Morgunblaðið - 14.05.2012, Side 40
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 135. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Fannst látinn á Kanaríeyjum
2. Titillinn til Man. City eftir …
3. Norskt smábarn lést eftir umskurð
4. Slasaðist við Sodastream-gerð
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Uni og Jón Tryggvi bjóða til tón-
leika á heimili sínu Merkigili á Eyr-
arbakka nk. sunnudag kl. 16. Ný tón-
list verður leikin í bland við gömul og
góð íslensk dægurlög til að bjóða
vorið velkomið.
Fagna vorkomu með
tónleikum í Merkigili
Markús Þór
Andrésson hefur
verið ráðinn list-
rænn stjórnandi
Sequences-
hátíðarinnar 2013.
Hann er sjálfstætt
starfandi sýning-
arstjóri með
meistaragráðu í
sýningarstjórnun frá Center for Cura-
torial Studies við Bard College í
Bandaríkjunum og hefur sett upp
fjölda sýninga hér heima og erlendis.
Markús Þór listrænn
stjórnandi Sequences
Á næstu tónleikum djass-
tónleikaraðarinnar á Kex hosteli á
morgun kemur fram söngvarinn Þór
Breiðfjörð, en hann fer með aðal-
hlutverkið í Vesaling-
unum í Þjóðleikhús-
inu. Þór mun ásamt
félögum sínum
flytja dagskrá sem
hann nefnir Inni-
leika. Tónleik-
arnir hefjast kl.
20:30 og er að-
gangur ókeypis.
Þór Breiðfjörð og
Innileiki á Kex
Á þriðjudag N og NV 5-13 m/s, en 13-18 austast fram eftir degi.
Frost 0 til 5 stig, en hiti 1 til 6 stig að deginum syðra.
Á miðvikudag og fimmtudag Hæg breytileg átt, hiti 2 til 7 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðanátt, víða 10-18 m/s en hvassara
austast. Él, einkum á N- og NA-landi, en þurrt S-lands. Hiti 1 til 6
stig syðra, annars um eða undir frostmarki.
VEÐUR
Grétar Rafn Steinsson hef-
ur nánast örugglega leikið
sinn síðasta leik með enska
knattspyrnuliðinu Bolton,
sem féll úr úrvalsdeildinni í
gær. Hann langar til að
breyta um umhverfi. „Mig
langar til að upplifa eitt-
hvert ævintýri, fara á nýjan
stað og læra framandi
tungumál, en spila þó í
deild þar sem ég er áfram í
myndinni með landslið-
inu,“ segir Grétar. »1
Grétar langar á
framandi slóðir
Manchester City varð í gær enskur
meistari í knattspyrnu á ævintýra-
legan hátt þegar liðið skoraði tvíveg-
is í uppbótartíma og sigraði QPR, 3:2.
Í fyrsta skipti frá stofnun úrvals-
deildarinnar réðust úrslit hennar á
markatölu en þar hafði City bet-
ur gegn grönnum sínum í
United sem virtust ætla að
hirða titilinn þar til Sergio
Agüero skoraði
í blálokin. Nú er
blái lit-
urinn alls-
ráðandi
í Man-
chester-
borg.
