Morgunblaðið - 14.05.2012, Page 16

Morgunblaðið - 14.05.2012, Page 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2012 Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is E-60 Klassísk hönnun frá 1960 Hægt að velja um lit og áferð að eigin vali Verð frá kr. 24.300Íslensk hönnun og framleiðsla H a u ku r 0 9 b .1 1 Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Haukur Halldórsson hdl. haukur@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, lögg. verðbr.- og fasteignasali, brynhildur@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hrl. sigurdur@kontakt.is Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta. Skráning á www.kontakt.is • Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar. Upplýsingar og skráning á www.kontakt.is. • Glæsilegt húsnæði á góðum stað í Reykjavík, hentar vel sem 100 herbergja hótel. Sjá nánar á www.kontakt.is. • Heildverslun með vinsælar snyrtivörur fyrir fagfólk. Ársvelta 60 mkr. Góð afkoma. • Rótgróið gólfefnafyrirtæki í mjög góðum rekstri. Ársvelta 200 mkr. EBITDA 20 mkr. • Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki með matvörur. Ársvelta 330 mkr. • Stálsmiðja sem framleiðir staðlaðar vörur fyrir sjávarútveg. Stöðug velta og vel tækjum búið. Hægt að flytja hvert á land sem er og hentar vel sem viðbót við starfandi vélsmiðju. • Rótgróið bakarí með nokkrar verslanir. • Verslun í Kringlunni með vinsælar sérvörur. Góð afkoma. • Glæsilegur veitingastaður á besta stað í Reykjavík. Góð velta og afkoma. • Heildverslun með vinsælar sérvörur. Ársvelta 70 mkr. EBITDA 15 mkr. • Stórt þjónustufyrirtæki í ræstingum. Traustir viðskiptavinir og góð afkoma. • Mjög spennandi innflutningsfyrirtæki með vörur fyrir kæliiðnaðinn. FRÉTTASKÝRING Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Grískir stjórnmálamenn skiptust á harðorðum yfirlýsingum í kjölfar til- rauna til stjórnarmyndunar í landinu um helgina. Þessi tíðindi þykja ýta undir þann möguleika að forseti landsins boði til nýrra kosninga. Ef ný stjórn hefur ekki verið mynduð þegar þing kemur saman á fimmtu- dag verður boðað til nýrra kosninga í júní. Karolos Papoulias forseti kallaði um helgina leiðtoga þriggja stærstu stjórnmálaflokka landsins til fundar við sig. Í kosningunum fyrir viku refs- uðu kjósendur stærri flokkunum og minni flokkar fengu aukinn stuðning. Í kjölfarið lét forsetinn hafa eftir sér að hann vonaðist til þess að koma á ríkisstjórn einingar og bætti við að ástandið í Grikklandi væri mjög erf- itt. Eftir fund forsetans með leiðtog- unum þremur var leiðtogi gríska vinstri flokksins Syriza, Alexis Tsip- ras, ómyrkur í máli og gaf í skyn að flokkurinn hefði ekki áhuga á að starfa með hinum tveimur flokkun- um, mið-hægriflokknum Nýju lýð- ræði og jafnaðarmönnum í Pasok- flokknum. Ósætti um björgunaraðgerðir Flokkur Tsipras lagði í kosninga- baráttunni áherslu á að hafna öllum lánveitingum frá ESB og Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum og hlaut næst- mest fylgi allra flokka. Tsipras gaf um helgina í skyn að í stjórnarmynd- unarviðræðunum væri Nýtt lýðræði ásamt Pasok að reyna að lokka Syriza í samstarf á forsendum sem gengju gegn fyrrnefndum kosningaloforðum Tsipras hélt áfram og gaf í skyn að tveir áðurnefndu flokkarnir ætluðu að mynda stjórn með öðrum litlum flokki, Vinstri demókrötum sem klufu sig úr Syriza árið 2010. „Þessir þrír flokkar hafa 168 sæti saman og þar með meirihluta. Þeir geta því haldið áfram. Þeir eru að reyna þvinga okk- ur til samstarfs sem er ekki raun- hæft,“ segir Tsipras um stjórnar- myndunarviðræðurnar. Vinstri demókratar neita að hafa samþykkt að styðja samsteypustjórn án Syriza og saka Tsipras um óheiðarleika og lygar. Evangelos Venizelos, leiðtogi sósí- alistanna í Pasok, sagði eftir fundinn með forsetanum að flokkur hans myndi gera allt sem í þeirra valdi stæði til að mynda starfhæfa ríkis- stjórn en væru þrátt fyrir það tilbúnir í nýjar kosningar ef slíkt reyndist nauðsynlegt. Antonis Samaras, leiðtogi mið- hægri demókrata í Nýju lýðræði, sagði fyrir fundinn í gær að kjósend- ur hefðu kallað eftir samvinnu, breyt- ingum og áframhaldandi veru á evru- svæðinu. Grísk stjórnmál einkennast því af mikilli óvissu, stór hluti kjósenda studdi flokka sem eru á móti samn- ingum um björgunaraðgerðir sem fyrri ríkisstjórn hefur gert. Á móti hafa alþjóðlegir lánardrottnar sagt að ef Grikkir standi ekki við gerða samn- inga verði fjárframlög til þeirra stöðvuð. Miðhægrimenn í Nýju lýð- ræði eru stærsti flokkurinn með ein- ungis 21% atkvæða en hinsvegar benda kannanir til þess að ef kosið yrði aftur myndi Syriza fá 20,5% at- kvæða en flokkurinn hlaut 16,8% í at- kvæða í nýafstöðnum kosningum. Þegar eru áætlanir um upptöku drökmu að nýju í Grikklandi og má lesa nánar um það á bls. 18. Stjórnarkreppa vof- ir yfir Grikklandi  Leiðtogar flokkanna saka hver annan um óheilindi  Kosið aftur í júní ef ekki næst að mynda stjórn AFP Stjórnarmyndun Hér tekur Karolos Papoualis, forseti Grikklands, í hönd Alexis Tsipras, leiðtoga gríska vinstri flokksins Syriza. Sviptingar framundan? » Sjö flokkar hlutu þingsæti. Enginn þeirra fékk yfir 20% at- kvæða. » Vinstra bandalagið Syriza myndi bæta við sig tæplega 5% fylgi samkvæmt könn- unum ef kosið yrði aftur en flokkurinn fékk 16,8% atkvæða í kosningunum. » Stærsti flokkurinn, Nýtt lýð- ræði, fékk 20% atkvæða í kosningunum. » Sex af hverjum tíu segja hugmyndir Syriza óraunhæfar. » Kannanir sýna að þrír af hverjum fimm í Grikklandi bú- ast við nýjum kosningum í júní. » Helmingur kjósenda segist ánægður með úrslit kosning- anna. - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.