Morgunblaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2012 BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ekkert verður af rannsóknarbor- unum vegna fyrirhugaðrar Hval- árvirkjunar í Ófeigsfirði í sumar, að sögn Gunnars G. Magnússonar, eins þriggja eigenda VesturVerks sem hyggst reisa virkjunina. Ástæðan er töf á afgreiðslu Al- þingis á þingsályktunartillögu um rammaáætlun. Til stóð að rannsaka í sumar bergið á virkjunarstaðnum en gera þarf um 9 km jarðgöng vegna virkjunarinnar. Gunnar segir þessar rannsóknir nauðsynlegar til þess að vita hvort yfirhöfuð sé forsenda til þess að halda áfram með virkjunaráformin. „Nú er komið langt fram á vor og ekkert hægt að gera úr þessu í sumar,“ segir Gunnar. „Til þess að komast þarna upp á hálendið með bor verðum við að vera komnir yf- ir Hvalá fyrir miðjan maí. Svo kemstu ekki með nokkur tæki yfir Hvalá fyrr en í ágúst og þá er komið haust á þessum slóðum.“ Byggingin tekur 4-5 ár Gert er ráð fyrir að orkugeta Hvalárvirkjunar verði um 35 MW með 7.400 klst. nýtingartíma á ári og 280 GWh orkuframleiðslu á ári. Forathugun sem gerð var á kostn- aði við virkjunina á verðlagi í febr- úar 2007 gerði ráð fyrir að hún kostaði þá rúma 11 milljarða og var þá reiknað með viðbótarmiðl- un frá Eyvindarfjarðarvatni. Reiknað er með að bygging virkj- unarinnar taki 4-5 ár. VesturVerk gerði samning við Gamma um fjármögnun jarðfræði- rannsóknanna, sem kosta nokkur hundruð milljónir. Gunnar segir að í ársbyrjun hafi fjárfestar verið jákvæðir fyrir þátttöku en samn- ingurinn um fjármögnun rann- sóknanna rann út í mars síðast- liðnum. Ekki tekið tillit til aðstæðna Fyrirhuguð virkjun í Ófeigsfirði er langt frá byggð og dreifineti Landsnets fyrir raforku. Gunnar segir að á árum áður hafi dreifi- netið verið byggt fyrir sameigin- lega sjóði landsmanna en með til- komu Landsnets eigi virkjanir að greiða tengikostnað við dreifinet- ið. Hann segir að þegar þetta kerfi var búið til hafi ekki verið tekið tillit til aðstæðna á Vestfjörðum eða Norðausturlandi. Þetta fyrir- komulag hafi gert það illmögulegt fyrir Vestfirðinga að virkja hjá sér til þess að selja rafmagn inn á dreifikerfið. Þá er Hvalárvirkjun ekki stór og það gerir tenginguna enn óhagkvæmari. „Þjóðin á öll að sitja við sama borð hvað varðar raforku. Við hér á Vestfjörðum búum meira og minna við raforkuleysi eða flökt- andi ljós því spennan er upp og niður árið um kring. Meira að segja um hásumar,“ segir Gunnar. Upphaflega var hugmyndin að leiða rafmagn frá virkjuninni til Ísafjarðar eða suður í Geiradal þar sem það myndi tengjast dreif- ineti Landsnets. Tenging í Geira- dal er ódýrari og það er sú leið sem VesturVerk mundi frekar fara en með því væri raforka á Vestfjörðum ekki tryggð. Iðnaður nær virkjuninni „Ef við eigum að borga tengi- kostnaðinn þá viljum við helst ekki tengjast. Þá nýtist þetta ekki nokkrum manni nema við finnum einhvern iðnað sem getur nýtt þetta nær virkjuninni,“ segir Gunnar. Hann segir ljóst að virkj- unin beri ekki sjálf tengikostnað við dreifikerfið eða Ísafjörð. Því er VesturVerk að leita annarra leiða til að nýta rafmagnið. Gunnar kveðst vera bjartsýnn á að af virkjuninni verði, en þetta sé spurning um tíma. Engar boranir í Ófeigsfirði í ár Morgunblaðið/RAX  Rannsóknir vegna Hvalárvirkjunar tefjast vegna seinagangs við afgreiðslu Alþingis á rammaáætlun  Einn eigenda Vesturverks segir að virkjunin beri ekki sjálf tengikostnað við dreifikerfið eða Ísafjörð Hvalárfoss Gert er ráð fyrir að orkugeta virkjunarinnarverði um 35 MW með 7.400 klst. nýtingartíma á ári og 280 GWh orkuframleiðslu.. Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði er annar tveggja virkj- anakosta vatnsafls sem lenda í orkunýtingarflokki samkvæmt þingsályktunartillögu um rammaáætlun. Í rökstuðningi segir að þetta hafi verið eini virkj- unarkosturinn á Vestfjörðum sem metinn var af öllum faghópum og að virkjun á Vestfjörðum skipti miklu máli fyrir orkuöryggi þar. Stjórn Náttúruverndarsamtaka Vestfjarða sam- þykkti umsögn um drög að rammaáætlun 7. nóvember síðastliðinn. Þar segir m.a. að samtökin séu ekki þeirr- ar skoðunar að færa beri Hvalárvirkjun í verndarflokk. Þau telja að ekki verði veruleg umhverfisspjöll á gróðri, dýraríki o.fl. umfram það sem kunni að verða á afmörkuðum virkjunarstað. „Þótt Náttúruverndarsamtök Vestfjarða geri sér grein fyrir að allar virkjanir vatnsfalla hafi áhrif á um- hverfið telja þau að græn orka sé jafnframt mikilvæg fyrir íbúa á Vestfjörðum,“ segir í samþykktinni. Sam- tökin leggja ríka áherslu á að reynt verði að fella fram- kvæmdirnar við virkjunina sem best inn í landslagið. Það kveður við annan tón í umsögn Náttúruvernd- arsamtaka Íslands um þingsályktunartillöguna. Þau segja það gegna furðu „að Hvalárvirkjun hafi verið sett í nýtingarflokk með tilheyrandi háspennulínum, stöðvarhúsum og uppistöðulóni. Ófeigsfjörður er róm- aður fyrir náttúrufegurð og að mati Náttúruvernd- arsamtaka Íslands væri það glapræði að ráðast þar inn með jarðýtum og dýnamíti. Hvalárfoss er eitt af djásn- um Vestfjarða og Ófeigsfjörður er dyrnar að friðland- inu á Hornströndum“. Vatnsaflsvirkjun í orkunýtingarflokki HVALÁRVIRKJUN Í ÓFEIGSFIRÐI Virkjunarkostur Göngufólk á leið yfir Hvalá. Þingmenn Hreyf- ingarinnar, þau Birgitta Jóns- dóttir, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari, fund- uðu með Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingrími J. Sigfússyni, efna- hags- og við- skiptaráðherra, um stjórnarskrár- málið í Ráðherrabústaðnum í gær. Að sögn Þórs Saari var fundurinn stuttur en á honum hafi Steingrímur og Jóhnana leitað eftir stuðningi þingmanna Hreyfingarinnar í tengslum við stjórnarskrármálið. Hann segir ríkisstjórnina geta treyst á stuðning Hreyfingarinnar við málið. „Við erum ekki komin í ríkisstjórn,“ sagði Þór við mbl.is í gær en ríkisstjórnin átti einnig lang- an fund í Ráðherrabústaðnum um fjárlög næsta árs. „Okkur er nú ekki boðið að því borði,“ sagði Þór. Fundur ríkisstjórnarinnar tók um það bil sjö klukkustundir. Hefð- bundnir fundir hennar eru á þriðju- dögum og föstudögum. Stefnt er að því að hefja umræður um stjórnar- skrármálið á Alþingi nk. miðviku- dag. Hreyfingin mætti til fund- ar í ráðherrabústaðnum Þór Saari Blönduós | Í gær bankaði vor- hret á glugga landsmanna sem flestir létu það sem vind um eyru þjóta en fuglar himinsins sem eiga allt sitt undir uppátækjum veðuraflanna máttu hafa sig alla við. Gæsahúðin, sem setur svip sinn á þá sem eru í tilfinningalegu uppnámi eða glíma við kulda- hroll, kemur sér vonandi vel fyr- ir þessa gæs sem setur óhikað stefnuna mót norðanáttinni og snjókomunni sem henni fylgdi. Vonandi setur þetta áhlaup veðursins úr norðri ekki svip sinn á varp fugla og laufgun trjáa og lætur undan síga sem allra fyrst. Gæsahúðin kemur sér vel Morgunblaðið/Jón Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.