Morgunblaðið - 20.03.2012, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2012
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Hljómsveitin The Vintage Caravan
vann hljómsveitarkeppnina Global
Battle Of The Bands en til úrslita
kepptu ásamt sigurvegurunum
Alchemia, I Need Pills To Sleep,
Trust The Lies, Morning After
Youth og My Brother Is Pale.
„Mér datt aldrei í hug að við
myndum vinna keppnina og við
vorum eiginlega mest hissa á því
sjálfir að vinna,“ segir Óskar Logi
Ágústsson, gítarleikari Vintage
Caravan. Að hans sögn var keppn-
in mjög hörð enda margar góðar
hljómsveitir að keppa um fyrsta
sætið. „Morning After Youth voru
frábærir og fleiri hljómsveitir eins
og t.d. Mammoth stóðu sig vel.“
Óskar segir að keppnir eins og
þessi séu alltaf skemmtilegar en
það sé öðruvísi að spila í keppni
en á hefðbundnum tónleikum.
„Mér fannst ég ekki spila jafn vel
í keppnum, sérstaklega í sóló-
köflum, og á t.d. tónleikum.
Keppnir eins og þessi eru aðeins
fyrir utan það svæði sem mér líður
best í og það getur haft áhrif á
tónlistina.“ Þrátt fyrir það var
Óskar valinn gítarleikari Músíktil-
rauna árið 2009 og nú er hann og
hljómsveit hans á leiðinni til Rúm-
eníu að keppa til úrslita fyrir hönd
Íslands.
Vintage Caravan hefur spilað
saman frá 2006 með nokkrum
breytingum þó. Árið 2009 tók
hljómsveitin síðan þátt í Músíktil-
raunum og lenti í þriðja sæti
ásamt því að Óskar Logi var val-
inn gítarleikari keppninnar það ár-
ið.
Klassískt rokk síðan 2006
Við spilum mest klassískt rokk
með smáprogressive rokk áhrifum
eða prog rokk. Músíktilraunir
komu okkur líka á kortið og við
höfum verið að spila nokkuð, bæði
á hátíðum og skemmtistöðum eftir
það. Þá gáfum við út plötuna Vin-
tage Caravan sem fékk fínar við-
tökur.“
Ákvörðun strákanna að taka
þátt í forkeppni Global Battle Of
The Bands hér heima segir Óskar
fyrst og fremst hafa komið til af
því að þeir hafi ekki spilað mikið
saman undanfarið og var farið að
langa að koma fram aftur.
Í keppninni þurfa hljómsveitir
að spila frumsamin lög og margar
hljómsveitir semja lög sérstaklega
fyrir keppnina. Óskar segir að
þeir hafi ekki samið lög sér-
staklega fyrir forkeppnina heldur
valið þrjú af sínum bestu lögum.
„Við fórum í keppnina með þrjú af
okkar vinsælustu lögum. Við
sjáum svo til hvað við gerum fyrir
aðalkeppnina í Rúmeníu,“ segir
Óskar og útilokar ekki að þá muni
þeir flytja ný lög.
Vintage Caravan sigraði
í baráttu bandanna
Fara til Rúmeníu
í sumar og keppa
í úrslitakeppninni
Ljósmynd/Sara Rut
Sigurvegaranir Strákarnir í Vintage Caravan spila klassískt rokk og blús
og hafa gert síðan 2006 þegar hljómsveitin var stofnuð.
Sjónvarpstöð Oprah Winfrey sem fór í loftið í
byrjun árs árið 2011 hefur hætt við fram-
leiðslu og sýningu spjallþáttar Rosie O’Don-
nell eftir aðeins fimm mánuði fyrir það að ná
ekki að draga áhorfendur að skjánum. Fyrsti
þátturinn fór vel af stað og var hátt í hálf
milljón manna sem horfði á þáttinn í október.
Síðan þá hefur fjarað verulega undan þætt-
inum og undir það síðasta var áhorfið ekki
nema um 200.000 sem þykir ekki nægilega
gott til að réttlæta áframhaldandi tökur á
honum. Rosie O’Donnell segist þó ekki ósátt
við Oprah Winfrey. „Það er alltaf erfitt að
vinna upp áhorf og sérstaklega á nýrri sjón-
varpsstöð. Ég vildi óska að þátturinn hefði
heppnast betur og fengið betri móttökur frá
áhorfendum en svo var ekki og því ætla ég að
snúa aftur til New York,“ sagði Rosie.
Oprah Winfrey rekur
Rosie O’Donnell
zzzzz
Sjónvarp Winfrey segir Rosie hafa gert sitt besta.
Sena klassík kynnir í samstarfi við The Royal
Opera House og The Royal Ballet beina út-
sendingu frá London á fimmtudaginn kl.
19:15 á ballettinum Rómeo og Júlía. Rómeó
og Júlía er fyrsti ballettinn sem Kenneth
MacMillan samdi í fullri lengd, en hann var
frumsýndur árið 1965. Frá þeim tíma má
segja að Rómeó og Júlía sé hálfgert kenni-
mark á The Royal Ballet, en verkið hefur ver-
ið sett upp út um allan heim og verið feiki-
vinsælt. Þess má geta að verkið hefur verið
sett upp yfir 400 sinnum af The Royal Ballet.
