SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Síða 40
40 12. febrúar 2012
Lífsstíll
Ég á bolla heima sem ég heldmikið upp á. Hann er merkturbestu systur í heimi. Skreyt-ingin á bollanum sýnir syst-
urina hampandi verðlaunagrip. Litli
bróðir var bara smástýri þegar hann gaf
mér þennan bolla. Ég tek því sem svo að
honum finnist ég sæmileg systir miðað
við þetta. Bollann nota ég sérstaklega
mikið um helgar. Þá er eins og bætist
sjálfkrafa í hann te. Svo brosi ég stundum
með sjálfri mér og hugsa hvað þetta hafi
nú verið fallegt af brósa litla. Hann keypti
líka einu sinni kjól á mig í útlöndum. Þá
var hann svona 10 ára rúmlega. Átti
krumpaðan fimm dollara seðil í vasanum
og ætlaði að kaupa eitthvað handa mér,
sem ekki var með í þessari tilteknu utan-
landsferð. Þá voru hlutirnir ekki ódýrir í
Ammmeríku heldur kostuðu hreint ekki
neitt. Kannski lánaði einhver honum smá
en kjólinn keypti hann alla vega. Hann
smellpassaði og ég notaði hann nokkrum
sinnum sem sparikjól.
Af þessum ágæta bróður mínum er líka
mynd heima. Hún hangir enn í forstof-
unni. Við köllum hann Gandhi á góðum
degi. Enda hangir hann þarna á veggnum
og fylgist með því sem fram fer. Einu
sinni ætlaði ég að skipta myndinni út fyr-
ir annað. Þá fékk bróðir minn frekjukast
og hélt nú ekki. Svo hann fékk að hanga
áfram og hangir enn.
Í dönsku kaupæði en þó á sænskri ferju
keypti ég fyrstu gjöfina handa bróður
mínum áður en hann fæddist. Það var lít-
ill bangsi sem hægt var að klemma t.d. á
vögguna. Gott ef ég prjónaði ekki á hann
húfu líka. Minnir það endilega. Daginn
sem hann fæddist fékk ég líka frí á
kóræfingu. Það er ógleymanlegt og
mér fannst ég mjög heppin. Ber er hver
að baki nema sér bróður eigi. Það tel ég
alveg satt. Bróðir minn er meira að segja
búinn að redda mér núna. Þar sem ég sit
andlaus í vinnunni og hefur tekist að
skrifa heila grein. Bara um hann. Elsku
systir, þín grein bíður síns tíma.
Ljósmyndir/norden.org
’
Af þessum ágæta
bróður mínum er
líka mynd heima.
Hún hangir enn í forstof-
unni. Við köllum hann
Gandhi á góðum degi.
Bróðir Gandhi á vegg
Lífið og
tilveran
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Ber er hver að baki
nema sér bróður eigi.
Bróðir minn á sérstakt
heiðurssæti á heim-
ilinu. Mynd af honum
hangir í forstofunni
eins og þjóðhöfðingja.
Þetta er mín síða svo ég geri það sem ég vil. Ef mig langar að skrifa ást-
arljóð til Johnnys Depps geri ég það. Það myndi hljóma nokkurn veginn
svona: Ó Johnny þú ert fagur og klár, góðar tennur og frábært hár, horft
hef ég á þig í fjöldamörg ár, yfir þér hlegið og fellt nokkur tár. Líklegast
myndi ástarljóð þetta aldrei berast leikaranum góða. Svo að í staðinn
tileinka ég honum þennan ramma hér í staðinn. Í bíóheiminum stóra
hefur Johnny Depp aldrei brugðist mér. Á hann er gott að horfa og
hann kann líka að leika. Þetta tvennt fer ekki alltaf saman. Aðdáun
mín byrjaði með Don Juan DeMarco. Unglingsstúlkum hefði auðvit-
að átt að banna að horfa á þessa mynd. Svo mikið kiknaði
maður í hnjánum. Ekki má heldur gleyma
What’s eating Gilbert Grape og alls ekki
Benny & Joon. Hún sýndi manni að
ástin var til alls staðar. Líka hjá
„furðufuglum“ og mikið var
það nú gott að vita. Svo
liðu árin og Johnny hélt
áfram að sanna sig. Þeg-
ar honum tókst að leika
hálfgerðan geðsjúkling í
Secret Window en samt vera
sjarmerandi eignaðist hann hjarta
mitt allt. Í byrjun kvikmyndarinnar Rum
Diary, sem ég horfði á fyrir skemmstu, brá mér
nokkuð. Þetta er í eina skiptið sem ég hef ekki
séð glitta í blikið góða í augunum á Johnny. Kar-
akterinn hans var með blóðsprungið auga. Mér
leist ekkert á þetta. En fljótt var „skipt um
peru“ og þá var Johnny aftur kominn í lag. Lék
vel og var heillandi. Ég ætla að gá hvort ég er
ekki örugglega búin að sjá allar myndir með
honum. Þá get ég með sanni sagt að hann leiki
alltaf vel og sé sætur um leið. Sama hvort hann
er sjóræningi eða vel greiddur töffari. Reuters
Johnny er bæði fagur og klár
Kryddaður kaffiskrúbbur
Fjarlægir dauðar húðfrumur,
gefur raka og yndislega kryddaða
lykt.
4 msk. sykur
1 tsk. kakóduft (bökunarkakó)
2 tsk. malað kaffi
kanil- og engiferduft, að smekk
2 msk. möndluolía
glerskál
Blandið öllu nema olíunni vel
saman í skál. Hellið olíunni svo
hægt og rólega saman við þangað
til þið fáið þykka og mjúka áferð á
skrúbbinn. Nuddið rólega á hend-
ur með hringlaga hreyfingum.
Skolið svo með volgu vatni og
þurrkið vel á eftir.
Úr bókinni Náttúruleg fegurð,
Arndís Sigurðardóttir, Bóka-
félagið.
Það er fínt að nota helgina til
að prófa að gera sinn eigin
skrúbb. Æfingin skapar meist-
arann í þessu sem og öðru. Svo
getur þú smám saman bætt við
það sem þú býrð til og búið til
þína eigin snyrtistofu heima fyrir.
Það er ekki slæmt að fara í langt
og gott bað og láta þreytuna líða
úr sér með góðan maska í hárinu
og andlitinu. Skrúbba sig síðan og
bera á sig heimagert krem. Upp-
skriftir má finna í bók Arndísar.
Kaffiskrúbbur