Morgunblaðið - 27.03.2012, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012
Það geta allir þóst vera alvar-legir en það getur enginnþóst vera fyndinn,“ erbæði góð og sönn setning.
Jón Gnarr hefur fyrir löngu sannað
að hann getur verið mjög fyndinn og
hann hefur svo sem ekki hikað við að
vera alvarlegur og einlægur heldur.
Húmor snýst að stórum hluta um að
setja hlutina í óvænt samhengi og
Jón Gnarr hefur oft kallað fram bros
og hlátur – og líka reiði – með því að
dansa á mörkum þess leyfilega en
þar eru margir bestu grínistarnir
óþreytandi við að vinna ný lönd.
Húmorinn í Hótel Volkswagen er
á slíkum jaðri að jafnvel gagnrýn-
andi er á jarðsprengjusvæði við að
lýsa efni leikverksins, hvað þá að
leggja út af því. Þarna er gert grín
að hommapari sem er að reyna að
eignast barn. Gefin er innsýn í mýkri
hlið fjöldamorðingja og skopast að
barni sem krefst stöðugrar athygli.
Og vissulega er maður teymdur út í
að hlæja að hlutum sem ósæmilegt
er að finnast fyndnir. Eins og að
horfa á mann öskra á barn og niður-
lægja það fullkomlega. Kunnuglegar
aðstæður sem þróast út í hið óleyfi-
lega.
Verkið hefst á því að feðgarnir
Pálmi og Siggi litli leita ásjár á Hot-
el Volkswagen vegna þess að bíllinn
þeirra, sem er af gerðinni Simca Tal-
bot, hefur geispað golunni. Svenni
hótelstjóri er bifvélavirki og tekur
að sér að gera við bílinn. Hann er
fljótur að sjá að þetta er vatnskass-
inn en það gengur illa að gera við svo
þeir feðgar ílendast. Á hótelinu er
einnig SS foringi sem er að bíða eftir
því að geta flúið land og tveir herra-
menn, hvar af annar er í kjól, sem
eru að reyna að geta barn saman.
Sviðinu í Borgarleikhúsinu er
breytt í þessari sýningu þannig að
áhorfendur eru bæði fyrir framan
það og aftan og þurfa leikarar að
leika í báðar áttir. Þetta hefur í för
með sér að í einhverjum tilvikum
náði maður textanum ekki fyllilega –
nokkuð sem sjálfsagt er afar erfitt
að koma í veg fyrir að gerist.
Persónurnar í Hótel Volkswagen
eru settar fram sem hálfgerðar
pappírsfígúrur og látnar takast á og
tala um fáránlega hluti. Til þess að
þetta verði verulega spennandi
finnst mér hér vanta meiri dýpt og
pælingar, áhugaverðari framvindu
og efnivið og meira að segja jafnvel
líka fyndni. Seinni hluti verksins er
slakari en sá fyrri og niðurlagið virk-
aði á mig sem hálfgerð uppgjöf eða
skyndilokun. Eitthvað sem hægt er
að hlæja að í útvarpsþætti þar sem
maður veit að efninu var skellt sam-
an kvöldinu áður en gengur ekki í
leikverki eftir atvinnumann, á aðal-
sviði í atvinnuleikhúsi.
Hægt er þó að tína til ýmislegt já-
kvætt um verkið. Samtöl eru þjál og
eðlileg. Gert er grín að margs konar
meðvirkni. Hæðst er hárfínt að með-
förnum alkóhólistum og sjálfhverfni
þeirra og virkum alkóhólistum og
sjálfslygum þeirra. Einnig má sjá
vísun í hrunið og uppgjör okkar við
það í því hvernig SS foringinn er af-
greiddur af meðbræðrum sínum á
Hótel Volkswagen.
Almennt sýnir uppfærsla verksins
að hér hefur gott fagfólk lagt sig
fram. Laufléttur og áhyggjulaus
húmor er í mörgum atriðum, sem er
til mikils sóma, því sýnileg áreynsla
er eitt af því sem drepur fyndni.
Leikmyndin er látlaus og skemmti-
legt – rauð tjöld marka sviðið vinstra
og hægra megin og sviðið sjálft er
anddyri hótels, bar og matsalur.
