Morgunblaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2012 Skemmtilegt Af svipbrigðunum að dæma var engu líkara en að þessir ungu drengir væru í gamnislag frekar en að þeir væru að keppa í flokki 6-7 ára á Barnamóti Ármanns í júdó um helgina. Eggert Eitt umdeildasta mál innan LÍÚ á síð- ustu árum hefur verið hvernig staðið var að úthutun norsk-íslensku síldarinnar og í fram- haldi af því hvernig ákveðnir hags- munaaðilar innan sam- takanna ætluðu að út- hluta sjálfum sér kvóta í makríl eða að minnsta kosti að hafa veruleg áhrif á nið- urstöðuna. Upphaf þessa máls má rekja til ársins 2002 þegar norsk-íslenska síldin var sett í kvóta. Lög um fisk- veiðar utan lögsögu (151/1996) tóku á því hvernig skyldi staðið að út- hlutun norsk-íslensku síldarinnar. Þar segir m.a. í 5. gr.: „Sé tekin ákvörðun um að takmarka heildar- afla úr slíkum stofni sem samfelld veiðireynsla er á skal aflahutdeild einstakra skipa ákveðin á grundvelli veiðireynslu þeirra miðað við þrjú bestu veiðitímabil þeirra á undan- gengnum sex veiðitímabilum.“ Þeg- ar síldinni hafði verið úthlutað og menn fóru að skoða stöðu sína kom í ljós að lögunum hafði verið breytt án nokkurs samráðs eða kynningar af hálfu stjórnenda LÍÚ eða af hálfu stjórnvalda. En hvernig og hvers vegna var lögunum breytt? Inn í lög- in hafði m.a. verið sett svohljóðandi ákvæði til bráðabirgða: „Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 5. gr. skal Fiskistofa úthluta einstökum skipum afla- hlutdeild í norsk-íslenska síldar- stofninum á grundvelli aflareynslu þeirra á árunum 1994-2001 að báð- um árum meðtöldum.“ Undirritaður fór á fund sjávar- útvegsráðherra á þeim tíma, þar sem honum fannst m.a. hlutur Fáskrúðsfirð- inga nokkuð rýr. Það var ljóst að lögunum hafði verið breytt þannig að nú skyldi út- hlutunin miðast við átta ár í stað þriggja bestu. Þessi breyting hafði það í för með sér að hlutur þeirra sem höfðu svokallaða meiri veiðireynslu var auk- inn, en hlutur hinna sem höfðu svokallaða minni reynslu var nánast þurrkaður út. „Þeir vildu hafa þetta svona hjá LÍÚ og ég get ekkert frekar gert í málinu,“ upplýsti ráðherrann. En hverjir þessir „þeir hjá LÍÚ“ voru hefur aldrei verið upplýst eða á hvern hátt var staðið að þessu máli af hálfu samtaka útgerðarmanna þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar um. Þar var sagt að umsögn LÍÚ um þessa lagabreytingu finnist ekki og trúlega hafi þetta verið einstaka út- gerðarmenn sem komu þessu til leið- ar. Smátt og smátt var svo afla- hlutdeild flestra þeirra sem minnst fengu keypt eða gleypt af þeim sem mestri hlutdeild var úthlutað til skv. nýja bráðabirgðaákvæðinu. Afleiðingarnar af þessum ótrúlega gjörningi sjást best þegar litið er á skiptingu norsk-íslensku síldarinnar í dag, en hafa skal einnig í huga að nokkur fyrirtæki eiga stóra hluti hvert í öðru, svo að samþjöppunin er í raun enn meiri. Árið 2001 stunduðu 64 skip veiðar á norsk-íslenskri síld, en árið 2012 eru þau 18 í eigu 11 fyrirtækja, sem eru eftirfarandi: 1) Ísf. Vestmannaeyja hf. 20,15% (3 skip) 2) Síldarvinnslan hf. 19,02% (2 skip) 3) HB-Grandi hf. 14,10% (3 skip) 4) Samherji hf. 10,42% (1 skip) 5) Skinney-Þinganes hf. 8,97% (2 skip) 6) Eskja hf. 8,57% (2 skip) 7) Vinnslustöðin hf. 6,82% (3 skip) 8) Huginn hf. 4,65% (1 skip) 9) Gjögur hf. 4,49% (1 skip) 10) Runólfur Hallfreðss. hf. 2,35% (1 skip) 11) Loðnuvinnslan hf. 0,45% (1 skip) Líður nú fram til ársins 2009, en þá hafa Íslendingar nýlega hafið makrílveiðar. Þá er boðað til fundar af hálfu LÍÚ um skiptingu makríls- ins milli skipa og sagt að það sé gert í þágu þjóðarhagsmuna. Þetta var gert þegar ljóst var að sjávarútvegs- ráðherra myndi ekki úthluta á skip það árið vegna mjög lítillar veiði- reynslu Íslendinga þegar þarna var komið sögu. En hvernig átti að skipta? Sumir vildu einfaldlega nota sömu skiptingu og nú er í norsk- íslensku síldinni, þar sem þessar tegundir