SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Side 30

SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Side 30
30 12. febrúar 2012 U mræðurnar um lífeyrissjóðina sýna í smækkaðri mynd vanda þjóðarinnar í uppgjör- inu eftir hrun. Nú er hægt að ná athygli fólks á það löngu úrelta kerfi, sem við lýði er í yfirstjórn sjóðanna, þ.e. að stjórnir þeirra langflestra eru skipaðar af stjórnum félaga vinnuveitenda og laun- þega í stað þess að sjóðfélagar kjósi þær sjálfir í beinni kosningu. Til þess að koma til móts við þann augljósa veikleika leggur nefndin, sem skýrsluna samdi, til að einn eða tveir stjórnarmenn verði kosnir beinni kosningu. Af hverju ekki allir? Aðrir segja: Ekki hefur þeim sjóðum farnast betur, þar sem stjórnir eru kosnar beinni kosningu. Eru það rök fyrir því að halda gamla kerfinu? Auðvitað ekki. Í þeim sjóðum geta þó sjóðfélagar staðið augliti til auglitis við þá, sem kjörnir voru í stjórn, og þeir krafðir skýringa. Það er skiljanlegt að lífeyrissjóðirnir hafi viljað láta vinna slíka skýrslu en veikleiki hennar er sá, að hún er gerð að frumkvæði og á vegum sjóðanna sjálfra. Skýrt dæmi um það er vandi nefndarinnar að skýra litla umfjöllun um svonefndar boðsferðir. Það dugar lítt að vísa til þess að sjóðirnir hafi sjálfir verið búnir að setja sér nýjar reglur um slíkar ferðir áður en nefndin var skipuð. Á árunum fyrir hrun var mikið talað í fjölmiðlaheiminum um þær ferðir. Ítrekuðum spurningum til sjóðanna um þær var aldrei svarað með fullnægjandi hætti. En það er svo annað mál, að þeir sem spurðu, þ.e. fjölmiðlarnir, kunna að hafa búið í glerhúsi. Hver er munurinn á því að lífeyrissjóður sendi starfsmann sinn til út- landa á kostnað banka til þess að kynnast nýrri starfsemi og kaupir hlutabréf í bankanum í kjölfarið eða að fjölmiðill sendi blaðamann jafnvel í sömu boðsferð, sem fjallar um þá starfsemi í sínum fjöl- miðli, sem getur haft áhrif á það að hinn almenni borgari kaupi hlutabréf í bank- anum? Það er stigsmunur en ekki eðl- ismunur. Og slíkar „kynnisferðir“ skila lítilli raunverulegri þekkingu, sem ekki er hægt að afla með öðrum hætti. Hvernig eiga þessir sjóðir að taka „fag- legar“ ákvarðanir? Þeir geta samið við banka eða annað fjármálafyrirtæki um ráðgjöf. Er hægt að leita annað eftir svo- nefndri faglegri ráðgjöf? Var það „fagleg“ ráðgjöf, þegar starfsmenn banka hringdu í gamalt fólk, sem átti sparifé á sparisjóðs- bók, og hvöttu það til að færa peningana yfir í peningamarkaðssjóði á vegum bank- ans, sem svo töpuðust í hruninu? Starfs- maðurinn fékk þóknun fyrir ef það tókst. Var það „fagleg“ ráðgjöf? Hver var staðan ef starfsmaður lífeyrissjóðs með háskóla- menntun í viðskiptafræðum „greindi“ ákveðin fyrirtæki og lagði svo til að sjóð- urinn keypti hlutabréf í þeim? Kannski var einhver forstjóranna skólabróðir viðkom- andi starfsmanns úr viðskiptafræðideild HÍ. Kannski frændi hans eða mágur. Kannski flokksbróðir. Er það alveg öruggt að slíkar ráðleggingar hafi verið „fagleg- ar“? Vafalaust hafa þær verið það í sumum tilvikum en hæpið að það hafi átt við allt- af. Í þessu návígi er fólgin grundvallarskýr- ing á því að hrunið varð. Við erum sam- félag, sem var lokað um aldir og fór fyrst að opnast í heimsstyrjöldinni síðari. Í þessu lokaða samfélagi hafa þróazt svo flókin ættartengsl, fjölskyldutengsl, vina- tengsl, kunningjatengsl, skólasystk- inatengsl og hagsmunatengsl, að það flækist fyrir okkur við hvert fótmál. Ná lögin um landsdóm utan um þennan vanda? Er hægt að krossfesta einn mann fyrir þessa djúpstæðu meinsemd íslenzks samfélags? Í umræðum um lífeyrissjóðina hefur verið vinsælt að tala um að þetta og hitt sé ljóst, þegar horft er í baksýnisspegilinn. Dugar það sem syndaaflausn? Af hverju rýmkaði Alþingi stöðugt heimildir lífeyr- issjóðanna til að kaupa hlutabréf? Það hef- ur enginn þingmaðurinn upplýst en lík- legt má telja, að forráðamenn lífeyrissjóðanna hafi óskað eftir því, og ekki er ósennilegt að þeir, sem höfðu hagsmuni af því að lífeyrissjóðirnir keyptu meira af hlutabréfum, hafi lagt þar hönd á plóginn. Andmælti einhver þingmaður? Hvað heitir þetta? Í útlöndum er þetta kallað „lobbíismi“ sem á íslenzku heitir hagsmunagæzla. Í útlöndum eru fyrirtæki, sem sérhæfa sig á þessu sviði og velta milljörðum. Þetta er áhrifamesta atvinnu- greinin í Washington D.C. Hvernig væri að