Morgunblaðið - 27.03.2012, Page 20

Morgunblaðið - 27.03.2012, Page 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012 Á hjúkrunarheim- ilum landsins dvelja rúmlega 2.300 manns. Þar fá heimilismenn alla þá þjónustu, að- stoð og umönnun sem hver og einn þarfnast. Fyrir þessa þjónustu greiðir Trygg- ingastofnun ríkisins daggjöld sem velferð- arráðherra ákveður einhliða. Þau nema í ár um 22.000 krónum á sólarhring fyrir hvern heimilismann. Samkvæmt lögum ber heimilismönnum að greiða hluta af þessum dvalarkostnaði og sér Tryggingastofnun ríkisins um að reikna út hversu mikið hverjum og einum ber að greiða. En TR inn- heimtir þetta ekki, heldur sendir hverju hjúkrunarheimili upplýs- ingar um hvað viðkomandi heimili þarf að innheimta hjá hverjum og einum heimilismanni. Það er síðan á ábyrgð stjórnenda heimilisins að ná að innheimta þessa kostn- aðarhlutdeild hvers heimilismanns. Heimilismaðurinn hefur ekkert um það að segja hvaða fjárhæð honum beri að greiða né hvaða þjónustu hann fær fyrir það sem hann greið- ir fyrir. TR lækkar síðan framlagið/ daggjaldið til hjúkrunarheimilisins um samsvarandi upphæð þannig að heildartekjur þess eru þær sömu, fyrir alla heimilismenn. Nái heim- ilið ekki að innheimta hlutdeild heimilismannsins ber það tjónið og TR vísar allri ábyrgð á þessari inn- heimtu til hjúkrunarheimilanna. Heimilismaður settur í gjaldþrot Ég veit þess dæmi að eitt heimili á höfuðborgarsvæðinu hefur reynt að innheimta þessa kostn- aðarhlutdeild hjá heimilismanni sem er fæddur 1943. Samkvæmt upplýsingum frá TR bar honum að greiða 1,3 milljónir króna vegna ársins 2010 og svo 311.741 krónu á mánuði á yfirstandandi ári eða samtals 3,7 milljónir í ár. Þessi heimilismaður hefur aldrei greitt krónu af þessum kröfum og hefur hjúkrunarheimilið falið innheimtu- fyrirtæki að innheimta þessa skuld. Staða málsins nú er að búið er að fara fram á gjaldþrotaskipta- meðferð heimilismannsins og verð- ur sú beiðni tekin fyrir fljótlega í héraðsdómi Reykjavíkur. Beiðni um gjaldþrot er nauðsynleg til þess að ganga úr skugga um hvort heim- ilismaðurinn geti greitt þessa kostnaðarhlutdeild. Verði nið- urstaðan sú að viðkomandi heim- ilismaður verði úrskurðaður gjald- þrota þá tapar þetta hjúkrunarheimili rúm- lega fimm milljónum króna og fær það tap hvergi bætt. Þetta hljómar ótrúlega en er engu að síður blákald- ur veruleiki. Þar að auki er það nú heldur nöturlegt að sá aðili sem hjúkrar og sinnir velferð heimilismanns- ins skuli einnig vera settur í þá ömurlegu aðstöðu að þurfa að gera skjólstæðing sinn gjaldþrota. Síðan er það auðvitað álitamál hvort og þá hversu mikinn hluta dvalarkostnaðar heimilismenn hjúkrunarheimila eiga að greiða. En það er pólitík og bíður sú um- ræða seinni tíma. Orð og efndir Á haustþingi 2007 fór fram um- ræða um fyrirhugaða sameiningu félags- og tryggingamálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis. Þar sagði Jóhanna Sigurðardóttir þáverandi félagsmálaráðherra: „Ég mun láta skoða hvort ekki sé rétt að end- urmeta greiðslufyrirkomulag þeirra sem dveljast á hvers kyns þjónustustofnunum aldraðra þann- ig að horfið verði frá fyrirkomulagi svokallaðra vasapeninga yfir í eðli- legt greiðslufyrirkomulag. Mér hafa borist fréttir af því að þar sé víða pottur brotinn og þetta vil ég skoða sérstaklega. Við hljótum að geta endurmetið á hverjum tíma hvort endilega eigi að halda í úrelt fyrirkomulag sem fólkið sjálft er ósátt við. Ég á einkum við að gerð- ar verði ráðstafanir þannig að líf- eyrisþegar sem kjósa að búa á stofnun haldi í meira mæli fjár- hagslegu sjálfstæði sínu.