Morgunblaðið - 12.06.2012, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2012
STUTTAR FRÉTTIR
● Sigþór Jónsson hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Landsbréfa, dótt-
urfélags Landsbankans. Mun hann leiða
frekari uppbyggingu félagsins, við-
skiptaþróun og markaðssókn, segir í til-
kynningu, en ákveðið hefur verið Lands-
bréf hf. taki yfir rekstur Horns,
fjárfestingarfélags hf.
Sigþór er viðskiptafræðingur frá Há-
skóla íslands og löggiltur verð-
bréfamiðlari. Kemur hann til Lands-
bréfa frá Stefni hf. þar sem hann hefur
undanfarið gegnt starfi forstöðumanns
sérhæfðra fjárfestinga
Sigþór til Landsbréfa
● Reyka-vodki verður seldur í 181 Wait-
rose-verslun í Bretlandi og á flottum
börum. Waitrose eru lúxusmatvöru-
markaðir þar í landi, með yfir 240 versl-
anir. Þetta kemur fram í frétt á vefnum
DRB – Drinks Business Review.
Vodkinn er framleiddur í Borgarnesi
af skoska fyrirtækinu William Grant &
sons í samstarfi við Ölgerðina. Skoska
fyrirtækið framleiðir m.a. Grant’s, sem
er þekkt viskítegund.
First Drinks, dreifingar- og markaðs-
fyrirtæki í eigu William Grant & sons,
hefur tekið Reyka-vodka upp á sína
arma og annast söluna í Bretlandi.
Reyka-vodki í 181
verslun í Bretlandi
Landsbankinn hefur ákveðið að
lækka verðmiðann á fasteignafélag-
inu Regin sem fleytt verður á hluta-
bréfamarkað von bráðar. Bankinn á
allt hlutafé í Regin. Auk þess var til-
kynnt á föstudaginn að bankinn ætl-
aði ekki að selja allt hlutaféð í fast-
eignafélaginu, líkt og stefnt var að,
heldur mun hann halda eftir 25%
hlut.
Að sögn Kristjáns Kristjánssonar,
upplýsingafulltrúa Landsbankans,
var ákveðið að gera framangreindar
breytingar til að tryggja að útboðið
heppnaðist sem best og að tilhlýði-
legur fjöldi hluthafa fengist svo að
skilyrðum Kauphallarinnar fyrir
skráningu yrði fullnægt. Heimildir
Morgunblaðsins herma að fjárfest-
um hafi þótt upphaflegar verðhug-
myndir Lands-
bankans of háar.
Útboðið á
hlutabréfum
Regins fer fram
18. og 19. júní og í
kjölfarið verður
það skráð í Kaup-
höllina. Sam-
kvæmt útboðs-
genginu er
Reginn metinn á
bilinu 10,5 til 15,5 milljarða króna.
Er þetta nokkur lækkun frá áður
kynntu mati sem var 14,2 til 18,3
milljarðar króna. Landsbankinn vill
með áframhaldandi eignarhlut sín-
um undirstrika trú sína á fasteigna-
félaginu og framtíð þess, segir í til-
kynningu. gunnhildur@mbl.is
Verðmiðinn á
Regin lækkar
Smáralind Ein
eigna Regins.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir
gunnhildur@mbl.is
Markaðir um allan heim tóku vel við
sér í gær eftir að ljóst varð um
helgina að ESB myndi hlaupa undir
bagga með Spánverjum og fjármála-
stofnunum þeirra með neyðarlánum.
Vermirinn var þó skammgóður.
Óvissuþáttum um frekari þróun á
evrusvæðinu hefur síst fækkað, end-
anleg lánsfjárhæð liggur ekki fyrir
frekar en endanleg kjör og skilyrði
ESB fyrir lánveitingunni. Þá standa
kosningar fyrir dyrum í Grikklandi
auk þess sem enn er óljóst hvernig
Spánverjum mun takast að greiða úr
málum heima fyrir þrátt fyrir ný-
fengna aðstoð.
Óvissa varðandi næstu
skref á Spáni
Áhyggjur fjárfesta má meðal ann-
ars rekja til óvissu um hvaða skilyrði
nákvæmlega fylgja lánveitingu Evr-
ópusambandsins til Spánar en lítið er
enn vitað hver þau nákvæmlega eru.
