Morgunblaðið - 12.06.2012, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.06.2012, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2012 ✝ RagnheiðurErlendsdóttir fæddist í Reykjavík 2. maí 1933. Hún andaðist á Hjúkr- unarheimilinu Eir 2. júní 2012. Hún var dóttir hjónanna Eyrúnar Runólfsdóttur, f. 1909, d. 1979 og Erlendar Þórð- arsonar, f. 1905, d. 1986. Ragnheiður var næstelst í fjögurra systkina hópi. Elstur er Hafsteinn, f. 1932, Þóra Sig- urbjörg, f. 1939 og Þórey, f. 1945. Ragnheiður giftist Elíasi Þor- valdsyni og eignuðust þau sam- an soninn Ásgeir en þau slitu samvistum. Ragnheiður gekk í hjóna- band með eftirlifandi eig- inmanni sínum, Birni Jóhanni Haraldssyni rafmagnstækni- fræðingi, f. 1928, þann 21. júlí 1955. Þau eignuðust fjórar dæt- ur og ólu upp börnin fimm sam- an. Þau eru: 1) Ásgeir, f. 1949, d. 2007, maki Soffía Guðmunds- dóttir, f. 1948, d. 2010, synir þeirra eru Þorvaldur og Guð- mundur Ægir. 2) Hólmfríður, f. 1955, maki Sævar Sveinsson, börn þeirra eru Ragnheiður, Jón Ægir, María Sif, Halldór, Sandra og Særún. 3) Linda, f. 1956, maki Magnús Dan Bárðarson, börn þeirra eru Magnea, Erlendur Þór og Eyrún. 4) Lára, f. 1958, maki Gunnar Sæmunds- son, börn þeirra eru Björn Jóhann og Edda Björk. 5) Eyrún, f. 1969, maki Stefán Gunnarsson, börn þeirra eru Jónas og Signý. Ragnheiður var dugleg til vinnu og lét sjaldan verk úr hendi falla. Lengi vann hún hjá Norræna húsinu og sá um kaffi- stofuna ásamt því að útbúa margar dýrindisveislur þar sem og annars staðar. Síðustu starfsárin sín vann hún á sölu- skrifstofu Myllunnar. Hún var félagslynd og gekk í Oddfellow- regluna, Rebekkustúkuna Sig- ríði nr. 4 árið 1981 og starfaði þar af miklum áhuga á meðan heilsa hennar leyfði. Útför Ragnheiðar Erlends- dóttur fer fram frá Áskirkju í dag, 12. júní 2012, og hefst at- höfnin kl. 13. Það var erfið stund að frétta af andláti mömmu, hafa ekki verið hjá henni, þegar hún kvaddi. Það voru blendnar tilfinningar, sorgin við að kveðja og gleði yfir því að nú þyrfti hún mamma ekki að kvelj- ast lengur, nú er hún laus undan alzheimerssjúkdómnum en sl. 2 ár hafa verið henni erfið, og ekki síst pabba sem staðið hefur eins og klettur við hlið hennar. Það var ekkert sem hún mamma gat ekki, því hún var al- gjör ofurkona, sama hvað hún tók sér fyrir, hún hafði einfaldlega töfrahendur, það sem hún gat ekki hrist fram úr erminni! Hún var frábær ferðafélagi, alltaf jákvæð og til í allskonar æv- intýri. Ég held að hún hafi ekki óttast neitt, nema þá kóngulær. Ég er þakklát fyrir allar stundirn- ar sem við höfum átt saman og minningarnar sem ylja mér og fjölskyldu minni um hjartarætur. Ég veit að það hefur verið tekið vel á móti mömmu á æðri stöðum, og mikill fagnaðarfundur, það liggur við að ég heyri ískrið í ykk- ur Ásgeiri, Deddu, ömmu og afa. Mömmu, tengdamömmu, ömmu og langömmu verður sárt saknað, en við munum verma okk- ur við minningarnar um ofurkon- una sem hún mamma var. Við vilj- um þakka fyrir allt og allt, elsku mamma, hvíl í friði. Þín dóttir, Hólmfríður Björnsdóttir. Þótt augun séu rök og röddin klökk er rekja vil ég minninganna stig. Ég minnist þess í bljúgri bæn og þökk hve bjart var, elsku mamma, kringum þig. En orð og tár þau eru líkt og hjóm. Þú allt það besta vildir gefa mér. Ó móðir kær, ég bind í sveiginn blóm og bænir mínar helga vil ég þér. (Höf. ók.) Elsku mamma mín! Takk fyrir allar yndislegu stundirnar sem við höfum átt sam- an og allt það góða sem þú kenndir mér í lífinu. Nú er ferðalaginu okkar saman lokið og þú heldur í þína reisu. Góða ferð