. Aftur fór hann á
kostum, skoraði 28 stig og gaf átta stoðsendingar í
99-88 sigri á Utah Jazz. Það sem meira er, enginn
leikmaður í NBA hefur skorað jafn mörg stig og átt
jafn margar stoðsendingar í fyrsta leik í byrjunarliði
í rúm 30 ár. Síðasti leikmaðurinn til að afreka það
var Isiah Thomas, sem á sínum tíma var einn besti
bakvörður deildarinnar, í október 1981.
Á miðvikudag léku Knicks við Washington Wiz-
ards á útivelli. Aftur var Lin í aðalhlutverki hjá
Knicks, skoraði 23 stig og gaf 10 stoðsendingar.
Frammistaða hans vakti ekki síst athygli vegna þess
að í liði andstæðinganna þurfti hann að kljást við
John Wall, sem var tekinn fyrstur í nýliðavalinu
2010, árið sem ekkert lið vildi sjá Lin. Wall skoraði
29 stig og var með sex fráköst og má því segja að
viðureign bakvarðanna hafi lyktað með jafntefli, en
Knicks burstuðu Wizards 107-93.
Knicks hafa nú unnið þrjá leiki í röð, sem ekki
væri í frásögur færandi ef ekki væri fyrir það að
stórstjörnur liðsins, Amar’e Stoudemire og Carmelo
Anthony, léku ekki með í neinum þeirra. Þar á
undan hafði liðið tapað 11 leikjum af 13 og má segja
að með innkomu Lin hafi samtíningur leikmanna
orðið að liðsheild.
Vitaskuld á eftir að koma í ljós hvort Lin haldi
dampi, en hann hefur þó sýnt að full ástæða er til að
taka hann alvarlega. Í New York hefur vaknað æði
fyrir Lin og nýtt orð, Linsanity, bæst í orðaforðann.
Gríðarlegur áhugi hefur kviknað á leikmanninum í
Asíu. Var til þess tekið að Wizards urðu að útvega 15
blaðamannapössum meira en venjulega og voru
þeir allir fyrir fjölmiðla frá Kína og Taívan.
Nýjasta undrið í NBA fékk ekki fastan samning
við Knicks fyrr en á þriðjudag. Slík var óvissan um
hvort hann ætti framtíð fyrir sér hjá liðinu að hann
taldi ekki taka því að festa sér íbúð og hefur gist á
sófa í eins herbergis íbúð bróður síns, sem er í tann-
læknanámi. Nú getur hann farið að leita sér að íbúð.
Jeremy Lin, bakvörður New York Knicks, sem er um 1,90 m á hæð, býr
sig undir að troða í leik við Washington á miðvikudag.
Reuters
Ný stjarna Knicks
sýnir enga linkind
Jeremy Lin vinnur hug og
hjarta New York-búa
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
30 lið eru í NBA og ekkert þeirra taldi sig hafa not
fyrir Jeremy Lin, sem nú hefur slegið í gegn.
Reuters
„Á meðan við höfum Lin verð-
ur allt í lagi,“ skrifaði stuðn-
ingsmaður New York Knicks á
Twitter þegar tilkynnt var á
þriðjudag að Carmelo Anthony
yrði frá í tvær vikur vegna
meiðsla. Jeremy Lin hefur
leikið eins og herforingi í
þremur leikjum og strax hefur
gripið um sig æði. Jeremy Lin og Carmelo Anthony.
Reuters
Á meðan við
höfum Lin …