Morgunblaðið - 20.03.2012, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2012
Jón Björnsson, sálfræðingur og rithöfundur, er 65 ára í dag.Hann segir að þar sem sér finnist þetta ekki vera neitt stór-afmæli þá ætli hann ekkert að halda neitt sérstaklega upp á
daginn. Hann ætlar þó samt að fá fjölskylduna í kaffi í dag.
„Ég hef ekkert fundið fyrir því að eldast hingað til. Núna finn
ég samt smá að aldurinn er að hellast yfir mig, en það er aðallega
út af því að ég sé hvað það er miklu meira af fólki sem er yngra
en ég sjálfur en það var áður. Sú var tíðin að flestir voru eldri en
ég en það hefur snúist við núna í seinni tíð,“ segir Jón um það
hvað honum finnist um það að vera eldast. Hann segist þó telja að
það muni líða töluverður tími þar til að hann geti farið að kalla
sig gamlan.
Jón er lærður sálfræðingur en hann hefur einnig skrifað nokkr-
ar bækur. Þar á meðal má nefna Af örlögum mannanna sem kom
út árið 1991 og Með skör járntjaldsins sem kom út árið 2008.
Jón var lengi félagsmálastjóri hjá Akureyrarbæ og einnig var
hann í nokkur ár sviðsstjóri hjá Reykjavíkurborg.
Síðustu ellefu ár hefur hann tekið sér margt fyrir hendur. Hann
hefur til að mynda verið í nokkrum útvarpsþáttum, skrifað bækur
og tekið að sér fjöldann allan af einstökum verkefnum. Jón segist
ferðast mjög mikið og vonar að aldurinn komi ekki í veg fyrir að
hann geti ferðast um allan heim.
Jón Björnsson er 65 ára í dag
Morgunblaðið/Ómar
Tímamót Jón Björnsson á von á fjölskyldunni í kaffi í dag.
Telur sig ekki
gamlan ennþá
B
rynja fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp, í
Fossvoginum. Hún var
í Fossvogsskóla og síð-
an í Réttarholtsskóla,
stundaði nám við Menntaskólann við
Sund og lauk þaðan stúdentsprófi
sem dux 1992.
Brynja stundaði nám í sálfræði við
Háskóla Íslands og lauk þaðan BA-
prófi árið 1997.
Hún lauk síðan MA-prófi í heilsu-
sálfræði við Kent Háskóla árið 2000
en lokaverkefni hennar fjallaði um
vinnustreitu. Í framhaldi stundaði
hún rannsóknanám í vinnu- og
heilsusálfræðielti og lauk dokt-
orsprófi við Kent Háskóla árið 2004.
Fjallar doktorsritgerð hennar um
einelti á vinnustað og áhrif eineltis á
líðan þolenda.
Brynja var au pair á Spáni árið
1992-93, starfaði á BUGL, Barna- og
unglingsgeðdeild Landspítalans, eft-
ir BA-námið 1998-99, kenndi við
Kent Háskóla um skeið og var auk
þess í rannsóknarstöðu við háskól-
ann samhliða doktorsnáminu.
Nú rannsóknasérfræðingur
hjá Capacent Gallup
Eftir heimkomuna hóf Brynja
störf hjá ParX, 2004, þar sem hún
Brynja Bragadóttir 40 ára
Ræktar garðinn og fjöl-
skylduna í Fossvoginum
Rómantík Hjónin Brynja og Ragn-
ar, uppá klædd, á góðri kvöldstund.
Ferðaþreyta Brynja og Ragnar með Ingu Björk og Valgerði í borg í Belgíu.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Þórdís Þórðardóttir hefur varið doktorsritgerð sína „Menn-
ingarlæsi - Hlutverk barnaefnis í uppeldi og menntun telpna
og drengja í tveimur leikskólum“ við uppeldis- og mennt-
unarfræðideild Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Um er að ræða blandaða rannsókn á menningarlæsi elstu
barnanna í tveimur leikskólum í Reykjavík. Menningarlæsi
leikskólabarna er sú þekking á barnaefni sem gagnaðist
börnunum sem tóku þátt í rannsókninni til virkar þátttöku í
samræðum, leik og skapandi starfi í leikskólunum og færði
þeim jafnframt virðingarsess í jafningjahópnum.
Markmiðið með rannsókninni var að skapa nýja þekkingu á hlutverki barna-
efnis í uppeldi og menntun íslenskra leikskólabarna sem gæti gagnast leik-
skólakennurum til að draga úr menningar- og félagslegri mismunun í leik-
skólum.
Doktor í uppeldisfræðum
Reykjavík Þórarinn fæddist 3. mars.
Hann vó 4.020 g og var 54 cm langur.
Foreldrar hans eru Steinunn Anna
Kjartansdóttir og Hallbjörn Magn-
ússon.
Nýir borgarar
Akranes Ethan Agnar fæddist 15.
ágúst kl. 11.47. Hann vó 3.520 g og var
53 cm langur. Foreldrar hans eru Valey
Benediktsdóttir og Stephen John
Watt.
Nýir borgarar
SMIÐJUVEGI 10 (GRÆN GATA) | 200 KÓPAVOGI | SÍMI 414 8400 / 414 8409 | HEXA.IS | HEXA@HEXA.IS
SÉRHÆFT FYRIRTÆKI
Í STARFSMANNAFATNAÐI