Morgunblaðið - 12.06.2012, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.06.2012, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 2. J Ú N Í 2 0 1 2  Stofnað 1913  135. tölublað  100. árgangur  BÚIST VIÐ SKEMMTILEGUM LOKAÚRSLITUM GANGA HORN Í HORN KÓRINN VAR NÁNAST ÓAÐ- FINNANLEGUR LEGGJA AÐ BAKI 640 KÍLÓMETRA 10 BEETHOVEN Í HÖRPU 38HÖRKURIMMA Í NBA ÍÞRÓTTIR  „Það gekk mjög á birgðir í vetur og bændum veitir ekkert af því að fá gott heyskaparár. Ef það verður við- varandi þurrkur áfram fara þeir að hafa áhyggjur af því að ná ekki upp þeim forða sem þeir þurfa að byggja upp aftur,“ segir Eiríkur Loftsson, jarðræktarráðunautur hjá Bún- aðarsambandi Skagfirðinga. Mikil þurrkatíð hefur verið á land- inu undanfarnar vikur og ekki útlit fyrir að það fari að rigna að neinu ráði fyrr en seint í næstu viku. Eirík- ur segir að jarðvegurinn sé orðinn ansi þurr og þurrkurinn farinn að tefja sprettu. „Það styttist nú samt í slátt og gæti verið að menn færu eitthvað að hreyfa sig um eða undir næstu helgi.“ »6 Bændur langþreyttir á þurrki sem kemur niður á grassprettu Morgunblaðið/RAX  Óvissa á Spáni vegna evrukrepp- unnar veldur því að áformum um kísilmálmframleiðslu á Grundar- tanga seinkar, að sögn Einars Þor- steinssonar, forstjóra Elkem á Ís- landi. Spánn er stór markaður fyrir sólarkísil. „Það er kyrrstaða í öllum mál- um,“ segir Einar. Evrópa sé helsti markaðurinn og ef það hægi frekar á efnahagslífi í álfunni muni það hafa áhrif bæði á magn og verð. Kínverska ríkið á 80% hlut í móð- urfélagi Elkem en rætt hefur verið um fjárfestingu upp á 129 millj- arða. »4 Evrukreppan bítur á Grundartanga Morgunblaðið/RAX Stóriðja Frá kísiljárnverksmiðju Elkem. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Tófa gerði mikinn usla í æðar- og kríuvarpi á Stað í Grindavík í síð- ustu viku. Hermann Ólafsson, út- vegsbóndi frá Stað, og Jóhannes Vilbergsson frændi hans veiddu þar fimm tófur aðfaranótt laug- ardags. Fyrir hádegi á föstudag veiddist ein og fimm höfðu verið unnar dagana á undan. Alls voru því ellefu tófur unnar í og við varp- ið á Stað í síðustu viku. Unnið hef- ur verið að því að byggja upp varp- ið og þar eru nú 500-600 hreiður. „Á hverju vori þarf að verja þetta fyrir vargi,“ sagði Hermann. „Tófan er verst og henni er alltaf að fjölga. Geldu dýrin eru á ferð- inni alla nóttina að sækja sér egg og grafa þau. Tófan fær aldrei nóg. Minkurinn er líka slæmur og svo flugvargurinn, kjóinn, mávurinn og hrafninn.“ Staður er spölkorn vestan við Grindavík. Æðarvarpið þar er næst sjónum og aðeins ofar er kríuvarp- ið. Tófan kemur svo úr hraununum þar fyrir ofan til að ná sér í egg og unga. MTófustraumurinn »14 Veiddu ellefu tófur í varpinu  Tófunni er alltaf að fjölga, að sögn Hermanns Ólafssonar útvegsbónda Morgunblaðið/RAX Tjón Þegar tófan hefur fælt fuglinn upp eru eggin berskjölduð. Rúmlega þrjú hundruð krakkar á aldrinum 12-16 ára munu í þessari viku fá að kynnast fjölda ólíkra kennslugreina þegar þeir sitja námskeið í Há- skóla unga fólksins sem starfræktur er í Háskóla Íslands. Nemendurnir koma hvaðanæva af landinu en þeim stendur til boða á fimmta tug námskeiða, t.a.m. í kínversku, kynjafræði, lyfjafræði og lög- fræði. Þessir áhugasömu krakkar viðuðu að sér þekkingu í líffræði í gær. Morgunblaðið/Kristinn Fróðleiksþyrst börn fá nasaþef af háskólanámi  Útlendingum sem setjast hér að og fá íslenska kennitölu fjölgar nú á ný. Þjóðskrá skráði 300 út- lendinga á svo- nefnda utan- garðsskrá sína fyrstu fimm mán- uði ársins, sem er aukning um 35% miðað við sama tímabil í fyrra. Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, segir mörg fyrirtæki kvarta undan því að erfitt sé að manna störf, m.a. í ferðaþjónustu. »12 Fleiri útlendingar setjast hér að Kristján Jónsson Skúli Hansen Í fæðingu er samkomulag um að ljúka þingstörfum. Morgunblaðið fékk það staðfest frá áreiðanlegum heimildum í gærkvöldi. Rætt er um það núna að frumvarp um stjórn fiskveiða, kerfisbreytingin, og hin svokallaða rammaáætlun um vernd og nýtingu orkuauðlinda, nái ekki fram að ganga. Hins vegar sé gert ráð fyrir því að veiðigjaldafrum- varpið verði klárað þó svo að ekki liggi endanlega fyrir nákvæmlega í hvaða mynd það verði. Sömu heimildir herma einnig að á meðan ekki liggi fyrir hver end- anleg mynd veiðigjaldafrumvarps- ins verði séu menn ennþá að ræða saman og verið sé að skoða það að ljúka störfum þingsins um næstu helgi. Eftir að hnýta lausa enda Steingrímur J. Sigfússon, for- maður VG, vildi ekki fullyrða að samkomulag væri í höfn. „Það á eft- ir að fara betur yfir þetta. Það er áfram verið að tala saman, verið að þreifa fyrir sér, allavega komnar hugmyndir í gang sem verið er að vinna út frá núna. Síðan þarf að bera þetta undir menn en við erum að reyna að ná utan um þetta.“ Heimildarmenn segja að nokkur áherslumunur sé milli sjálfstæðis- manna og framsóknarmanna. Sjálf- stæðismenn hafa verið harðari and- stæðingar kerfisbreytinga en þeir síðarnefndu talið að hægt væri að lagfæra frumvarpið um fiskveiði- stjórnunarkerfið og leysa deilurnar um bæði frumvörpin samtímis. „Það verður fundað aftur á morg- un, það er ekki búið að ganga end- anlega frá þessu,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. „Við höfum lagt áherslu á það í okkar þingflokki að menn gætu séð fram á að greiða þetta veiðigjald án þess að það setti stóran hluta fyrirtækjanna á haus- inn. Þetta er í sjálfu sér óleyst ennþá, það er ekki búið að semja um það.“ Samkomulag í fæðingu  Uppstokkun á kvótakerfinu frestað en veiðigjald sagt fara í gegn á Alþingi  Steingrímur segir of snemmt að fullyrða að samningar takist um þinglok

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.