Morgunblaðið - 14.05.2012, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2012
Skemmtilegt Af svipbrigðunum að dæma var engu líkara en að þessir ungu drengir væru í gamnislag frekar en að þeir væru að keppa í flokki 6-7 ára á Barnamóti Ármanns í júdó um helgina.
Eggert
Eitt umdeildasta
mál innan LÍÚ á síð-
ustu árum hefur verið
hvernig staðið var að
úthutun norsk-íslensku
síldarinnar og í fram-
haldi af því hvernig
ákveðnir hags-
munaaðilar innan sam-
takanna ætluðu að út-
hluta sjálfum sér kvóta
í makríl eða að minnsta
kosti að hafa veruleg áhrif á nið-
urstöðuna.
Upphaf þessa máls má rekja til
ársins 2002 þegar norsk-íslenska
síldin var sett í kvóta. Lög um fisk-
veiðar utan lögsögu (151/1996) tóku
á því hvernig skyldi staðið að út-
hlutun norsk-íslensku síldarinnar.
Þar segir m.a. í 5. gr.: „Sé tekin
ákvörðun um að takmarka heildar-
afla úr slíkum stofni sem samfelld
veiðireynsla er á skal aflahutdeild
einstakra skipa ákveðin á grundvelli
veiðireynslu þeirra miðað við þrjú
bestu veiðitímabil þeirra á undan-
gengnum sex veiðitímabilum.“ Þeg-
ar síldinni hafði verið úthlutað og
menn fóru að skoða stöðu sína kom í
ljós að lögunum hafði verið breytt án
nokkurs samráðs eða kynningar af
hálfu stjórnenda LÍÚ eða af hálfu
stjórnvalda. En hvernig og hvers
vegna var lögunum breytt? Inn í lög-
in hafði m.a. verið sett svohljóðandi
ákvæði til bráðabirgða: „Þrátt fyrir
ákvæði 2. mgr. 5. gr. skal Fiskistofa
úthluta einstökum skipum afla-
hlutdeild í norsk-íslenska síldar-
stofninum á grundvelli aflareynslu
þeirra á árunum 1994-2001 að báð-
um árum meðtöldum.“
Undirritaður fór á fund sjávar-
útvegsráðherra á þeim tíma, þar
sem honum fannst m.a.
hlutur Fáskrúðsfirð-
inga nokkuð rýr. Það
var ljóst að lögunum
hafði verið breytt
þannig að nú skyldi út-
hlutunin miðast við
átta ár í stað þriggja
bestu. Þessi breyting
hafði það í för með sér
að hlutur þeirra sem
höfðu svokallaða meiri
veiðireynslu var auk-
inn, en hlutur hinna
sem höfðu svokallaða
minni reynslu var nánast þurrkaður
út. „Þeir vildu hafa þetta svona hjá
LÍÚ og ég get ekkert frekar gert í
málinu,“ upplýsti ráðherrann. En
hverjir þessir „þeir hjá LÍÚ“ voru
hefur aldrei verið upplýst eða á
hvern hátt var staðið að þessu máli
af hálfu samtaka útgerðarmanna
þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar um.
Þar var sagt að umsögn LÍÚ um
þessa lagabreytingu finnist ekki og
trúlega hafi þetta verið einstaka út-
gerðarmenn sem komu þessu til leið-
ar. Smátt og smátt var svo afla-
hlutdeild flestra þeirra sem minnst
fengu keypt eða gleypt af þeim sem
mestri hlutdeild var úthlutað til skv.
nýja bráðabirgðaákvæðinu.
Afleiðingarnar af þessum ótrúlega
gjörningi sjást best þegar litið er á
skiptingu norsk-íslensku síldarinnar
í dag, en hafa skal einnig í huga að
nokkur fyrirtæki eiga stóra hluti
hvert í öðru, svo að samþjöppunin er
í raun enn meiri.
Árið 2001 stunduðu 64 skip veiðar
á norsk-íslenskri síld, en árið 2012
eru þau 18 í eigu 11 fyrirtækja, sem
eru eftirfarandi:
1) Ísf. Vestmannaeyja hf. 20,15% (3 skip)
2) Síldarvinnslan hf. 19,02% (2 skip)
3) HB-Grandi hf. 14,10% (3 skip)
4) Samherji hf. 10,42% (1 skip)
5) Skinney-Þinganes hf. 8,97% (2 skip)
6) Eskja hf. 8,57% (2 skip)
7) Vinnslustöðin hf. 6,82% (3 skip)
8) Huginn hf. 4,65% (1 skip)
9) Gjögur hf. 4,49% (1 skip)
10) Runólfur Hallfreðss. hf. 2,35% (1 skip)
11) Loðnuvinnslan hf. 0,45% (1 skip)
Líður nú fram til ársins 2009, en
þá hafa Íslendingar nýlega hafið
makrílveiðar. Þá er boðað til fundar
af hálfu LÍÚ um skiptingu makríls-
ins milli skipa og sagt að það sé gert
í þágu þjóðarhagsmuna. Þetta var
gert þegar ljóst var að sjávarútvegs-
ráðherra myndi ekki úthluta á skip
það árið vegna mjög lítillar veiði-
reynslu Íslendinga þegar þarna var
komið sögu. En hvernig átti að
skipta? Sumir vildu einfaldlega nota
sömu skiptingu og nú er í norsk-
íslensku síldinni, þar sem þessar
tegundir veiddust oft saman. Aðrir
vildu að sú litla reynsla sem komin
var yrði notuð, en að auki skyldi tek-
ið tillit til ýmissa annarra hluta s.s.
allra frátafa frá veiðum, svo nokkuð
sé nefnt. Hugmyndir manna gengu
einfaldlega út á það að þeir sem
minnstu reynsluna höfðu í makríl
áttu að binda skip sín. Það átti að
endurtaka óréttlætið frá 2002 þegar
norsk-íslensku síldinni var úthlutað.
