Morgunblaðið - 20.03.2012, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 80. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Kvörtun frá Mourinho hjálpaði …
2. Hef lært að lifa með áföllunum
3. Reykjanesbraut lokuð vegna slyss
4. Sáttur við endurgreiðslur frá …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Breski tónlistarmaðurinn og plötu-
snúðurinn Blawan spilar í útgáfu-
partíi veggspjaldabókarinnar Takta-
brot á Faktorý laugardaginn 24. mars
næstkomandi. Ásamt Blawan koma
fram plötusnúðar breakbeat.is.
Rísandi danstónlist-
arstjarna á Faktorý
Baldur Ragn-
arsson, meðlimur
Skálmaldar og
Ljótu hálfvitanna,
hefur vakið athygli
fyrir metnaðar-
fullan mottuvöxt á
Fésbókinni. Baldur
hefur nú safnað
135.000 krónum í
Mottumarssöfnuninni og er á leiðinni
til Kaupmannahafnar á vegum WOW
en nafn hans var dregið úr potti dug-
mikilla safnara á Rás 2.
Mottumeistarinn
Baldur Ragnarsson
Sérstök frumsýning á 15. kafl-
anum í „Skrítnum stelpum“ fer fram
í Bíó Paradís á föstudaginn. Enski
titillinn er „The Weird
Girls Project – Episode
15: Beauty is only
skin deep“ og það er
Kitty von Sometime
sem er höfundur og
leikstjóri. Verkið er
ádeila á vaxandi líkams-
breytingar og lýta-
aðgerðir hjá kven-
fólki.
Skrítnar stelpur í Bíó
Paradís á föstudaginn
Á miðvikudag Suðvestlæg átt, 8-13 m/s og slydda eða rigning
með köflum S- og V-lands. Úrkomulítið NA-til. Hiti 0 til 5 stig.
Á fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag Suðlæg átt
og víða væta, en þurrt að kalla á NA-landi. Hlýtt í veðri.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt, 3-10 m/s og úrkomulítið en
austlægari og rigning sunnanlands síðdegis. Hiti 0 til 7 stig.
VEÐUR
Keflvíkingar léku ÍR-inga
grátt í úrvalsdeild karla í
körfubolta í gærkvöldi og
unnu þá með 32 stiga mun.
ÍR-ingar eru þar með úr leik
í baráttunni um sæti í úr-
slitakeppninni og Tindastóll
er jafnframt öruggur áfram.
Litlu munaði að Valur ynni
fyrsta sigurinn á tíma-
bilinu en Þór í Þor-
lákshöfn slapp fyrir
horn og vann að
lokum. »4
ÍR úr leik eftir
skell í Keflavík
Akureyringar fóru á
kostum gegn FH
Haukar urðu fyrstir til að tryggja
sér sæti í úrslitakeppninni um Ís-
landsmeistaratitil karla í hand-
bolta þegar þeir unnu HK örugg-
lega í Digranesi í gærkvöldi.
Haukar eru með tveggja stiga
forystu þegar tveimur umferðum
er ólokið. Varnarleikurinn og
markvarslan voru aðalsmerki
Haukanna. »2-3
Haukar fyrstir í
úrslitakeppnina
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Að minnsta kosti 15 eyruglur og
nokkrar branduglur hafa sést í
Laugardalnum í Reykjavík und-
anfarnar vikur. Eyruglur sáust
fyrst hérlendis fyrir rúmum áratug
en branduglur hafa verið hér lengi
auk þess sem snæuglur má sjá af og
til.
Þorsteinn Sigurðsson gengur
reglulega með hundinn Pjakk um
Laugardalinn og um helgina rakst
hann á branduglu á staur skammt
frá Sunnuveginum. Nokkrum dög-
um áður hafði hann séð aðra uglu í
blómabeði við Þvottalaugarnar.
