Morgunblaðið - 27.03.2012, Síða 15
Samhjálp kvenna verður með opinn
fræðslufund í húsi Krabbameins-
félagsins í Skógarhlíð 8, Reykjavík,
í kvöld, 7. mars, kl. 20.
Á fundinum ætlar Geir Gunn-
laugsson landlæknir að ræða um
brjóstapúða í tengslum við upp-
byggingu brjósts í kjölfar brott-
náms vegna brjóstakrabbameins.
Fræðslufundur um
brjóstapúða
Reuters
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012
Friðgeir Grímsson, steingervinga-
fræðingur, hlaut í byrjun mars
styrk, sem nam rúmlega 52 millj-
ónum króna, frá austurríska rann-
sóknarsjóðnum.
Styrkinn fær Friðgeir til rann-
sókna á plöntusteingervingum á
Grænlandi og Færeyjum sem eru
um 65 til 54 milljón ára gamlir og
því frá upphafi nýlífsaldar.
Friðgeir og samstarfsmenn hans
áforma að safna steingervingum á
vesturströnd Grænlands yfir sum-
artímann og þar verður rannsókn-
arteymið selflutt á milli jarð-
lagaopna með þyrlu.
Segir í tilkynningu, að mögulega
gætu niðurstöður sýnt fram á við
hvaða gróðurfarsbreytingum má
búast á norðurslóðum samfara
hlýnandi loftslagi.
Fær styrk til steingervingarannsókna
Norden.org/Silje Bergum Kinsten
Grænland Þorp á vesturströnd Grænlands.
Skrifað hefur verið undir viljayfirlýsingu sveit-
arstjórna Bláskógabyggðar og Hrunamanna-
hrepps, Sambands garðyrkjubænda og Sölufélags
garðyrkjumanna um að kanna möguleika á að
reisa dreifiveitu rafmagns fyrir garðyrkjubændur í
þessum sveitarfélögum.
Fram kemur í tilkynningu, að áætlun um veituna
geri ráð fyrir fjárfestingu fyrir um 460 milljónir
króna sem muni borga sig upp á aðeins fimm árum.
Hún yrði reist nálægt Flúðum og gæti dreift raf-
magni til Laugaráss, Reykholts og Flúða.
Segir í tilkynningunni, að garðyrkjan í heild sinni noti um 70 GWst á ári
og sé því um að ræða orkusækna græna starfsemi. Þessi áform hafi verið
kynnt þingmönnum Suðurkjördæmis á fundi í gærmorgun í garðyrkjustöð-
inni að Friðheimum í Bláskógabyggð.
Gerðu sveitarstjórnamenn þar grein fyrir þátttöku sveitarfélaganna en
tæplega 80% af allri framleiðslu í ylrækt eru á afmörkuðu svæði innan
þessara sveitarfélaga.
Vilja reisa eigin dreifiveitu rafmagns
Hestadagar verða í Reykjavík dag-
ana 29. mars til 1. apríl.
Laugardagurinn 31. mars verður
helgaður hestinum í Ráðhúsi
Reykjavíkur og verða hestar og
hestamenn áberandi í miðbænum
þennan dag. M.a. verður boðið upp
á hestateymingar við Ráðhúsið. Um
kvöldið verður töltkeppni í Skauta-
höllinni í Laugardal og keppt í tölti
á ís.
Hápunktur laugardagsins er
skrúðreið um 150 hesta um mið-
borgina.
Sunnudagurinn 1. apríl verður
helgaður æskulýðnum og munu
ungir hestamenn sýna listir sínar í
Reiðhöllinni í Víðidal.
Það er Landssamband hesta-
mannafélaga sem stendur að við-
burðinum í samvinnu við Höf-
uðborgarstofu, Íslandsstofu og
hestamannafélögin á höfuðborg-
arsvæðinu.
Hestamenn fara að vanda í skrúðreið um
miðborgina á laugardag.
Hestadagar í
Reykjavík
Halló Norðurlönd og EURES, evr-
ópsk vinnumiðlun, standa fyrir
upplýsingafundum fyrir þá sem
hyggja á flutning til Norðurlanda.
Fundirnir verða í húsnæði Nor-
ræna félagsins, Óðinsgötu 7 í
Reykjavík. Þeir verða sem hér seg-
ir: Fimmtudaginn 29. mars klukkan
18: Að flytja til Danmerkur.
Fimmtudaginn 29. mars klukkan
20:30: Að flytja til Noregs.
Fimmtudaginn 12. apríl klukkan
18: Að flytja til Svíþjóðar.
Fundir um flutning
til Norðurlanda
Íslensk hönnun í fermingarpakkann
Dagskrá:
Martha Eiríksdóttir, framkvæmdastjóri Kreditkorta ehf. setur fundinn.
