Morgunblaðið - 27.03.2012, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012
Sveitarstjórn Reykhólahrepps hef-
ur veitt Vegagerðinni fram-
kvæmdaleyfi vegna lagningar
Vestfjarðavegar nr. 60, á milli
Eiðis í Vattarfirði og Þverár í
Kjálkafirði. Verkið hefur verið
boðið út og verða tilboð opnuð hjá
Vegagerðinni í dag.
Sveitarstjórn vísar í umsókn
Vegagerðarinnar og matsskýrslu
um framkvæmdina, við samþykkt
framkvæmdaleyfisins. Sveitar-
stjóra var falið að auglýsa niður-
stöðuna. Framkvæmdaleyfið er
kæranlegt til úrskurðarnefndar
skipulags- og byggingarmála.
Umræddur vegur er tæplega 16
km langur. Er hann um 8 km
styttri en núverandi vegur, ekki
síst vegna þverunar Mjóafjarðar
og Kjálkafjarðar.
Útboðið þurfti að kynna á Evr-
ópska efnahagssvæðinu enda er
það eitt stærsta útboð fram-
kvæmda hjá Vegagerðinni í ár.
helgi@mbl.is
Leyfi til
fram-
kvæmda
Tilboð í veginn um
Múlasveit opnuð í dag
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Vegagerð Framkvæmdir við Vest-
fjarðaveg í Múlasveit hefjast senn.
„Ég hef ekki haft heilladísirnar með
mér, fyrr en nú. Stundum hefur þú
meðbyrinn og stundum ekki,“ segir
Sigurbjörn Bárðarson, sem sigraði í
gæðingaskeiði á móti Meistaradeild-
arinnar í hestaíþróttum sem fram
fór ’a Ármóti um helgina. Sig-
urbjörn keppir fyrir lið Lýsis og reið
Flosa frá Keldudal.
Sigurbjörn er einn sigursælasti
knapi landsins. Hann hefur meðal
annars sigrað þrisvar í einstaklings-
keppni meistaradeildarinnar og hef-
ur enginn leikið það eftir.
Stigasöfnunin hefur hins vegar
gengið illa á mótum vetrarins. „Ég
hef verið óheppinn og stundum
klúðrað sjálfur og get engum öðrum
kennt um,“ segir Sigurbjörn. Sig-
urinn í gæðingaskeiðinu og 4. sætið í
150 metra skeiði kemur honum hins
vegar upp í fjórða sætið í stiga-
keppninni. Hann er með 32 stig og á
enn möguleika á sigri.
Artemesia Bertus, Hrímni, á Dyn-
fara frá Steinnesi varð í öðru sæti í
gæðingaskeiðinu og Viðar Ingólfs-
son, Hrímni, á Má frá Feti í þriðja
sæti. Elvar Þormarsson, Spónn.is, á
Blossa frá Skammbeinsstöðum sigr-
aði í 150 metra skeiði, Eyjólfur Þor-
steinsson, Lýsi, og Vera frá Þór-
oddsstöðum voru næstfljótust og
Sigurður Vignir Matthíasson, Gang-
hestum / Málningu, á Birtingi frá
Selá, þriðju. helgi@mbl.is
Heilladísirnar loksins með
Morgunblaðið/Eyþór
Skeið Sigurbjörn Bárðarson og Flosi frá Keldudal hafa unnið marga sigra.
Sigurbjörn Bárðarson sigraði í gæðingaskeiði í Meist-
aradeildinni Á enn möguleika á sigri í mótaröðinni
Enginn málflutn-
ingur verður í
Hæstarétti í þess-
ari viku né næstu
tvær vikur þar á
eftir. Hefðbundin
dagskrá hefst því
ekki hjá réttinum
fyrr en 16. apríl
nk. Er þetta
vegna anna dómara og páskanna.
Þorsteinn I. Jónsson, skrif-
stofustjóri Hæstaréttar, segir að sök-
um meðferðar máls Alþingis á hend-
ur Geir H. Haarde fyrir Landsdómi
hafi ekki nema um helmingur dómara
verið við störf hjá Hæstarétti síðustu
vikurnar. Því hafi kærumál safnast
saman hjá réttinum, en það eru mál
sem áður dreifðust á tólf dómara en
hafa að undanförnu dreifst á sex
dómara.
„Þar af leiðandi var ákveðið að hafa
ekki málflutning í þessari viku, meðal
annars til að geta grynnkað á þessum
bunka. Auk þess eru tveir dómarar
fjarverandi vegna annarra embættis-
anna.“
Kærumál
hlaðast upp