Morgunblaðið - 27.03.2012, Síða 14

Morgunblaðið - 27.03.2012, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012 Svarið við spurningu dagsins HVAÐ ER Í MATINN? Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar@fylgifiskar.is - fylgifiskar.is Tilbúnir fiskréttir · Ferskur fiskur Heitur matur í hádeginu · Veisluþjónusta BAKSVIÐ Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Íslensk stjórnvöld geta bannað starfsemi Vítisengla og sambæri- legra vélhjólagengja hér á landi og þótt ekki sé hægt að fullyrða um úr- slit ef málinu yrði skotið til Mann- réttindadómstóls Evrópu er ólíklegt að dómstóllinn myndi snúa slíku banni við. Þetta er niðurstaða Elísu Sóleyjar Magnúsdóttur, meistara- nema í lögfræði við Háskólann í Reykjavík. Í BS-ritgerð sinni í viðskiptalög- fræði frá Háskólanum á Bifröst, skrifaði hún um rétt stjórnvalda til að banna Hells Angels, eða Vítis- engla, með hliðsjón af félagafrelsi. Hún leit einnig til lagaheimilda og reynslu stjórnvalda í Danmörku og Kanada sem hafa háð harða baráttu gegn þessum glæpasamtökum svo árum skiptir. Tilgangurinn sé löglegur Í stjórnarskrá Íslands er í 74. grein ákvæði um félagafrelsi og þar segir m.a. að menn eigi rétt á að „stofna félög í sérhverjum löglegum tilgangi“ án þess að þurfa að sækja um leyfi til þess. Síðan segir að félag megi ekki leysa upp með ráðstöfun stjórnvalds en þó megi banna um sinn starfsemi félags „sem er talið hafa ólöglegan tilgang“ en þá verði að höfða tafarlaust mál gegn félag- inu til að fá því slitið með dómi. Í ritgerð sinni bendir Elísa Sóley á að Vítisenglar hafi verið metnir sem glæpasamtök af Europol og af Hæstarétti Kanada. Europol og yfir- völd í Kanada, Íslandi og Danmörku hafi komist að þeirri niðurstöðu að starfsemi samtakanna leiði til aukins ofbeldis, skipulögðum glæpum fjölgi og öryggi almennings minnki. Því verði að telja að tilgangur samtak- anna sé að starfa í ólöglegum til- gangi og skilyrði stjórnarskrárinnar fyrir banni því uppfyllt. Rétt er að hnykkja á því að ekki þarf sérstaka lagasetningu til að banna starfsemi Vítisengla hér á landi heldur myndi t.d. nægja að innanríkisráðuneytið gæfi út yfirlýs- ingu um að slíkt bann væri í gildi en ráðuneytið yrði jafnframt að höfða mál gegn samtökunum til að fá bannið staðfest með dómi. Ekki matskennt í Danmörku Elísa Sóley segir að félagafrelsis- ákvæði dönsku stjórnarskrárinnar sé að mestu leyti samhljóða ákvæð- inu í íslensku stjórnarskránni. Mun- urinn er ekki mikill en þó veigamik- ill. Í stuttu máli liggur munurinn í því að í dönsku stjórnarskránni seg- ir að stofna megi félag í sérhverjum löglegum tilgangi en þar er ekki að finna matskennt ákvæði líkt og í þeirri íslensku, þ.e. að banna megi félag sem sé „talið hafa ólöglegan til- gang.“ Í ritgerðinni bendir Elísa Sóley á að dönsk stjórnvöld hafi árið 1998 látið vinna álitsgerð um hvort hægt væri að banna samtökin. Álits- gerðin hafi ekki verið gerð opinber en niðurstaðan hafi verið sú að bann myndi ekki standast dönsku stjórn- arskrána. Í álitsgerð sem gerð var fyrir íslensk stjórnvöld árið 2010 hafi á hinn bóginn verið komist að þeirri niðurstöðu að slíkt bann stæð- ist hér á landi. Spyrna harkalega við í Kanada Félagafrelsisákvæði kanadísku stjórnarskrárinnar býður heldur ekki upp á mat á því hvort starfsem- in sé ólögleg, líkt og sú íslenska, og er það því líkara ákvæðinu í dönsku stjórnarskránni. Á hinn bóginn er í