Tjöldin rauðu undirstrika kannski
að Hótel Volkswagen er til í hugar-
heimum og vísar þaðan til sam-
félagsins sem við lifum í.
Leikararnir eru hver öðrum betri
í hlutverkum sínum. Hallgrímur
Ólafsson er skemmtilegur í gervi
drýldins, gamals hippa og neyslu-
hróks sem hefur fundið sér lítið
herradæmi. Hann þurfti ekki annað
en að ganga til að ná fram hlátri og
maður hló líka bara að því hvernig
hann bar fram orðin. Þorsteinn
Gunnarsson lék sitt hlutverk mjög
vel og var sannfærandi sem gamall
SS maður á flótta. Bergur Þór Ing-
ólfsson var pottþéttur frústreraður
pabbi. Dóra Jóhannsdóttir lék Sigga
litla mjög vel. Halldór Gylfason og
Jörundur Ragnarson voru flott hom-
mapar. Hundarnir voru heldur dauf-
legir og manni fannst á mörkunum
að vera með þá miðað við vægi
þeirra í sýningunni. Sama má segja
um nektarsenu sem virðist eiginlega
bara vera þarna til að vera þarna.
Tónlistin sem ég varð aðallega var
við í skiptingum á milli atriða var há-
vær og ágeng. Ég náði ekki alveg
tengingu hennar við verkið og gat
eiginlega hvorki séð að hún ynni
með því eða á móti.
Hótel Volkswagen bbbnn
Hótel Volkswagen eftir Jón Gnarr
Leikarar: Hallgrímur Ólafsson, Þor-
steinn Gunnarsson, Bergur Þór Ingólfs-
son, Dóra Jóhannsdóttir, Halldór Gylfa-
son, Jörundur Ragnarsson. Leikmynd:
Halla Gunnarsdóttir, búningar: Eva Vala
Guðjónsdóttir, lýsing: Þórður Orri Pét-
ursson, tónlist: Davíð Þór Jónsson, leik-
stjórn: Benedikt Erlingsson.
Stóra svið Borgarleikhússins, 24. mars
2012
SIGURÐUR G.
VALGEIRSSON
LEIKLIST
Dansað á mörkum
þess leyfilega
Faglegt „Almennt sýnir uppfærsla verksins að hér hefur gott fagfólk lagt
sig fram,“ segir m.a. í leikdómi Sigurðar um Hótel Volkswagen.
Kvikmyndin Song of Love (1947),
eða Ástaróður eins og hún var
nefnd á íslensku þegar hún var
sýnd í Gamla bíói árið 1948, verður
sýnd á vegum Kvikmyndasafns Ís-
lands í Bæjarbíói í kvöld, þriðjudag,
klukkan 20.00 og aftur á laug-
ardaginn kemur klukkan 16.00.
Þessa kunna stórmynd fjallar um
tónskáldið Robert Schumann og
konu hans, píanósnillinginn Klöru
Wieck Schumann. Í myndinni eru
leikin mörg kunn verk eftir Schu-
manns, Brahms og Liszt. Með aðal-
hlutverk fara Katherine Hepburn,
Paul Henreid og Robert Walker.
Ástaróður með Hepburn í Bæjarbíói
Aðalleikararnir Henreid, Hepburn
og Walker leika tónlistarfólkið.
„Röggvarfeldurinn, flík og
ábreiða, í fortíð og nútíð“ nefnist
hádegisfyrirlestur sem Hildur Há-
konardóttir heldur í Þjóðminja-
safni Íslands í dag kl. 12.05. Þar
mun hún rekja upphaf feldarins,
blómatíð og afdrif. „Röggvarfeldir
hafa fylgt mannkyninu frá örófi
alda. Þetta er ofin ullarflík sem
verður til áður en við förum að
sníða til fötin. Hann er í raun og
veru gervisauðskinn, en mun
mýkri og meðfærilegri en skinn-
flíkur,“ segir Hildur.