alþingismenn gengju á undan með góðu fordæmi og viðurkenndu þetta? En svo áfram sé horft í baksýnisspeg- ilinn hljóta margir lífeyrissjóðamenn að hafa hrokkið við veturinn 2006, þegar „litla“ bankakreppan skall á. En það skal viðurkennt að það var auðvelt að trúa því um vorið og sumarið, þegar fréttir bárust um vel heppnuð viðbrögð bankanna við þeim vanda að þeim hefði tekizt að leysa hann. Öðru mál gegndi, þegar fréttir bár- ust á miðju sumri 2007 um húsnæðis- lánavafningana í Bandaríkjunum. Á ör- skömmum tíma þornuðu fjármála- markaðir upp. Þar var enga peninga að hafa. Þá höfðu margir áhyggjur af því, að sumir íslenzku bankanna mundu ekki ráða við endurfjármögnun lána sinna á síðari hluta árs 2008. Þó stóðu vonir til þess að söfnun innlána í erlendum útibú- um mundi draga úr þeim vanda. Þegar „run“ kom á banka í Bretlandi haustið 2007 fór hins vegar um menn í fjár- málaheiminum. Hvað gerðist þá á skrif- stofum lífeyrissjóðanna á Íslandi? Umræðurnar um lífeyrissjóðina eru þörf áminning um, að uppgjörinu í framhald- inu af hruninu er ekki lokið. Kannski er það rétt að byrja. Skýrsla um sparisjóðina og fall þeirra á eftir að vekja miklar um- ræður og þá ekki síður þær lagabreyt- ingar, sem urðu til þess að stofnfjáreig- endur, sem í mörgum tilvikum höfðu verið sérvaldir, högnuðust mjög. Margt var líkt með því og ákvörðun um frjálst framsal kvótans. Umræðurnar um lífeyrissjóðina Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Tveir menn brutust inn í Norskaríkislistasafnið í miðborg Óslóarí bítið á þessum degi fyrir átjánárum og stálu einu merkasta málverki sögunnar, Ópinu eftir Edvard Munch. Þjófarnir reistu stiga til vinstri við aðalinngang safnsins, brutu glugga, skriðu inn og voru horfnir á brott með myndina innan fimmtíu sekúndna. Þjófn- aðurinn var festur á filmu af eftirlits- myndavél utan á safninu en þjófarnir þekktust ekki. Viðvörunarbjöllur fóru í gang og næturvörður í húsinu gerði lög- reglu þegar í stað viðvart en þjófarnir voru á bak og burt þegar hún mætti á staðinn örfáum mínútum síðar. Þeir skildu eftir stigann og vírtöng sem hafði verið notuð til að losa myndina af veggnum. Munch málaði Ópið árið 1893, raunar málaði hann nokkrar útgáfur af verkinu en það var að flestra mati besta útgáfan sem stolið var frá ríkislistasafninu. Í tilefni vetrarólympíuleikanna sem hófust í Lillehammer síðar sama dag hélt ríkislistasafnið í fyrsta sinn heildarsýn- ingu á verkum Munchs og var Ópið fært niður á fyrstu hæð safnsins en það hafði áður verið til sýnis á annarri hæðinni. Menn gerðu sér grein fyrir því að áhætta væri í því fólgin að færa verkið en hún var tekin með það fyrir augum að gera sýn- inguna sem aðgengilegasta fyrir almenn- ing. Öryggisvörðum var fjölgað og myndavélar settar upp á framhlið hússins, á hinn bóginn var ekki myndavél í sýn- ingarsalnum sjálfum. Húsbændum í safninu – og norsku þjóðinni allri – var að vonum brugðið og hafði forstöðumaðurinn, Knut Berg, á orði að útilokað væri að meta málverkið til fjár. „En þetta er verðmætasta verk Nor- egs og frægasta verk Munchs. Það er von- laust að koma því í verð.“ Ríkislistasafnið var harðlega gagnrýnt úr ýmsum áttum fyrir slælega öryggisgæslu. Fljótlega lýsti norskur öfgahópur, sem var andvígur fóstureyðingum, þjófn- aðinum á hendur sér en lögregla tók hóp- inn ekki trúanlegan. Í mars 1994 barst safninu bréf þar sem krafist var andvirðis 122 milljóna íslenskra króna lausnargjalds á núvirði. Stjórn safnsins neitaði að borga enda voru áhöld um hvort hinir raun- verulegu þjófar væru á ferð. Í maí 1994 bar leynileg aðgerð lögreglu árangur og Ópið fannst ólaskað í litlu sjávarplássi í nágrenni Óslóar, þar sem Munch málaði mörg af sínum helstu verk- um. Í janúar 1996 voru fjórir menn fundn- ir sekir um aðild að málinu og hlutu dóma. Annar þjófanna, sem stálu verkinu, Pål Enger, sem afplánað hefur sinn dóm, starfar nú sem listaverkasali og hefur meðal annars verslað með verk eftir Edv- ard Munch – löglega fengin. orri@mbl.is Ópinu stolið Ópið eftir Edvard Munch er eitt af þekktustu málverkum í heimi. Reuters ’ Viðvörunarbjöllur fóru í gang og næt- urvörður í húsinu gerði lögreglu þegar í stað viðvart en þjófarnir voru á bak og burt þegar hún mætti á staðinn örfáum mínútum síðar. Á þessum degi 12. febrúar 1994

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.