Morgunblaðið - 27.03.2012, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012
Landsnet býður til opins kynningarfundar um
rekstrarumhverfi fyrirtækisins og framtíðarþróun
raforkuflutningskerfisins á Hilton Reykjavík
Nordica, 2. hæð (salur H-I), fimmtudaginn 29. mars
kl. 9:00 - 12:00.
Starfsumhverfi Landsnets:
Tekjurammi og hlutverk Landsnets
í framtíðarskipan orkumála.
Geir A. Gunnlaugsson, stjórnarformaður Landsnets.
Rekstrarumhverfi Landsnets:
Þróun gjaldskrár og framkvæmdir.
Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets.
Þróun flutningskerfis Landsnets:
Þjóðhagslegur ávinningur.
Guðmundur Ingi Ásmundsson, aðstoðarforstjóri Landsnets.
Flutningskerfið og umhverfið:
Háspennulínur og strengir.
Íris Baldursdóttir, deildarstjóri kerfisstjórnar Landsnets.
Fundarstjóri:
Þorgeir J. Andrésson, skrifstofustjóri Landsnets.
Skráning á kynningarfundinn fer fram á heimasíðu
Landsnets, www.landsnet.is.
Boðið verður upp á morgunhressingu frá kl. 8:30.
Allir velkomnir!
Opinn
kynningarfundur
Landsnets
Dagskrá:
www.landsnet.is
Alltaf leggst okkur eitthvað tilþótt skammdegið sé á und-
anhaldi.
Þessi frétt var í gær: „LögmaðurSeðlabanka Íslands krefst þess
að Héraðsdómur Reykjavíkur vísi
frá máli Más Guðmundssonar,
seðlabankastjóra, en hann fer þess
á leit að úrskurður Kjararáðs um
launakjör hans verði ógiltur.
Tekist er á um málið fyrir hér-aðsdómi í dag.
Þrjár ástæður eru fyrir því aðlögmaður Seðlabankans fer
fram á frávísun.
Telur hann að ekki beri að stefnaformanni bankaráðs Seðla-
bankans til fyrirsvars en frekar
þeim ráðherra sem fari með mál-
efni Seðlabankans, að krefjast hafi
átt þess að fleiri úrskurðir Kjara-
ráðs verði ógiltir og að síðustu að
íslenska ríkið ætti einnig að vera
aðili að málinu, alla vega sem rétt-
argæslumaður.“
Þetta eru flottar kröfur hjá lög-manni Seðlabanka Íslands,
sem hann hefur vonandi munað að
bera undir bankastjórann.
Nú þarf Jóhanna að drífa sig ímál við forsætisráðuneytið,
Össur við stækkunarstjóra sinn,
Steingrímur við Björn Val, Jóhann-
es eftirherma við Guðna Ágústsson,
Ólafur við Ragnar og Ásta Ragn-
heiður við Alþingi.
Þá væri þetta borð orðið sæmi-lega dekkað og hægt að bjóða
mönnum að gjöra svo vel.
Már Guðmundsson
Þetta er málið
STAKSTEINAR
Már Guðmundsson
Veður víða um heim 26.3., kl. 18.00
Reykjavík 8 skýjað
Bolungarvík 8 rigning
Akureyri 13 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 8 skýjað
Vestmannaeyjar 8 skýjað
Nuuk -2 snjókoma
Þórshöfn 8 þoka
Ósló 16 heiðskírt
Kaupmannahöfn 13 heiðskírt
Stokkhólmur 12 heiðskírt
Helsinki 5 heiðskírt
Lúxemborg 18 heiðskírt
Brussel 17 heiðskírt
Dublin 15 heiðskírt
Glasgow 20 heiðskírt
London 16 heiðskírt
París 21 heiðskírt
Amsterdam 15 heiðskírt
Hamborg 8 skýjað
Berlín 15 heiðskírt
Vín 16 léttskýjað
Moskva -2 heiðskírt
Algarve 20 heiðskírt
Madríd 20 heiðskírt
Barcelona 17 heiðskírt
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 22 léttskýjað
Aþena 20 léttskýjað
Winnipeg 5 skýjað
Montreal -1 léttskýjað
New York 11 heiðskírt
Chicago 5 skýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:02 20:05
ÍSAFJÖRÐUR 7:04 20:13
SIGLUFJÖRÐUR 6:47 19:56
DJÚPIVOGUR 6:31 19:35
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vilji er til að sækja erlent erfðaefni
til að bæta ákveðna eiginleika ís-
lenska kúastofnsins. Fulltrúar á að-
alfundi Landssambands kúabænda
samþykktu að óska eftir að gerð
verði áætlun um „innskot“ erfðaefnis
í þessum tilgangi.
Hvatt er til eflingar ræktunar-
starfs íslenska kúastofnsins í álykt-
un sem samþykkt var samhljóða, eft-
ir miklar umræður á aðalfundi LK
um helgina. Bent er á ýmsar leiðir í
því efni, meðal annars með betri
upplýsingagjöf og hvatningu til
bænda.
Jafnframt fól fundurinn stjórn
LK, í samstarfi við stjórn Bænda-
samtaka Íslands, að vinna áætlun
um innskot annars erfðaefnis í ís-
lenska kúastofninn til að hraða
erfðaframförum í þeim eiginleikum
sem litlar framfarir hafa náðst í en
skipta þó kúabændur verulegu máli.
Hugmyndin með „innskoti“ er að
fá erfðaefni frá öðru vel ræktuðu
kúakyni, til dæmis því rauða norska,
og blanda því inn í íslenska stofninn í
eitt skipti.
Sigurður Loftsson, formaður LK,
segir að afurðir íslensku kúnna hafi
verið að aukast hægt og bítandi með
ræktun stofnsins. Hins vegar vanti
að styrkja ákveðna þætti sem hafi
lágt arfgengi og hafi setið eftir.
Nefnir hann þætti sem snúa að vinnu
bænda, svo sem spena- og júgur-
gerð, mjöltum og frjósemi.
„Þetta innskot gerist einu sinni og
dreifist smám saman um allan stofn-
inn og þynnist síðan út,“ segir Sig-
urður. Hann segir að þessi aðferð sé
vel þekkt aðferð til að viðhalda litlum
stofnum og koma í veg fyrir að þeir
úreldist. Hann segir ekki hugsunina
að skipta um kúakyn en tekur fram
að þeir bændur sem nú eru starfandi
ráði ekki ákvörðunum næstu kyn-
slóða.
„Kynbætur skipta okkur bændur
mjög miklu máli til að bæta sam-
keppnisstöðu okkar og gera okkur
kleift að koma til móts við kröfur um
að framleiða vörur á samkeppnis-
hæfu verði og halda samt tekjum,“
segir Sigurður.
Sama umræða fór fram um við-
hald á holdanautastofninum en Sig-
urður segir að það þurfi nýtt blóð til
að hægt sé að viðhalda honum.
Morgunblaðið/Eggert
Kýr Kúabændur telja tímabært að fá inn nýtt blóð til að bæta vissa eig-
inleika íslenska kúakynsins. Áætlun verður gerð um kynbótastarfið.
Vilja „innskot“
í kúastofninn
Kúabændur efla ræktunarstarf