Að sögn Hildar telja sagnfræð-
ingar að röggvarfeldir hafi verið
aðalútflutningsvara Íslendinga á
þjóðveldisöld, en að vaðmálið hafi
leyst feldina af hólmi í kringum
1100. „Feldurinn er ein af grunn-
gerðum fatnaðar og því lífseigur.
Raunar má enn finna afleiddar
gerðir hans í nokkrum löndum,“
segir Hildur og bendir sem dæmi á
að hægt sé að kaupa röggvarfeldi
á uppboðsvefjum á netinu.
Aðspurð hvernig áhugi hennar á
röggvarfeldum sé tilkominn segir
Hildur að Björn Th. Björnsson list-
fræðingur hafi sagt svo skemmti-
lega frá bæði feldinum og kljá-
steinavefstaðnum þegar hann
kenndi henni textílsögu í Mynd-
lista- og handíðaskólanum fyrir um
fimmtíu árum. „Hann sáði þarna
fræi sem loks hafði tækifæri til að
blómstra þegar ég hætti að vinna
og ég lét það eftir mér að prófa að
vefa röggvarfeld,“ segir Hildur og
tekur fram að í gömlum lagatext-
um sé hægt að finna upplýsingar
um stærð og gerð feldarins, en
feldirnir voru utanyfirflíkur sem
ofnar voru í stærðinni einn sinnum
tveir metrar og einvörðungu born-
ir af karlmönnum.
Að sögn Hildar hefur áhuginn á
kljásteinavefstaðnum aukist í
mörgum löndum undanfarið sam-
fara því að konur hafa snúið sér í
auknum mæli að rannsóknum á
fornum vefnaði og textílfræðum.
Við rannsóknir sínar á röggvar-
feldinum hefur Hildur unnið í ná-
inni samvinnu við konur frá Nor-
egi og Hjaltlandseyjum sem búa
yfir þekkingu á verklaginu sem til
þarf til að vefa slíkan feld.
silja@mbl.is
Gervisauðskinn Hildur í röggv-
arfeldi sem hún óf sjálf.
Röggvarfeldur
í fortíð og nútíð
Hádegisfyrir-
lestur í Þjóðminja-
safni Íslands
Baritónsöngv-
arinn Ágúst
Ólafsson og pí-
anóleikarinn Ant-
onía Hevesi
freista þess að
tæla áheyrendur
sína á hádeg-
istónleikum Ís-
lensku óperunnar
í Hörpu undir yf-
irskriftinni „Tælingarsöngvar“.
Tónleikarnir fara fram í Norður-
ljósum og taka um hálftíma í flutn-
ingi, en þeir hefjast kl. 12.15. Ágúst
og Antonía munu flytja serenöður og
mansöngva eftir W.A. Mozart, Doni-
zetti, Schubert og Tsjaíkovskí.
Ágúst syngur um þessar mundir eitt
aðalhlutverkanna í uppfærslu Ís-
lensku óperunnar á La Bohème,
hlutverk Marcello, og hefur hann
hlotið góða dóma fyrir frammistöðu
sína í hlutverkinu. Antoníu Hevesi
þarf tæpast að kynna, en hún er
fastráðinn píanóleikari Íslensku óp-
erunnar.
Líkt og áður á hádegistónleikum
Íslensku óperunnar er aðgangur
ókeypis. Tónleikagestir geta keypt
sér hressingu fyrir og eftir tónleika
og þannig nælt sér í andlega og lík-
amlega næringu í einu og sama há-
degishléinu.
Tælingarsöngvar
á hádegistónleikum
Ágúst Ólafsson
Járnskortur
getur verið
ein ástæðan
Vandaðar bætiefnablöndur
úr lífrænni ræktun,
fyrir börn og fullorðna.
Þreytt og
slöpp?
Nánar á heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum.
• Einkenni járnsskorts geta verið t.d. mæði,
þreyta svimi, kulsækni, hjartsláttaróregla
og höfuðverkur.
• Floradix og Floravital hjálpa fólki til að
viðhalda góðri heilsu og heilbrigði.
• Blandan byggist upp á fljótandi lífrænu járni,
sérvöldum jurtum, ávaxta djús og blöndu
af c- og b-vítamíni, til að auka járnbúskap
líkamans.