Morgunblaðið - 12.06.2012, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 12.06.2012, Qupperneq 19
AFP Deilt um hjónavígslur Turn Frels- arakirkjunnar í Kaupmannahöfn. Danskir biskupar eru ekki allir á eitt sáttir um með hvaða hætti hjóna- vígsla samkynhneigðra skuli fara fram í kirkjum landsins. Í vikunni sem leið samþykkti danska þingið breytingu á hjúskaparlögum sem veitir samkynhneigðum jafnan rétt á við gagnkynhneigða. Tíu biskupar eru í Danmörku og hafa þeir unnið að því að setja saman helgisiðareglur fyrir athöfnina. Út- færslan snýst fyrst og fremst um orðalag í athöfninni, en samkvæmt lögunum á að nota hugtökin hjón (d. ægtepar) og hjónaband (d. ægte- skab) um samkynhneigða líkt og gagnkynhneigða. Ekki eru þó allir á eitt sáttir um þetta og vildu sumir til dæmis nota orðið lífsförunautar. Aðeins milli karls og konu? Samkomulag hefur náðst milli átta af tíu biskupum landsins um hvernig hjónavígslur samkynhneigðra fari fram, en tveir eru á móti. Politiken hefur eftir öðrum þeirra, Steen Skovsgaard í biskupsdæmi Lolland- Falster, að í hans huga geti hjóna- band aðeins verið milli karls og konu. Biskupinn í Ribe, Eliabeth Dons Christensen, bendir hins vegar á, í samtali við Politiken, að ríkisstjórnin hafi þegar ákveðið að nota skuli orðin hjón og hjónaband og kirkjunnar menn verði því að ná samkomulagi. „Ef við viljum ekki að klofningur verði milli ríkis og kirkju þá verðum við að sættast á þetta. Þá köllum við þetta hjónaband.“ Lögin taka gildi frá og með föstu- deginum 15. júní næstkomandi og má gera ráð fyrir að fyrsta hjónavígsla samkynhneigðra í Danmörku verði þann sama dag. una@mbl.is Vilja ekki kalla sam- kynhneigða „hjón“  Biskupar deila um hvernig hjóna- vígsla samkynhneigðra eigi að fara fram FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2012 Moskvu. AFP. | Lögreglumenn, vopnaðir rifflum, réðust í gær inn á heimili tíu stjórnarandstæðinga sem hafa staðið fyrir mótmælum gegn ráðamönnunum í Rússlandi. Stjórnarandstæðingar sögðu að lögreglan hefði tekið mennina til yfirheyrslu til að fæla fólk frá því að taka þátt í götumótmælum sem ráðgerð eru í dag. Frá því að Pútín komst til valda fyrir tólf árum hefur honum aldrei stafað jafnmikil ógn af stjórnarandstæð- ingum og nú vegna andófs mannanna sem voru hand- teknir í gær, að sögn fréttaskýrenda. Á meðal þeirra sem voru handteknir eru Alexej Navalní, 35 ára rússneskur bloggari, sem er nú álitinn helsti leiðtogi stjórnarandstöð- unnar í Rússlandi og sá eini sem geti sameinað sundur- leita hópa stjórnarandstæðinga, svo sem frjálslynd öfl, þjóðernissinna, ungt fólk og gamalt. Navalní hefur haldið uppi vinsælli bloggsíðu í nokkur ár þar sem hann hefur gagnrýnt spillingu í ríkisfyrirtækjum og einræðistilburði ráðamanna undir forystu Pútíns. Á meðal annarra sem voru handteknir eru sjónvarps- stjarnan Ksenja Sobtsjak, dóttir fyrsta lýðræðislega kjörna borgarstjóra Pétursborgar, Anatolís Sobtsjaks. „Þeir taka öll raftæki, jafnvel diska með myndum af börnunum mínum,“ sagði Navalní á samskiptavefnum Twitter eftir að lögreglumenn réðust inn á heimili hans. Borgaryfirvöld höfðu heimilað allt að 50.000 manna mótmæli, sem eiga að fara fram í Moskvu í dag, áður en mennirnir tíu voru teknir til yfirheyrslu. „Þeir eru að reyna að hindra