Morgunblaðið - 27.03.2012, Page 16

Morgunblaðið - 27.03.2012, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012 Pöntunarsími 512 6800 • www.dorma.is • OPIÐ Virka daga frá kl. 10-18, Lau frá kl. 11-17 og sun frá kl. 13-16 Holtagörðum FRÁBÆR KAUP • STÆRÐ 120X200 Fermingar- tilboð kr. 78.900,- Sterkur botn Gegnheilar viðarlappir 100% bómullaráklæði Svæðaskipt pokagormakerfi Frábærar kantstyrkingar 12 mán. vaxt alaus greiðsludreifi ng á fermingarrúm um* Komdu núna! Glæsileg fermingartilboð á 120 og 140 cm Nature‘s Rest. Hlífðardýna fylgir Full verslun af glæsilegum fermingartilboðum! * 0% vextir en viðskiptavinur greiðir 3,5% lántökugjald. Óskhyggja var að ætla að ísland kæmist upp úr efnahagskrepp- unni á nokkrum misserum. Og þó deila megi um hraða er verið að vinna að þeim vanda sem Ísland stendur frammi fyrir. Þetta sagði Már Guðmunds- son seðlabankastjóri á fundi efna- hags- og viðskiptanefndar Alþingis í gærmorgun. Már benti á að atvinnuvega- fjárfesting hafi aukist í fyrra og meira en Seðlabankinn bjóst við. Hún sé enn fyrir neðan sögulegt meðaltal en líta verði til þess að ekki er um að ræða venjulegt ár- ferði. Hann sagði Seðlabankann reka öðruvísi stefnu en seðlabankar annarra landa í kringum okkur vegna þess að Ísland sé í öðruvísi aðstæðum. Ef verðbólgumark- miðum væri náð gæti Seðlabankinn leyft meiri slaka í hagkerfinu. Már sagði peningastefnuna ekki geta stýrt langtímaatvinnuleysi, til þess þurfi mun fleira. „Eitt vaxta- tæki getur bara svo lítið,“ sagði Már og bætti við að fjárfestingu þurfi. Eitt vaxta- tæki getur svo lítið  Langtíma- atvinnuleysi Már Guðmundsson Samkvæmt áætlunum Icelandair Group er gert ráð fyrir að velta fé- lagsins á árinu 2012 muni aukast um 10% frá árinu 2011 og nema 105 milljörðum króna. Að sögn Boga Nils Bogasonar, framkvæmdastjóra fjármála Icelandair Group, er áætl- uð aukning komin til bæði vegna nýrra leiða eins og til Denver í Bandaríkjunum og síðan vegna auk- innar tíðni á leiðum sem fyrir voru. Í tilkynningu frá fyrirtækinu í gær kom einnig fram að EBITDA félagsins er áætluð 11,0-12,0 millj- arðar króna en það er aukning frá árinu áður en EBITDAN var 10,4 milljarðar 2011. „EBITDU-hlutfallið er samt ekki að aukast,“ segir Bogi. „Þetta er bara í samræmi við aukið umfang. Og við vorum líka með hærri EBITDU árið 2010 en olíu- verðið hefur áhrif til lækkunar á árinu.“ Arður greiddur út Aðalfundur Icelandair Group hf. var haldinn síðastliðinn föstudag og þar var samþykkt að greiða arð til hluthafa að fjárhæð 800 milljónir króna sem er 16% af nafnverði hlutafjár og 20,3% af hagnaði félags- ins sem var 3.934 milljónir á síðasta ári. Á fundinum kom einnig fram að Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, var með 41,7 millj- ónir króna í laun í fyrra frá félaginu, Bogi var með 33,3 milljónir. Sigurður Helgason, stjórnarfor- maður Icelandair Group, fékk greiddar 3,8 milljónir króna frá Ice- landair í fyrra en aðrir stjórnarmenn voru með rúmar tvær milljónir. Einn nýr stjórnarmaður var kos- inn í stjórnina, Ásthildur Margrét Otharsdóttir. Einnig var samþykkt að hækka laun stjórnarmanna upp í 250.000 krónur á mánuði og að for- maður hennar fái 500.000 á mánuði. borkur@mbl.is Veltuaukning hjá Icelandair  10% áætluð veltuaukning hjá Ice- landair  Forstjórinn með 41,7 milljónir Morgunblaðið/Golli Forstjórinn Aðalfundur Icelandair Group var haldinn á föstudaginn. ● Hagnaður Horns, fjárfestingarfélags Landsbankans, nam 10,3 milljörðum króna á síðasta ári en hafði verið 6,5 milljarðar árið 2010. Eigið fé nam í árs- lok 23,6 milljörðum króna. Arðsemi eig- in fjár var 41,5%. Horn greiddi á árinu eins og und- anfarin ár arð til eiganda síns, eign- arhaldsfélags Landsbankans