» 7
Blái liturinn allsráðandi
í Manchesterborg
„Nú finnst mér vera fínn tími til þess
að koma aftur í Aftureldingu. Fyrir
hendi eru margir efnilegir leikmenn í
bland við reyndari leikmenn. Mig
langar til að aðstoða liðið og leik-
menn við að eflast og taka skref fram
á við sem lið,“ sagði handknattleiks-
maðurinn Örn Ingi Bjarkason sem er
hættur í FH og genginn til liðs við sitt
uppeldisfélag. »2
Tími til að fara í
Aftureldingu á ný
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Það var ótrúlega áhrifamikið og
skemmtilegt að hittast eftir öll þessi
ár,“ segir Árni Bjarnason, forseti
Farmanna- og fiskimannasambands-
ins og skipverji á Gísla Árna RE í
byrjun áttunda áratugarins. Um 20
manna hópur gamalla skipverja á
þessu aflaskipi hittist í Sjóminjasafn-
inu á laugardagskvöld og rifjaði upp
gamla daga. „Við höfum ekki hist áð-
ur með þessum hætti og suma hafði
ég ekki séð í áratugi. Í nokkrum til-
vikum þurfti mikla athyglisgáfu til að
átta sig á hverjir voru á ferð og stund-
um varð ég að teikna hárið á þá aftur í
huganum.“
Árni segir að umræðuefnin hafi
ekki skort þessa kvöldstund og sann-
arlega gætu þeir haldið áfram að tala
um gömul afrek og ævintýri í mörg
kvöld. „Það voru alls konar skemmti-
leg atvik rifjuð upp bæði til sjós og
lands og sum þeirra þoldu varla að
sagt væri frá þeim, önnur voru menn-
ingarlegri. Nokkrir stóðu upp og
sögðu frá því að dvölin um borð hefði
verið eins og besti skóli og komið
þeim á beinu brautina í lífinu.“
Harðduglegir menn
„Um borð voru harðduglegir menn
og vinnan hefði ekki alltaf staðist
skoðun hjá Mannréttindadóm-
stólnum og þarna voru engin vökulög
í gildi. Menn unnu meðan þurfti og
þeir stóðu í lappirnar og það var ekk-
ert kvótarugl í gangi á þessum árum.
Svo minntumst við líka gamalla fé-
laga okkar sem eru farnir og róa nú á
önnur mið,“ segir Árni.
Þessa kvöldstund í Sjóminjasafn-
inu söknuðu skipverjarnir skipstjór-
ans Eggerts Gíslasonar, sem á laug-
ardag varð 85 ára, en komst ekki í
hófið vegna lasleika. Hann var ann-
álaður aflaskipstjóri, fyrst með Víði
II úr Garði, tók síðan við Sigurpáli og
loks Gísla Árna. Á síldarvertíðinni
1966 setti hann aflamet á Gísla Árna
sem lengi stóð og oft varð hann afla-
kóngur.
Margir fræknir
„Orðspor Eggerts reis kannski
hæst þegar hann var með Víði II,“
segir Árni. „Ég man að sem polli sett-
umst við saman fyrir framan útvarpið
heima og fylgdumst með aflafréttum
eins og nú er legið yfir úrslitum í
enska boltanum. Eggert var oftar en
ekki í efsta sætinu, en á tveimur ver-
tíðum náði pabbi, Bjarni Jóhannes-
son, að skáka honum á Snæfellinu. Í
síldarsögunni held ég að Eggert hafi
verið mesti aflakjafturinn þótt margir
fræknir skipstjórar hafi verið með
skipin á þessum árum.“
Yfirnáttúrleg sjón
En hvers vegna var Eggert svona
mikil aflakló? „Það var meðal þess
sem við reyndum að kryfja í veislunni
okkar,“ segir Árni. „Það voru ýmsar
ástæður nefndar, eins og áhafnirnar,
skipin og búnaðurinn, en síðan var
Eggert gríðarlega kappsmikill og
áhugasamur. Hann var alger reglu-
maður, átti sterkt bakland í góðri fjöl-
skyldu og hann hafði yfirnáttúrlega
sjón. Ég upplifði það margsinnis að
hann sá fuglager í fjarska þar sem
aðrir sáu ekki nokkurn skapaðan
hlut. Svo var stímað lengi, lengi þang-
að til maður fór að sjá eitthvað.“
Árni minnist líka á að í hófinu hafi
staðið upp reyndir sjómenn, kannski
ekki sérlega vanir ræðuhöldum, og
minnst vinargreiða Eggerts sem hafi
skipt sköpum fyrir mennina persónu-
lega. Það hafi verið áhrifamikið.
Morgunblaðið/Eggert
Á Sjóminjasafninu Það var góð stemning og glaðlegir endurfundir þegar skipverjar á aflaskipinu Gísla Árna rifjuðu upp gamla góða daga.
Afrek og ævintýri rifjuð upp
Dvölin um borð í aflaskipinu Gísla Árna
eins og besti skóli Fylgdust með aflafrétt-
um í útvarpinu eins og úrslitum í boltanum
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Aflakóngur Eggert Gíslason, skip-
stjóri á Víði II og Gísla Árna.