Morgunblaðið - 20.03.2012, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2012
BJÓÐUM NOKKRAR GERÐI
R AF
FERMINGARBORÐUM.
Fjölbreyttir réttir smáréttabo
rðanna
okkar henta bæði í hádegis-
og kvöldveislur.
Steikarhlaðborðin eru alltaf
vinsæl, sérstak-
lega ef um kvöldveislu er að
ræða. Bjóðum
upp á tvær gerðir kaffihlaðb
orða, en einnig
er í boði að panta einstaka h
luta úr þeim. t.d
Kaffisnittur, fermingartertur.
Pinnahlaðborð
eru þægileg og slá hvenær s
em er í gegn.
Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
æðisleg
veislan
verður
Fermingar
-
Góð ferm
ingar-
veisla lifi
r lengi
TapasSmáréttir Kalt borð Pinn
amatur
SÚPA BRAUÐ OG SMÁRÉTT
IR
Hádegisveisla á milli kl 12 -
14
Verð frá kr. 2.070
TAPASVEISLA 9 RÉTTIR
Síðdegisveisla 16 -19
Verð frá kr. 2.990
TERTU OG TAPASBORÐ.
Miðdegisveisla 13 - 15
Verð frá kr. 2.896
STEIKARBORÐ
Kvöldveisla 17 - 20
Verð frá kr. 3.031
FERMINGARKAFFIHLAÐBO
RÐ
Miðegisveisla 14 - 17
Verð frá kr. 1.966
LÉTTIR FORRÉTTIR OG
STEIKARBORÐ
Verð frá kr. 3.420
PINNAMATUR
Miðdegisveisla 14-17
Verð frá kr. 2.340
KALT HLAÐBORÐ
FISKRÉTTIR
Verð frá kr. 4.398
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Vopnaður maður réðst inn í gyðinga-
skóla í borginni Toulouse í Frakk-
landi í gærmorgun og skaut fjóra
menn til bana, þrítugan trúar-
bragðakennara, tvö börn hans og
eitt barn til viðbótar. Maðurinn
skaut kennarann fyrir utan skólann.
Þegar byssan, sem hann notaði
fyrst, stóð á sér dró hann aðra fram,
fór inn á skólalóðina og hóf skothríð
á allt sem fyrir varð, bæði fullorðna
og börn, að sögn Michels Valets,
saksóknara í Toulouse.
Nicolas Sarkozy Frakklands-
forseti sagði að árásin væri „þjóðar-
harmleikur“ og gerðu bæði hann og
Francois Hollande, forsetafram-
bjóðandi sósíalista, hlé á kosninga-
baráttu sinni. Sarkozy og Hollande
héldu báðir til Toulouse til að heim-
sækja skólann og sýna samstöðu
með fjölskyldum fórnarlambanna og
samfélagi gyðinga á staðnum.
Morðinginn kom að skólanum á
öflugri skellinöðru eða vélhjóli.
Þetta er þriðja skotárásin á þessum
slóðum á rúmri viku. 11. mars var
fallhlífarhermaður skotinn til bana í
Toulouse og 15. mars voru þrír fall-
hlífarhermenn skotnir við hrað-
banka skammt frá herbúðum sínum
í Montauban, sem er 46 km frá Tou-
louse. Tveir létu lífið og einn særðist
alvarlega. Franska lögreglan sagði í
gær að sama byssan hefði verið not-
uð í árásnum þremur og sama stolna
vélhjólið hefði í öllum tilvikum verið
notað til að flýja af vettvangi.
„Okkur finnast vera sláandi lík-
indi með aðferðunum, sem notaðar
voru, en verðum að bíða niðurstöðu
lögreglurannsóknarinnar,“ sagði
Sarkozy. „Þeim, sem þetta gerði,
skal vera ljóst að allt verður gert til
að draga hann til ábyrgðar.“
Börnin, sem létust í árásinni, voru
þriggja, sex og tíu ára. Þá særðist 17
ára drengur og er í lífshættu.
Fórnarlömbin í árásunum tilheyra
öll minnihlutahópum. Börnin og
kennarinn, sem voru myrt í gær,
voru gyðingar. Hermennirnir, sem
létu lífið, voru frá Norður-Afríku og
hermaðurinn, sem liggur á sjúkra-
húsi, úr Karíbahafinu.
