Morgunblaðið - 14.05.2012, Síða 11

Morgunblaðið - 14.05.2012, Síða 11
Ljósmynd/Guðmundur Páll Ólafsson Listakona í fjörunni Hér er Salóme að vefa í fjörunni með ólgandi brimið allt í kring. Myndin var tekin árið 1975. Bjó í húsi án rafmagns og rennandi vatns Salóme hefur áður haldið til úti í Flatey til að vinna að listinni, hún gerði það líka á áttunda áratugnum. „Ég á fjölda vina sem ýmist búa úti í Flatey allt árið eða eru þar hluta úr ári. Hafið er allt í kringum mig þegar ég er þarna, maður rétt stendur upp úr á steini. Það getur verið dásam- legt að vera í Flatey en líka krefj- andi. Ég bjó þar eitt sinn í rúmt ár í húsi þar sem var ekkert rafmagn og ekki rennandi vatn, og það tók svolít- ið á yfir veturinn. Nálægð fólksins í svona litlu samfélagi hefur bæði kosti og galla. Allir þekkja alla og allir vita allt um alla, þótt þeir sjái ekki alla.“ Salóme er þekkt fyrir að nota hinn ólíkasta efnivið í vefnaði sínum og sækir hún sumt í sjóinn, til dæmis þang. Annað sækir hún til dýranna, en hún hefur verið óspar á að nota óunna ull af íslenskum sauðkindum í verkum sínum. Vill brjótast úr víddum „Ég byrjaði strax á þessu í upp- hafi ferils míns þegar ég fór til Flat- eyjar árið 1975. Þangið þarf að með- höndla á sérstakan hátt svo það haldi sér, ég baða það upp úr ýmsum vökv- um svo það brotni ekki eða skemm- ist,“ segir Salóme og bætir við að hún hafi unnið með vefnaðinn á allan mögulegan hátt, meðal annars gert skúlptúra. „Þá lét ég smíða fyrir mig í smiðju einhvern grip sem ég óf svo beint á. Mér finnst skemmtilegast að hafa verkin ekki flöt. Mér finnst kominn tími til að brjótast út úr því og fara út í þriðju eða fjórðu víddina.“ Salóme segist lifa sig inn í sögu einhvers þegar hún vinnur verkin sín og hún eyðir oft löngum tíma í að teikna þau upp. Hvít og lágfætt kind Íslensku ullina notar Salóme eins og hún kemur af skepnunni. „Ég hef átt mínar uppáhaldskindur úti í Flatey og sú sem gaf mér bestu ull- ina var hún Bansa, sem var mjög spök og skemmtileg kind. Hún var hvít og lágfætt og af henni fékk ég mjög góða og fallega ull sem er í mörgum teppum frá mér. Því miður drukknaði hún í vondu veðri þegar flæddi yfir sker þar sem hún var ásamt fleiri kindum. En þegar ég var í Flatey síðastliðið sumar fékk ég ull af kindum sem ég þekki ekki per- sónulega, en þær eru í eigu vinkonu minnar sem er bóndi í Flatey.“ Að lokum er vert að geta þess að Yrsa, dóttir Salóme, vinnur nú að heimild- armynd um móður sína. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2012 Ýmislegt er framundan hjá Fugla- vernd á þessu vori og snemmsumars. Fyrst ber að nefna rjúpnatalningu í Krossanesborgum við Akureyri um miðjan maí en dagsetning fer eftir veðri og vindum. Er talningin sam- vinnuverkefni með Náttúru- fræðistofnun Íslands. Þeir sem vilja taka þátt eða fylgjast með talningu setji sig í samband við Sverri Thor- stensen í síma 4611604/8653297 eða með pósti á netfangið sth@ak- mennt.is. Rjúpan er eini villti hænsnfuglinn sem finnst hér á landi. Hún skiptir lit- um eftir árstíðum, er hvít á veturna og brúnflikrótt á sumrin, hún er því alltaf í felubúningi. Enda er rjúpan aðalbráð fálkans. Á vorin eru karr- arnir mjög áberandi, þar sem þeir stilla sér ropandi upp á hóla og hæðir og verja óðal sitt gegn öðrum körr- um. Varpkjörlendi rjúpunnar er mó- lendi, kjarr og gróin hraun frá fjöru til fjalls. Fæða rjúpunnar er úr jurtarík- inu, svo sem ber, reklar og brum af víði og birki og laufblöð. Næst ber að nefna fuglaskoðun í Friðlandi við Flóa hinn 19. maí kl. 10.00. Verður Fuglavernd í samvinnu við sveitarfélagið Árborg með leið- sögn í Fuglafriðlandinu við ósa Ölfus- ár. Gott er að mæta með kíki og fuglahandbækur en Jóhann Óli Hilm- arsson mun leiða gönguna. Loks má nefna dagsferð á Snæ- fellsnesið hinn 9. júní og stendur skráning nú yfir í þá fuglaskoð- unarferð. Lagt verður af stað úr bæn- um kl. 9.00 og ekið í Borgarfjörð og horft til brandanda við ósa Andakíls- ár. Síðan er haldið á Snæfellsnesið, skoðaðar tjarnirnar í Staðarsveit og svo Torfavatn, Vatnsholtsvatn og Lýsuvatn. Arnarstapi heimsóttur og Saxhólsbjarg – aðgengilegasta fugla- bjarg landsins þar sem allar tegundir svartfugla verpa og einnig topp- skarfur, fýll og ryta. Oft sjást háhyrn- ingar og aðrir hvalir úti fyrir, send- lingar og rjúpur ofan brúna. Nánari upplýsingar má sjá á fuglavernd.is. Rjúpnatalning í Krossanesborgun Ljósmynd/Björn Arnarson Glæsileg Rjúpa í sumarbúningi. Áætlað er að telja rjúpur nú um miðjan maí. Ropandi uppi á hólum og hæðum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.