SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Page 19
Guðmundur Óli Pálmason trommuleikari. Lognið fyrir storminn?
aldrei er kallaður annað en Addi, hefur orð fyrir Sól-
stöfum eftir að fyrsta lagið, Ljós í stormi, er að baki og
þakkar gestum, sem kjaftfylla Gamla bíó þetta kvöld,
kærlega fyrir komuna. „Það er gaman að sjá svona
marga hérna en við erum þungarokkshljómsveit sem
enginn hefur komið að sjá undanfarin fimmtán ár –
nema í Þýskalandi.“
Salnum er skemmt.
Þarna hittir Addi naglann á höfuðið, Sólstafir eru eitt
best varðveitta leyndarmál íslenskrar tónlistarflóru.
Af mætingunni á tónleikana að dæma gæti það verið
að breytast með Svörtum söndum. Burtséð frá gæð-
unum er platan á margan hátt aðgengilegri en fyrri
verk Sólstafa. Málmurinn var markvisst tónaður
niður við lagasmíðar og upptökur og óræð „seven-
ties“-stemning svífur yfir vötnum. „Þótt við höfum
poppað okkur dálítið upp er samt heilmikið þunga-
rokk í þessu ennþá. Eigum við að segja þungarokk í
Setinn var Svarfaðardalur í Gamla bíói síðastliðið fimmtudagskvöld. Svavar Austmann bassaleikari í forgrunni á sviðinu.
12. febrúar 2012 19