Bein útsending verður frá sýningunni í Há-
skólabíó og gefest því íslenskum áhugamönn-
um einstakt tækifæri til að sjá þessa sýningu
með lítilli fyrirhöfn. Það er Federico Bonelli
sem fer með hlutverk Rómeó og Lauren
Cuthbertson með hlutverk Júlíu.
Rómeo og Júlía í beinni
nú á fimmtudaginn
Konuglegur ballet Federico Bonelli túlkar hlut-
verk Rómeós í uppfærslu The Royal Ballet í London.
Hópur spænskra listunnenda, sem
voru hér í helgarferð, var ánægður
með upplifunina. Þeim þótti merki-
legt að stórar sýningar á verkum
tveggja af þeirra kunnustu lista-
mönnum væru í helstu söfnum
Reykjavíkur; voru á leið á opnun á
verkum hins nýlátna Tapies á Kjar-
valsstöðum og búin að sjá sýningu
Santiagos Sierras í Hafnarhúsinu.
Þar rákust spænsku gestirnir á
annan listunnanda, Yoko Ono, og
ræddi hún við þá. Þau heimsóttu
líka sýninguna Skjól í Listasafni
ASÍ og sáu La Bohemé í Hörpu.
Morgunblaðið/Ómar
Yoko ræddi við
menningartúrista
blurb.com
Frá höfundi Death at a Funeral.Frábær
gamanmynd
með
sótsvörtum
húmor
FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
VANESSA HUDGENS, MICHAEL CAINE OG DWAYNE „THE
ROCK“ JOHNSON TRYGGJA ÓSTÖÐVANDI BÍÓSKEMMTUN
MÖGNUÐ ÞRÍVÍDD
Time
Movieline
Myndin sem hefur setið síðustu 3
vikur á toppnum í Bretlandi og notið
gríðarlega vinsælda í USA.
Ein besta draugamynd síðari ára
EGILSHÖLL
16
16
L
7
7
ÁLFABAKKA
10
7
7
7
7
12
12
VIP
16
16
16
16
KEFLAVÍK
12
AKUREYRI
PROJECT X kl. 6 - 8 - 10:10 2D
PROJECT X VIP kl. 6 - 8 - 10:10 2D
JOHN CARTER kl. 5:20 - 8 - 10:40 3D
JOHN CARTER kl. 10:10 2D
THE WOMAN IN BLACK kl. 8 - 10:10 2D
JOURNEY 2 kl. 5:50 2D
A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:30 2D
HUGO Með texta kl. 5:30 - 8 2D
CONTRABAND kl. 5:50 2D
L
L
7
7
7
16
KRINGLUNNI
16
16
16
PROJECT X kl. 8 - 10:10 2D
JOHN CARTER kl. 5:20 - 8 - 10:10 3D
THE WOMAN IN BLACK kl. 8 - 10:10 2D
JOURNEY 2 3D kl. 5:50 3D
BEAUTY & THE BEAST - 3D M/ ísl. Tali kl. 6 3D
PROJECT X kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D
JOHN CARTER kl. 5:10 - 8 - 10:10 3D
JOURNEY 2 kl. 5:50 - 8 3D
THE WOMAN IN BLACK kl. 8 - 10:10 2D
FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl tali kl. 6 3D
7
12
12
SELFOSS
JOHN CARTER kl. 5:20 - 8 - 10:40
A FEW BEST MEN kl. 6
THIS MEANS WAR kl. 8 - 10:20
PROJECT X kl. 8 2D
JOHN CARTER kl. 10 3D
A FEW BEST MEN kl. 8 - 10 2D PROJECT X kl. 8 2D
SVARTUR Á LEIK kl. 10:10 2D
A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:10 2D
SKRÍMSLI Í PARÍS ísl tali kl. 6 2D
JOHN CARTER kl. 5:30 2D
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS.
SÝND Í 2D OG 3D
PLEASANT SURPRISE
- C.B, JOBLO.COM
- New York Times
- Time Out New York
- Miami Herald
MÖGNUÐ
ÆVINTÝRAMYND Í 3D
„Hin brjálæðislega fyndna Project X er málið.
Hún fer alla leið er auk þess kærulaus og tilbúin
í fjörið. Hverjum líkar ekki við það?“
Rolling Stone
Geðveikt grín í geggjuðustu partýmynd allra tíma!
vinsælasta myndin
í heiminum í dag
Tri ehf.
Suðurlandsbraut 32
104 Reykjavík www.tri.is
Verslunin er opin:
Alla virka daga kl. 09:00-18:00
Laugardaga kl. 10:00-16:00
Barnahjól í miklu úrvali
TEAM KID 200 GIRL
Verð: 49.990 kr.
TEAM KID 160 BOY
Verð 39.990 kr.
TEAM KID 160 GIRL
Verð 39.990 kr.
TEAM KID 240 GIRL
Verð: 59.990 kr.
TEAM KID 260 TEAMLINE
Verð: 69.990 kr.
16“ 16“ 20“ 24“ 26“