“ Ég eft- irlæt lesendum Morgunblaðsins að meta í ljósi ofangreinds hvort þá- verandi félagsmálaráðherra og nú- verandi forsætisráðherra hafi stað- ið við það sem hún sagði haustið 2007. Gjaldþrota á hjúkrunarheimili Eftir Gísla Pál Pálsson » Það er heldur nöt- urlegt að sá aðili sem hjúkrar og sinnir velferð heimilismanns- ins skuli einnig vera settur í þá ömurlegu að- stöðu að þurfa að gera skjólstæðing sinn gjald- þrota. Gísli Páll Pálsson Höfundur er forstjóri og formaður Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. Stefna bóluefnafas- ismans gengur út á það að reyna að kom- ast hjá því að veita upplýsingar um inni- hald, alvarlegar auka- verkanir er geta fylgt bóluefnum, því að að- alatriðið hjá honum er ekki að fræða heldur að hræða fólk í bólu- setningu. Fólk gerir sér oftast nær ekki grein fyrir því að það fæðist inn í þennan fasisma, rétt eins og fiskur sem fæðist í óhreinu vatni sem veit ekki að til er eitthvað betra annars staðar. Þegar fólk fer að efast um ágæti bóluefna eða vegna þess að það hefur frétt eitthvað annað frá læknum erlendis, þá kemur upp þessi höfnun og mótlæti frá yf- irvöldum. Staðan hér í þessum málum sker sig út frá öðrum þjóðum þar sem hér er ekki til einn einasti bækl- ingur yfir eitt einasta bóluefni, þar sem að tilgangurinn er greinilega til þess fallinn að almenningur tengi ekki hugsanlegar aukaverk- anir við bóluefnin. Ef fjölskylda ákveður að hafna bólusetningu fyrir barnið sitt, þá eru mikla líkur fyrir því að sú fjölskylda verði kærð til Barnaverndarnefndar, þrátt fyrir að bólusetningar eigi að vera frjáls- ar. Því að Barnaverndarnefnd hér hlýðir nefnilega í einu og öllu fyr- irskipunum heilbrigðisyfirvalda rétt eins og hvert annað vélmenni án þess að spyrja, þessum bóluefnafas- isma fékk hún Ragga móðir Ellu Dísar að kynnast eftirminnilega. Óánægjan kemur upp aftur og aftur Um leið og einhver vogar sér að gagnrýna þessi vafasömu bóluefni, kemur upp þessi óánægja hjá viss- um aðilum innan heilbrigðisgeirans, eða þar sem menn hafa haft svo mikið fyrir því að halda upplýs- ingum frá stjórnmálamönnum og almenningi um innihald, reynslu- sögu og aukaverkanir svo að hægt væri að bæta við fleiri bólusetn- ingum. Bóluefnafasisminn leyfir ekki neina gagnrýni, og um leið og einhver vogar sér að minnast á að 14 börn hafi látist eftir bólu- setningu með Synflo- rix-bóluefninu í klín- ískum rannsóknum hrópa þeir um leið, þetta eru „upphróp- anir“ (Fréttablaðið 27. des. sl.) Öllu er svarað svona, þrátt fyrir að það hafi verið dæmt í málinu fórnarlömbum í vil og bóluefnafyr- irtækinu GlaxsoSmit- hKline í óhag (whale.to/drugs/gsk.html). Allt er þetta gert svona hér svo hægt sé að notast við þessi sömu ósannindi áfram, eða, að „alvarlegar auka- verkanir ekki þekktar“ (landlaekn- ir.is). Eins og gefur að skilja þá er bóluefnafasisminn mikill hér á landi þar sem hér eru auk þess notaðar lygar til fá fólk í bólusetningu með börn sín. Áróðri beitt til að viðhalda ósannindum Bóluefnafasisminn gengur út á það að auglýsa óörugg bóluefni sem örugg, eða rétt eins og gert var með svínaflensubóluefnið er leyfi var veitt fyrir eingöngu undir far- sóttar kringumstæðum (eða ’aut- horised under Exceptional’) hjá Lyfjastofnun Evrópu. Nú og einnig í leiðbeiningunum frá framleiðand- anum kemur það skýrt fram að ekkert af upplýsingum (eða „No data“) eru til yfir notkun bóluefn- isins á barnshafandi konum, og ekkert af upplýsingum (eða „No data“) eru til yfir notkun á bóluefn- inu á börnum yngri en 18 ára. Tak- markaðar upplýsingar („limited data“) yfir notkun bóluefnisins á 60 ára og eldri. Hér á landi var hins vegar bóluefnið auglýst öruggt í öll- um helstu fjölmiðlum. Í erlendum fjölmiðlum þá kröfðust belgískir læknar afsagnar dr. Marc Van Ranst yfir því að hafa logið að allri þjóðinni að svínaflensubóluefnið væri öruggt (whale.to/vaccine/ belgian1.html). Afneitunum beitt með óábyrgum fullyrðingum Á síðastliðnu ári þá birtist í DV. umfjöllun er höfð var eftir Berg- lindi Dúnu er grunaði að drómasýk- in (narcolepsy) tengdist bólusetn- ingunni (11. janúar 2011), en þeir Haraldur Briem, Þórólfur Guðna- son og Pétur Lúðvíksson reyndu að draga úr því strax með því að segja í Fréttablaðinu, að „… ólíklegt er að bólusetning gegn svínainflúensu tengist á nokkurn hátt drómasýki“. Nú og í þessari sömu grein, að „… á árinu 2010 varð vart við tals- verða aukningu í sjúkdómnum … en einnig sást aukinn fjöldi á Ís- landi“ (Fréttablaðið 2. feb. 2011). Í grein þeirra Haraldar og Þór- ólfs hinn 27. desember sl. kveður svo við annan tón í Fréttablaðinu, að drómasýki hafi „ekki sést á Ís- landi“. og ekki í öðrum löndum en í Finnlandi og Svíþjóð er tengdist bólusetningu með Pandemrix. Þeg- ar erlendis var vitað um 31 tilfelli í Frakklandi, 17 í Noregi, 26 í Þýska- landi, 3 í Sviss, 4 í Hollandi og 30 í Írlandi eftir bólusetningu með Pan- demrix. Samanlagt í Svíþjóð og Finnlandi höfðu komið upp 185 til- felli eftir bólusetningu, en stjórn- völd í báðum þessum löndum kom- ust að því að bóluefnið væri valdurinn af drómasýki og ákváðu að greiða þessum fórnarlömbum. Satt best að segja þá hafa menn ekki neina hugmynd um hvað mörg tilfelli eiga eftir að verða tilkynnt. Með allt þetta í huga og svo þessa sérstöku afneitun sem þekkist hér eins og td. í máli hennar Ellu Dísar og bara öllu hvað varðar skaðsemi taugaeiturefna (neurotoxin) í bólu- efnum, þá verður manni ljóst að hér stendur aldrei til biðjast afsök- unar og hvað þá greiða fólki sjúkra- bætur eftir bólusetningu. Því að ekki er hægt að ætlast til að fá sjúkrabætur þar sem yfirvöld hafa fullyrt og eru á því að bóluefnin séu örugg, ekki satt? Bóluefnafasisminn Eftir Þorstein Sch. Thorsteinsson Þorsteinn Sch. Thorsteinsson » Bóluefnafasisminn gengur út á það að auglýsa óörugg bóluefni sem örugg... Höfundur er formaður Samstarfs- nefndar trúfélaga fyrir heimsfriði og meðlimur í félagi áhugamanna um bólusetningar. Þrátt fyrir ítarlegan greinarflokk hefur Morgunblaðinu ekki ennþá tekist að koma með aðalatriðin varð- andi áhrif á villta laxastofninn í Þjórsá. Mikilvægast er að horfa á líf- ríki árinnar, magn og gæði á fæðu, súrefni, dreifingu næringarefna og fjölmargar aðrar forsendur fyrir framleiðslugetu árinnar. Við mat á afföllum verður að taka á öllum líf- ríkisþáttum allan líftíma fiskistofn- anna, á öllum búsvæðum vatnasviðs- ins. Niðurstaða vísindamanna sem um árabil hafa stundað rannsóknir í ánum, sem Landsvirkjun vísar til, er að umræddar stíflugerðir í Neðri- Þjórsá rýri vistkerfið og dragi úr seiðaframleiðslu um 81-89%. Áætl- anir Landsvirkjunar um aðeins 5% skerðingu eru bara bull og út- úrsnúningur. Tillögur þeirra um að kaupa megi netahlunnindi og bæta þannig fyrir verulega skert vistkerfi standast ekki líffræðilega. Sú aðgerð myndi að sjálfsögðu bæta stangveið- ina fyrsta árið, en hún bætir ekki skerðinguna á sjálfu vistkerfinu og brýtur auk þess í bága við gildandi lög, sbr. 9. grein laga um lax- og sil- ungsveiði nr. 61 frá 2006. Með sömu röksemdarfærslu mætti halda því fram að útgáfu- kostnaður Morgunblaðsins væri kostnaður við prentun á blaðinu nóttina fyrir útkomu þess. Annað skipti ekki máli. ORRI VIGFÚSSON, formaður NASF, verndarsjóðs villtra laxastofna. Neðri Þjórsá – Aðalatriði málsins Frá Orra Vigfússyni Bréf til blaðsins Smáralind | Hverafold 1-3 | 511 1710 | svanhvit@svanhvit.is | svanhvit.is ÞAÐ KOSTAR LÍKA AÐ ÞVO SJÁLFUR! LÁTTU OKKUR SJÁ UM ÞÍNAR SKYRTUR. Efnalaug - Þvottahús 330 KR. SKYRTAN hreinsuð og pressuð -ef komið er með fleiri en 3 í einu Fullt verð 580 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.