Morgunblaðið - 07.05.2012, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2012
Hvað ertu að hlusta á um þessar mundir?
Ég er með Eels, Dr. Hook (elstu plöturnar – áður en
þeir urðu væludiskóband) og Mumford and Sons í eyr-
unum þegar ég er á ferðinni. Þegar ég er heima hlusta ég
hins vegar mest á Jacques Brel þessa dagana, og svo eitt
af mínum uppáhaldstónverkum, Jesus’ Blood Never
Failed Me Yet eftir Gavin Bryars.
Hvaða plata er sú besta sem nokkurn tíma hefur ver-
ið gerð að þínu mati?
Vandaðasta platan og besta hljóðverslistaverk allra
tíma er A Night at the Opera með Queen. En magnað-
asta listaverkið, hvað varðar heildarmynd, baksögu,
texta og annað, er Electroshock Blues með Eels.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir og hvar keypt-
ir þú hana?
Fyrsta platan sem ég man eftir að hafa keypt sjálfur,
fyrir mína eigin peninga, var Queen með Queen. Þá var
ég í Barcelona með ömmu og afa, og stakk mér inn í
plötubúð með fermingarpeninga í hendi. Fyrsta „fullorð-
ins“ platan sem ég hef heimtað að gjöf hefur hins vegar
örugglega verið með Bubba eða Bjartmari. Hvaða plata
það var er ekki gott að segja.
Hvaða íslensku plötu þykir þér vænst um?
Lög unga fólksins með Hrekkjusvínunum. Hún hefur
fylgt mér alla ævi og ég fæ aldrei leið á henni. Stórkost-
legt verk og frábærar bernskuminningar.
Hvaða tónlistarmaður værir þú mest til í að vera?
Glen Hansard. Hann virðist vera jarðbundinn og hafa
svo gaman af lífinu og tilverunni. Ég meina, hversu
margir óskarsverðlaunahafar böska á Laugaveginum?
Hvað syngur þú í sturt-
unni?
Það er ýmislegt, en Tom
Waits er fastagestur í sturtu-
klefanum mínum.
Hvað fær að hljóma villt
og galið á föstudags-
kvöldum?
Bad as Me með Tom Waits.
En hvað yljar þér svo á
sunnudagsmorgnum?
„I Speak Because I Can“
með Lauru Marling.
Í mínum eyrum Eyvindur Karlsson
Tom Waits fastagestur
í sturtuklefanum
Morgunblaðið/Kristinn
Waits-ari Eyvindur Karlsson kann vel að meta Waits.
„Markmið okkar er að færa klass-
íska tónlist nær almenningi, en við
teljum að allir eigi að geta notið
óperu á sínum eigin forsendum,“
segir Ísabella Leifsdóttir, einn af
stofnendum Alþýðuóperunnar,
sem er nýtt sjálfstætt óperufélag.
Félagið leitar nú að söngvurum í
áheyrn fyrir fyrstu uppsetningu
Alþýðuóperunnar nk. haust. Um
er að ræða Ráðskonuríki eða La
Serva Padrona eftir Pergolesi í
þýðingu Egils Bjarnasonar og
leikstjórn Ingólfs Níels Árnason-
ar.
Að sögn Ísabellu er félagið
stofnað að erlendri fyrirmynd.
„Ég lærði óperusöng úti í Bret-
landi og þar er fjöldinn allur af
áhugaóperufélögum, sem þýðir að
það eru mun fleiri tækifæri fyrir
nýútskrifaða óperusöngvara sem
eru að hefja sinn feril til að koma
fram og öðlast reynslu af óp-
eruuppfærslum en bjóðast hér-
lendis. Ég hafði gengið lengi með
þessa hugmynd í maganum en það
var ekki fyrr en ég fann rétta
fólkið með mér sem boltinn fór að
rúlla,“ segir Ísabella og vísar þar
til Ingólfs Níels óperuleikstjóra,
Signýjar Leifsdóttur, Sigríðar
Aradóttur og Estherar Ýrar Þor-
valdsdóttur hjá Auru menningar-
stjórnun.