veiddust oft saman. Aðrir vildu að sú litla reynsla sem komin var yrði notuð, en að auki skyldi tek- ið tillit til ýmissa annarra hluta s.s. allra frátafa frá veiðum, svo nokkuð sé nefnt. Hugmyndir manna gengu einfaldlega út á það að þeir sem minnstu reynsluna höfðu í makríl áttu að binda skip sín. Það átti að endurtaka óréttlætið frá 2002 þegar norsk-íslensku síldinni var úthlutað. Þetta gátu m.a. fulltrúar Fá- skrúðsfirðinga ekki með nokkru móti fallist á og minntu menn á það hverju „ónafngreindir“ höfðu komið til leiðar við úthlutun norsk-íslensku síldarinnar. Töldu þeir að sá tími væri liðinn að einhverjir hefðu allt en aðrir ekki neitt. Bentu þeir m.a. á að þetta væri aðeins spurning um stjórnun skipanna, hvað færi til manneldisvinnslu af makríl og hve- nær menn tækju síldina. Skip þeirra flestra hefðu næg verkefni, en þeir sem litla hlutdeild hefðu í síldinni gætu nú rétt hlut sinn í makrílnum. Það þyrfti einfald- lega enga skiptingu frá LÍÚ á þess- um tímapunkti í trássi við sjávar- útvegsráðherra. Nú fóru menn heldur að ókyrrast og voru fulltrúar Fáskrúðsfirðinga margsinnis spurð- ir að því hvort þeir ætluðu að vera úti eða inni. Einn forstjórinn bað þá um að mega tala sérstaklega við þessa menn frammi á gangi og þar átti að stinga upp í þá ákveðinni dúsu, svo að þeir samþykktu hið nýja „réttlæti“, en ekki dugði það. Til þess að sannprófa hvort menn væru virkilega að hugsa um hags- muni þjóðarinnar í þessu sambandi komu Fáskrúðsfirðingar með sátta- tillögu. Hún fólst í því að útgerð- armenn kæmu sér saman um að skipta makrílnum jafnt á skip þetta árið og í framhaldinu myndu menn reyna að leiðrétta aðstöðumuninn í norsk-íslensku síldinni. Einhverjir tóku undir þessa tillögu, en flestir voru henni mótfallnir. Það kom þá í ljós að menn voru ekkert að hugsa um hagsmuni þjóðarinnar, heldur sína eigin. Í framhaldi af þessari nið- urstöðu drógu Fáskrúðsfirðingar og Eskfirðingar sig út úr þessum við- ræðum. Þar með var samstaðan rof- in og ekkert varð frekar úr þessu ráðabruggi. Það er svo rétt að benda á það alveg sérstaklega, að í upphafi höfðu þær útgerðir sem sterkasta stöðu höfðu í norsk-íslensku síldinni, möguleika langt umfram aðra til þess að afla sér veiðireynslu í mak- ríl. Reynt hefur verið að ná samstöðu um það innan útvegsins að leiðrétta að einhverju leyti þessi dæmalausu vinnubrögð en ekki tekist. Þar hafa lagt sig fram Adolf Guðmundsson og Gunnþór Ingvason. Nú þegar nýtt kvótafrumvarp er til meðferðar þar sem stefnt er að því að fiskurinn í sjónum verði sam- eiginleg og ævarandi sameign ís- lensku þjóðarinnar er nauðsynlegt að fara rækilega yfir þetta mál og finna lausn á því til frambúðar. Ég tel ekki óeðlilegt úr því sem komið er að norsk-íslensku síldinni verði einfaldlega skipt jafnt á skip. Ég tel jafnframt nauðsynlegt vegna fyr- irhugaðra nýtingarsamninga að huga að öðrum tegundum í uppsjáv- arfiski og kanna hvort ekki sé ástæða til að jafna þar aðstöðumun á milli útgerða. Ég bendi á í þessu sambandi að búið er að dreifa bol- fiskinum út og suður í gegnum árin en aldrei hefur verið hreyft við kvóta í uppsjávarfiski. Ég skora á hæstvirt stjórnvöld og alla góða þingmenn að taka þessi mál til endurskoðunar og vinna að sanngjarnri lausn samfara nýju kvótafrumvarpi. Við getum ekki lát- ið þessa hluti vera afskiptalausa. Munum eftir hugtökunum jafnræði, sanngirni og réttlæti. Eftir Gísla J. Jónatansson » Til þess að sannprófa hvort menn væru virkilega að hugsa um hagsmuni þjóðarinnar í þessu sambandi komu Fáskrúðsfirðingar með sáttatillögu. Hún fólst í því að útgerðarmenn kæmu sér saman um að skipta makrílnum jafnt á skip þetta árið … Gísli Jónatansson Höfundur er framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar hf. á Fáskrúsfirði og hefur verið framkvæmdastjóri í sjávarútvegi í 36 ár. Ótrúleg vinnubrögð „hagsmunaaðila“ innan LÍÚ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.