Morgunblaðið - 27.03.2012, Síða 1
Reykjavík-
urborg hefur
fyrir hönd
Strætó bs.
auglýst eftir
tilboðum frá
verktökum í
akstur al-
mennings-
vagna á milli
Reykjavíkur og Akureyrar annars
vegar og hins vegar á milli Ak-
ureyrar og Reykjavíkur.
Nýtt fyrirkomulag tekur gildi í
haust og hefur m.a. í för með sér
styttri stopp og styttri aksturstíma,
auk nýrra leiða á köflum. Sérleyf-
isakstur eins og verið hefur til
fjölda ára, fellur þá niður. »6
Með strætó frá
Reykjavík til
Akureyrar í haust
Þ R I Ð J U D A G U R 2 7. M A R S 2 0 1 2
Stofnað 1913 73. tölublað 100. árgangur
WAYNE ROONEY
KOM UNITED Í
EFSTA SÆTIÐ
GEKK 1.000
KÍLÓMETRA Á
42 DÖGUM
VILJA TANNBURSTUN
Í LEIKSKÓLUM
SILFURVEGURINN MÁLÞING 18ENSKI BOLTINN ÍÞRÓTTIR
Tannheilsa barna á
Íslandi er slæm
Hjúkrunarheimili á höfuðborgar-
svæðinu hefur farið fram á gjald-
þrotaskiptameðferð heimilismanns
vegna ógreidds dvalarkostnaðar og
verður sú beiðni tekin fyrir fljótlega í
Héraðsdómi Reykjavíkur. Þetta
kemur fram í grein sem Gísli Páll
Pálsson, formaður Samtaka fyrir-
tækja í heilbrigðisþjónustu, ritar í
blaðið í dag.
„Þetta hljómar ótrúlega en er engu
að síður blákaldur veruleiki. Þar að
auki er það nú heldur nöturlegt að sá
aðili sem hjúkrar og sinnir velferð
heimilismannsins skuli einnig vera
settur í þá ömur-
legu aðstöðu að
þurfa að gera skjól-
stæðing sinn gjald-
þrota,“ segir Gísli
Páll.
Samkvæmt upp-
lýsingum frá
Tryggingastofnun
ríksins bar manninum, sem fæddur er
árið 1943, að greiða 1,3 milljónir kr.
vegna ársins 2010 og svo 311.741
krónu á mánuði á yfirstandandi ári
eða samtals 3,7 milljónir í ár. Þessi
heimilismaður hefur aldrei greitt
krónu af þessum kröfum og hefur
hjúkrunarheimilið falið innheimtufyr-
irtæki að innheimta skuldina.
Tapið hvergi bætt
Staða málsins nú er sú að búið er að
fara fram á gjaldþrotaskiptameðferð
en beiðni um gjaldþrot er nauðsynleg
til þess að ganga úr skugga um hvort
heimilismaðurinn geti greitt þessa
kostnaðarhlutdeild. Verði niðurstað-
an sú að maðurinn verði úrskurðaður
gjaldþrota tapar hjúkrunarheimilið
rúmlega fimm milljónum króna og
fær það tap hvergi bætt. »20
Heimili biður um gjaldþrot
Íbúi getur ekki greitt dvalarkostnað á hjúkrunarheimili
N1 hækkaði
verð sitt á
bensíni gær og
kostar lítrinn
nú 266,50
krónur. Að
sögn Magn-
úsar Ásgeirs-
sonar, inn-
kaupastjóra N1, er ástæðan mikil
hækkun á heimsmarkaðsverði und-
anfarið.
„Ég óttast að það hækki enn
frekar. Ég sé enga lækkun í augna-
blikinu á heimsmarkaðsverðinu, því
miður,“ segir hann. kjartan@mbl.is
Bensínlítrinn hækk-
aði hjá N1 í gær
Þórður Clausen Þórðarson, bæjar-
lögmaður Kópavogsbæjar, lagði til
við Sigrúnu Ágústu Bragadóttur,
fyrrverandi framkvæmdastjóra Líf-
eyrissjóðs Kópavogs, að hún hagaði
skýrslugjöf sinni fyrir dómi og vitn-
isburði fyrir saksóknara, vegna lán-
veitingar sjóðsins til Kópavogsbæjar
á þann veg, að hún segði að Gunnar
Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri
Kópavogs, hefði „stjórnað öllu ferl-
inu“.
Þetta kemur fram í hljóðritun á
símtali á milli Þórðar og Sigrúnar
Ágústu, sem blaðamaður Morg-
unblaðsins hefur hlýtt á. Bæjar-
lögmaðurinn lýsir stjórnarháttum
Gunnars Birgissonar með orðunum
„Terror Management“ (hræðslu-
stjórnun) og segir bæjarlögmaður-
inn við Sigrúnu Ágústu að í þessu
felist hennar vörn. Vísaði lögmað-
urinn til þess í samtalinu við Sigrúnu
Ágústu að Gunnar Birgisson hefði
hótað henni brottrekstri úr starfi.