mótmælagönguna og sjá til þess að færri taki þátt í henni,“ hafði Interfax eftir Lev Ponomarjov, sem hefur barist fyrir mannréttindum í Rússlandi. Þjarmað að fjendum Pútíns  Lögreglan réðst inn á heimili stjórnarandstæðinga daginn fyrir mótmælagöngu Viðurlögin hert » Stjórnvöld í Moskvu gripu til þess ráðs að herða viðurlög við mótmælum eftir fjöldamót- mæli í maí. » Hámarkssekt fyrir að skipu- leggja mótmæli nemur nú jafn- virði tæpra 4,2 milljóna króna og fyrir að taka þátt í mótmæl- um andvirði 1,2 millj. kr. Hvítrússneskar konur í þjóðbúningum dansa á heiðinni hátíð, sem nefnist Rúsalje, í þorpinu Sosní, um 170 kíló- metra frá Minsk. Hátíðin er helguð vatnadísum sem líkjast hafmeyjum. Samkvæmt hvítrússneskri þjóðtrú rísa dísirnar upp úr vötnunum á vorin og sumrin, ganga yfir tún og engi til að heimsækja þorpið. AFP Kvennablómi á heiðinni hátíð í Hvíta-Rússlandi Dísir rísa upp úr vötnunum „Fundurinn með Breivik var næst- um því eins og að hitta Hannibal,“ segir norski sál- fræðingurinn Ei- rik Johannesen og skírskotar til mannætunnar úr hryllingsmynd- inni „Lömbin þagna“. Johann- esen ræddi við Anders Behring Breivik í 26 klukkustundir í fang- elsi og bar vitni í réttarhöldunum í Ósló yfir fjöldamorðingjanum í gær. Johannesen kvaðst vera „full- viss“ um að Breivik væri sakhæfur og hefði framið fjöldamorðin í Ósló og Útey vegna pólitískra öfga, en ekki vegna geðveiki. „Í ljósi hug- myndafræði hans tel ég ekki að hægt sé að lækna hann með sál- fræðimeðferð eða lyfjum,“ sagði hann. Réttargeðlækna greinir á um hvort fjöldamorðinginn sé sakhæf- ur. Tveir geðlæknar komust að þeirri niðurstöðu að Breivik væri ósakhæfur vegna ofsóknargeðklofa en tveir aðrir réttargeðlæknar töldu að hann væri sakhæfur. „Næstum því eins og að hitta Hannibal Lecter“ Hugsi Dómari í máli Breiviks. NOREGUR Breska forsætis- ráðuneytið stað- festi í gær fréttir fjölmiðla um að David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, og eiginkona hans hefðu skilið átta ára dóttur sína eftir á krá í u.þ.b. 15 mínútur vegna misskilnings sem komið hefði upp á milli þeirra. Cameron snæddi hádegisverð með fjölskyldu sinni á kránni og hjónin áttuðu sig ekki á mistökunum fyrr en þau komu heim til sín. Ekkert amaði að stúlkunni. Skildu stúlkuna eftir á kránni David Cameron BRETLAND Gordon Brown, fyrrverandi for- sætisráðherra Bretlands, gagnrýndi dagblöð Ruperts Murdochs í gær þegar hann svaraði spurningum nefndar sem rannsakar vinnubrögð og siðferði í breskum fjölmiðlum og samskipti þeirra við stjórnmála- menn. Brown sagði að það væri „fárán- legt“ að halda því fram að Murdoch hefði haft óeðlileg áhrif á stefnu ríkisstjórnar breska Verkamanna- flokksins. Brown neitaði einnig full- yrðingu Murdochs um að hann hefði hringt í fjölmiðlajöfurinn og hótað „stríði“ gegn fyrirtækjum hans eftir að dagblaðið The Sun ákvað að styðja Íhaldsflokkinn fyrir þing- kosningar árið 2010 eftir að hafa stutt Verkamannaflokkinn. Brown gagnrýndi einnig The Sun fyrir að birta frétt árið 2006 um að sonur hans væri haldinn arfgengum sjúkdómi og neitaði fullyrðingu fyrr- verandi ritstjóra blaðsins um að eiginkona Browns hefði heimilað birtingu fréttarinnar. Brown deilir á blöð Murdochs  Vinnubrögð The Sun gagnrýnd

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.