elsku mamma mín, þín er sárt saknað. Eyrún Björnsdóttir. Í dag kveðjum við elsku Ragn- heiði, það var sannur heiður að fá að kynnast þessum frábæra per- sónuleika sem hún bar. Alltaf svo virðuleg og gestrisin. Að koma í Reyrengið til ykkar Björns var ávallt skemmtilegt. Rætt var um heimsins mál, þótt við Ragga mín værum 40 árum yngri þá var samt gefinn tími til að hlusta og tala saman og spekúlera í þeim störf- um og námi sem við vorum að vinna að. Mín fyrstu kynni eða sýn af ykkur hjónum var á þjóðhátíð Vestmannaeyja árið 1999. Ég þá starfandi í veitingasölu eða kjúk- lingatjaldinu á þjóðhátíð eins og sumir kölluðu það. Þið komuð prúðbúin eins og venja var hjá ykkur og spurðuð um ýmislegt sem var til sölu en keyptuð þó ekki neitt. Þegar spurningar voru bún- ar hjá þér og ykkur Birni, þökk- uðuð þið fyrir og sögðu gaman að sjá þig og takk aftur fyrir þessar góðu upplýsingar. Ég furðaði mig mikið á þessum heiðurshjónum. Ekki leið á löngu áður en ég skildi þessa heimsókn ykkar, það var auðvitað til að skoða nýja kærast- ann hennar Röggu ykkar (barna- barn). Mikið höfum við oft hlegið að þessum sögum saman og rifjað upp okkar fyrstu kynni. Margar margar fleiri minning- ar væri hægt að rifja upp hér en ég læt það þó bíða betri tíma, þeg- ar við hittumst á ný. Ég hef nefni- lega þá trú að þú sért komin á góð- an stað, þar sem við öll munum sameinast á ný. Ég mun gæta garðsins sem þú hafðir svo gaman af að vinna í á sumrin hér í Reyrenginu. Við er- um afar þakklát að hafa keypt Reyrengið fyrir tveimur árum af ykkur Birni og höfum því minn- inguna um þig áþreifanlegri. Elsku Björn, dætur, tengda- synir, barnabörn og barnabarna- börn; megi minningin lifa um góða konu sem hún Ragnheiður var og allar góðar vættir vaka yfir ykkur. Samúðarkveðja, Friðþór Ingason. Elskuleg tengdamóðir mín er komin í náttstað eftir viðburðaríkt ferðalag. Ragnheiði kynntist ég fyrir bráðum 28 árum, þegar leiðir okk- ar Eyrúnar lágu saman. Ég var 17 ára og Eyrún rétt nýorðin 15 ára þegar þetta var. Við höfðum farið saman í skíðaferð til Austurríkis með Skíðadeild Ármanns og notað tímann til að æfa fleira en alpa- greinar. Skömmu síðar kom ég í fyrsta skiptið í Eikjuvoginn, á heimili þeirra Björns og Ragn- heiðar, til að hitta unnustuna. Við Eyrún höfðum ekki sagt nokkrum manni frá okkar sambandi og ég var því kvíðinn að hitta foreldra hennar í fyrsta sinn. Sá kvíði reyndist alveg ástæðulaus, því þau hjónin tóku á móti mér eins og gömlum vini. Síðar spurði Eyrún móður sína hverju þetta sætti og þá svaraði hún: „Elskan mín, held- urðu að ég hafi ekki séð hvað var á milli ykkar um leið og þið stiguð út úr flugvélinni í Keflavík.“ Þarna var henni svo sannarlega rétt lýst, þessari greindu og um- burðarlyndu konu með breiða bak- ið og stóra hjartað. Þegar Eyrún greindi móður sinni frá því rúmum tveimur árum síðar að hún væri ólétt, þá voru viðbrögð hennar í svipuðum dúr: „Ég er nú búin að vita af því í nokkurn tíma.“ Ragn- heiður var börnum okkar, þeim Jónasi og Signýju, frábær amma og mikil fyrirmynd. Aldrei féll henni verk úr hendi, hvort sem það var í eldhúsinu eða við saumavél- ina. Það var enginn svikinn af því að fá mjúkan jóla- eða afmælis- pakka frá ömmu Ragnheiði. Ég bar ávallt mikla virðingu fyrir Ragnheiði og við urðum miklir vin- ir. Við gátum rökrætt og jafnvel þrætt um menn og málefni, en allt- af lá kímnin og lífsgleðin undir niðri hjá Ragnheiði. Ógleymanleg- ar eru margar fjallaferðirnar með þeim tengdaforeldrum mínum, hvort sem grillað var í grenjandi rigningu undir öskutunnuloki í