Morgunblaðið - 12.06.2012, Síða 17

Morgunblaðið - 12.06.2012, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2012 Eftir Björn Björnsson Sauðárkrókur | Góður hópur fólks beið í Menningarhúsinu Miðgarði eftir komu hjólreiðakappans Snorra Más Snorrasonar, en hann fer nú hringveginn til þess að minna Park- insons sjúklinga og raunar alla á gildi hreyfingar og heilsuræktar. Sagði Snorri að reglubundin hreyfing og heilsurækt spornaði um- talsvert við þeim áhrifum sem þeir yrðu fyrir sem greindust með Park- insons. „Ég lofa aldeilis ekki eilífu lífi, en ég lofa ykkur betra lífi,“ sagði þessi magnaði íþróttamaður sem greindist með Parkinson fyrir fjór- um árum. Eftir nokkra seinkun kom Snorri ásamt konu sinni, Kristrúnu Helgu Björnsdóttur, akandi frá Blönduósi, en þar lét hann staðar numið í þess- um áfanga þó að ætlunin væri að komast í Varmahlíð. En eftir að hafa hjólað í tæplega níu tíma frá Stað- arskála á móti ískaldri 10 - 12 m/sek norðanátt þótti Snorra nóg komið á Blönduósi í bili og ók til Varmahlíð- ar. „Ég skil þó ekki eftir neinn part af leiðinni, en fer bara þangað aftur og legg þaðan upp í fyrramálið og nú hlýt ég að hafa lagt inn fyrir ann- aðhvort meðvindi eða logni, því að þetta hefur verið alveg rosalega erf- itt, að hafa svona storminn í fangið. Ég til dæmis gat ekki nýtt mér rennslið niður Holtavörðuheiðina, ég varð að hjóla,“ sagði Snorri sem lét þó engan bilbug á sér finna. Hann sagðist hafa ætlað einn dag í tíma- jöfnun á Akureyri, en nú væri ljóst að hann yrði að nota að minnsta kosti hluta þess dags til að halda áætlun, en frá Akureyri gera þrír vinir hans ráð fyrir að hjóla með honum til Egilsstaða, en í þeim hópi er einn sem er tólf ára. Í Miðgarði voru komnir nokkrir félagar þeirra Kristrúnar og Snorra úr Parkinsons samtökunum í Reykjavík ásamt um tuttugu fé- lögum sama félags í Skagafirði til þess að fagna með honum þessum áfanga á langri og erfiðri ferð. Meðal sunnanfólks var formaður Reykja- víkursamtakanna og einnig fyrr- verandi stjórnarmenn og vinir. Var slegið upp jafningjastuðn- ingsfundi þar sem nokkur ávörp voru flutt og síðan almennt spjall um ferðina sem hófst í Reykjavík 3. júní en áætlað er að henni ljúki þann 23. sama mánaðar. Ekki eilíft líf en betra með hreyfingu  Hjólar hringveginn til að minna alla á gildi líkamsræktar Hjólagarpur Snorri Már er nú kominn á Egilsstaði og því hálfnaður. Hér hjólar hann í Öxnadal þar sem hann fékk blessaða blíðuna beint í fangið eins og orðar það á Facebook síðu sinni sem ber nafnið Skemmtiferðin. Snorri sagðist ekki vera á þessari „skemmtiferð“ sinni til þess að safna áheitum eða peningum, þessa ferð færi hann fyrir sig. Hitt sagðist hann vilja taka fram að fjöl- margir hefðu aðstoðað sig mjög rausnarlega og nefndi í því tilviki vinnuveitendur sína í Prentsmiðjunni Odda, – „en ég vil að þið öll, og sér- staklega þeir sem fengið hafa Parkinsonsgrein- ingu, hreyfið ykkur svo- lítið meira, – og lofið mér því. Ég er ekki með því að lofa ykkur eilífu lífi – en ég lofa ykkur betra lífi“, sagði þessi magnaði af- reksmaður að lokum. Fer þessa ferð fyrir sig SNORRI MÁR SNORRASON Snorri Már Snorrason Aska á vegum getur ennþá valdið slysum, en um helgina valt bifreið á hringveginum við Gígjukvísl. Bjarni Jón Finnsson, yfirverkstjóri hjá Vegagerðinni í Vík í Mýrdal, segir að askan sé viðvarandi vanda- mál, einkum við brýr og vegrið. „Þetta byrjaði eftir gosið í fyrra í Grímsvötnum og sum svæði hafa glímt við þetta síðan Eyjafjallajök- ulsgosið var,“ segir Bjarni Jón. Þegar ekið er inn í ösku sem safnast hefur fyrir á vegi er það lík- ast því að aka inn í þéttan og þung- an snjó, að sögn Einars Magnúsar Magnússonar, upplýsingafulltrúa Umferðarstofu. Í bleytu geti askan gert veginn mjög hálan. Ökumenn þurfa að gæta að sér þar sem aska safnast fyrir á vegum Fulltrúar Norræna hússins í Reykjavík kynntu í gær starfið í sumar en tónleikar verða í gróð- urhúsinu alla fimmtudaga kl. 16:30 og ókeypis inn. Fuglaskoðun verður í friðlandinu við Norræna húsið alla laugardaga kl. 14 undir stjórn liðs- manna Fuglaverndarfélags Íslands. Áður hefur komið fram að krían, sem virtist hafa gefist upp á að verpa á svæðinu, er nú komin aftur, 10-15 kríuhreiður er nú í Vatnsmýrinni. „Við viljum leggja áherslu á nátt- úrulegar og heilsusamlegar lífs- venjur,“ segir í grein Max Dager, forstjóra hússins. „Við viljum að gestir okkar skilji hvernig hlutirnir eru hver öðrum háðir, hvernig vist- kerfi eru uppbyggð o.s.frv. Við vilj- um nota endurheimt votlendisins til að breyta þjóðfélaginu... Til að fá fólk til að taka þátt í þessu með okkur höfum við sett upp vefmyndavél í miðju fuglafriðland- inu svo þú getir setið heima við og horft á hreiður í nærmynd eða fylgst með uppáhaldsfuglinum þínum í rauntíma.“ Hægt er að kaupa nestiskörfu í húsinu alla daga milli 12 og 17. Þess má geta að boðið verður í haust upp á náttúruskóla fyrir nemendur í 4. og 6. bekk grunnskóla. Að sögn Helgu Viðarsdóttur markaðsstjóra munu þau fá fræðslu um svæðið, líf- ríki plantna og dýra í og umhverfis Vatnsmýrina. kjon@mbl.is Margt í boði í Norræna húsinu í sumar  Tónleikar og fuglaskoðun í Vatnsmýrinni Morgunblaðið/Ómar Kynning Helga Viðarsdóttir, markaðsstjóri Norræna hússins, og Max Dager, forstjóri Norræna hússins, segja frá sumardagskránni í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.