Morgunblaðið - 27.03.2012, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 27.03.2012, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Hlýtt hefur verið á Austur- og Norðurlandi undan- farið. Eftir hádegi í gær mældist t.d. 18,2°C hiti á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði, 17,6°C á Seyðisfirði, 17,5°C á Fáskrúðsfirði, 15,8°C í Neskaupstað og 15,2°C hiti á Akureyri. Trausti Jónsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Ís- lands, kvaðst ekki geta útilokað að hitamet marsmán- aðar yrði slegið að þessu sinni og að það gæti legið nærri því. Hann benti á að mánuðurinn væri ekki bú- inn og álitamál hvort það gerði kuldakast undir lok mánaðarins eða ekki. Mestur hiti í mars hingað til mældist á sjálfvirkri veðurstöð á Eskifirði árið 2000 en þá mældist þar 18,8°C hiti. Á Sandi í Aðaldal mældist 18,3°C hiti árið 1948 og er það hitamet á mannaðri veðurstöð. Það sem af var marsmánuði til og með gærdeginum var meðalhiti orðinn 3,3°C yfir meðallagi árin 1961-90 á Akureyri og tæpum tveimur stigum yfir meðallagi sömu ár í Reykjavík. Meðalhiti árin 1961-90 var +0,4°C í Reykjavík en -2,1°C á Akureyri. Trausti sagði að mars hefði að þessu sinni verið sér- staklega hlýr á Norður- og Austurlandi. Marsmánuðir hafa áður verið hlýir og má nefna marsmánuði árin 2003, 2004 og 2005 þegar þeir voru hlýir þrjú ár í röð. Síðasta áratug hafa marsmánuðir verið mun hlýrri á Akureyri en þeir voru að meðaltali á árunum 1961-90. Meðalhitinn á Akureyri var yfir frostmarki fyrrnefnd þrjú ár á þessari öld líkt og 2007 og 2010. Nokkuð hvasst hefur verið það sem af er mán- uðinum. Trausti taldi ólíklegt að slegin hefðu verið met hvað vindinn varðaði því lítið hefði verið tilkynnt um foktjón. Hlýtt hefur verið í 1.200 til 1.300 metra hæð yfir Norðausturlandi og einkum austanlands. Trausti skrifaði um það í bloggi að um hádegi á sunnudaginn var hefði mættishiti mælst 18 stig í mælingu frá Egils- staðaflugvelli. Mættishiti er sá hiti sem mældist væri loftið dregið niður að sjávarmáli. Sérstök skilyrði þarf til þess að þetta hlýja loft leiti niður og ekki líklegt að það gerist nema þar sem er snjólaust, vindur fellur af fjöllum og þar sem sólin hjálpar til. Morgunblaðið/Skapti Sól á Akureyri Gott veður var á Akureyri í gær – sól og hlýtt, en töluverður sunnanvindur. Börn á leikskól- anum Pálmholti skoðuðu tíkina Furu sem átti þar leið hjá þegar Guðrún Birgisdóttir var að viðra tíkina. Hlýindi í mars  Hiti yfir meðallagi það sem af er mars í Reykjavík og á Akureyri  Yfir 18°C á veðurstöð í Vopnafirði í gær Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is „Þessar gjaldtökuhugmyndir eru miklu skárri en þær sem við höfum séð áður og byggjast á skynsamlegri hugsun en frumvarp Jóns Bjarna- sonar. Ég hef hins vegar áhyggjur af því að umfangið í fyrstu umferð sé of mikið og að ákveðin fyrirtæki eigi ekki eftir að lifa það af,“ segir Daði Már Kristófersson, dósent í hag- fræði við Háskóla Íslands. Hann vann greinargerð um nýja kvótafrumvarpið að beiðni sjávar- útvegsráðuneytisins ásamt Þóroddi Bjarnasyni, prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri, um áhrif frumvarpsins á sjávarbyggðir og sjávarútvegsfyrirtæki. Niðurstaða hans var sú að hækk- un veiðigjalds væri sá einstaki þátt- ur frumvarpsins sem hefði mest áhrif á útgerðir og að það mundi kippa stoðum undan skuldsettari út- gerðarfyrirtækjum þó að önnur gætu hæglega tekist á við það. Hann gerir athugasemdir við ýmsa þætti frumvarpsins. Við mat á sérstöku veiðigjaldi sé engin tilraun gerð til að meta veginn fjármagns- kostnað í rekstri útgerðanna og mat á fjármagnsþörf fiskvinnslunnar sé ósanngjarnt. Þá eigi veiðigjaldið að meðaltali eftir að vera hærra en 70% ef renta útgerðarinnar verður ein- hvern tímann neikvæð þar sem ekki sé gert ráð fyrir að hægt sé að draga neikvæða rentu eins árs frá rentu þess næsta. „Ef þetta er ekki gert þarf að lækka rentugjaldshlutfallið í góðu árunum ef þú ætlar ekki að skilja út- gerðina eftir rentulausa. Þá hætta menn bara að standa í þessu og hvatinn til fjárfestinga hverfur,“ segir Daði Már. Skortir langtímastöðugleika Í þeim hluta greinargerðarinnar sem fjallar um áhrif á sjávarbyggðir skrifar Þóroddur að byggðaaðgerðir frumvarpsins séu ólíklegar til þess að ná þeim markmiðum sem stefnt sé að. Fyrst og fremst skorti upp á langtímastöðugleika sem geti skap- að grundvöll fyrir uppbyggingu at- vinnulífs í byggðunum. Sjávarbyggðirnar séu of margar til þess að umfangsmikil útgerð sé rekin í þeim öllum og því þurfi að skilgreina skýrt stærri atvinnusvæði þar sem sjávarútvegur sé mikil- vægur burðarás atvinnulífs. Ekki sé skynsamlegt að minnka byggðakvóta um helming þar sem búast megi við umhleypingum á næstu árum á meðan útgerðirnar lagi sig að breyttum aðstæðum og stjórnvöld þurfi svigrúm til að verja hagsmuni brothættustu byggðarlag- anna til skemmri tíma. Frumvarpið of umfangsmikið  Ólíklegt að byggðamarkmiðin náist  Gjaldtökuhugmyndir skárri en áður Þóroddur Bjarnason Daði Már Kristófersson Agnes Bragdóttir agnes@mbl.is Fyrrverandi framkvæmdastjóri Lífeyris- sjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar, Sigrún Ágústa Bragadóttir, hefur, samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins, átt í samskiptum við bæjarlögmann Kópavogs, Þórð Clausen Þórðarson, þar sem hann lagði til við hana með hvaða hætti hún gæfi skýrslu fyrir dómi og svaraði til við yfirheyrslur, vegna lánveit- inga sjóðsins til Kópavogsbæjar. Þegar Morgunblaðið náði tali af Sigrúnu Ágústu í gær vildi hún ekkert um málið segja. „Málið er nú í höndum saksóknara og lögmaður minn fer með málið fyrir mína hönd,“ sagði Sigrún Ágústa. „Stjórnaði öllu ferlinu“ Samkvæmt hljóðupptöku af símtali á milli Þórðar Clausen Þórðarsonar og Sigrúnar Ágústu, sem blaðamaður Morgunblaðsins hlýddi á í gær, lagði Þórður Clausen Þórð- arson, bæjarlögmaður Kópavogsbæjar, til við Sigrúnu að hún léti það koma skýrt fram í vitnisburði sínum að sá sem „stjórnar öllu ferlinu (við lánveitingu sjóðsins til Kópa- vogsbæjar – innskot blm.) er Gunnar Birg- isson.“ Jafnframt kemur fram í hljóðupptök- unni að bæjarlögmaður Kópavogs notar orðin „Terror Management“ þegar hann vís- ar til stjórnunarhátta Gunnars Birgissonar, og þar vísar hann til þess að Gunnar hafi hótað Sigrúnu Ágústu brottrekstri. „Þetta er vörn þín í málinu,“ segir Þórður Clausen Þórðarson orðrétt í hljóðupptökunni. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hittust lögmenn sexmenninganna sem ákærðir eru á fundi, fyrir nokkru og þar mun niðurstaðan hafa orðið sú að enginn þeirra taldi rétt eða fært að notast við þá málsvörn sem bæjarlögmaðurinn hefði lagt til. Hljóðupptaka til ríkissaksóknara Fyrir skemmstu var Vikan með viðtal við Sigrúnu Ágústu, þar sem hún rekur mála- vöxtu þessa þriggja ára gamla máls nokkuð nákvæmlega. Þar kemur á hinn bóginn ekki fram að það hafi verið bæjarlögmaður Kópa- vogs sem lagði að henni að hagræða vitn- isburði sínum. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafði Sigrún Ágústa þegar í stað samband við lögmann sinn eftir samskiptin við bæj- arlögmanninn og greindi honum frá efni samtalsins við Þórð og lögmaður Sigrúnar hafði þá þegar samband við ríkissaksóknara. Hljóðritunin að samtali Sigrúnar Ágústu og Þórðar hefur nú verið send ríkissaksókn- ara en áður hafði samtalið verið ritað upp og sent til saksóknara. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var Sigrúnu Ágústu ofboðið að lögmaður bæjarins skyldi beita slíkum vinnubrögðum í málinu og því hafði hún samband við lög- mann sinn og hann svo áfram við ríkissak- sóknara. Sigrún Ágústa hafi einfaldlega talið að vara bæri ríkissaksóknara við um það hvaða vinnubrögðum væri verið að beita í málinu. Þórður Clausen Þórðarson, bæjarlögmað- ur Kópavogs, vildi ekkert um málið segja þegar Morgunblaðið náði tali af honum í gærkvöldi. Reyndi að hafa áhrif á vitnisburð  Bæjarlögmaður Kópavogs ráðlagði fyrrverandi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópa- vogs að bera vitni um að Gunnar Birgisson hefði stjórnað lánveitingum sjóðsins til Kópavogsbæjar Morgunblaðið/Ómar „Rammaáætlun er ennþá til afgreiðslu í þingflokkunum. Það bara gafst ekki tími til að ræða hana [í gær] því við vorum að ganga frá fiskveiði- stjórnunarfrumvarpinu. Við höfum tíma til föstudags og við munum ná því,“ segir Magnús Orri Schram, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, um rammaáætlun um flokkun virkjunarkosta. Hann segir að næsti fundur hjá þingflokki Samfylkingarinnar verði á morgun og málið verði rætt þar. Þrátt fyrir að stjórnarflokkarnir hafi ekki verið sammála um í hvaða flokk nokkrir virkjunarkostir eigi að fara segist Magnús Orri fullviss um að áætlunin verði lögð fyrir þingið í vikunni. „Rammaáætlun um orkunýtingu verður lögð fyrir á þessu vorþingi og þá höfum við tíma til föstudags. Það mun ganga eftir,“ segir hann. Rammaáætlun afgreidd í vikunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.