Morgunblaðið - 12.06.2012, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2012
ið að gera við hann í gegn um tíðina.
„Ég hugsa þó að kjölurinn sé upp-
runalegur. Hann er allt öðruvísi en
það sem við þekkjum frá íslenskum
skipasmiðum,“ segir Eggert. Lengi
hefur staðið til að gera bátinn upp og
varðveita. Átti að gera það á Minja-
safninu á Hnjóti. „Hún var komin á
flæking svo ég tók hana til mín aftur
því mér fannst hún eiga það skilið,
greyið, að vera gerð upp. Þetta er
orðið svo gamalt að það er í raun sér-
stakt að það skuli enn hanga saman.
Hún heldur þó laginu,“ segir Jón.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
smíðinni lýkur. Eggert segir alveg
nauðsynlegt að það verði fyrir sjó-
mannadaginn að ári, helst fyrr. „Ég
set hana á flot, og allt það, en svo
geymi ég hana á góðum stað. Ég
vona að þeir sem taki við sýni þann
sóma að varðveita hana vel til fram-
tíðar,“ segir Jón.
Haldið upp á aldarafmæli
Áhugi Jóns á að varðveita skip
hefur áður komið fram. Hann varð-
veitir elsta stálskip landsins, Garðar
BA, uppi í fjöru í Skápadal í Pat-
reksfirði og hélt upp á 100 ára af-
mæli þess á dögunum. „Það passa
ekki margir upp á þessa báta. Þú
værir ekki að ræða við mig ef ekki
hefðu verið skip í þessu landi. Þau
hafa bjargað þjóðinni fram til þessa.
Það eru varðveitt ótal amboð í
byggðasöfnum en lítið gert af því að
gæta skipanna,“ segir Jón.
Garðar er gamalt hvalveiðiskip,
smíðað í Noregi 1912 og þjónaði sem
slíkt í Noregi og Færeyjum. Það var
komið yfir þrítugt þegar það var
keypt til Íslands og breytt í fiski-
skip. Jón segir að eftir breyting-
arnar hafi flokkunarfélag tekið það
út sem nýtt skip.
„Stálið í skrokknum er sérstakt og
það er hnoðað saman. Menn sögðust
aldrei hafa kynnst slíku stáli,“ segir
Jón sem telur að skrokkurinn þoli
marga áratugi til viðbótar þótt
margt annað kunni að eyðileggjast.
Þegar Jón keypti Garðar var hann
farinn að huga að því að fara í land
til að geta sinnt fiskvinnslunni en
frestaði því um fimm ár til að geta
verið sjálfur með skipið. Hann ber
sterkar taugar til þess. „Það gekk
vel með bátinn. Hann varð næst-
aflahæstur eina vertíðina og með
mesta aflaverðmætið,“ segir skip-
stjórinn.
Sem dæmi um hvað stálið er
sterkt nefnir hann að stýrimaðurinn
hafi einhvern tímann sofnað á heim-
stíminu og skipið siglt á fullri ferð
upp í stórgrýti. „Hann flaut aftur
eftir tvo tíma og ekki sást dæld á
honum. Mér fannst frekar að bónd-
inn ætti að fara í mál við mig vegna
skemmda á fjörunni,“ segir Jón.
Vinsæll viðkomustaður
Þegar Garðar hafði lokið hlutverki
sínu ákvað Jón að varðveita hann,
frekar en að láta sökkva honum eða
setja í brotajárn. Hann gróf skurð
upp á sandinn í Skápadal og sigldi á
fullri ferð upp í eyrina. Þar hefur
skipið verið vinsæll viðkomustaður
ferðafólks frá 1981. Fyrstu árin var
ljósavélin keyrð í svartasta skamm-
deginu fyrir jólaseríu sem strengd
var stafna á milli.
„Hann er líka búinn að gera lukku
í landi,“ segir Jón.
Haldið var upp á 100 ára afmæli
Garðars við skipshlið í Skápadal fyr-
ir sjómannadag. Skipið var málað,
„fært í sparifötin“ eins og eigandinn
orðar það. Fjöldi gesta kom í grill-
veislu, meðal annars margir úr síð-
ustu áhöfn skipsins. Jón var ánægð-
ur með þá virðingu sem gestirnir
sýndu öldungnum.
