Morgunblaðið - 14.05.2012, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 14.05.2012, Qupperneq 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2012 Þetta verður mjög lágstemmt. Ég ætla að njóta dagsins meðfjölskyldunni í sumarbústaðnum mínum,“ segir Henný JúlíaHerbertsdóttir, sem fagnar 60 ára afmæli sínu í dag. „Þetta er sannarlega dálítið stór dagur og tímamótin leggjast vel í mig,“ segir hún. Henný er skrifstofustjóri í Hlíðaskóla í Reykjavík, þar sem hún hefur starfað í tæpan áratug. Hún hefur einnig fengist við myndlist og málað í frístundum. Hún segist ekki hafa farið hina formlegu leið í gegnum myndlistarnám en hefur sótt fjölda námskeiða og nam m.a. í Myndlistarskólanum í Reykjavík. „Ég hef farið víða og sótt mér þekkingu hér og þar,“ segir hún. Þegar Henný varð fimmtug hélt hún myndlistarsýningu í tilefni af tímamótunum og sýndi fjöl- mörg olíumálverk. Hún kveðst þó ekki ætla að opna sýningu að þessu sinni í tilefni af sextugsafmælinu. ,,Það verður kannski gert þegar ég verð sjötug,“ segir hún. Henný hefur einnig tekið þátt í söngstarfi um langt árabil og sungið með kórum. „Lengst af hef ég verið í Óperukór Hafnarfjarðar en um þessar mundir syng ég með hópi Vestmannaeyinga,“ segir Henný, sem á ættir að rekja til Eyja. „Ég hef alveg í nógu að snúast,“ segir hún. „Eina markmiðið er bara að vera ánægð með lífið.“ Henný er gift Reyni Sigurjónssyni viðskiptafræðingi og eiga þau tvær dætur og barnabörnin eru orðin fjögur talsins. omfr@mbl.is Henný Júlía Herbertsdóttir er 60 ára Afmæli Henný ætlar að njóta dagsins í faðmi fjölskyldunnar. Markmiðið að vera ánægð með lífið E iríkur fæddist í Reykja- vík og ólst þar upp í Hlíðunum. Hann var síðan búsettur í Ár- bæjarhverfinu um skeið en er nú aftur kominn á æsku- slóðir í Hlíðunum. Eiríkur fór átta ára í sveit að Karlsstöðum á Berufjarðarströnd og fór þá einn með strandferðaskipinu Esjunni og var síðan í sveit á Ósi í Breiðdal frá tíu ára aldri. Á traktor á Korpúlfsstöðum Á þessum árum bar Eiríkur út Morgunblaðið í þau hús og bæi sem stóðu við kálgarðana í Kringlumýri, allt austur að Háaleiti. Eiríkur var í Austurbæjarskól- anum og Gagnfræðaskóla Austur- bæjar, lauk síðan landsprófi og stúd- entsprófum. Hann stundaði síðar nám í rekstrar- og viðskiptafræði við Eiríkur Hannesson, fyrrv. framkvæmdastjóri, 70 ára Úti að borða Eiríkur og Ellen á Hamborgarafabrikkunni fyrir skömmu. Frá Ölgerðinni til Endurvinnslunnar Morgunblaðið/Árni Sæberg Hjá Endurvinnslunni Eiríkur lagði áherslu á vélvæðingu þar en móttöku- stöðvar Endurvinnslunnar eru nú sextíu talsins. Anna Björg Reyn- isdóttir og Ásta Sóley Jónsdóttir héldu tombólu og söfnuðu 10.254 kr. sem þær gáfu Rauða krossi Ís- lands. Hlutavelta Reykjanesbær Lísbet Sara fæddist 15. nóvember kl. 21.26. Hún vó 3.760 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Auður Indíana Jóhannesdóttir og Sigurður Snær Eiríksson. Nýir borgarar Reykjavík Tristan Þór fæddist 22. júlí kl. 14.22. Hann vó 3.230 g og var 48 cm langur. Foreldrar hans Darius Dilp- sas og Rut Jónasdóttir. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. OPNUNARTÍMI EFNALAUG MÁN - FÖS: 8-18 • LAU: 11-13 OPNUNARTÍMI FATALEIGA MÁN - FÖS: 13-17 • LAU: LOKAÐ EFNALAUG OG FATALEIGA GARÐABÆJAR | GARÐATORGI 3 | GARÐABÆ | SÍMI 565 6680 | FATALEIGA.IS Hröð og vönduð þjónusta. Fjölskyldufyrirtæki til 27 ára. Persónuleg þjónusta og hagstætt verð. ALHLIÐA HREINSUN, DÚKAÞVOTTUR OG HEIMILISÞVOTTUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.