Þórsmörk eða legið í sólbaði efst á Tindfjallajökli. Ragnheiður unni íslenskri náttúru og tjaldútilegur voru órjúfanlegur þáttur af tilveru hennar. Hún þurfti engan lúxus og gat galdrað fram veislukvöldverð af litlum gasprímus. Ragnheiður og Björn voru ein- staklega samstillt hjón og fjöl- skyldan afar náin og samheldin. Eftir að við Eyrún og börnin flutt- umst norður í Mývatnssveit lengd- ist aðeins á milli heimsókna til tengdaforeldranna, en nú ertu nær okkur en áður, Ragnheiður mín, því það er svo stutt héðan til himnaríkis. Elsku Bjössi, hún Ragnheiður er lögst til hvílu, en við yljum okk- ur við minninguna um yndislega konu. Stefán Gunnarsson. Í dag kveð ég hana Ragnheiði ömmu með söknuði. Það kemst enginn með tærnar þar sem hún amma mín hafði hælana hvað varð- ar eldamennsku, hannyrðir eða glæsileika. Hún hristi heilu veisl- urnar fram úr erminni án þess að blikna, hún saumaði ósjaldan föt á barnabörnin. Þegar ég fermdist fannst henni nú lítið mál að sauma á mig fermingarfötin, þó með einu skilyrði og það var að hún fengi að sauma á mig pils. Henni fannst nefnilega alveg ómögulegt að stelpur væru í buxum innan undir fermingarkyrtlunum. Þannig var hún Ragnheiður amma, alltaf smart í tauinu og vel tilhöfð. Ég man að ég gerði oft grín að þér þegar þú baðst mig að koma út í búð með þér, óralöng bið tók við að bíða eftir að þú værir búin að gera þig fína, því þú lést aldrei sjá þig á almannafæri öðruvísi en vel tilhafða. En veistu hvað, ég er að verða alveg eins og þú, ég læt heimilisfólkið bíða eftir mér á með- an ég hef mig til þó ég sé bara að fara út í búð eins og þú gerðir. Minningarnar um þig eru ótal margar og gæti ég skrifað heila bók um allt það sem við gerðum saman. Þó eru minningarnar um síðustu ár mér kærastar, þegar þú droppaðir inn í kaffi, þegar við og afi bökuðum skinkuhornin frægu fyrir jólin, áður en þú varðst of veik til að geta tekið þátt í því með okkur, en þá bakaði ég þau bara og kom með þau til ykkar. Vænst af öllu þykir mér þó að geta haldið Ragnheiðar-nafninu áfram í húsinu ykkar og ætla ég að gera mitt besta til að heiðra minn- ingu þína með veisluhöldum, gleði og hlátri eins og þú varst vön að gera. Elsku Ragnheiður amma, takk fyrir allar yndislegu stundirnar sem við áttum saman, ég vona að þú sért komin á betri stað þar sem þú færð að blómstra á ný. Ástarkveðja, elsku Ragnheiður amma. Þín nafna, Ragnheiður Jónsdóttir. Elsku mamma, tengdamamma, amma og langamma, minning þín lifir. „Þegar einhver deyr breytist ský í engil, engillinn flýgur til að segja Guði að nú skuli setja annað blóm á kodda. Fugl kemur skila- boðunum til heimsins og syngur hljóða bæn sem fær regnið til að gráta. Fólk hverfur en fer í raun aldrei, andarnir halda áfram, þeir setja sólina í rúmið, vekja grasið og snúa jörðinni í hringi. Stundum sérðu andana að degi til dansandi á skýjunum þegar þeir eiga að vera sofandi. Þeir mála regnbogann og sólsetrið, þeir berja sjónum að bjarginu, þeir kasta hrapandi stjörnum og hlusta á óskir okkar. Og þegar þeir syngja söngva vindsins hvísla þeir til okkar: „Ekki sakna mín of mikið, útsýnið er frábært og mér líður vel.