Bjargvætti gert til góða
Jón Magnússon, skipstjóri á Patreksfirði, lætur gera upp 104 ára skektu sem hann notaði ungur til
að sækja björg í bú Fagnaði 100 ára afmæli Garðars BA sem varðveittur er í fjörunni í Skápadal
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Hún var notuð eiginlega á hverjum
degi eftir að ég man eftir mér, var að-
albjargvættur heimilisins,“ segir Jón
Magnússon, útgerðarmaður á Pat-
reksfirði. Hann er að láta gera upp
skektuna Teistu
sem fylgt hefur
fjölskyldu hans í
104 ár.
„Pabbi keypti
hana frá Noregi
1908 svo hún er
orðin rösklega
hundrað ára göm-
ul,“ segir Jón sem
sjálfur er talsvert
yngri, eða 82 ára
gamall. Hann var
lengi skipstjóri og er einn af eig-
endum undirstöðufyrirtækis Pat-
reksfirðinga, Odda hf.
Jón ólst upp á Hlaðseyri við Pat-
reksfjörð og segir að Teista hafi ver-
ið í notkun allt árið. „Við lifðum mikið
á fugli sem við skutum. Á sumrin var
fiskað og smásíld háfuð og gefin
skepnunum. Skektan skaffaði helm-
inginn af því sem þurfti fyrir þessa
stóru fjölskyldu. Við vorum ekki með
nema 50-55 rollur, hundur myndi
ekki lifa af því í dag. Svo fórum við á
henni í kaupstað, út á Patreksfjörð,
jafnvel með fisk ef við fiskuðum
meira en við þurftum,“ segir Jón.
„Maður var nú ekki gamall þegar
maður byrjaði að róa á þessu þvers
og kruss um allan fjörð. Það var létt
að róa henni og stundum setti maður
upp segl þegar það var byr,“ segir
Jón skipstjóri.
Á þetta skilið, greyið
Teista er innan við 5 metrar að
lengd og aðeins 1,30 á breidd. Eggert
Björnsson, sjómaður og áhugamaður
um varðveislu gamalla íslenskra
báta, er að gera hana upp. Báturinn
er illa farinn þótt mikið hafi verið bú-
Jón
Magnússon Ljósmynd/Magnús Ólafs Hansson
Endurgerð Gamla norska skektan er illa farin og í raun lítið eftir af upprunalegu efni annað en kjölurinn, eftir
þvæling á milli manna. Hún hefur þó haldið lagi sínu. Eggert Björnsson vinnur að smíðinni.
Ljósmynd/Gunnlaugur Albertsson
Grill og sögur Fjöldi gesta kom í veislu sem haldin var við skipshlið í Skápa-
dal í tilefni af 100 ára afmæli Garðars BA, m.a. nokkrir úr síðustu áhöfninni.
Vörubílastöðin Þróttur býður fjölbreytta þjónustu og ræður
yfir stórum flota atvinnutækja til margvíslegra verka
ÖFLUGIR Í SAMSTARFI
VIÐ LÓÐAFRAMKVÆMDIR
· Fellum tré og fjarlægum garðarúrgang
· Grjóthleðsla með sérhæfðum kranabílum
· Seljum hellusand og útvegum mold
ÞRÓTTUR TIL ALLRA VERKA
SÆVARHÖFÐA 12 · SÍMI 577 5400 · THROTTUR.IS
Ólafur Bernódusson
Skagaströnd | Tveir öflugir áhuga-
ljósmyndarar, Jón Hilmarsson og
Arnar Ólafur Viggósson, héldu ný-
lega sýningu á landslagsmyndum í
íþróttahúsinu. Var aðsókn að sýn-
ingunni góð og létu gestir vel af
verkum tvímenninganna. Jón er
skólastjóri grunnskólans á Hofsósi
og voru flestar mynda hans teknar í
Skagafirði við ýmsar aðstæður. Jón
hefur haldið nokkrar einkasýningar
og eftir hann liggur ljósmyndabók
sem hefur selst ágætlega að hans
sögn. Arnar Ólafur er togarasjómað-
ur á Skagaströnd og hefur hann lagt
stund á áhugamál sitt í allmörg ár.
Þó þetta sé hans fyrsta ljós-
myndasýning er engan byrj-
endabrag að sjá á myndum hans.
Arnar hefur unnið til verðlauna á
nokkrum ljósmyndasíðum á int-
ernetinu en hann heldur út fallegri
flickr-síðu þar sem áhugasamir geta
skoðað verk hans. Menningarráð
Norðurlands vestra og minning-
arsjóður um hjónin í Garði og Vind-
hæli styrktu sýningu þeirra Jóns og
Arnars Ólafs.
Morgunblaðið/Ólafur Beródusson
Sjómaður og skóla-
stjóri sýna myndir