Morgunblaðið - 14.05.2012, Side 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú skalt alls ekki liggja á skoðunum
þínum ef eftir þeim er leitað. Reyndu að
greiða nokkra reikninga sem hafa safnast
upp.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú finnur auðveldlega á þér hver mun
hjálpa þér og hver ekki. Haltu þínu striki og
varastu að ofmetnast. Stígðu í vænginn við
þann/þá sem þú þráir, árangurinn gæti
komið á óvart.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert með ýmsar vangaveltur í
sambandi við ákveðna samstarfsmenn. Fáðu
hlutlausan aðila til aðstoðar því hann sér
málið öðrum augum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hið óþekkta kann stundum að virð-
ast hættulegt. Reyndu að vera ekki fyrir
fólki sem kann ekki mannleg samskipti. Þú
færð óvænta upphringingu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér er að takast að klára visst verk-
efni. Sjálfsöryggi þitt fer í taugarnar á ein-
hverjum, en þú lætur það sem vind um eyru
þjóta.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Annríki einkennir daginn í dag.
Mundu að vinur er sá er til vamms segir.
Vertu óhrædd/ur við að taka áhættu þegar
ástin er annars vegar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér finnst stóru samtökin sem þú vinn-
ur fyrir dularfull. Fólk fellur fyrir þínum
náttúrlega sjarma, en passaðu þig að vera
ekki of kumpánleg/ur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Úthaldið má ekki bresta og
þess vegna þarft þú að gæta sérstaklega að
því að borða næringarríkan mat. Þér finnst
veröldin snúast aðeins of hratt þessa daga.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Orka þín vex og dvín í dagsins
önn, allt eftir því hverjir eru í kringum þig.
Haltu þeim sem þér mislíkar í hæfilegri fjar-
lægð – fjarri ástvinum þínum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert staðráðin/n í því að gera
ferðaáætlun sem stenst. Ekki hvika frá
henni. Einhver gerir þér gramt í geði í dag
en þú hristir það fljótt af þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er þung byrði að þurfa að
gera alla hluti kórrétt. Stundum er best að
leyfa fólki að vera í friði.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þetta er ekki góður dagur til verka
sem krefjast mikillar einbeitingar. Glaðværð
þín á sér engin takmörk. Þú fellur í stafi yfir
listaverki sem þig langar að eignast.
Ég hitti Kristínu dóttur BjarnaGuðmundssonar blaðafulltrúa
á Klapparstíg um daginn. Talið
barst að vísu föður hennar um Hót-
el Heklu og segist henni svo frá:
„Eftir því sem hann sagði okkur,
var hann á leiðinni út úr Stjórnar-
ráðinu, þegar hann sá, að byrjað
var að rífa Hótel Heklu á Lækj-
artorgi. Við Reykjavíkurapótek
hitti hann Tómas Guðmundsson og
byrjaði að fara með fyrsta vísuorð-
ið: „Nú drekkum við ekki framar á
Hótel Heklu.…“
Tómas svaraði að bragði eitthvað
á þessa leið: „Nei, blessaður vertu,
það er nú öðru nær.“
Bjarni hélt áfram: „né háttum
þar alls konar kvenfólk ofan á dív-
ana.…“
Tómas: „Nei, biddu fyrir þér, það
er nú liðin tíð.“
Bjarni hélt þá áfram og nú áttaði
Tómas sig á því, að þetta var vísa,
ort í hans anda.
Nú skal ég ekki fullyrða, að sam-
talið hafi verið orðrétt svona, en
vís-an eins og ég man hana og fékk
stað-fest í gömlum plöggum pabba
er svona:
Nú drekkum við ekki framar á Hótel Heklu
né háttum þar alls konar kvenfólk ofan á
dívana.
Það stafar þó hvorki af kvenfólks- né
áfengiseklu,
heldur einungis af því að það er verið að
ríf’ana.
Ástæðan til þess að ég er að
bauka þetta er að ég hef verið að
heyra og sjá vitlaust farið með
þessa vísu. Ég set hér tvö dæmi fyr-
ir neðan:
Þessi útgáfa er fengin hjá Jóni
Stefánssyni kórstjóra:
Menn gist-ekki lengur né drekka á Hótel
Heklu
eða hátta þar allskonar kvenfólk ofaní
dívana.
En það er nú hreint ekkı́ af kvenfólks- né
áfengiseklu
heldur einungis af því að það er búið að
ríf’ana.
Síðan segist Kristín hafa fundið í
vísnaþættinum „Mælt af munni
fram“ í Bændablaðinu þessa útgáfu:
Nú drekka menn ekki framar á Hótel Heklu
né hátta þar lengur konur niður á dívana.
Það stafar þó hvorki af kvenfólks- né
áfengiseklu
aðeins af því að það er búið að ríf́’ana.
Umsjón hafði Sigurdór Sig-
urdórsson.
Kristín lýkur bréfinu með þess-
um orðum: „Nú ræður þú alveg,
hvað þú gerir með þetta, en ég er
að minnsta kosti búin að skrifa mig
frá gremj-unni yfir vitleysunni.“
Ég þakka Kristínu gott bréf, sem
sannarlega átti erindi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ekki drukkið á Hótel Heklu
G
æ
sa
m
am
m
a
o
g
G
rí
m
ur
G
re
tt
ir
S
m
áf
ól
k
H
ró
lfu
r
hr
æ
ði
le
gi
F
er
di
n
an
d
ÉG HELD AÐ
ÞJÓNINUM OKKAR
SÉ ILLA VIÐ MIG
AF
HVERJU
HELDURÐU
ÞAÐ?
HÉRNA ER
BOLLAN ÞÍN!
ÉG FINN
ÞAÐ BARA Á
MÉR
TERTU?
ÞAR
FÓR ÞAÐ!
VÍKINGAR
STRANGLEGA
BANNAÐIR
KENNARINN
OKKAR KOM
EKKI Í SKÓLANN
Í DAG...
Í GÆR ÞURFTUM VIÐ AÐ KOMA MEÐ
UMSLAG MEÐ MATARPENINGUM,
UMSLAG MEÐ PENINGUM
FYRIR BEKKJARMYNDINNI,
UMSLAG MEÐ PENINGUM FYRIR
FORELDRAFÉLAGIÐ, UMSLAG MEÐ
PENINGUM FYRIR PYLSUM...
...ÞRJÁTÍU KRAKKAR KOMU MEÐ
FJÖGUR UMSLÖG HVERT, ÞAÐ ERU
HUNDRAÐ OG TUTTUGU UMSLÖG...
AUMINGJA KENNARINN OKKAR...
HÚN MISSTI BARA
HREINLEGA VITIÐ...
SVONA GERA MENN HEIMILDA-
MYNDIR UM LÖGFRÆÐINGA
Ó NEI!
HÍFIÐ MIG
UPP, EINN
AF ÞEIM ER
AÐ NÁLGAST
MIG MEÐ
STEFNU!
Víkverji er undarlega innréttaðurþegar kemur að boltasparki, því
það breytist oft á viku hvaða liði hann
heldur með í ensku knattspyrnunni.
x x x
Á því augnabliki sem pistillinn erskrifaður heldur hann með því
fornfræga liði Manchester United.
Og því er ekki að neita, að dagurinn
reyndi á taugarnar. Þegar flautað
var til leiksloka á Old Trafford var
United með pálmann í höndunum, en
á Maine Road tókst Manchester City
að hala inn sigur þegar 20 sekúndur
voru eftir til leiksloka á undraverðan
hátt. Meistaratitillinn verður eftir
sem áður í Manchester en færist yfir
til hinna bláklæddu.
x x x
Og auðvitað er ekkert nema já-kvætt við það að fleiri lið vinni
titilinn en lærisveinar Fergusons.
Frá því úrvalsdeildin var sett á lagg-
irnar árið 1992 hefur United unnið
tólf sinnum og ber höfuð og herðar
yfir keppinauta sína. Arsenal og
Chelsea hafa unnið þrisvar hvort,
Blackburn einu sinni og nú bætist
Manchester City í hópinn.
x x x
En það skiptir þó máli að það kom-ist ekki upp í vana hjá Mancini að
stela senunni. Einu sinni er í lagi.
Bara ekki aftur!
x x x
Víkverji var á Rauða ljóninu þegarflautað var til leiksloka á Old
Trafford. Menn voru staðnir upp úr
sætum sínum og biðu – á milli vonar
og ótta. Allt karlmenn. Tilfinning-
arnar nálægt því að bera þá ofurliði.
x x x
Eftirtektarvert að fylgst var meðfimm fótboltaleikjum á sjón-
varpsskjám á Ljóninu, en enginn
hafði áhuga á leiknum með City.
Þegar þulurinn sem lýsti leik United
öskraði án þess nokkuð hefði gerst á
Old Trafford lögðu menn saman tvo
og tvo og það kvisaðist um salinn að
City væri komið yfir. Þá loks var
skipt yfir á Maine Ground. Mynda-
vélarnar beindust að digrum manni
sem kraup á miðjunni og grét um leið
og hann brosti út að eyrum.
Víkverji
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður,
að þér elskið hver annan. Eins og ég
hef elskað yður, skuluð þér einnig
elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)
GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ -ÞAÐ ER TENGI
Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 • www. tengi.is • tengi@tengi.is
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050
STURTU- OG BAÐHURÐIR
með hertu öryggisgleri
MIKIÐ ÚRVAL AF STURTUHORNUM OG STURTUHURÐUM
STAR STURTUHORN ÁN BOTNS OASIS STURTUHURÐ ÁN BOTNS FLIPPER BAÐHURÐ 85X140 CM