Morgunblaðið - 27.03.2012, Side 36

Morgunblaðið - 27.03.2012, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 87. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Klappaði ekki og gekk út 2. Býr til gettó á landsbyggðinni 3. Eiginkonan segir ákærur ótrúlegar 4. Enn þungt haldinn eftir árás »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Meðimir sveitarinnar tala um árið 2012 sem eina langa afmælisveislu sem nær hápunkti á glæsilegum af- mælistónleikum í Eldborgarsal Hörp- unnar 22. sept. og viku síðar í menn- ingarhúsinu Hofi, Akureyri. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Nýdönsk fagnar nú 25 ára afmæli sínu  Á tíundu tónleikum djass- tónleikaraðarinnar á KEX Hostel sem fara fram í dag kemur Tropicalia-sveit Kristínar Bergsdóttur fram. Hóp- urinn flytur frum- samið efni í bland við tónlist með- lima brasilísku Tropicalia- hreyfingarinnar ásamt annarri brasilískri tón- list. Tropicalia-sveit Kristínar á Kex  Rokksynir Íslands í Botnleðju munu loks- ins koma saman á ný eftir margra ára fjarveru og spila slagara sína á eigin tón- leikum á tónleikaröðinni Uppvakn- ingakvöld sem Gaukurinn heldur en þar munu gamlar sveitir ganga í end- urnýjun lífdaga. Miðasala á tón- leikana er þegar hafin á Midi.is. Endurkomutónleikar Botnleðju á Gauknum Á miðvikudag og fimmtudag Vestlæg átt 5-13 m/s. Súld eða rigning með köflum, en úrkomulítið eystra. Hiti 4 til 8 stig. Á föstudag Norðanátt og bjartviðri, en él nyrðra og eystra. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Lægir smám saman, fyrst sunnan- og vestanlands, en áfram hvasst fyrir norðan og austan. Skúrir eða él sunnan- og vestantil, en þurrt að kalla annars. Hiti víða 2 til 8 stig. VEÐUR Íslandsmeistarar Keflavíkur og nýkrýndir deildarmeist- arar í körfuknattleik kvenna standa höllum fæti í úr- slitakeppninni um Íslands- meistaratitilinn. Keflavík hefur tapað tveimur fyrstu leikjunum við Hauka í und- anúrslitum, síðasta í gær- kvöldi, 73:68. Keflavík- urliðið verður að vinna þrjá næstu leiki til þess að kom- ast hjá því að falla úr keppni. »3 Slæm staða meistaranna Jóhann Gunnar Einarsson úr Fram er leikmaður 20. umferðarinnar í hand- boltanum hjá Morgunblaðinu. „Það voru margir búnir að afskrifa okkur en við erum búnir að koma okkur í þá stöðu að þetta er algjörlega í okkar hönd- um,“ segir Jóhann um hreinan úrslitaleik sem Fram á fyrir höndum gegn HK í loka- umferðinni. »4 „Þetta er algjörlega í okkar höndum“ Þjálfari gríska knattspyrnuliðsins, AEK frá Aþenu, hefur neitað ítrekum óskum frá félagsliði utan Grikklands um að fá Elfar Frey Helgason að láni. Svo langt gekk málið á dögunum að Arnar Grétarsson, yfirmaður knatt- spyrnumála hjá AEK, hafði samþykkt tilboð í Elfar þegar þjálfarinn sló í borðið. Hann sagðist ætla að nýta krafa Elfar meira á næstunni. »1 Þjálfari AEK neitar að lána Elfar Frey ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Gríðarleg stemning var á kartöflu- balli í Þykkvabæ á laugardagskvöld. Þetta var sjöunda árið sem ballið er haldið, en það hófst upphaflega í kjölfar þess að fella