Dr. Daniel Levin: Corporate Governance. The good, the bad and the ugly.
Dr. Daniel Levin, sem er svissneskur og bandarískur ríkisborgari hefur góða þekkingu á íslensku samfélagi eftir
margvísleg störf fyrir fyrirtæki og stofnanir hér á landi. Dr. Daniel Levin á sæti í stjórn Íslandsbanka og leiðir þar
umfangsmikla vinnu bankans við gerð líkans um góða stjórnarhætti og ákvarðanatöku.
Dr. Daniel Levin hefur verið ráðgjafi ríkisstjórna og stofnana í mörgum löndum um efnahagsmál og stjórnmál.
Hann er með J.D. og Ph.D. gráður í lögum frá the University of Zürich í Sviss sem og LL.M. gráðu í lögum frá
Columbia University í New York.
Umræður undir stjórn Mörthu Eiríksdóttur með þátttöku dr. Levins, Hreggviðs Jónssonar formanns Viðskiptaráðs,
Aðalsteins Leifssonar formanns stjórnar Fjármálaeftirlitsins, og dr. Þórönnu Jónsdóttur framkvæmdastjóra hjá
Háskólanum í Reykjavík.
Áhugi á góðum stjórnarháttum fer vaxandi. Flestir eru sammála um að góðir stjórnarhættir og skýr
ábyrgð leiði til betri langtímaárangurs í rekstri fyrirtækja. Þrátt fyrir góðan vilja er ekki sjálfgefið að
fyrirtæki nái að tileinka sér breytt verklag.
Á þessum umræðufundi Festu, Viðskiptaráðs og Háskólans í Reykjavík verður leitast við að kafa dýpra
og ræða þær hindranir sem standa í vegi árangurs og leiðir til úrbóta.
„The good,
the bad and the ugly“
Þátttökugjald er 3.900 kr.
og er morgunverður innifalinn.
Skráning er á: www.opnihaskolinn.is/stjornmennt
Fundurinn er haldinn fimmtudaginn 29. mars kl. 8.45 – 10.00 að veitingastaðnum Nauthóli.
Umræðufundur um stjórnarhætti
Festa er miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja. Stofnaðilar Festu eru Alcan, Landsbankinn, Landsvirkjun, Íslandsbanki, Síminn og Össur.
Markmiðið með starfsemi Festu er að miðla þekkingu og rannsóknum á sviði samfélagsábyrgðar fyrirtækja.
Dr. Daniel Levin
„Það er náttúrlega alltaf gott að fá
ábendingar um það sem betur má
fara, það er í sjálfu sér ágætt,“ segir
Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir,
spurður út í gagnrýni sem fram kom
í grein eftir Sigurð Sigurðarson,
dýralækni, sem birtist á vef Frétta-
blaðs Suðurlands síðastliðinn sunnu-
dag en greint var frá gagnrýni Sig-
urðar í Morgunblaðinu í gær.
Að sögn Halldórs er stöðugt verið
að vinna í því að bæta ástand dýra-
verndunarmála á Íslandi og segir
hann heilmikinn árangur hafa áunn-
ist í þeim málum á síðustu árum, t.d.
í sambandi við hross úti á landi. „Eft-
irlitið er almennt þannig að búfjár-
eftirlitsmenn fara
um, það eru oft
þeir sem t.d.
koma ábending-
um til héraðs-
dýralækna um
það sem betur
megi fara þegar
þeir fara í sitt eft-
irlit og síðan
koma alls konar
ábendingar frá
hinum almenna borgara,“ segir Hall-
dór og bætir við: „Héraðsdýralækn-
ar reyna að bregðast eins hratt við
þessu og þeir geta miðað við tak-
markaðan mannafla.“ Halldór segist
mótmæla fullyrðingum Sigurðar um
að eftirlitsaðilar vinni með öguðum
og röngum vinnubrögðum og bætir
við að Matvælastofnun hafi aldrei
tapað máli vegna ágalla á meðferð
þess. Halldór tekur hins vegar undir
gagnrýni Sigurðar um að sektir í
slíkum málum séu of lágar. „Sektir
hafa verið lágar og þá kannski í engu
samræmi við brotin,“ segir Halldór.
Hann telur að verið sé að minnka
flækjustig við úrvinnslu dýravernd-
unarmála með því að nú liggi fyrir
frumvarp til laga um dýravelferð en
að sögn hans verða úrvinnsla mála
og þvingunaðgerðir markvissari með
þeim lögum. skulih@mbl.is
Svarar gagnrýni á eftirlit
Halldór
Runólfsson
Mótmælir fullyrðingum um röng og óöguð vinnubrögð