Morgunblaðið - 12.06.2012, Page 11
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Í loftköstum Tilhlökkunin er mikil hjá Sexunum bláu og rauðu enda mikið framundan, fjögurra vikna ganga á fjöll-
um. Frá vinstri: Margrét, Emelía, Anna Lára, Guðrún, Kristín Jóna og Sigrún.
urtask sem tilheyrir. „Við erum með
eitt sex manna tjald en við ætlum líka
að nýta okkur einhverja skála sem
verða á vegi okkar. Við göngum með
matarbirgðir mest í fimm daga og þá
eru pokarnir okkar vel þungir, en
þeir eru um 20 kg þegar mest er í
þeim. Við getum að sjálfsögðu ekki
gengið með matarbirgðir á bakinu
fyrir heilan mánuð og því munum við
fá matarsendingar á vissu millibili.
Við höfum þurft að pakka miklu af
þurrmat, harðfiski og kexi sem við
erum búnar að koma fyrir hér og þar
um landið, til að við getum fyllt á
matarbirgðirnar. Við viljum vera
sjálfbjarga en ekki háðar því að karl-
arnir okkar mæti á einhvern stað
með vistir.“
Fólk í sveitum hjálplegt
„Við höfum hringt í bændur og
búalið sem hefur komið kössunum
okkar fyrir í hinum ýmsu skálum á
leið okkar og undirbúningurinn hefur
verið stórskemmtilegur. Fólk er svo
frábærlega hjálplegt, við höfum
hringt í fólk á sveitabæjum sem við
þekkjum ekkert og allir eru tilbúnir
til að leggja okkur lið. Við höfum líka
þurft að spyrja heimafólk um vöð á
ám, hvernig staðan sé í skálum, fá
lykla og fleira. Nokkrar ár verða á
vegi okkar og við þurfum að vaða yfir
bæði Jökulsá eystri og vestari en
Skjálfandafljótið og Jökulsá á Fjöll-
um förum við sennilega yfir á brúm.
Við viljum komast sem beinasta leið
en brýrnar eru ekki alltaf þar sem
við viljum hafa þær.“ Það er heilmikil
vinna að skipuleggja svona langa
ferð og þær eru búnar að liggja yfir
kortunum. „Með hjálp góðs vinar
okkar, Hilmars Aðalsteinssonar, er-
um við komnar með leiðina inn í gps-
tækin sem við göngum með.“
Mammútsystur fara víða
Emilía segir að margir spyrji
þær hvað þær ætli að gera við fjöl-
skyldurnar sínar á meðan þær eru á
fjöllum í fjórar vikur. „Ef við værum
karlar myndi sjálfsagt enginn spyrja
okkur að þessu. Karlarnir okkar eru
ægilega montnir af okkur og aðstoða
okkur. Við erum allar fjörutíu plús og
börnin því flest orðin stálpuð og þau
sem eru enn heima hafa gott af því að
taka ábyrgð á meðan við erum í
burtu.“ Konurnar í Sexunum eru
ekki óvanar, því þær eru hluti af hópi
sem hefur gengið saman frá því árið
2005 og kallar sig Mammútsystur.
„Við erum fjórtán kerlingar í þeim
hópi og fjórar okkar gengu árið 2008
á Kilimanjaro og komumst allar á
toppinn, Uhuru Peak. Þá var ákveðið
að fara framvegis á tveggja ára fresti
í meiriháttar gönguferð. Við byrjuð-
um á því þegar þrjár okkar fóru
þvert yfir landið með allt á bakinu
fyrir tveimur árum, frá Reykjanestá
að Fonti á Langanesi, sem er um 650
kílómetra leið. Við komum sumar inn
í þá ferð og gengum með þeim hluta
af leiðinni. Við erum líka búnar að
ganga á öll þessi helstu fjöll og jökla;
Hvannadalshnjúk, Hrútfellstinda,
Þverártindsegg, Miðfellstind og fullt
fullt af öðrum fjöllum og gönguleið-
um.“
Enginn hefur farið þessa
leið áður svo við vitum,
þetta eru 640 km.