Ollie Rehn, efnahagsmálastjóri fram-
kvæmdastjórnar ESB, lofaði þó að
það yrði fljótt í samtali við AFP-
fréttastofuna í gær. Rétt eins og enn
er óljóst hversu há endanleg lánsfjár-
hæð til landsins verður þykir einnig
óljóst til hvaða aðgerða spænsk yfir-
völd hyggjast grípa heima fyrir til að
fyrirbyggja að aðstæður þar versni
enn frekar. Hafa spænsk stjórnvöld
sagst ætla að halda áfram að vinna
samkvæmt fyrri áætlun að efnahags-
umbótum en í þeim felst að fjár-
magna sig með hefðbundnum hætti á
lánsfjármörkuðum. Það gæti þó
reynst þrautin þyngri þar sem kaup-
endur að spænskum ríkisskuldabréf-
um hafa í seinni tíð einkum verið
spænskir bankar, þeir hinir sömu og
hafa nú verið leystir út með neyðarl-
ánum frá Evrópusambandinu. Þrátt
fyrir vilyrði ESB um aðstoð um
helgina lækkaði matsfyrirtækið
Fitch t.d. tvo spænska banka í ein-
kunn á mánudag, bankana Santander
og BBVA, úr A í BBB, og sagði horf-
ur þeirra neikvæðar. Óttast mark-
aðsaðilar keðjuverkun sem endað
gæti í óefni fyrir spænska ríkið verði
ekkert að gert.
Kosningar í Grikklandi
spurningarmerki
Annar óvissuþáttur sem skekur
markaði tengist útkomu kosninganna
í Grikklandi um næstu helgi. Stjórn-
arandstöðuflokkurinn Syriza mælist
þar með mikið fylgi en hann er and-
snúinn aðhaldsaðgerðum núverandi
stjórnvalda. Óttast fjárfestar að
komist Syriza til valda sé útséð með
frekari þátttöku Grikkja í evrusam-
starfinu með tilheyrandi byltu fyrir
önnur lönd svæðisins. Velta menn
fyrir sér hvort Ítalir yrðu þá næstir
til að leita ásjár ESB. Samkvæmt
nýjustu tölum dróst ítalska hagkerfið
saman um 0,8 prósent á fyrstu þrem-
ur mánuðum ársins 2012.
Hreyfingar á mörkuðum
Eins og reiknað hafði verið með
fóru viðskipti á verðbréfamörkuðum í
Asíu og Evrópu vel af stað eftir frétt-
ir helgarinnar. Víða hækkuðu vísitöl-
ur við upphaf viðskipta en heldur dró
þó úr hækkunum þegar leið á daginn
og höfðu flestar gengið til baka við
lokun markaða. Ávöxtunarkrafa á
ítölsk og spænsk skuldabréf hækkaði
einnig yfir daginn, sem sýnir glöggt
að áhyggjum fjárfesta af ástandi
mála í báðum löndum hefur síst linnt.
Lítið vitað um skilyrði lán-
veitingar ESB til Spánar
Mikil óvissa á evrusvæðinu Afdrifaríkar kosningar framundan í Grikklandi
Búsáhaldabylting Á Spáni var umleitan stjórnvalda eftir aðstoð Evrópusambandsins harðlega mótmælt í gær.
AFP
Óvissan enn til staðar
» Óvissunni síst eytt á Spáni
þrátt fyrir lánveitingu ESB.
» Skilmálar og endanleg fjár-
hæð lánveitingarinnar liggja
ekki fyrir.
» Óljóst til hvaða aðgerða
spænsk yfirvöld hyggjast grípa
heima fyrir.
» Kosningar í Grikklandi um
næstu helgi gætu reynst af-
drifaríkar.
» Áfram hriktir í stoðum evru-
svæðisins.
» Verður Ítalía næst til að leita
ásjár?
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./-
+00.00
+,/.12
,+.34/
,+.2/4
+-.+-3
+24.12
+.1+31
+04.04
+1+.11
+,-.-0
,55.4-
+,1
,+.-50
,+.4+3
+-.,4
+2/.5+
+.1,,2
+0/./,
+1,.++
,,2.-3+1
+,0.,
,55.03
+,1.23
,+.-32
,+.4-
+-.,02
+2/.20
+.1,3
+01.+
+1,./1
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala
Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja
eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5, 105 Rvk
533 4200
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali