SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Page 47

SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Page 47
12. febrúar 2012 47 Vetrarhátíð í Reykjavík erhaldin þessa dagana og erþema ársins Magnað myrkur.Af því tilefni er boðið upp á fjölbreytta menningardagskrá. Fjöl- margir lögðu þá leið sína í söfnin af þessu tilefni og var mikil stemmning á hinni árlegu safnanótt hinn 10. febrúar enda dagskrá safnanna litrík og skemmtileg. Þegar kemur að hinu fag- lega safnastarfi er hins vegar ekki tjaldað til einnar nætur enda menningararfur þjóðarinnar varðveittur í söfnunum. Söfnum ætlað mikilvægt hlutverk Safngripir eru viðkvæmir og tíminn set- ur mark sitt á þá sem annað. Söfnum er ætlað að spyrna við fótum þegar kemur að hrörnun menningarminja sem varð- veita ber um ókomna tíð. Lög um söfn og þjóðminjar fjalla um hvernig staðið skuli að verndun og friðun minja um allt land. Söfnum er þar ætlað mikilvægt hlutverk þar sem fara þarf saman varð- veisla til framtíðar og aðgengi í samtím- anum. Þar kemur til margþætt hlutverk safna á sviði þar sem eitt leiðir af öðru í órofa samhengi. Samhliða söfnun muna fer fram skráning á sögu þeirra og við- eigandi varðveisla. Þá fara fram rann- sóknir á minjunum sem leiðir af sér miðlun hvers konar í formi sýninga, fræðslu og útgáfu. Því fylgir mikil ábyrgð að taka muni til varðveislu í safni því aðstæður og sér- þekking til meðferðar þarf að vera til staðar. Slík ákvörðun þarf að vera í sam- ræmi við stefnumörkun viðkomandi safns, ákvæði laga og taka mið af siða- reglum ICOM sem er Alþjóðaráð safna. Þar er meðal annars fjallað um hvernig standa beri að varðveislu safnkostar og hvaða viðmið eigi að tryggja fagleg vinnubrögð með langtímavarðveislu að leiðarljósi. Forsenda varðveislu menn- ingarminja er réttar aðstæður sem hægja á hrörnun minja. Slíkar aðstæður þurfa að fela í sér stöðugleika og standast við- eigandi öryggiskröfur. Það er því grund- vallaratriði að söfn hafi góðar geymslur, varðveisluhús, til þess að tryggja varð- veislu og öryggi minjanna til framtíðar. Á Þjóðminjasafninu fer fram sérhæfð starfsemi á sviði varðveislu þar sem sér- menntaðir forverðir starfa við meðferð safngripa og huga að öryggisaðstæðum þeirra. Kristján Eldjárn, fyrrverandi þjóðminjavörður og síðar forseti, tók upp orðið forvarsla yfir það viðfangsefni að verja hluti gegn eyðingu og hrörnun sem er mikilvægt ef tryggja á að hlutirnir verði til staðar fyrir komandi kynslóðir. Kristján valdi orðið út frá orðinu forvara sem þýðir samkvæmt eldri merkingum „að geyma og halda óbreyttu“ og á því vel við. Í forvörslu mætast ólíkar fræðigreinar Forvarsla er þverfagleg starfsgrein þar sem markmiðið er að stuðla að lang- tímavarðveislu menningarsögulegra gripa á borð við listgripi, forngripi, bæk- ur, ljósmyndir og handrit. Í forvörslu mætast ólíkar fræðigreinar, svo sem efnafræði, eðlisfræði, líffræði, listasaga, fornleifafræði, sagnfræði, þjóðfræði og siðfræði. Forvarsla, viðgerðir og umönn- un gripa byggist á skilningi á eig- inleikum þeirra efna sem gripirnir eru skapaðir úr, hvernig þessi efni eldast og færni í að bregðast við eyðandi áhrifum umhverfisins. Við forvörslu og varð- veislu menningarminja þarf einnig að huga að sögulegu samhengi gripanna í tengslum við meðferð þeirra. Í sumum tilvikum er lögð áhersla á fyrirbyggjandi forvörslu til þess að koma í veg fyrir frekari skemmdir en orðið hafa en ekki er leitast við að gera við hluti þannig að þeir líti út fyrir að vera ónotaðir. Spor sögunnar geta sannarlega verið mik- ilvægur hluti minjagildis safngripa. Á liðnum árum hefur verið gert mikið átak í forvörslu safnkostar Þjóðminja- safns Íslands, sérstaklega í tengslum við enduropnun safnsins fyrir tæpum áratug. Til þessa er það stærsta átak sem unnið hefur verið í for- vörslu safngripa hér á landi. Í því verkefni var höfð náin samvinna við sérfræðinga við Þjóð- minjasafn Danmerkur sem var mikils- verð reynsla fyrir sérfræðinga hér á landi og styrkti tengsl safnanna. Það verkefni fól í sér athugun á ástandi safnkostarins, val safngripa á nýja grunnsýningu um sögu þjóðarinnar og forvörslu með framsetningu á sýningunni í huga. Sú reynsla sem fékkst af samstarfi við dönsku sérfræðingana varð mikilvæg við gerð sérsýninga