A facebook: Sexurnar Horn í Horn.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2012
fram eftir og þar getur fólk fengið sér hressingu í mat
og drykk eftir gönguna. Fólk sem vill koma í gönguna
getur ýmist tekið ferjuna út í Viðey kl 18.15 eða 19.15,
allt eftir því hvort það vill fá sér hressingu áður en það
leggur af stað eða ekki.“ Guðlaug segir að á hverjum
þriðjudegi verði nýr leiðsögumaður og hægt sé að sjá á
síðunni videy.com hver er hvaða dag. „Hestarnir eru
komnir út í Viðey en hestaleigan í Laxnesi er þar með
20 hesta og fólk sem gerir sér ferð út í eyju getur farið
um hana á reiðskjótum eða leyft börnunum að fara á
bak.“ Áætlun ferjunnar hefst daglega kl. 11.15 og er á
klukkutímafresti korter yfir heila tímann og síðasta
ferðin á áætlun er korter yfir fimm.
„Fyrsta gangan var í síðustu viku og þá sagði Agnar
Jónsson frá skipsköðum í Viðey,“ segir Guðlaug Elísabet
Ólafsdóttir, verkefnisstjóri Viðeyjar, en boðið verður upp
á hinar árlegu þriðjudagsgöngur með leiðsögn í Viðey í
allt sumar. „Í kvöld ætlar Jóhann Óli Hilmarsson fugla-
fræðingur að fara fyrir göngunni og þetta verður því
gönguferð með fuglaskoðunarívafi. Við leggjum svo í
hann klukkan hálfátta frá Viðeyjarstofu og Jóhann Óli
leiðir okkur í göngunni í allan sannleikann um fuglalífið
í Viðey, sem er mjög fjörugt þar á þessum árstíma. Ung-
arnir eru komnir úr eggjum sínum en yfir þrjátíu teg-
undir fugla verpa í eyjunni. Þetta er róleg ganga og tek-
ur um einn og hálfan til tvo tíma. Viðeyjarstofa er opin
Boðið upp á þriðjudagsgöngur með leiðsögn í Viðey
Morgunblaðið/Heiddi
Klárir í bátana Hér er verið að flytja hesta út í Viðey en þeir verða þar í allt sumar, til þjónustu reiðubúnir fyrir gesti.
Viðeyjargöngur í allt sumar
Í dag, þriðjudag, fer fram minningar-
hlaup Guðmundar Karls Gíslasonar.
Upphaf hlaups er við Hrafnhóla-
gatnamót klukkan 17:30.
Fyrst verður hlaupið að Skeggja-
stöðum, upp með Leirvogsá, framhjá
Tröllafossi og yfir ána á vaði. Þá verð-
ur farið sunnan Stardalshnúks, að
Stardal, út á þjóðveg aftur og að
gatnamótum Skálafellsvegar. Þar
verður stoppað um stund og því næst
hlaupinn þjóðvegurinn til baka.
Um er að ræða félagshlaup en ekki
keppnishlaup og engin formleg
skráning né tímataka fer fram.
Heildarvegalengdin er 14,4 km: 9,2
km uppeftir og 5,2 km niður eftir.
Félagshlaup
Utanvega Í minningarhlaupinu verð-
ur m.a. hlaupið yfir Leirvogsá á vaði.
Minningarhlaup í dag
FRÁBÆR VERÐ
Á FLOTTUM MERKJUM
frá SPEEDO í miklu úrvali
fyrir alla aldurshópa
Opið:
Virka daga kl. 11-18 Laugardaga kl. 11-16 Sunnudaga kl. 13-17
Vínlandsleið 6 113 Reykjavík
Dömustærðir
Verð: 7.990 - 12.990 kr.
Outlet-verð:
frá 4.990 kr.
Stelpustærðir:
Verð: 6.990 kr.
Outlet-verð:
3.990 kr.
Dömustærðir
Verð: 7.990 kr.
Outlet-verð:
frá 1.990 kr.
Stelpustærðir:
Verð: 5.990 kr.
Outlet-verð:
3.990 kr
Herrastærðir:
Verð: 5.990 kr.
Outlet-verð:
3.990 kr.
Strákastærðir:
Verð: 4.990 kr.
Outlet-verð:
2.990 kr.
Herrastærðir
Verð:6.990 - 9.990 kr.
Outlet-verð:
3.990 kr.
Strákastærðir:
Verð: 4.990 kr.
Outlet-verð:
2.990 kr.
Sundföt
Bikiní
WatershortsSundskýlur
Sundbolir