Þetta gátu m.a. fulltrúar Fá-
skrúðsfirðinga ekki með nokkru
móti fallist á og minntu menn á það
hverju „ónafngreindir“ höfðu komið
til leiðar við úthlutun norsk-íslensku
síldarinnar. Töldu þeir að sá tími
væri liðinn að einhverjir hefðu allt
en aðrir ekki neitt. Bentu þeir m.a. á
að þetta væri aðeins spurning um
stjórnun skipanna, hvað færi til
manneldisvinnslu af makríl og hve-
nær menn tækju síldina.
Skip þeirra flestra hefðu næg
verkefni, en þeir sem litla hlutdeild
hefðu í síldinni gætu nú rétt hlut
sinn í makrílnum. Það þyrfti einfald-
lega enga skiptingu frá LÍÚ á þess-
um tímapunkti í trássi við sjávar-
útvegsráðherra. Nú fóru menn
heldur að ókyrrast og voru fulltrúar
Fáskrúðsfirðinga margsinnis spurð-
ir að því hvort þeir ætluðu að vera
úti eða inni. Einn forstjórinn bað þá
um að mega tala sérstaklega við
þessa menn frammi á gangi og þar
átti að stinga upp í þá ákveðinni
dúsu, svo að þeir samþykktu hið
nýja „réttlæti“, en ekki dugði það.
Til þess að sannprófa hvort menn
væru virkilega að hugsa um hags-
muni þjóðarinnar í þessu sambandi
komu Fáskrúðsfirðingar með sátta-
tillögu. Hún fólst í því að útgerð-
armenn kæmu sér saman um að
skipta makrílnum jafnt á skip þetta
árið og í framhaldinu myndu menn
reyna að leiðrétta aðstöðumuninn í
norsk-íslensku síldinni. Einhverjir
tóku undir þessa tillögu, en flestir
voru henni mótfallnir. Það kom þá í
ljós að menn voru ekkert að hugsa
um hagsmuni þjóðarinnar, heldur
sína eigin. Í framhaldi af þessari nið-
urstöðu drógu Fáskrúðsfirðingar og
Eskfirðingar sig út úr þessum við-
ræðum. Þar með var samstaðan rof-
in og ekkert varð frekar úr þessu
ráðabruggi. Það er svo rétt að benda
á það alveg sérstaklega, að í upphafi
höfðu þær útgerðir sem sterkasta
stöðu höfðu í norsk-íslensku síldinni,
möguleika langt umfram aðra til
þess að afla sér veiðireynslu í mak-
ríl.
Reynt hefur verið að ná samstöðu
um það innan útvegsins að leiðrétta
að einhverju leyti þessi dæmalausu
vinnubrögð en ekki tekist. Þar hafa
lagt sig fram Adolf Guðmundsson og
Gunnþór Ingvason.
Nú þegar nýtt kvótafrumvarp er
til meðferðar þar sem stefnt er að
því að fiskurinn í sjónum verði sam-
eiginleg og ævarandi sameign ís-
lensku þjóðarinnar er nauðsynlegt
að fara rækilega yfir þetta mál og
finna lausn á því til frambúðar. Ég
tel ekki óeðlilegt úr því sem komið
er að norsk-íslensku síldinni verði
einfaldlega skipt jafnt á skip. Ég tel
jafnframt nauðsynlegt vegna fyr-
irhugaðra nýtingarsamninga að
huga að öðrum tegundum í uppsjáv-
arfiski og kanna hvort ekki sé
ástæða til að jafna þar aðstöðumun á
milli útgerða. Ég bendi á í þessu
sambandi að búið er að dreifa bol-
fiskinum út og suður í gegnum árin
en aldrei hefur verið hreyft við kvóta
í uppsjávarfiski.
Ég skora á hæstvirt stjórnvöld og
alla góða þingmenn að taka þessi
mál til endurskoðunar og vinna að
sanngjarnri lausn samfara nýju
kvótafrumvarpi. Við getum ekki lát-
ið þessa hluti vera afskiptalausa.
Munum eftir hugtökunum jafnræði,
sanngirni og réttlæti.
Eftir Gísla J.
Jónatansson » Til þess að sannprófa
hvort menn væru
virkilega að hugsa um
hagsmuni þjóðarinnar í
þessu sambandi komu
Fáskrúðsfirðingar með
sáttatillögu. Hún fólst í
því að útgerðarmenn
kæmu sér saman um að
skipta makrílnum jafnt
á skip þetta árið …
Gísli Jónatansson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Loðnuvinnslunnar hf. á Fáskrúsfirði
og hefur verið framkvæmdastjóri í
sjávarútvegi í 36 ár.
Ótrúleg vinnubrögð „hagsmunaaðila“ innan LÍÚ