Morgunblaðið - 14.05.2012, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2012
ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939
Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 22:00
Opið um helgar frá 18:00 - 23:00
frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com
Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar
ÞRÍR FRAKKAR
Café & Restaurant
Fersk skata með rjóma-
lagaðri sítrónu-dillsósu
Frummælendur:
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA.
Árni Páll Árnason, alþingismaður.
Ólöf Nordal, alþingismaður.
Friðrik Már Baldursson, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík.
Umræður og fyrirspurnir.
Fundarstjóri: Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.
Samtök atvinnulífsins telja það brýnasta hagsmunamál Íslendinga að
gjaldeyrishöftin verði afnumin sem fyrst þar sem þau valda þjóðinni sífellt
meiri skaða.
Samtök atvinnulífsins hafa sett fram áætlun um afnám gjaldeyrishafta
fyrir árslok. Kynntu þér áætlunina á www.sa.is
Skráning á www.sa.is Létt morgunhressing frá kl. 8.00 en fundur hefst kl 8.30 í sal H&I á 2. hæð.
Opinn fundur SA á Hilton Reykjavík Nordica
miðvikudaginn 16. maí kl. 8.30-10.00
BRÝNASTA
HAGSMUNAMÁL
ÍSLENDINGA
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
2
3
3
9
Afnám gjaldeyrishafta:
VA arkitektar sigruðu í samkeppni
um hönnun nýs hjúkrunarheimilis á
Ísafirði. Það var tilkynnt við athöfn á
föstudag. Á sama tíma var kynnt
nafn á nýja heimilið. Það mun heita
Eyri. Nafnið á heimilinu er sótt í
upphaf byggðar á Eyri í Skutuls-
firði. Höfundur þess er Magdalena
Sigurðardóttir.
Ríkið hefur samið við Ísafjarð-
arkaupstað um byggingu og rekstur
30 rýma hjúkrunarheimilis. Það
verður fjármagnað með lánum frá
Íbúðalánasjóði en ríkið endurgreiðir
kostnaðinn með leigu í ákveðinn
tíma. Er þetta sama fyrirkomulag og
er á byggingu fjölda annarra hjúkr-
unarheimila.
Hjúkrunaheimilinu Eyri hefur
verið valinn staður á lóð sjúkrahúss-
ins á Ísafirði og mun verða samstarf
um reksturinn.
Í umsögn dómnefndar um verð-
launatillöguna kemur fram það álit
að tillagan beri öll merki um góða
innlifun í starfsemi hjúkrunarheim-
ilis og staðhætti á Ísafirði og unnið
með þá á fallegan hátt með skemmti-
legum tilvísunum í elstu hluta bæj-
arins. helgi@mbl.is
Tölvuteikning/VA arkitektar
Eyri Nýja hjúkrunarheimilið verður byggt á lóð sjúkrahússins á Ísafirði.
Nýja hjúkrunarheimilið
sækir nafn í söguna
VA arkitektar sigruðu í samkeppni um hönnun þrjátíu
rýma hjúkrunarheimilisins Eyrar á Ísafirði
Stofnun ársins í könnun SFR,
stéttarfélags í almannaþjónustu, er
Sérstakur saksóknari og er þetta
annað árið í röð sem sú stofnun
vinnur í flokki stórra stofnana.
Landmælingar Íslands voru valdar
stofnun ársins í flokki meðalstórra
stofnana og Persónuvernd í flokki
lítilla stofnana. Hástökkvarinn í ár
er Sýslumaðurinn í Borgarnesi, en
þann titil hlýtur sú stofnun sem
hækkar sig mest á milli ára, segir í
frétt frá SFR.
Niðurstöður úr könnuninni voru
kynntar á föstudag en hún er sam-
starfsverkefni VR og SFR með
þátttöku ríkisins og í ár var Starfs-
mannafélag Reykjavíkurborgar
(St. Rv.) einnig með í könnuninni.
Tæplega 50 þúsund starfsmenn á
almennum og opinberum vinnu-
markaði fengu könnunina senda.
Starfsmenn borgarinnar
gáfu lægri einkunnir
Í könnuninni eru mældir þættir á
borð við ánægju og stolt, trúverð-
ugleika stjórnenda, starfsanda,
launakjör, vinnuskilyrði, sveigjan-
leika vinnu, sjálfstæði í starfi og
ímynd stofnunar. Tiltölulega litlar
breytingar eru á niðurstöðum
könnunarinnar frá því í fyrra.
Þó má þar sjá örlítið meiri
ánægju með bæði starfsöryggi og
sveigjanleika í vinnu hjá SFR.
Ánægja með laun og trúverðugleiki
stjórnenda er þó enn mun minni
hjá opinberum starfsmönnum en
þeim sem starfa á almennum mark-
aði. Í ár fæst í fyrsta sinn sam-
anburður við félagsmenn Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar.
Ef bornar eru saman einkunnir
allra þriggja félaganna má sjá að
einkunnir St.Rv. eru lægri á öllum
þáttum sem könnunin nær yfir,
segir í frétt frá SFR.
Nánari upplýsingar um niður-
stöður könnunarinnar má finna á
www.sfr.is
Sérstakur saksóknari stofnun ársins