““ (Höfundur óþekktur) Linda, Magnús, Magnea, Guð- mundur Óli, Erlendur Þór, Sól- veig, Eyrún og litlu dúllurnar. Elsku amma. Þegar við lítum um öxl og hugs- um um allar þær góðu stundir sem við áttum með þér getum við ekki annað en verið þakklát. Minning- arnar eru svo ótal margar og flest- ar þeirra töfra fram bros eða hlát- ur hjá okkur systkinum. Það er eflaust leitun á ömmum sem hafa tekið U-beygju í Ártúns- brekkunni því það rifjaðist upp fyrir þeim að það væri ísbúð nær heimili þeirra. En þetta gerðir þú, elsku amma. Allar útilegurnar sem við vorum saman í eru ógleymanlegar sem og ferðalögin upp á Arnavatnsheiði og Núpstað- arskóg. Þú bakaðir heimsins bestu fylltu horn sem við slógumst um að borða að ólöstuðu heita súkku- laðinu þínu sem alls ekki mátti kalla kakó. Auk þess varstu töfra- kona með saumavélina þína að vopni. Efnisstrangar breyttust í glæsiflíkur í þínum höndum og þú varst ansi lunkin við að breyta, bæta og laga eldri flíkur. Elsku amma. Þessar minningar og svo ótal margar aðrar koma fram í huga okkar. Minningarnar eru svo margar að þær verða ekki allar settar á blað en við munum geyma þær í hjörtum okkar. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur, elsku amma. Minning- in um þig mun lifa áfram um ókomna tíð. Þín barnabörn, Edda Björk og Björn Jóhann. Ragnheiður Erlendsdóttir, elskuleg vinkona okkar, er látin eftir erfið veikindi. Við viljum minnast hennar fyrir vináttu við okkur og góða skapsins, sem aldr- ei var langt undan. Kynni okkar og eiginmanns hennar Björns J. Haraldssonar hófust árið 1985, en skömmu áður hafði sonur Signýjar, Stefán og yngsta dóttir þeirra Eyrún kynnst og hafa síðan gengið æviveginn saman. Viðkynning okkar við þau hjón þróaðist síðan í einlæga vináttu, með mörgum ánægjulegum sam- verustundum með fjölskyldum okkar og sameiginlegum barna- börnum, Jónasi og Signýju. Áhugi þeirra á ferðalögum um landið okkar var mikill, sá áhugi hefur erfst til afkomenda og fjöl- skyldna þeirra í ríkum mæli. Minnisstæð er ferð okkar með þeim hjónum, ásamt Stefáni, Ey- rúnu og barnabarninu Jónasi um Vestfirði í ágúst 1993. Veðrið lék við okkur þessa viku fyrir margt löngu en gist var í tjöldum. Oft er sagt að fólk kynnist aldrei betur en á ferðalögum, þar sem það er sam- an alla daga og reynt getur á sam- veruna. En ferðin öll varð aldeilis ógleymanlega skemmtileg í alla staði. Í þessari ferð og öðrum ferðalögum með þeim komu vel í ljós mannkostir Ragnheiðar, alltaf kát og brosmild og reiðubúin að hjálpa til á allan hátt. Og ekki má gleyma hversu mikil matmóðir hún var, alltaf fullt af nesti og fín- iríi. Fjölskyldan hefur verið ein- staklega samrýnd og barnalán Ragnheiðar og Björns mikið. Stef- áni var strax tekið sem einum af þeim og var hann fljótlega orðinn heimagangur í Eikjuvoginum, þar sem Ragnheiður og Björn bjuggu þá. Alltaf vorum við boðin innilega velkomin á þeirra heimili og Ragn- heiður töfraði fram heilu veislurn- ar, eins og hún hefði ekkert fyrir því. Oft voru gjafir til fjölskyldu hennar saumaðar eða prjónaðar af henni, en hún gerði tískuflíkur sem börn og barnabörn voru stolt af að bera. Ragnheiður var einstök húsmóðir. Nú að leiðarlokum minnumst við með söknuði okkar góðu vin- konu, sem lögð er af stað í sitt síð- asta ferðalag. Við sendum okkar kæra vini Birni, sem og fjölskyld- unni allri, innilegar samúðarkveðj- ur, en vitum að minningin um ynd- islega eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu mun ylja um alla framtíð. Blessuð sé minning hennar. Signý og Jón Magnús. Fallin er frá sómakonan Ragn- heiður Erlendsdóttir. Með þessum fáu línum vil ég þakka henni og þeim hjónum báðum fyrir allan mat sem ég hef hesthúsað, næt- urgistingar, saumaskap og annan viðurgjörning sem ég hef fengið frá því ég fyrst kom á þeirra heim- ili sem sjö ára skotta. Einnig allar jákvæðu ákvarðanirnar sem þær móðir mín og hún hafa þurft að taka bæði saman og sín í hvoru lagi. Oft höfum við vinkonurnar nú í seinni tíð undrast margar