ehf. Greiðsla til eigandans á árinu nam 19 milljörðum króna, annars vegar með arðgreiðslu að fjárhæð 10 milljarðar króna og hins vegar keypti Horn eigin bréf fyrir 9 milljarða króna. Hagnaður Horns var 10,3 milljarðar króna ● Breska lág- gjaldaflugfélagið easyJet gerir áfram ráð fyrir að félagið verði rekið með tapi en af- koman verði betri en áður var talið. EasyJet byrjar að fljúga til Íslands í dag. Samkvæmt upplýsingum frá easyJet er gert ráð fyrir að tap félagsins fyrir skatta verði 110-120 milljónir punda, 22-24 milljarðar króna, á fyrstu sex mánuðum rekstrarársins. Áætlar minna tap ● Á morgun fer fram annað gjaldeyris- útboð ársins hjá Seðlabanka Íslands sem er liður í afnámi gjaldeyrishafta hér á landi. Um er að ræða þrjú útboð, þar sem bankinn kallar einnig eftir til- boðum frá aðilum sem vilja selja krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjald- eyri. Alls stefnir Seðlabankinn að því að kaupa 100 milljónir evra í gjaldeyris- útboðunum tveimur, og í krónu- kaupaútboðinu stefnir hann að því að selja evrur fyrir sem nemur 25 mö.kr. Gjaldeyrisútboð SÍ Stuttar fréttir…                                           !"# $% " &'( )* '$* +,-./0 ,11./ +,-.-0 ,,.23, ,+.45- +3.5/2 +/3.5+ +.0,0- +42.5/ +-5.+4 +,-.-0 ,11.54 +,5.1, ,,.023 ,,.12+ +3.534 +/4.+ +.0/1+ +40./+ +-5.-- ,,4.,54, +,-.40 ,1+.,3 +,5./4 ,,.-+2 ,,.+1- +3.322 +/4.24 +.0/2- +40.34 +-3.+/ Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Hörður Ægisson hordur@mbl.is Á síðasta ári var kaupmáttur ráð- stöfunartekna – heildartekjur heim- ilisins eftir skatta að meðtöldum fé- lagslegum greiðslum – hjá öllum tekjuhópum sambærilegur við það sem hann var árið 2004. Að sama skapi dreifðust tekjur landsmanna jafnar árið 2011 heldur en þær hafa gert áður í lífskjararannsókn Hag- stofunnar sem hófst árið 2004. Fram kemur í rannsókn Hagstof- unnar að bilið milli tekjuhópa hefur minnkað umtalsvert frá árinu 2009 og er tekjuhæsti fimmtungurinn nú með 3,3 sinnum hærri tekjur en sá lægsti. Til samanburðar var hlutfall- ið 4,2 árið 2009. Þannig mældist Gini stuðullinn, sem sýnir hvernig heild- arráðstöfunartekjur í hagkerfinu dreifast á milli landsmanna, 23,6 stig árið 2011 en fór hæst í 29,6 árið 2009. Sú þróun þarf hins vegar ekki að koma mikið á óvart þegar hafðar eru í huga þær efnahagshremmingar sem Ísland hefur gengið í gegnum frá hruni bankakerfisins 2008. Tekj- urnar hafa því jafnast í þá átt að þær hafa dregist saman í öllum hópum. Á árunum 2004 til 2009 jókst kaupmáttur hjá öllum hópum, en hlutfallslega langmest í tekjuhæsta fimmtungnum. Kaupmáttur tekju- hæsta fimmtungsins dróst að auki mun meira saman heldur en hjá öðr- um á árunum 2010 og 2011. Meðal- ráðstöfunartekjur þess hóps voru tæplega 740 þúsund 2009, sé miðað við fast verðlag ársins 2010, en tveimur árum síðar höfðu tekjurnar hins vegar dregist saman um 266 þúsund krónur og voru að meðaltali 474.100 krónur. Meðaltekjur þess fimmtungs sem hefur lægstu tekj- urnar í samfélaginu minnkuðu um 32 þúsund á sama tímabili og mældust 143.200 krónur á liðnu ári. Kaupmáttur landans svipaður og 2004  Ráðstöfunartekjur Íslendinga minni, en jöfnuður meiri Meðalráðstöfunartekjur í tekjufimmtungum á verðlagi ársins 2010 Heimild: Hagstofa Íslands 800 þús. 700 þús. 600 þús. 500 þús. 400 þús. 300 þús. 200 þús. 100 þús. 0 þús. 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 Hæsti fimmtungur Mið fimmtungur Lægsti fimmtungur Tekjur dragast saman, jöfnuður eykst » Jöfnuður hefur ekki mælst meiri frá árinu 2004 » Ráðstöfunartekjur á svip- uðum slóðum og 2004 » Kaupmáttur tekjuhæsta fimmtungsins dregist hlutfalls- lega langmest saman frá 2009

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.