Morgunblaðið - 20.03.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Birta Dögg Ingudóttir Andrésdótt-
ir, læknanemi á þriðja ári, heim-
sækir í þessum mánuði 15 leikskóla
í Reykjavík, Hafnarfirði og Kópa-
vogi og er stefnt að því að taka sýni
úr um 500 heilbrigðum leikskóla-
börnum. Taka á sýnum úr nefkoki
tekur 1-2 sekúndur og reynslan
sýnir að börnin eru flest uppteknari
af límmiðanum sem þau fá í verð-
laun en „potinu í nefið“, eins og þau
segja gjarnan sjálf.
Tilgangurinn er að rannsaka far-
aldsfræði pneumókokka og er þetta
fjórða árið í röð sem farið er í sömu
leikskólana í þessum tilgangi. Einn-
ig er með sýnatökunni rannsökuð
tilvist bakteríunnar Hemofilus in-
fluenza, sem er önnur algengasta
bakterían sem veldur eyrnabólgu í
börnum, og streptókokka af flokki
A, sem valda hálsbólgu. Þá svara
foreldrar spurningalista um sýkla-
lyfjanotkun og veikindi barnsins
síðustu mánuði. Hópur á Landspít-
ala og við læknadeild HÍ hefur
fengið styrk upp á eina milljón evra
til þessara rannsókna. aij@mbl.is
Sýni tekin
úr um 500
börnum
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Uppteknari af límmiðanum sem þau fá í verðlaun en „potinu í nefið“
Í þágu vísindanna Birta Dögg Ingudóttir Andrésdóttir tekur sýni á leikskólanum Furugrund í Kópavogi í gær.
Mjóum pinna er stungið í gegnum nef og niður í nefkok og tekur sýnatakan eina til tvær sekúndur.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Fram hefur komið að hækkandi
bensínverð er farið að hindra fólk í
byggðum utan helstu þéttbýlissvæða
í að sækja þangað vinnu. Jón Viðar
Viðarsson vörubílstjóri býr í Garð-
inum en stundar vinnu í Reykjavík,
hann fer á milli á eigin fólksbíl. Hann
hefur sent sveitarstjóranum í Garði,
Ásmundi Friðrikssyni, bréf og bent
á að í bæði Noregi og Danmörku er
komið til móts við þennan vanda með
skattaafslætti sem miðaður er við
ekna kílómetra.
Danir veita engan afslátt af fyrstu
24 kílómetrunum en síðan afslátt
sem getur numið um 50 ísl. krónum á
kílómetra. Norðmenn miða við um
70 ísl. kr. á 10.000 ekna km á ári en
nokkru minni afslátt sé um lengri
akstur að ræða.
„Sjálfur ek ég samanlagt um 20
þúsund kílómetra á ári til og frá
vinnu, afslátturinn gæti verið t.d.
500-600 þúsund á ári fyrir mig,“ seg-
ir Jón Viðar. „Það sem ég legg til er
að við myndum fá 50 þúsund krónur
á mánuði í skattaafslátt sem myndi
nema bensínkostnaðinum eins og
staðan er núna. Maður sem skiptir
um vinnu og þarf ekki lengur að
keyra svona langt verður síðan að
gæta þess að láta skattyfirvöld vita
af því, annars fær hann skell við
næstu álagningu.
Í Danmörku veit ég að þetta stuðl-
ar að eldsneytissparnaði og minni
mengun af því að menn samnýta
ferðirnar. Þar er algengt að menn
skiptist á um að keyra, annar
kannski í sex mánuði, hinn næstu sex
mánuði og svo deila þeir með sér af-
slættinum. Þetta myndi spara okkur
gjaldeyri sem annars færi í kaup á
eldsneyti.“
Og hann bendir á að annar þeirra
gæti verið atvinnulaus og færi þá af
bótum, það færi að borga sig að
vinna þegar bensínkostnaður vegna
ferða í og úr vinnu lækkaði. Atvinnu-
ástand er slæmt á Suðurnesjum sem
stendur og lítið um tækifæri. En fólk
getur búið t.d. í Garðinum og fengið
vinnu á höfuðborgarsvæðinu. Einnig
keyrt nýja Suðurstrandarveginn og
fengið vinnu í fiski í Þorlákshöfn,
vegalengdin er álíka löng.
„Ríkið sparar um þrjár milljónir
króna á ári með hverjum sem fer af
bótum,“ segir Jón Viðar. „Það er
fullt af fólki sem fer ekkert af stað,
reynir ekki lengur að vinna svona
langt frá heimabyggð. Það er ódýr-
ara fyrir það að vera bara heima og
væri það reyndar núna fyrir mig.“
Ásmundur Friðriksson segir að-
spurður að hann muni leggja erindi
Jóns Viðars fyrir sveitarstjórn en
ráðuneyti fari með mál af þessu tagi.
„Mér finnst það áhugavert að hugsa
út fyrir rammann,“ segir hann.
