SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Síða 6
6 12. febrúar 2012
Karl Lagerfeld, einhver áhrifamestifatahönnuður heims, settist í rit-stjórastól fríblaðsins Metro í París ísíðustu viku. Það eru ekki aðeins föt
Lagerfelds sem vekja athygli heldur líka orð
hans en hann er þekktur fyrir að segja það sem
hann hugsar og fara ekki í kringum hlutina.
Í blaðinu sem Lagerfeld ritstýrir eru viðtöl og
greinar um margar af hans uppáhalds-
manneskjum eins og Carine Roitfeld, fyrrver-
andi ritstýru franska Vogue, hönnuðinn Haider
Ackermann, tónlistarkonuna Florence Welch
og nýstirnið Azealiu Banks. Þess má geta að
Banks verður með tónleika hérlendis í júní og
eins gott að búið er að bóka hana þar sem bless-
un Lagerfelds býður yfirleitt upp á frekari vin-
sældir.
Þrátt fyrir þetta stjörnulið er ekkert viðtal
sem vakti eins mikla athygli og það sem var við
keisarann sjálfan, eins og Lagerfeld er oft kall-
aður. Ummæli hans um söngkonuna Adele
(hann notaði f-orðið) hafa farið víða en Lag-
erfeld svaraði spurningunni sem var um aðra
söngkonu, Lönu del Rey svona:
„Ég kýs heldur Adele og Florence Welch.
Sem nútímasöngkona er hún ekki slæm. Aðal-
málið núna er Adele. Hún er aðeins of feit en
hún er með fallegt andlit og undursamlega
rödd.“
Netheimar loguðu yfir því að Lagerfeld hefði
kallað söngkonuna feita og frétt þessa efnis var
mikið lesin á mbl.is. Þar stóð reyndar í fyr-
irsögn að Lagerfeld hefði sagt Adele vera „allt-
of“ feita sem er ekki rétt. Þessi frétt er sjötta
mest lesna frétt vikunnar á þessum vinsælasta
vef landsins. Fólk um allan heim var brjálað yfir
því að „þessi ljóti gamli kall“ (og þar fram eftir
götunum) hefði vogað sér að kalla söngkonuna
of feita. Staðreynd málsins er hinsvegar sú að
hún er aðeins of feit en er eitthvað að því? Hún
er bara engin mjóna eins og svo margar konur
sem eru í sviðsljósinu í skemmtanaiðnaðinum.
Hún er ekki tilbúin dúkka, stýrð af öðrum á
bak við tjöldin heldur semur hún eigin tónlist
og hefur vakið athygli fyrir sérstaka rödd sína
og einstaklega grípandi lög. Lagerfeld sagði
bara sannleikann. Hann sagði líka að hún væri
„aðalmálið“ og með „fallegt andlit“ og „und-
ursamlega“ rödd. Hann er greinilega mjög hrif-
inn af henni en þau ummæli fóru ekki eins hátt.
Orðið feit virðist vera það stórt skammaryrði í
dag að það trompaði allt hitt.
Keisarinn
gerist
ritstjóri
Umdeild ummæli
Karls Lagerfelds
um Adele
Ljóst er að þetta bragð Metro að fá Lagerfeld til að ritstýra einu blaði vakti mikla athygli á dagblaðinu.
Vikuspegill
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Lagerfeld gerði margar skemmtilegar teikningar fyrir blaðið. Hér má sjá hann sjálfan, Elísabetu Bretadrottningu og Svínku í Chanel.
Karl Lagerfeld er hönnuðurinn á bak við Chanel en hann er líka
að fást við margt annað. Það allra nýjasta frá honum er fatalína
sem ber einfaldlega nafnið KARL. Hún er sem stendur einvörð-
ungu til sölu í hinni þekktu vefverslun NET-A-PORTER.COM. Þar
er línunni lýst sem „sígildum miðbæjarfötum“. Þetta eru sem
sagt ekki föt fyrir fínar frúr á hádegisfundum heldur töffaraföt
fyrir barinn.
Fatalínan er greinilega ekki aðeins fyrir þá sem eru hrifnir af
fegurðarskyni Lagerfelds og því sem hann stendur fyrir í hönnun
heldur einnig fyrir gallharða aðdáendur fatahönnuðarins. Mikið
af fötunum sýnir nefnilega vel þekktar útlínur hans en hann er
alltaf með sólgleraugu og tagl í hárinu.
Grifflurnar eru ómissandi
Fötin eru svört, hvít og silfruð. Þarna eru leðurjakkar og leð-
urvesti, hálskragar og hælaskór að ógleymdum grifflunum en
Lagerfeld sést aldrei án sinna (ekki frekar en Madonna núorð-
ið). Fyrir þá sem vilja versla með stæl og sleppa plastpokunum
er hægt að kaupa strigapoka með áprentuðu andliti keisarans
sjálfs.
Glæný fatalína