kanadísku stjórnarskránni kveðið á um að menn verði að nýta sér rétt- indi sín innan ramma laga og réttar og telur Elísa Sóley að þetta bjóði upp á nokkurt svigrúm til mats. Kanadísk stjórnvöld hafa þó ekki látið reyna á hvort bann við starfsemi Vítisengla stand- ist stjórnarskrána en El- ísa Sóley bendir á að þau hafa engu að síður gengið mjög langt í baráttunni gegn þeim. Þá hafi sveitarfélög innan Kanada lagt bann við að meðlimir beri merki samtak- anna. Skilyrði fyrir banni uppfyllt  Stjórnvöld geta bannað starfsemi Vítisengla á Íslandi  Bann stæðist samkvæmt stjórnarskrá  Þrengri heimildir í Danmörku og Kanada  Lögregla ytra með víðtækari heimildir til rannsókna Morgunblaðið/Golli Skipulag Árið 2005 komst Hæstiréttur Kanada að þeirri niðurstöðu að Vítisenglar væru skipulögð glæpasamtök. Europol hefur komist að sömu niðurstöðu og íslensk stjórnvöld hafa tekið undir það mat. Í ritgerð sinni bendir Elísa Sóley á að lögregluyfirvöld í Kanada og Danmörku geti beitt forvirk- um rannsóknarheimildum. Í Kanada hafi jafnframt verið sett margvísleg ákvæði í lög sem beinist sérstaklega gegn skipu- lögðum glæpasamtökum. Þann- ig megi þeir sem fremja glæpi og eru meðlimir í glæpasam- tökum búast við mun þyngri dómum fyrir afbrot heldur en ef þeir eru ekki í slíkum samtökum. Elísa Sóley telur fulla ástæðu til að heimila forvirkar rann- sóknarheimildir hér á landi í ljósi uppgangs alls kyns glæpa- hópa. Hvað varðar bann við samtök- unum bendir hún á að ógnin af Vítisenglum stafi ekki síst af samtökunum sem slíkum. Í frægum dómi Hæstaréttar Kan- ada frá 2005 hafi komið fram að Vítisenglar hafi notað ógnina sem fólst í því að vera hluti af stórum samtökum til að gera ógnunina gegn fórnarlambi sínu enn áhrifameiri. Elísa Sóley mun halda fyrir- lestur um heimild stjórnvalda til að banna alþjóðleg útlagavél- hjólasamtök á málþingi Fé- lagsfræðingafélagsins á Grand hóteli í fyrramálið. Auk hennar munu Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði, og Karl Steinar Valsson, yfir- maður fíkniefnadeildar lög- reglunnar í Reykjavík, flytja fyrirlestra. Að því loknu verða pallborðsumræður. Meira svig- rúm lögreglu ÞYNGRI REFSINGAR Elísa Sóley Magnúsdóttir Siglingastofnun hefur auglýst útboð á viðhaldsdýpkun í Landeyjahöfn í sumar. Dýpkunarskipin Skandia og Perla sinntu þessu verkefni á síðasta ári og reikna má með að eigendur þessara skipa bjóði í verkið, auk mögulega annarra áhugasamra að- ila. Um er að ræða dýpkun sem fram- kvæma á allt að fimm sinnum frá 1. maí til 15. október nk. Samkvæmt útboðsgögnum, sem afhent verða frá og með deginum í dag, er reiknað með að dæla allt að 70 þúsund rúm- metrum úr Landeyjahöfn. Áætlaður kostnaður hjá Siglingastofnun við verkið verður ekki gefinn upp fyrr en tilboð verða opnuð 12. apríl nk. Skandia hefur að mestu leyti sinnt dýpkun í höfninni en hún getur að- eins farið fram við tilteknar aðstæð- ur. Þannig þarf ölduhæð að vera undir tveimur metrum ef Skandia á að athafna sig en í tilviki Perlunnar má ölduhæðin ekki fara yfir einn metra. Þess má geta að tilboð í ferjusigl- ingar í Landeyjahöfn verða opnuð í dag hjá Vegagerðinni, eftir að nið- urstöðu útboðs fyrir viku var frestað vegna formgalla. Þá bárust þrjú til- boð. bjb@mbl.is Morgunblaðið/Óli Már Aronsson Dýpkun Dýpkunarskipið Skandia að störfum í Landeyjahöfn. Dýpkun í Land- eyjahöfn boðin út

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.