Spurð um verkefnavalið segir
Ísabella Ráðskonuríki hafa orðið
fyrir valinu þar sem óperan sé
frekar stutt, aðgengileg, með fá
hlutverk og því tiltölulega auðveld
í uppsetningu. „Við leggjum
áherslu á að hafa umgjörð sýninga
litla, en umfang uppfærslnanna
fer auðvitað líka eftir því fjár-
magni sem við höfum úr að moða
hverju sinni,“ segir Ísabella og
tekur fram að uppsetningin á
Ráðskonuríki hefði ekki verið
möguleg ef ekki hefðu komið til
styrkir frá annars vegar Sam-
félagssjóði Landsvirkjunar og hins
vegar Reykjavíkurborg.
Að sögn Ísabellu stefnir Alþýðu-
óperan að því að setja upp eina til
tvær uppfærslur á ári. „Við leggj-
um áherslu á að sungið sé á ís-
lensku sem oftast til þess að auka
enn frekar aðgengileika verkanna.
Auk þess leggjum við mikið upp
úr því að nálægð við áhorfendur
sé mikil og viljum því sýna í al-
þýðurýmum á borð við vínveit-
ingastaði.“ Allar nánari upplýs-
ingar um Alþýðuóperuna og
áheyrnarprufurnar má finna á
althyduoperan.wordpress.com.
Senda þarf umsóknir á althyduo-
peran@gmail.com fyrir 10. maí
nk. silja@mbl.is
Ópera fyrir alla
Klassík Ísabella Leifsdóttir.
Empire Total film Variety
Tommi, Kvikmyndir.is
„Svöl, skemmtileg, grípandi og fyndin“
„Þær gerast varla betri en þetta!“
Stærsta ofurhetjumynd allra tíma!
EGILSHÖLL
16
16
14
KRINGLUNNI
ÁLFABAKKA
VIP
12
12
12
12
LL
L
10
10
10
10
10
10
STÆRSTA FRUMSÝNINGARHELGI ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI !
KEFLAVÍK
16
12
10THEAVENGERS KL. 8 - 10:50 3D
GONE KL. 8 2D
SVARTURÁLEIK KL. 10 2D
12
12
L
10
AKUREYRI
THEAVENGERS (3D) KL. 6 - 9 3D
UNDRALAND IBBAM/ÍSL.TALIKL. 6 2D
GONE KL. 8 2D
WRATHOF THE TITANS KL. 10:10 2D
THEAVENGERS KL. 5 - 7 - 8 - 10 - 11. 3D
THEAVENGERS KL. 6 2D
BATTLESHIP KL. 8 - 10:50 2D
TITANIC KL. 9 3D
THECOLDLIGHTOFDAY KL. 5:50 2D
UNDRALAND IBBA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
STÓRSKEMMTILEG TEIKNIMYND
THEAVENGERS KL. 5 - 7 - 8 - 10 - 10:50 3D
THEAVENGERSVIP KL. 5 - 8 - 10:50 2D
THEAVENGERS KL. 5 - 10:20 2D
UNDRALAND IBBAM/ÍSL.TALIKL. 6 2D
CABIN IN THEWOODS KL. 5:50 - 8 - 10:20 2D
BATTLESHIP KL. 8 - 10:40 2D
AMERICANPIE: REUNION KL. 8 2D
FJÖRFISKARNIRM/ÍSL.TALI KL. 5 2D
THEAVENGERSKL. 5 - 6 - 8 - 9 - 10:50 3D
THEAVENGERS KL. 6 2D
CABIN IN THEWOODSKL. 10:10 2D
COLDLIGHTOFDAY KL. 6 - 8 2D
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
Ceramide Gold ambúlur fyrir
augnsvæðið, með hjálp náttúru-
legra efna þéttist húðin og liftist.
Ceramide Gold ambúlurnar gefa
húðinni aukið „boost“.
Kröftug og áhrifarík
meðferð fyrir
andlit og háls.
Byrjaðu strax í dag, gefðu húðinni aukið vítamín
og hún viðheldur æskuljóma sínum. Kynnum Ceramide
línuna frá
Elizabeth Arden.
Ceramide er
andlitslína með mikilli
virkni sem skilar
frábærum árangri.
15%
kynningarafsláttur
á Ceramide-línunni
í verslunum Hagkaups