þeirra, en traust sýndu þær okkur alltaf og vona ég að við höfum verið þess verðar. Ég hef gengið inn og út af þeirra heimili alla tíð og hef oft sagt þeim öllum að ég væri fimmta systirin en Ásgeir stóri bróðir þeirra sem þau misstu allt of fljótt var að mínu áliti flottasti strák- urinn í hverfinu, líka svo stór. Kæri Björn og systur mínar fjórar Fríða, Linda, Lára og Ey- rún (sem okkur fannst koma svakalega seint) og fjölskyldur, innilegar samúðarkveðjur frá okk- ur Helga og kær kveðja frá mömmu og pabba Elsie og Teit. Ykkar Vilborg (Villa). Ragnheiður Erlendsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku langamma. Ég elska þig, það er gaman að geta átt heima í húsinu þínu. Ég skal passa það vel og líka langafa. Þú ert besta langamma mín, góða ferð í himininn. Þinn Ingi Steinn. Ég elska þig langamma, ég vona að þú hafir það gott. Það var gaman að vera alltaf saman og hlæja með þér og langafa, ég er stolt að hafa verið með þér í rauða liðinu á sl. ættarmóti, við vorum pæjurnar. Takk fyrir allar góðu stundirnar. Þín Fríða Rún. Elsku drengurinn minn. Í dag rifja ég upp að fyrir 40 árum fæddist þú, frum- burður minn og einkasonur, ynd- islega fallegur og heilbrigður dökkhærður drengur. Þú varst strax svo skýr og horfðir á okkur foreldra þína og heiminn stórum augum. Ég var svo ung, bæði yfir mig stolt og hálfhrædd við þessa miklu ábyrgð sem mér var nú á höndum, en við urðum strax góð saman og vorum það alla tíð. Þú svo ljúfur og góður drengur sem allt lék í Stefán Jónsson ✝ Stefán Jónssonfæddist í Reykjavík 12. júní 1972. Hann lést í Reykjavík 29. júlí 2007. Útför hans var gerð frá Langholts- kirkju 9. ágúst 2007. höndunum á, skynj- aðir og skildir svo vel alla hluti, aldrei þurfti að segja þér neitt nema einu sinni til að það skildist og væri geymt. Þau 35 ár sem ég fékk að hafa þig hér hjá mér varstu alltaf stolt mitt í lífi, námi og starfi, enn ertu stolt- ið mitt, það breytist aldrei. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að hafa þig hér þennan tíma, það eina sem ég sé eftir er að hafa ekki verið frekari á að hafa þig meira hjá mér eftir að þú fullorðnaðist. Ég hélt að tíminn okkar saman yrði nægur, ákvað að bíða róleg og leyfa þeim sem eldri voru að fá að njóta nærveru þinnar í ríkara mæli því þeirra tími væri bráðum kominn, þannig skyldi maður aldrei hugsa því það varð til þess að ég missti marga dýrmæta stund sem við hefðum getað átt saman. Síðasta árið þitt hér fékk ég samt að hafa þig hjá mér næstum daglega, hlúa að þér eins og mig langaði og mikið naut ég þess tíma, hann er mér dýr- mæt minning í dag. Nú ert þú 40 ára gamall og ég sé þig fyrir mér hér hjá okkur, hamingjusamur og ljómandi af heilbrigði og hreysti eins og þegar þú elsku drengurinn minn varst hrifsaður svo skelfilega á burt frá okkur fyrir tæpum fimm árum. Hvern dag hugsa ég til þín og hvað þú munir hafa fyrir stafni. Hvern dag sé ég þig koma í átt- ina til mín með fallega brosið þitt og útbreiddan faðminn. Hver dag- ur sem líður styttir tímann í að við hittumst aftur og sitjum saman og spjöllum sem fyrr. Ég trúi því að í dag gerir þú þér dagamun með fjölskyldunni þinni í Sumarlandinu og þar verði glatt á hjalla. Við fjölskyldan þín hér munum gera slíkt hið sama og rifja upp alla gleðina sem þú gafst okkur og við áttum saman. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Risastórt mömmuknús til þín elsku drengurinn minn og við sjáumst glöð og kát þegar þar að kemur. Ég sakna þín og elska þig að ei- lífu. Þín mamma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.