Þjóðminjasafnsins á liðnum áratug. Á sýningum Þjóðminja- safnsins er einungis brot af safnkosti Þjóðminjasafnsins til sýnis þótt sýning- argripir séu þúsundir muna. Meginhluti munanna er í varðveislu í safngeymsl- unum þar sem öryggi þeirra er tryggt með réttum skilyrðum og fyrirbyggjandi forvörslu til þess að forðast skaðleg áhrif svo sem af völdum ljóss, raka eða ryks. Í því felst einnig að huga að öryggi menn- ingarminjanna með tilliti til bruna, vatnstjóns og jafnvel náttúruhamfara. Safnkosturinn er þar skráður og að- gengilegur til skoðunar og miðlunar í samræmi við starfsemi og áherslur safnsins á hverjum tíma. Forvarsla er órjúfanlegur þáttur uppgraftar fornleifa Af ofansögðu má sjá að umtalsvert forvörslustarf hefur verið unnið í tengslum við faglegt starf Þjóðminjasafns Íslands. Þjóðminjasafn Íslands hefur einnig sem höfuðsafn minjasafna í land- inu veitt öðrum söfnum aðstoð vegna áhrifa jarðskjálfta og eldgosa. Þá hefur forvarsla jarðfundinna gripa aukist til muna vegna fjölgunar fornleifarann- sókna um allt land. Forvarsla er órjúf- anlegur þáttur uppgraftar fornleifa enda jarðfundnar minjar sérstaklega við- kvæmar fyrir eyðandi áhrifum umhverf- isins við þá breytingu sem uppgröftur úr jörðu felur í sér. Með forvörslu er hægt að stuðla að varðveislu og frekari skiln- ingi á þeim gripum sem finnast. Á liðn- um árum hefur einnig verið lögð meiri áhersla á forvörslusjónarmið í umönnun húsa í húsasafni Þjóðminjasafnsins. Á það sérstaklega við viðhald torfhúsa og torfkirkna. Árið 2011 var samþykkt ný yfirlitsskrá Íslands hjá heimsminjaskrifstofu UNESCO og því hefur í samræmi við áherslur UNESCO verið leitast við að standa vörð um sem mest af hinu upp- runalega efni og hægja á hrörnunarferli minjanna með sérhæfðum aðferðum. Það felur í sér að í stað gagngerrar endurnýj- unar í tengslum við viðgerðir friðaðra húsa er lögð áhersla á viðgerðir á því sem þarf að lagfæra, ávallt með það að leið- arljósi að rýra ekki minjagildi húsanna. Það krefst þverfaglegrar samvinnu á sviði fræða, handverks og forvörslu. Með því móti hefur tekist að halda í sem mest af varðveislugildi þeirra húsa sem teljast til safnkostar Þjóðminjasafns Íslands. Á síðustu áratugum hefur þekking og menntun á sviði forvörslu styrkst hér á landi, og skilningur á mikilvægi þess að standa rétt að varðveislu menning- arminja hefur aukist. Þjóðminjasafni Ís- lands sem höfuðsafni á sviði þjóðminja- vörslu er ætlað að vera leiðandi á því sviði. Það felur í sér miðlun þekkingar með ráðgjöf og fræðslu auk faglegrar samvinnu. Með útgáfu fræðsluefnis og með kennslu háskólanema í forn- leifafræði og safnafræði er aðferðum í fyrirbyggjandi forvörslu miðlað til allra hlutaeigandi aðila um allt land. Nýlega náðist mikilvægur áfangi er fyrsta hand- bók á íslensku um varðveislu safnkostar var gefin út hér á landi á vegum Þjóð- minjasafns Íslands í samstarfi við Þjóð- skjalasafn Íslands og Landsbókasafn Ís- lands - Háskólabókasafn. Handbókin nýtist söfnum, kirkjum og öllum þeim sem umgangast menningarminjar og tryggja varðveislu þeirra sem best til komandi kynslóða. Almenningur sem á í fórum sínum forna ættargripi getur einnig nýtt sér ráðgjöf handbókarinnar sem er aðgengileg á vefsíðu safnsins. Út- gáfa handbókarinnar er liður í fræðslu- starfi Þjóðminjasafns Íslands sem með útgáfunni leggur sitt af mörkum til auk- innar fagmennsku á sviði varðveislu í söfnum landsins. Varðveisla þjóðminja er krefjandi verkefni og mikilvægt. Í fram- tíðinni væri vert að efla enn frekar sam- vinnu þjóðmenningarstofnana um for- vörslu og varðveislu þjóðararfsins með samhentu átaki á sviði geymslumála og verndunar menningararfsins. Þjóð- ararfur okkar er í raun fjöregg þjóð- arinnar og er það okkar skylda að skila honum ósködduðum til framtíðar. Þankar um þjóðminjar Margrét Hallgrímsdóttir margret@thjodminja- safn.is Fjöregg þjóðarinnar Sylgjur sem sýna dæmi um pökkun og frágang forngripa til langtímavarðveislu í Þjóðminja- safni Íslands. Í safninu er umtalsvert forvörslustarf unnið í tengslum við faglegt starf. ’ Því fylgir mikil ábyrgð að taka muni til varð- veislu í safni því aðstæður og sérþekking til meðferðar þarf að vera til staðar. Ljósmynd/Þjóðminjasafnið

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.