Ofangreind hljóðritun hefur nú
verið send ríkissaksóknara, en áður
hafði endurritun af upptökunni verið
send til embættisins.
agnes@mbl.is »2
Segir að Gunnar hafi
beitt hræðslustjórnun
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Þetta er í fljótu bragði veiðileyfagjald á Vestmannaeyjar
upp á 4-4,5 milljarða. Í sjálfu sér er ekkert flókið að lýsa af-
leiðingunum. Það verður að óbreyttu ekki stundaður sjáv-
arútvegur í núverandi mynd eftir að slíkt frumvarp um
veiðigjald hefur tekið gildi. Fyrirtæki leggja einfaldlega
upp laupana,“ segir Sigurgeir B. Kristgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum,
um afleiðingar frumvarpsins fyrir greinina.
Spurður hvort veiðigjaldið sem lagt er til muni ógna
rekstrargrundvelli útgerðarfyrirtækjanna svaraði Stein-
grímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra því til að fyrir-
tækin hefðu borð fyrir báru til að greiða gjaldið.
Munu ekki geta staðið í skilum
„Skattlagningin tekur burt allan hagnað og alla
greiðslugetu úr fyrirtækjunum og þau munu ekki standa í
skilum með afborganir af lánum. Þau geta ekki haldið við
tækjum og tólum. Þau fara á hliðina,“ segir Sigurgeir.
„Við þurfum náttúrlega að gefa okkur tíma til að skoða
frumvarpið og alla þætti þess. Það sem vekur athygli er
að veiðileyfagjald er ekki bara lagt á útgerð heldur á fisk-
vinnslu líka sem að þýðir auðvitað að útgerðir án fisk-
vinnslu verða látnar greiða mjög mikið. Allur tekjuskatt-
ur í útgerð mun hverfa við þessa breytingu, hann er nú
20% af hagnaði. Ég hefi reynt í fljótu bragði að átta mig á
hvaða áhrif nýja veiðileyfagjaldið hafi haft á útgerðina í
landinu árin 2000-2009.
Niðurstaðan er sú að veiðileyfagjaldið jafngildir 200%
tekjuskatti í stað 20% tekjuskatts nú. Þannig hverfur all-
ur ávinningur og hvati af því að reka útgerðarfyrirtæki.
Með öðrum orðum verður útgerðin þjóðnýtt í gegnum
skattlagningu.
Þetta þýðir að það er verið að gera alla útgerð og öll út-
gerðarfyrirtæki verðlaus. Og meira en það: Þau munu
aldrei geta greitt af lánum sínum. Í mínum huga slær
þetta beint inn í bankana og þannig inn í ríkissjóð í gegn-
um Landsbankann,“ segir Sigurgeir.
„Útgerðin þjóðnýtt“
Morgunblaðið/Golli
Sjávarútvegsmál Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir kynna nýju kvótafrumvörpin.
Útgerðarmaður telur frumvarp leiða til fjöldagjaldþrota
Sjávarútvegsráðherra telur útgerðina ráða við veiðigjaldið
MFrumvarp um fiskveiðistjórnun 2/4
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra segir nýju kvótafrum-
vörpin um stjórn fiskveiða og veiði-
gjöld munu auka jafnræði, at-
innufrelsi og nýliðun í greininni.
„Hér er um að ræða eitt mikil-
vægasta mál ríkisstjórnarinnar. Ég
held að það sé óhætt að segja að hér
sé á ferðinni mál sem felur í sér
miklar kerfisbreytingar í sjávar-
útvegi, mál sem á eftir að sæta
miklum tíðindum,“ sagði Jóhanna á
blaðamannafundi um málið í gær.
„Það sem mér finnst mikilvægast
í þessum frumvörpum … er að þau
fela í sér jafnræði, atvinnufrelsi og
nýliðun sem við leggjum mikla
áherslu á. Það er verið að opna
greinina miklu meira en hefur ver-
ið með nýliðun. Það sem skiptir
máli er að arðurinn rennur í miklu
meiri mæli til þjóðarinnar með
þeim tillögum sem hér eru lagðar
fram heldur en verið hefur.“
Frumvörpin greiði
fyrir nýliðun og auki
jafnræði í greininni
„Frumvarpið um
veiðigjald er
eyðilegging á
sjávarútveginum.
Það er vegna
þess að nánast
allur hagnaður er
tekinn út úr
greininni. Þær
upplýsingar sem
hafa komið frá
ríkisstjórninni
um að sérstaka veiðigjaldið muni
nema 11-13 milljörðum, að með-
töldum frádráttarliðum, er röng
tala. Talan er nærri 32 milljörðum
og það er nánast tíföldun á veiði-
gjaldinu,“ segir Adolf Guðmunds-
son, formaður LÍÚ. „Það er nánast
allur hagnaður tekinn úr greininni.“
„Nánast tíföldun á
veiðigjaldinu“ og
étur upp hagnaðinn
Adolf
Guðmundsson
Karlmaður á þrítugsaldri lést þeg-
ar sendiferðabíll sem hann ók lenti í
árekstri við flutningabifreið á
Ólafsfjarðarvegi síðdegis í gær.
Slysið átti sér stað við Krossa
skammt sunnan Dalvíkur. Einn
maður var í hvorum bíl og voru þeir
fluttir á Sjúkrahúsið á Akureyri.
Ökumaður flutningabifreiðarinnar
fékk að fara heim að lokinni skoð-
un. Lögreglan á Akureyri vinnur að
rannsókn málsins í samstarfi við
Rannsóknarnefnd umferðarslysa.
Banaslys á Ólafs-
fjarðarvegi
10