Myrti þrjú börn og kennara í
árás á gyðingaskóla í Toulouse
Þrjár morðárásir á átta dögum og
sama skotvopnið notað í þeim öllum
Reuters
Ódæðisverk Maður fylgir brott nemanda við Ozar Hatorah-skólann í Tou-
louse eftir að vopnaður maður skaut þrjú börn og kennara til bana í gær.
Sex manns urðu fyrir snjóflóði, sem
féll við fjallið Sorbmegaisa í Troms í
Noregi síðdegis í gær. Svisslendingi
var bjargað og mun hann ekki vera
mikið slasaður. Fimm eru látnir,
fjórir Svisslendingar og einn Frakki,
að því er kemur fram á heimasíðu
norska dagblaðsins Aftenposten.
Astrid Nilsen hjá lögreglunni í
Tromsø sagði við fréttastofuna AFP
að björgunarmenn hefðu getað áttað
sig á hvar fimm væru grafnir í snjó
út frá senditækjum, sem þeir höfðu
á sér.
Fólkið, sem varð fyrir snjóflóðinu,
var á ferð í tólf manna hópi.
Þeir, sem sluppu við snjóflóðið,
létu yfirvöld vita af slysinu.
Tæpum tveimur tímum eftir að
flóðið féll var lögregla komin á vett-
vang með leitarhund. Í frétta-
tilkynningu frá norskum yfirvöldum
sagði að 30 manns hefðu verið í
leitarhópnum.
Sjúkraþyrla var send frá háskóla-
sjúkrahúsinu í Tromsø. Einnig var
beðið um hunda og þyrlur frá norska
hernum.
Hópurinn var í um 1.000 metra
hæð. Talið er að hann hafi verið á
skíðum þar sem torfært var fyrir
vélsleða á þessum slóðum. Ekki var
talið að þar væri mikil snjóflóða-
hætta. Bratt er þar sem hópurinn
var, en vegur mun vera skammt frá.
Fimm
létust í
snjóflóði
Einn bjargaðist
er flóð féll í Noregi
AFP
Björgun Maðurinn sem bjargaðist
var fluttur til Tromsø á sjúkrahús.
Skotbardagi braust út í Damaskus í
gær og sögðu fréttastofur að um
hefði verið að ræða hörðustu átökin í
höfuðborg Sýrlands frá því að upp-
reisnin gegn Bashar al-Assad, for-
seta landsins, hófst fyrir ári.
Átökin voru mest í hverfinu al-
Mezze þar sem eru byggingar ör-
yggissveita. Hverfið hefur verið
vettvangur mótmæla gegn stjórn-
inni.
Sögðu vitni að heyra hefði mátt
skothvelli og sprengingar í fyrrinótt,
en allt hefði verið með kyrrum kjör-
um þegar leið á morguninn.
Hópur sérfræðinga á vegum Kofis
Annans, friðarerindreka Sameinuðu
þjóðanna og Arababandalagsins,
kom til Sýrlands í gær til að fylgja
eftir tillögum hans um vopnahlé og
eftirlit. Annan kom til Sýrlands fyrr í
mánuðinum og það veltur á árangri
sérfræðinganna hvort hann fer
þangað á ný. Rússar skoruðu í gær á
Sýrlandsforseta að samþykkja strax
vopnahlé.
AFP
Átök Sýrlenskur skæruliði úr Frjálsa sýrlenska hernum stillir sér upp á
hesti í þorpinu al-Shatouria skammt frá landamærum Tyrklands.
Harðir skotbar-
dagar í Damaskus
Morðin í Frakk-
landi í gær hafa
verið fordæmd
víða um heim.
Benjamin Net-
anyahu, forseti
Ísraels, sagði
verknaðinn „fyr-
irlitlegt morð á
gyðingum“ og
bætti við að ekki
væri hægt að útiloka að gyð-
ingahatur byggi að baki.
Jose Manuel Barroso, forseti
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, fordæmdi verknaðinn
sem og Páfagarður.
„Gyðingahatur og ofbeldi gegn
stofnunum gyðinga eða fólki af
gyðingatrú á engan stað í Evrópu
og fyrir það ber að refsa af hörku,“
sagði Guido Westerwelle,
utanríkisráðherra Þýskalands, í yf-
irlýsingu.
„Fyrirlitlegt morð á gyðingum“
MORÐIN FORDÆMD VÍÐA UM HEIM
Benjamin
Netanyahu