Morgunblaðið - 12.06.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2012
Þingvöll, fimmtudaginn 14. júní.
Farið verður frá gömlu heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg kl. 10:00 fyrir hádegi
og komið til baka á milli kl. 14:00 og 15:00. Verð á mann aðeins kr. 1.000.
Leiðsögumaður er Jörmundur Ingi, Reykjavíkurgoði.
Barónsstígur 47
101 Reykjavík
Sími: 692 4554
Skráning til þátttöku
á www.XG.is
Hægri grænir, flokkur fólksins efnir til lautarferðar á
Skundum á Þingvöll
fimmtudaginn
14. júní
Allir
eldri borgarar
hjartanlega
velkomnir
í dagsferð
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Flugvél Landhelgisgæslunnar TF
SIF hélt í síðustu viku til Miðjarð-
arhafsins til að sinna almennu eftir-
litsflugi á vegum FRONTEX, landa-
mærastofnunar
Evrópusambandsins. Vélin verður
þar í mánuð en í skoðun er að hún
verði lengur þar í sumar.
Þá fer varðskipið Ægir til Miðjarð-
arhafsins í seinnihluta júlí, einnig til
verkefna á vegum FRONTEX. Skip-
ið verður þar fram í miðjan október
samkvæmt upplýsingum Landhelgis-
gæslunnar. Sif verður gerð út frá Al-
mería á Spáni en Ægir líklega frá
Ítalíu.
Að sögn Hrafnhildar Brynju Stef-
ánsdóttur, upplýsingafulltrúa Land-
helgisgæslunnar, fara sjö til átta
manns með Sif frá Gæslunni. Áhafnir
vélarinnar verða að störfum í tvær
vikur í senn. Bæði Sif og Ægir sinntu
verkefnum fyrir FRONTEX í Mið-
jarðarhafi og Eyjahafi í fyrra.
„Menn eru komnir með svo góða
þekkingu og flugvélin nær yfir svo
miklu stærra svæði en aðrar vélar að
hún er orðin mjög eftirsótt í þetta,“
segir Hrafnhildur.
Týr á leið til Danmerkur
Þá hefur varðskipið Týr verið í
verkefni undanfarnar fimm vikur við
að draga skip frá Nova Scotia sem á
að fara í brotajárn í Danmörku. Sú
ferð hefur hins vegar dregist á lang-
inn vegna óhagstæðra veðurskilyrða.
Sif og Ægir taka aftur
stefnuna suður í höf
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gæslan TF-SIF á flugi. Vélin er nú
á leið til Miðjarðarhafsins.
Flugvél Gæsl-
unnar eftirsótt
Þónokkuð virðist hafa verið um lagfæringar í
miðbæ Reykjavíkur í gær, en veðrið virðist hafa
verið einstaklega vel til þess fallið að malbika og
mála. Verið var að gera klárt fyrir malbikun í
Lækjargötu og hér sjást tveir ungir karlmenn
vinna hörðum höndum að viðgerðum á götunni
með smáaðstoð frá stærðarinnar gröfu.
Einnig unnu tveir menn í veðurblíðunni við
það að mála gamla Miðbæjarskólann.
Morgunblaðið/Ómar
Unnið að lagfæringum í hjarta miðbæjarins
SVIÐSLJÓS
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Mikið hefur verið rætt um þinglok í
fjölmiðlum landsins á síðustu dögum
og þá hafa þingmenn deilt um það
hvort störf Alþingis svona nálægt
forsetakosningum skyggi á umrædd-
ar kosningar og hvort þau valdi því
jafnvel að athygli kjósenda dreifist
um of. Kosið er til forseta 30. júní,
eftir 18 daga.
„Þetta er náttúrlega fordæm-
islaust, það er klárt mál. Þetta hefur
svosem ekki gerst áður að þingið sitji
svona lengi svo að menn hafa ekkert
til að styðjast við um hvaða áhrif
þetta hafi,“ segir Ari Trausti Guð-
mundsson forsetaframbjóðandi að-
spurður hvort hann hafi áhyggjur af
því að áframhaldandi þingseta
skyggi á forsetakosningarnar og hafi
jafnvel áhrif á kosningabaráttuna.