„Fólk er að gefast upp, sumir segja
upp vinnu í Reykjavík og reyna að
finna eitthvað nær. Aðrir flytja nær
borginni.“
Tillaga um lægri skatta vegna
langrar keyrslu til og frá vinnu
Ríkið sparar um
þrjár milljónir króna
á ári með hverjum
sem fer af bótum
Jón Viðar Viðarsson
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Nauðungarsala sem Hafnarfjarðarbær hafði krafist á hús-
næði sem hýsir félagsheimili Vítisengla var afturkölluð í
febrúar eftir að kom í ljós að galli var á kröfu bæjarins.
Félagsheimili Vítisengla er við Gjáhellu 5 í Hafnarfirði.
Húsið er í iðnaðarhverfi suðvestur af Vallahverfi og í fast-
eignaskrá er notkun skráð „iðnaður“. Eigandi þess er fé-
lagið H.V. Fjárfestingar. Félagsheimilið er um 200 fer-
metrar að stærð og er fasteignamatið tæplega 20 milljónir.
Sá hluti Gjáhellu 5 sem Vítisenglar hafa undir sína starf-
semi er í eignarhluta 0110, samkvæmt upplýsingum frá
sýslumanninum í Hafnarfirði.
Skulduðu Hafnarfjarðarbæ 1,2 milljónir króna
Nauðungarsala á þessari eign var auglýst 7. september
2011 og var gerðarbeiðandi Hafnarfjarðarbær vegna van-
goldinna fasteignagjalda. Skuldin nam 1,2 milljónum
króna.
Í bókum sýslumanns kemur fram að lokasala á þessari
eign hafi farið fram 16. nóvember og hæstbjóðandi hafi
verið félag að nafni H.A. MC Iceland með kennitöluna
631109-0980. Fyrirsvarsmaður þess félags var og er lík-
lega enn Einar Marteinsson, foringi Vítisengla hér á landi.
Hann situr nú í gæsluvarðhaldi grunaður um aðild að sér-
deilis fólskulegri og lítilmannlegri líkamsárás.
Þetta uppboðsmál var fellt niður 8. febrúar sl. þegar
kom í ljós að galli var á beiðni Hafnarfjarðarbæjar. Málið
er hafið að nýju, skv. upplýsingum frá bænum.
Afturkölluðu nauðungar-
uppboð hjá Vítisenglum
Morgunblaðið/Sverrir
Almannavarnir Yfirvöld hér á landi vísa dönskum Vít-
isenglum frá á landamærunum í febrúar 2002.
„Ég vísa því til
föðurhúsanna að
talað hafi verið
niður til allra
þeirra sem
hlynntir eru nátt-
úruvernd. Ég er,
eins og sjálfstæð-
ismenn almennt,
mikill áhugamað-
ur um náttúru Ís-
lands. Hvorki þú
né þín samtök hafa einkarétt á
áhuga á náttúruvernd,“ segir Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins, í yfirlýsingu vegna bréfs
Náttúruverndarsamtaka Íslands til
allra þingmanna, sem Árni Finnsson
var skrifaður fyrir. Í bréfinu gagn-
rýndu samtökin orð formanns og
varaformanns Sjálfstæðisflokksins á
flokksráðsfundi á laugardag, sem
þau segja „árás á þann mikla fjölda
fólks sem er hlynnt náttúruvernd og
beri vott um vanþekkingu og lítils-
virðingu“.
„Reyndar vekur það sérstaka at-
hygli að þegar meðferð stjórnvalda á
málaflokknum er gagnrýnd og
nefndir eru öfgamenn í umhverf-
ismálum, að þú skulir taka það til þín
sérstaklega fyrir hönd samtakanna.
Þau hef ég hvergi nefnt á nafn,“ seg-
ir Bjarni og telur ásakanir samtak-
anna órökstuddar.
Ekki einka-
réttur á nátt-
úruvernd
Bjarni
Benediktsson
Vítisenglar hyggjast falla frá meið-
yrðamáli gegn innanríkisráðherra,
ríkislögreglustjóra og lögreglustjór-
anum á höfuðborgarsvæðinu. For-
sprakki samtakanna situr í gæslu-
varðhaldi grunaður um alvarlega
líkamsárás. Hann stefndi embætt-
ismönnunum fyrir þau ummæli að
Vítisenglar væru glæpasamtök.
Greint var frá þessu í kvöldfréttum
RÚV í gær.
Vítisenglar, eða Hells Angels á Ís-
landi, stefndu Ögmundi Jónassyni
innanríkisráðherra, Haraldi Johann-
essen ríkislögreglustjóra og Stefáni
Eiríkssyni, lögreglustjóra á höf-
uðborgarsvæðinu, fyrir meiðyrði í
desember. Stefnan var lögð fram
bæði í nafni samtakanna og for-
sprakka þeirra, Einars Marteins-
sonar. Málið var þingfest í Héraðs-
dómi Reykjavíkur hinn 10. janúar og
fyrirtökur áttu að vera í dag.
Hættir við
málsókn
Veldu einhverja tíu ávexti
á ávaxtamarkaði Krónunnar
– fyrst og fre
mst
ódýr!
og þú borgar...