„Hún var sallaróleg, mjög nálægt
göngustígnum,“ segir Þorsteinn um
brandugluna og bætir við að hún
hafi fylgst vel með hundinum úr
nokkurra metra fjarlægð. „Þau
horfðust í augu og það var mjög
skondið að fylgjast með þeim.“
Hópsálir og einfarar
Hannes Hafsteinsson, garðyrkju-
fræðingur í Laugardal og fugla-
áhugamaður, hefur fylgst grannt
með uglunum. Hann segir að í jan-
úar sl. hafi sést 18 uglur í dalnum og
þar af að minnsta kosti 15 eyruglur.
Hann segir þekkt erlendis að eyr-
uglur haldi hópinn og hann hafi til
dæmis heyrt af um 300 fuglum á
sama náttstaðnum í Hollandi.
Branduglurnar séu meiri einfarar.
Þótt eyrugla hafi sennilega byrjað
að verpa hérlendis 2001 hefur hún
ekki sést reglulega. Hannes seg-
ir að svo virðist sem sæmilegur
stofn hafi byggst upp og síðan
hafi þessi hópur á leið til vetr-
arstöðva í Evrópu bæst við í
haust. Því megi ætla að ugl-
urnar sem hafi sést í vetur
séu blanda af íslenskum og
erlendum eyruglum. 1977
hafi sést um 20 uglur en frá
því í haust hafi sést á milli 40 og 50
fuglar. Þar af hafi fimm sést í Vest-
mannaeyjum, nokkrir á Norðurlandi
og aðrir á Austurlandi fyrir utan
uglur á höfuðborgarsvæðinu og á
Suðurlandi. „Það er kominn varps-
tofn, það er alveg greinilegt,“ segir
hann.
Nægt fæði
Hannes segir að hann og fleiri hafi
fundið eyruglur í varpi á a.m.k. 10
stöðum í fyrrasumar. Það sé þekkt
erlendis að eyruglan sé vanmetin
enda eigi hún auðvelt með að fela sig
í skógum, þar sem fæðan sé m.a.
hagamýs. Í Laugardalnum hafi hún
étið þresti og það sjáist að ugla hafi
verið á ferð en ekki smyrill því eyr-
uglan klippi af þeim vængina.
Uglum fjölgar víða um land
Branduglur og
eyruglur víða í
Laugardalnum
Ljósmynd/Þorsteinn Sigurðsson
Brandugla í Laugardal Eyrun eru minni en á eyruglu og augun eru gul en eyrugla er með appelsínugul augu.
Branduglur hafa verpt á Íslandi að
staðaldri frá því snemma á síð-
ustu öld. Snæugla er flækingsfugl
hérlendis og eyruglur eru ný-
lega farnar að verpa hérna.
Jóhann Óli Hilmarsson
fuglafræðingur segir að uglur
séu úti um allt og bendir á að
margar eyruglur hafi komið
til landsins í haust sem leið.
Töluvert hafi líka sést af
þeim á Hjaltlandi og í Fær-
eyjum á sama tíma. Engin skýring
sé á þessu en uglur hafi komið í
göngum áður, t.d. 1974-1975 og
1981-1982.
Eyruglur hafa verið hér í rúman
áratug en fyrsta hreiðrið fannst
2003. Í fyrrasumar hafi hreið-
urleit hafist og nokkur pör hafi
fundist á Suðurlandi, en talið sé
að 10-20 eyruglupör verpi
hérlendis og 300-500 branduglu-
pör.
Eyruglan sækir í sig veðrið
UGLUM FJÖLGAR JAFNT OG ÞÉTT Á ÍSLANDI
Eyrugla
Akureyringar fóru á kostum gegn Ís-
landsmeisturum FH í handknattleik í
gærkvöldi og voru með tíu marka for-
skot skömmu fyrir leikslok en unnu
þá að lokum 30:26. Bar-
áttan um sæti í úr-
slitakeppninni er
geysilega tvísýn þar
sem fimm lið, FH, Ak-
ureyri, HK, Fram og
Valur, bítast um
þrjú sæti í tveimur
síðustu umferð-
unum. »2-3