Að sögn Ara Trausta er það að
einhverju leyti undir fjölmiðlum
sjálfum komið hversu mikið pláss
þeir láni þinginu og hversu mikið
pláss þeir láni forsetakosningunum.
„Auðvitað er ágætt að þessu fari að
ljúka, en hvort við fáum eina eða
tvær vikur í frí frá þinginu er erfitt
að segja,“ segir Ari Trausti.
Segir þingmenn hljóta að geta
komið sér saman um þinglok
„Í sjálfu sér hef ég ekki áhyggjur
af því. Ég held að þingið þurfi svo-
sem ekki mikið að þvælast fyrir
þessum forsetakosningum,“ segir
Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóð-
andi aðspurð hvort hún hafi áhyggj-
ur af því að áframhaldandi seta
þingsins skyggi á forsetakosning-
arnar, og bætir við: „Á hinn bóginn
hefur það nú verið hefð að gefa þeim
[forsetakosningunum] rými og þingið
verið rofið fyrr og ætli menn hljóti
ekki að geta komið sér saman um
það.“
Spurð hvort hún telji að áfram-
haldandi seta þingsins geti mögulega
dreift óþarflega athygli kjósenda
segir Þóra að það fari allt eftir því
hvað verði í gangi á þinginu, hvernig
menn ætli að leysa úr þessum málum
og hversu lengi það dragist.
„Það er ekkert við þessu að gera.
Vonandi gengur þinginu vel,“ segir
Herdís Þorgeirsdóttir forseta-
frambjóðandi spurð út í afstöðu sína
í þessu máli.
Klári stórmál fyrir sumarfrí
„Ég var nú svo sem ekki búin að
velta því neitt fyrir mér en þingið
dregst náttúrlega allt of lengi,“ segir
Andrea Jóhanna Ólafsdóttir forseta-
frambjóðandi spurð út í afstöðu sína
til áframhaldandi setu þingsins sam-
hliða forsetakosningum og hvort hún
hafi áhyggjur af áhrifum þess á
kosningarnar, og bætir við: „Ætli
það sé ekki eðlilegt að þau taki sinn
tíma til þess að afgreiða þau mál sem
mikilvægt er að afgreiða áður en far-
ið er í sumarfrí.“
Ekki náðist í Ólaf Ragnar Gríms-
son og Hannes Bjarnason við vinnslu
fréttarinnar.
Þingið teygir sig inn í baráttuna
Ari Trausti: Ágætt að þingi fari að ljúka Þóra: Hefð fyrir að gefa forsetakosningum rými
Herdís: „Ekkert við þessu að gera“ Andrea: Eðlilegt að taka tíma til að afgreiða mikilvæg mál
Ari Trausti
Guðmundsson
Andrea Jóhanna
Ólafsdóttir
Þóra
Arnórsdóttir
Herdís
Þorgeirsdóttir
Gæftir hafa verið misjafnar fyrir
smábátana það sem af er þessum
mánuði. Verð á fiskmörkuðum hefur
hins vegar verið hátt síðustu daga og
vöntun verið á fiski. Það er meðal
annars vegna þess að stærri bátar
voru flestir bundnir við bryggju frá
sjómannadegi og fram undir lok síð-
ustu viku.
Meðalverðið yfir landið fyrir kíló
af slægðum þorski var 351 króna á
fismörkuðunum í gær og ýsukílóið
fór á 362 krónur. Í síðustu viku voru
dæmi um að góður þorskur færi á
500 krónur og stór ýsa var nánast á
sama verði.
Alls er 631 bátur kominn með leyfi
til strandveiða. 516 þeirra hafa land-
að afla í júnímánuði, en það er 70
bátum færra en komu með afla í
maímánuði. aij@mbl.is
Gott verð á
mörkuðum og
vöntun á fiski
Þorskur Vöntun er á fiski.
Morgunblaðið/RAX