varð niður þorrablót á staðnum vegna lítillar þátttöku. Í framhaldinu tók hópur íbúa í Þykkvabæ sig saman og hélt fyrsta ballið, sem þá hét Gleðiball. „Síðan hefur verið ósvikin gleði á Kartöfluballi,“ segja þær Jóhanna Lilja Þrúðmarsdóttir og Bjarnveig Jónsdóttir, sem eru meðal þeirra sem staðið hafa að ballinu frá upp- hafi. Fjórfalt fleiri á ballinu en íbúar Sannarlega má segja að hug- myndin um ball tileinkað kart- öflunni, sem Þykkvibær er þekktur fyrir, hafi slegið í gegn og aðsóknin er mjög mikil á hverju ári. Rúmlega 400 manns voru á staðn- um í ár, en það samsvarar rúmlega fjórum sinnum þeim fjölda sem býr í Þykkvabæ og má því segja að það eitt og sér sé einsdæmi. Vegna aukinnar aðsóknar í ár þurfti að bæta við um100 sætum frá síðasta ári. „Það er mikil aðsókn. Það hefur verið uppselt öll þessi ár, nema það fyrsta,“ segir Bjarnveig. Jóhanna Lilja og Bjarnveig segja að kartaflan sé stórkostleg til mats- eldar og sannast það svo um munar á veisluborðinu þar sem hún er sett fram í mörgum réttum sem allir eru heimatilbúnir í Þykkvabænum. Skemmtiatriði kvöldsins hafa allt- af verið heimagerð, þar sem góðlát- legt grín er gert að sveitungum og samfélagi. Veislustjóri var Guðni Ágústs- son, fyrr- verandi ráðherra, og fór hann á kostum með skemmti- sögum úr pólitíkinni og af Þykkbæ- ingum. Í nefndinni í ár voru um 20 manns af svæðinu, en kjarninn er 8 hjón sem hafa verið með öll árin. Allur undirbúningur að Kartöflu- ballinu er í formi sjálfboðavinnu og ágóðinn af ballinu rennur í einhverri mynd til samfélagsins í Þykkvabæ, en á síðustu árum hefur kirkjan m.a. verið styrkt myndarlega til orgel- kaupa auk þess sem íþróttahúsið hefur notið góðvildar með gjöfum á tækjum og búnaði. Að loknu borðhaldi og skemmti- atriðum léku Helgi Björnsson og Reiðmenn vindanna fyrir dansi sem stóð fram á nótt og náðist upp mikil stemning á dansgólfinu. Ósvikin gleði í Þykkvabænum  Kartöfluball í Þykkvabæ fór fram 7. árið í röð Ljósmynd/Stefán Sveinsson Kartöflur og hrossakjöt Kartöfluball í Þykkvabæ fór fram um helgina og var metaðsókn á ballið, en rúmlega fjór- um sinnum fleiri mæta á það en búa í Þykkvabæ. Matarþema er kartöflu- og hrossakjötsréttir í ýmsum útfærslum. Á Kartöfluballi gæða gestir sér á veglegu hlaðborði þar sem grunn- efnið er, auk kartöflunnar, hrossa- kjöt sem Þykkbæingar eru þekktir fyrir frá fyrri tíð þegar hrossa- kjötsát tíðkaðist ekki annars stað- ar. Einn þátturinn í því hversu vin- sælt ballið er orðið er án efa mat- urinn. Meðal þess sem boðið er upp á eru skræður, sem er sérstakur réttur ættaður úr Þykkvabæ, úr hrossasíðum. Þykkbæingar eru einnig rómaðir fyrir hrossabjúgu og saltað hrossakjöt, en þeir voru fyrstir að salta hross í tunnu. Ein hrossa- afurðin til viðbótar sem vakti ekki hvað sístar vinsældir er folaldafile. Í heildina samanstóð hlaðborðið af 26 réttum, þar af voru sjö úr kart- öflum. Allt grunnhráefnið er úr Þykkvabæ. Búa allan mat til á staðnum HROSSAKJÖT OG KARTÖFLUR Í ÝMSUM ÚTFÆRSLUM Veisluborðið var glæsilegt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.